Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 11

Vísir - 24.03.1975, Blaðsíða 11
Visir. Mánudagur 24. marz 1975. Þróttur upp eftir 13 óra dvöl í 2. deild! Laugavegi 103 — Við Hlemm Simi 16930 Margra áratuga reynsla tryggir góða þjónustu Allt heimsþekkt merki Utsölustaðir víða um land FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 . Reykjavík . Sími 8 46 70 Nú — Jakkar á tveggja metra háa menn. Einnig skyrtur í extra ermalengdum. Bjarni Jónsson gnæfir hátt yfir KR-inginn og sendir knöttinn i mark. Ljósmynd Bjarnleifur. PUMA íþróttatöskur — 10 gerðir Einnig hliöartöskur meö isl. og enskum félagsmerkjum. Bláar, rauöar, orange, grá- ar, gular, svartar, hvitar. Verö frá kr. 930,- Sportvöruverzlun Ingólfs óskarssonar KUppantift 44 — Simi 11783 — Reykjavlk MUNIÐ RAUÐA KROSSINN „Það hefur verið mjög ánægju- legt að vinna meö Þrótturunum i vetur, enda allir unniö sem einn maður að þvi takmarki að sigra i deildinni og komast upp i 1. deild. Hvortég þjálfa og leik með Þrótti þar, er ekki ákveðið. En ef ekki verða stórvægilegar breytingar á minum högum, reikna ég frekar með þvi.” Þetta sagði Bjarni Jónsson — maðurinn á bak við sigur Þróttar I 2. deild tslandsmótsins i hand- knattleik karla i ár er við spjöll- uðum við hann eftir sigur Þróttar yfir KR á laugardaginn. Þróttur varð að sigra i þessum leik eða i það minnsta að ná jafn- tefli. Sigur KR hefði þýtt aukaleik á milli Þróttar og KA. ,,Ég var dauðhræddur við KR- ingana fram i það siðasta”, sagði Bjarni. ,,Ég hefði ekki viljað lenda i þeim, ef þetta hefði verið hreinn lirslitaleikur milli okkar. Við slikar aðstæður eflast KR- ingar oftast um allan helming.” Þrótturhafðiyfirihálfleik 10:8, en KR komst næst i eins marks mun i sfðari hálfleik — 13:12 — en Þróttararnir sneru stöðunni i 19:13 á skömmum tima og tryggðu sér þar sigurinn. KR náði að minnka i 2 mörk rétt fyrir lok- in, en Þróttur átti siðasta skotið og markið —22:19...... Þrettán ár eru liðin siðan Þrótt- ur lék I 1. deild siðast — það var 1962, sem Þróttur féll niður. Þá lék Guðmundur Gústafsson i markinu hjá Þrótti og hann gerir það enn i dag. Þetta er i þriðja sinn, sem hann fer upp i 1. deild með Þrótti i handboltanum — fyrir 1962 var Þróttur tvisvar I 1. deildinni. En nú á að hætta öllum ,,jó-jó- leik”. Þróttur ætlar að setjast að i 1. deildinni frá og með þessari helgi, og það er ekki fráleitt að ætla, að það standi með þann mannskap, sem Þróttur á nú i eldri og yngri flokkunum. Röðin I 2. deild varð þessi: ÞRÓTTUR, KA, KR. Niður i 3 deild fellur STJARNAN. —klp— Sigrún sá um mörkin og titillinn var Vals! Valsstúlkurnar tryggðu sér is- landsnieistaratitilinn f hand- knattleik kvenna á laugardaginn með jafntefli við Fram f sfðasta leik liðanna i deildinni i ár. En titillinn hékk á bláþræði undir lokin, þvi Framstúlkurnar voru nálægt þvi að vinna, og það hefði þýtt nýjan úrslitaleik. Valur hafði yfir i hálfleik 6:4, en Fram jafnaði komst yfir i 8:7 snemma i siðari hálfleik. Taug- arnar hjá báðum höfðu verið hátt spenntar fyrr i leiknum, en eftir að Fram jafnaði og komst yfir, urðu þær eins og fiðlustrengir. Heldur voru þær þó slakari hjá Valsstúlkunum — þær skoruðu næstu tvö mörk og komust þá aftur yfir. En Fram jafnaði i 9:9. Þá skoraði Sigrún Guðmunds- dóttir — bezta handknattleiks- kona landsins — fyrir Val en Arn- þrúður Karlsdóttir jafnaði 10:10. Aftur skoraði Sigrún, en Guðrún Sverrisdóttir jafnaði i 11:11. Þá var um minúta eftir og Vals- stúlkurnar með boltann. Upphlaupið mistókst, og Fram náði boltanum, en fékk. ekki ráörúm né tlma til að skora sigur- markið. Þetta var eina stigið, sem Valur tapaði i mótinu — flesta aðra leiki unnu Valsstúlkurnar með miklum mun, og voru þær þvi vel að titlin- um komnar. Mörkin i þessum leik skoruðu: Fyrir Val: Sigrún Guðmundsdótt- ir 7 (3 viti — 1 mistókst), Björg Guðmundsdóttir 2,og Ragnheiður og Elin 1 mark hvor. Fyrir Fram : Amþrúður Karlsd. 5 (3 viti — 1 mistókst), Oddný Sigsteinsdóttir 4, og þær Jóhanna Halldórsdóttir og Guðrún Sverrisdóttir 1 mark hvor. 1 gær fór svo fram siðasti leik- urinn i deildinni. Þar áttust við Breiðablik og Armann og lauk leiknum með sigri Armanns 18:6 eftir að staðan hafði verið 7:5 i hálfleik. Röðin i mótinu varð þvi þessi: VALUR — FRAM — ARMANN. En niður i 2. deild féll ÞÓR AKUREYRI. —klp— Þrjár breytingar Þrjár breytingar hefur Birgir Björnsson gert á Is- lenz.ka landsliðinu, sem leik- ur I kvöld viö Dani. Þeir Gunnar Einarsson, FH, Viggó Sigurðsson, Viking, og Magnús Guömundsson, Vik- ing, koma í liðið i stað Harðar Sigmarssonar, Haukum, Bjarna Jónssonar Þrótti (meiddur), og Péturs Jóhannessonar, Fram. Þrir kornungir leikmenn. Magn- ús leikur sinn fyrsta lands- leik, en Gunnar og Viggó hafa áður veriö i landsliöi. lslenzka liðiö verður þvi þannig skipað. ólafur Benediktsson Val Sigurgeir Sigurðsson, Vik- ing, Ólafur H. Jónsson, Val, Einar Magnússon, Viking, Stefán Halldórsson, Vik- ing, Viðar Simonarson, FH, Ólafur Einarsson, FH, Stefán Gunnarsson, Val, Páll Björgvinsson, Viking, Magnús Guðmundsson, Viking, Viggó Sigurðsson, Viking, Gunnar Einarsson, FH. Landsleikurinn 8.30. hefst kl. —hsim. MESTA ÚR VAL LANDSINS af reiðhjólum og þríhjólum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.