Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 15

Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 15
Vísir. Mánudagur 24. marz 1975. 15 Dagrún Kristjánsdóttir: AÐ SíLJA SÁL SÍNA Það eru sjálfsagt margir sem lenda i þvi einhvern timann á ævi sinni að þurfa að meta sál sina til fjár, og það trúlega oftar en einu sinni, sumir margoft. Ef til vill ummyndast andlitið á ýmsum i stórt spurningarmerKi með löngu — löngu — þanka- striki fylgjandi á eftir, við lestur þessa upphafs en þetta er engin misritun. Peningar eru taldir algengastur gjaldmiðill, til að kaupa og til að selja fyrir eða aðrir áþreifanlegir hlutir. Sennilega mun þó engin „verzl- unarvara” ganga kaupum og sölum i jafnrikum mæli og sálir mannanna, enda eðlilegt þvi lengi er hægt að selja þá sömu, það er meira en hægt er að gera með flest annað. Til eru þó ein- staka hérvillingar sem skilja ekki hagræðið i þessu og eru alveg ófáanlegir til að láta minnsta snefil af henni, þó að gull sé i boði, enda lenda þeir venjulega nokkuð neðarlega i mannfélagsstiganum og eru lit- ils virtir. Þeim er ekki treyst fyrir miklu, gott ef þeir fá að draga fram lifið i friði. Hinsvegar eru engin takmörk fyrir þvi hve langt þeir komast sem láta relluna snúast eins og vindurinn blæs i það og það sinn. Þeirra biður glæsileg framtið, silfurpeningarnir þrjátiu auk- ast og margfaldast i jöfnu hlut- falli við skikann sem seldur er af sálartetrinu, þ.e.a.s. þvi meir sem ménn ganga á bak orða sinna og tala þvert um hug sinn til að ná ákveðnum tilgangi, þvi betri tökum nær myrkra- höfðinginn á manninum, og á alltaf auðveldar og auðveldar með að láta hann gera að sinum vilja. Þetta fyrirkomulag getur sýnzt gott i augum þeirra, sem vænta einskis meir en þess, sem þeir geta klófest hér af auði og völdum, — þeim hlýtur að standa á sama um það ef þeim skjátlast og þeir verða að standa reikningsskil á orðum sinum og gerðum handan graf- ar? Ætli að mörgum verði ekki þá tregt tungu að hræra, þó að hún hafi i jarðvistinni hiaupið lipurlega réttsælis og rangsælis eftir hentugleikum? Það getur vel verið að mörgum finnist það gamaldags að tala um réttlæti og ranglæti og itreka þá hættu. sem mannkynið siglir nú hraðbyri i með illri breytni sinni. Þeim sem nota öll brögð til að koma sinni eigin ár vel fyrir borð, hvað sem öðrum liður, þeim finnst það hámark heimskunnar hjá hinum sem ekki nota sér sömu ómerkilegu aðferðirnar til að komast vel áfram. Það er sannarlega sorgiegt, að það skuli vera margfalt meiri likur fyrir þann að „komast áfram”, sem vandar ekki meðulin til þess, enda er það viða svo að það eru vissar „klikur” sem ENGIMN ER ILLA SÉDUR, SEM GENGUR NED ENDURSKINS NERKI ráða, t.d. i félögum, fyrirtækj- um og stofnunum, svo árum saman og sá hópui; sem er innan klikunnar er æði oft bundinn þeim böndum, sem nægir til að halda honum saman — gegn öðrum. Það eru einhver dular- full, leynileg öfl, sem tengja þetta fólk saman, — ég segi dularfull, þvi furðuleg leynd hvilir oft yfir ýmsum þáttum stofnana og félaga, sem enginn fær að hnýsast i utan klikunnar. Það má ekki spyrja um eitt eða neitt, þó ástæða sýnist til — annaðhvort er ekki svarað, eða farið i kring um rétta svarið, — eða að það er fyllilega gefið i skyn að spyrjanda varði ekki um málið. Það eitt gefur grunsemdunum byr undir báða vængi, ef ekki er haégt að gefa hrein svör og sönn. Það virðist vera svo, eftir þvi samanlögðu, sem stendur i blöðum, fregnir af svindli, stór- felldum fjársvikamálum o.fl. — þvi sem talað er og þvi sem maöur þekkir sjálfur til — að fá- ar stofnanir, fyrirtæki og félög séu laus við þann ófögnuð i ein- hverri mynd eða minna. Það er ekki nema von að þjóðfélag sem verðlaunar sviksemi, lygi og þjófnað og byggist næstum upp á undirferli og fláræði, verði vart einhverra erfiðleika. Það er opinbert leyndarmál að þeim gengur bezt að pota sér áfram sem vanda ekki meðulin og það sannar bezt hvernig ástndið er á flestum stöðum — sækjast sér um likir — segir máltækið. Ef ein og ein heiðarleg mann- eskja kemst af slysni of nærri þessum rotnu stofnunum eða félögum, þá eru fljótt gerðar ráöstafanir til að fjarlægja hana — hún má ekki kynnast fyrir- komulaginu of náið. Svarið liggur i augum uppi það hlýtur að vera óhreint mjöl i poka- horninu, og það er lika vægt til orða tekið. Það þyrfti að koma upp,, hreinsunardeild” er hefði það starf að rannsaka ofan i kjölinn fjárreiður fyrirtækja og stofnana og hvernig hlutunum er þar