Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1952, Síða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
625
kom hingað og lék með Symfoniu-
hljómsveitinni.
SÝNINGAR
Valtýr Pétursson listmálari hafði
sýningu í Listvinasalnum í Reykjavík
fyrra hluta mánaðarins, en frú Nína
Tryggvadóttir síðari hluta mánaðar.
Veturliði Gunnarsson listmálari
hafði sýningar á Akranesi og Akur-
eyri.
Ferðafélag íslands hafði ljósmynda-
sýningu og fengu þar 9 myndir verð-
laun. Gestir sýningarinnar greiddu at-
kvæði um hverjar myndir þeir teldi
beztar og varð dómur þeirra allur ann-
ar en dómnefndar.
DÓMAR
Hæstaréttardómur fell í málinu út
af því er flugvélin „Geysir" fórst á
Vatnajökli. Guðmundur Sivertsen sigl-
ingafræðingur var dæmdur í 4 mán.
varðhald og sviftur leiðsögumannsrétt-
indum ævilangt. Magnús Guðmunds-
són flugstjóri var dæmdur í 4000 kr.
sekt til ríkissjóðs.
Verðlagsdómur Reykjavíkur dæmdi
Eirík Sigurbergsson kaupmann til að
sviftast verslunarleyfi um 5 ára skeið
vegna verðlagsbrots, og ólöglegur
gróði hans, 53.000 krónur, gerður upp-
tækur. Er þetta fyrsti dómur um versl-
unarleyfissvifting.
Héraðsdómur fell í hinu margum-
talaða máli út af járninu á Dynskóga-
fjöru. Dómendur, Jón Kjartansson
sýslumaður, Einar Arnórsson prófessor
og ísleifur Árnason prófessor, töldu
að vátryggjendur hefði eignast járnið
um leið og vátrygging var greidd og
teldist vátryggingarfélagið því eigandi
þess.
GJAFIR
Börn Jóns Ólafssonar fyrrum al-
þingismanns, gáfu Listasafninu brjóst-
líkan af honum eftir Ríkarð Jónsson
myndhöggvara.
Samband ísl. fiskframleiðenda gaf
Dvalarheimili aldraðra sjómanna 125
þús. krónur.
Börn Jakobs sál. Líndals á Lækja-
móti gáfu Náttúrugripasafninu safn
föður síns af bergtegundum, steinteg-
undum og fornskeljum, alls um 600
muni. Önnur gjöf barst safninu og,
sýningarborð fyrir bergtegundir, er
verið hafði á Iðnsýningunni.
Hjónin Gunnhildur og Baldvin Ryel
á Akureyri gáfu kirkjunni þar skírn-
Ásgrímur Jónsson listmálari arfleiddi ríkið að öllum eigum sínum eftir sinn dag,
málverkum, húseign og öðru, alveg kvaðalaust. Er ætlazt til þess að húsið verði
notað til sýninga á málverkum hans, meðan ekki hefir verið reíst listasafn,
þar sem myndum hans sé tryggt svo mikið rúm, að unnt sé að fá gott yfirlit
um safn hans. Þessi stórhöfðingiega gjöf verður ekki metin til fjár. Safnið
er stórt, því að hann hefir um mörg ár safnað myndum sínum í þeim til-
gangi að þær sýndu sem bezt hæfileika hans og list. Eru þetta olíumálverk,
teikningar og vatnslitamyndir. — Myndin hér að ofan er af Ásgrími og einu
málverki hans.
arlaug úr marmara, sem talinn er veg-
legasti kirkjugripur hér í lúterskum
sið.
Þorsteinn Kjarval gaf tímaritinu
Náttúrufræðingnum 45 þús. kr. til út-
gáfustarfseminnar.
FÉLAGSLlF
Þing Alþýðusambands Islands var
háð í Reykjavík. Sóttu það á þriðja
hundrað fulltrúar. Stjórnin hafði vikið
félaginu „Iðju“ í Reykjavík úr sam-
bandinu vegna óhlýðni, og samþykkti
þingið þá ráðstöfun. Helgi Hann^son
var endurkjörinn forseti sambandsins,
og öll stjórnin kosin úr hópi lýðræðis-
sinna.
Aðalfundur Sölusambands ísl. fisk-