Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 9
Visir. Mánudagur 24. marz 1975. 9 Stór skóli, — og árang- ursríkur Umferðarskólinn Ungir vegfar- endur státar liklega af fleiri nemendum en nokkur annar skóli á landinu. Börn á aldrinum 3-6 ára fá send verkefni skólans, og eru samtals 17.122 nemendur við skólann, en útsend verkefni þetta starfsárið verða um 90 þúsund' talsins. Kostnaður við skólann er greiddur af þeim 45 sveitarfélög- um, sem aðild eiga að skólanum. Rannsóknir á börnum i umferð- inni erlendis hafa sannað svo vart verður um villzt, að börn sem hafa glimt við svipuð verkefni og þau sem send eru börnum hér, eru mun hæfari i umferðinni. Gagnlegur upplýsinga- pési Æskulýðsráð hefur gefið út, handhægan og ágætan upp- lýsingapésa með upplýsingum um æskulýðsfélög og samtök i Reykjavik. Nefnist hann „Æsku- lýðsstarf”, undirtitillinn er „Félög og stofnanir”. Eru félögin flokkuð i bindindisfélög, iþrótta- félög, kristilegt æskulýðsstarf, skátafélög, ýmis félög og æsku- lýðsfélög stjórnmálaflokkanna. Hvorki meira né minna en 77 félög starfa að málefnum æskunnar i höfuðborginni, svo hver unglingur ætti að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Bæklingunum er dreift meðal allra 12-15 ára unglinga i skólum Reykjavikur. Enn ein sjálfvirk sim- stöð Liklega hafa sjálfvirku sim- stöðvarnar viða um land létt æði mikið pyngju sumra simglaðra fjölskyldna. En hvað um það, flestir fagna þvi vlst að komast I beint samband, — þ.e. ef linan er ekki I sifellu upptekin, eins og viða gerist. Nú hefur sjálfvirk stöð verið opnuð á Fáskrúðsfirði. Svæðisnúmer þar eins og annars staðar á Austfjörðum er 97, notendanúmerin þeirra Fáskrúðsfirðinga eru frá 5100 til 5299. Númerin eru þvi 200, en notendur eins og nú er 136. Fjöldi sveitalina er 21 á 3 linum, fjöldi vallina til hnútstöðvarinnar á Reyðarfirði eru 7 talsins. Skilið gjaldeyrinum, takk! Viðskiptaráðuneytið hefur birt auglýsingu þar sem varað er við að halda eftir erlendum gjald- eyri, sem Islendingar kunna að eignast. A gjaldeyrir allur að vera kominn i banka 20 dögum eftir að hann kemst i hendur manna. Þá er fjallað um fjár- festingar erlendis i auglýsing- unni. Aðilar búsettir hér á landi mega ekki fjárfesta erlendis i fasteignum eða verðbréfum. „Aðili búsettur hér á landi, sem nú á fasteign erlendis eða verð- bréf skal tilkynna það skriflega gjaldey riseftirliti Seðlabankans til skráningar, ekki síðar en 1. ágúst n.k. Þorsteinn safnar fé Þorstein nokkurn Viggósson má alltaf af og til lesa um I dönsku blöðunum. Þetta er ís- lendingurinn, sem er gifturikur eigandi tveggja frægra klúbba i Kaupmannahöfn. 1 nýjasta blaði Se og Hör var sagt frá þvi að Þorsteinn Viggós- son, veitingahúsaeigandi (skráð- ur sem þjónn i simaskránni) hafi efnt til skyndisöfnunar á diskó- teki sinu Bonaparte, þegar þar var haldið upp á fimm ára afmæli staöarins. Árangurinn hafi orðið 2000 danskar krónur eða um 56 þúsund islenzkar krónur, sem færðar voru blaðinu Se og Hör, vegna styrktarsöfnunar, sem blaðið hafi efnt til. Byggðamól og iðnaður Frjáls verzlun, 2. tbl. 1975 sem er nýkomin út, flytur að vanda fjölbreytt efni um menn og málefni, og má þar fyrst nefna grein um þjóðartekjur okkar. Þá má nefna grein eftir George Young, ráðgjafa Frlverzlunarsamtaka Evrópu EFTA. Grein er um flugfélagið SAS. Grein er eftir dr. Guðmund Magnússon. Samtlðarmaðurinn að þessu sinni er Gunnar Snorrason, kaupmaður. Sagt er frá nýmungum hjá Flugfélagi tslands I sambandi við helgarferðir I innaniandsflugi. 1 nýjum þætti um islenzkan iðnað er að þessu sinni fjallað um plastiðnaðinn og einnig er þar grein um ört vaxandi hlutdeild iðnaöar I út- flutningi. Byggðarþáttur þessa blaðs er frá Suðurnesjum. Þá eru kynntar nýjar skrifstofuvélar og að lokum má svo minna á hina vinsælu þætti blaösins: t stuttu máli og Orðspor. Frjáls verzlun kemur út mánaðarlega. Frjáls verzlun býður yður velkomin I hóp fastra áskrifenda. Til Frjálsrar verzlunar, Laugavegi 178. Óska eftir áskrift að Frjáisri verzlun, pósthóif 1193, Rvik. Nafn. Heimiiisfang sjn,j Útgefandi: Frjálst Framtak h.f. Laugavegi 178 - Símar 82-300 og 82-302 ...... Nýir og sólaðir sumarhjólbarðar i miklu úrvali á hagstæðu verði Hjólbarðasalan Borgartúni 24 — Simi 14925. (Á horni Borgartúns og Nú láfum við phiups ÚTVARP fqlgja öllum mjjum FORD bílum sem pantanir eru staðfestar á fgrir mánaðamót SVEINN Skeifunni 17 EGILSSON HF sími 85100 Húsbyggjendur — Einangrunarplast Getum afgreitt einangrunarpiast á Stór-Reykjavlkur- svæðið með stuttum fyrirvara Afhending á byggingarstað. Hagkvæmt verð. Greiðsiuskilmálar. Verulegar verðhækkanir skammt undan. Borgarplast h.f. Borgarnesi Simi 93-7370 Helgar- og kvöidsimi 93-7355. Vegna jarðarfarar Jóhannesar Eliassonar bankastjóra verður bankinn lokaður þriðjudaginn 25. marz milli kl. 1 og 3.30. Útvegsbanki islands Fiskveiðasjóður islands. ® SHODII IfOÍ 5-MANNA, FJÖGURRA DYRA. VÉL 53 HESTÖFL. BENSlNEYÐSLA 7.7 LiTRAR Á 100 KM. FJÖGURRA HRAÐA ALSAMHÆFÐUR GiRKASSI. GÓLFSKIPTING. VIÐBRAGÐ 20 SEK. Í 100 KM. Á KLST. VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI KR. 582.000,00 VERÐ TIL ÖRYRKJA KR. 418.000,00 TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐID Á ÍSLAND/ H/E AUÐBREKKU 44-6 SfMI 42600 KÓPAVOGi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.