fyrirkomið, hvort það er i samræmi við lög og reglur, al- menna mannúð, heilbrigðis- reglur o.fl. o.fl. eftir þvi hvers eðlis fyrirtækið er, en allt þetta er sniðgengið eins og frekast er unnt sumstaðar til þess að fleiri krónum sé hægt að renna i eig- inn vasa, þeirra er stjórna. Það risa sjálfsagt margir öndverðir þessari fullyrðingu en ég væri ekki i neinum vandræðum með að skýra mál mitt nánar ef þörf krefur og get nefnt ýmislegt forvitnilegt fyrir þá sem eru svo saklausir að halda að þetta séu aðeins getsakir. Hinir sem vita sannleikann i þessu, eru sjálf- sagt ekkert sólgnir i að þessu sé lýst nánar og er vel hægt að skilja það, þvi að þó að þeir hinir sömu selji sál sina aftur og aftur vegna peninga eða stöðu — oftast hvort tveggja — þá vilja flestir gera það i kyrrþey, svo að geislabaugurinn hallist ekki um höfuð þeirra, i augum annarra. tílfurinn verður þvi að halda 'sauðargærunni sem lengst, án þess að nokkur komist nógu nærri til að gægjast undir hana, en vilji svo illa til, þá er úlfurinn lika fljótur til að glefsa og nota vigtennurnar með gapandi gini og þá er engin miskunn. Eigið skinn er alltaf það dýrmætasta og það varið með kjafti og klóm og þvi engu skeytt þó aðrir SAK- LAUSIR séu traðkaðir niður i staðinn. Það er heldur ekki spurt um það hvort það sé verðskulduð meðferð, enda ekki von, þvi að þeir sem tilbiðja kölska sjálfan, lúta honum i auðmýkt — þeim verður ekki óglatt af neinum smámunum — ÞAÐ ÞARF STÓRA HLUTI TIL AÐ OPNA AUGU ÞEIRRA. Vegurinn til glöturnarinnar er breiður og auðveldur, þess vegna fara fleiri hann — vegur- inn, sem liggur til himins er rnjór, þessvegna eru það færri sem finnaþann veg. Það er þvi eölilegt að þeir sem þræða mjóa veginn séu ofurliði bornir i baráttunni milli góðs og ills og það virðist allt benda til þess að spádómur Bibliunnar muni koma bókstaflega fram og sé byrjaður að rætast. Dómsdegi er lýst á þá iund að i byrjun auk- ist hverskonar spilling, rán, sviksemi, uppreisnir, styrjaldir, drepsóttir geysi, hungur og hverskyns hörmungar dynji yfir, jarðskjálftar, flóð og skriðuföll, eldsumbrot og stór- slys af ýmsu tagi. Það gr greinilega gefið i skyn að mennirnir sjálfir kalli þetta yfir sig vegna illsku sinnar. En nútimafólk trúir ekki á neitt nema sjálft sig, tignar ekkert nem auð og völd, hismi og hjóm — það trúir ekki á Dómsdag og það skilur ekki þann augljósa sannleika, að hið illa getur magnast svo að það tortimi og eyðileggi og vinni óbætanlegt tjón þvi lifi og menninga sem fram undir þetta hefur verið að blómgast. Endir alls er þegar byrjaður vegna illrar breytni mannanna — vegna rangrar hugsunar og of litillar trúar, það er sjálfskaparviti hvernig komið er, það þverfótar ekki fyrir úlfum i sauðargærum sem einskis svifast til að hlaða undir sjálfa sig — virða hvorki réttlæti, sannleika eða heiðarieik. Þeirra eigin sál er þeim einskis virði þvi þeir trúa aðeinsá hið efnislega,þeir hafa úthýst guðsneistanum i sjálfum sér og selt sig hinu illa. Hnignun mannkynsins fer eingöngu eftir hugarfari og breytni. eftir sömu leiðum getur það hafið sig upp að nýju, en til þess þurfum við að trúa þvi, að við höfum ódauðlega sál, sem eigi annað mikilvægara og göfugra erindi hingað en það að safna að okkur auði og völdum, — ef til vill með þvi að beita aðra rangindum og svikum. Það væri dapurlegt hlutskipti. Dagrún Kristjánsdóttir. Baðherbergisáhöld Gull- og krómhúðuð nýkomin i fjölbreyttu úrvali. Einnig allar gerðir af baðherbergisspeglum og öðrum speglum, með og án ramma. Speglabúðin Laugavegi 15 Simi 19635. SsítttQTTR lielgarimiar wf Xl^XXl/ HAGSÝISI HJÓN LATA KENWOOD VINNA ERFIÐUSTU HEIMILISSTORFIN Kenwood -chef Kenwaod -CHEFETTE Jjfemvood-Mini -HRÆRIVELAR KYNNIÐ YKKUR HINA ÓTRÚLEGU MÖGULEIKA, SEM KENWOOD-HRÆRIVÉLARNAR HAFAYFIR AÐ RÁÐA. HEKLAhf. Laugavegi 170-172 — Sin'i 21240 - GULI PARDUSINN (S) SHODR iwr 5-MANNA, TVEGGJA DYRA. VÉL 62 HESTÖFL. BENSÍNEYÐSLA 8.5 LlTRAR Á 100 KM. FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GÍRKSSI. GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 18,5 SEK. f 100 KM. Á KLST. INNIFALIÐ I VERÐI: HOFUÐPÚÐAR, RALLY- STÝRI, SPORTSTOKKUR, SNÚNINGSHRAÐA MÆLIR, OLlUÞRÝSTIMÆLIR, RAFMAGNSRÚÐUSPRAUTUR, BLÁSTUR Á AFTURRÚÐU, ÚTISPEGLAR, HALOGEN-LUKTIR O.M.FL. VERÐ MEÐ SOLUSKATTI KR. VERÐ TIL ORYRKJA KR. 6 79.000,00 499.000,00 TÉKKNESKA BIFRE/ÐAUMBODID Á ISLAND/ H/E AUÐBREKKU 44 - 46 S/M/ 42606

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.