Alþýðublaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.04.1987, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 9. aprll 1987 SAMÚÐARLOFTBÓLA EÐA FRAMTÍÐARFLOKKUR? Er Borgaraflokkur Al- berts Guðmundssonar og fylgismanna hans kominn til að vera í íslenskum stjórnmálum? Eða er þessi flokkur ekki annað en samúðarloftbóla sem verður sprungin fyrir kosningar? Eða verða Sjálfstæðisflokkarnir tveir sameinaðir fljótlega að loknum kosningum? Ef svo fer, fær þá hinn nýtví- eini Sjálfstæðisflokkur hreinan meirihluta á AI- þingi íslendinga og nær þar með því langþráða marki að fá að stjórna landinu einn — og þá kannski að mestu í anda frjálshyggjunnar? Þessar og því líkar spumingar brenna á vörum margra um þessar mundir. Raunar er það síst að ástæðulausu, því hið gífurlega fylgi sem Borgaraflokkurinn fékk í fyrstu skoðanakönnunum eftir að framboðsfrestur rann út, benti jafnvel til þess að tveir sameinaðir Sjálfstæðisflokkar gætu sem best haft hreinan meirihluta út úr kosn- ingunum. Af yfirlýsingum þeirra tveggja manna sem mest settu svip sinn á fréttir vikunnar áður en framboðs- frestur rann út, Þorsteins Pálssonar og Alberts Guðmundssonar mátti ráða að alls ekki væri um málefna- ágreining að ræða milli þessara tveggja flokka. Þetta gæti e.t.v. bent til þess að sameining, eða a.m.k. mjög náin samvinna verði á dag- skrá milli þessara flokka að kosn- ingum loknum. Það er á hinn bóginn líka ýmis- legt sem bendir mjög ákveðið í hina áttina og málið er miklu flóknara og á sér dýpri rætur en svo að unnt sé að afgreiða það án umhugsunar. Þrátt fyrir sameiningu og halalúja- kór á ytra borði hefur um allnokk- urra ára skeið verið að finna djúp- stæðan málefnalegan ágreining í Sjálfstæðisflokknum. Klofningur- inn sem nú er orðinn staðreynd, snýst ekki nema að hluta um persónu Alberts Guðmundssonar. Að hluta á þessi klofningur sér ræt- ur í málefnalegri andstöðu gegn frjálshyggjunni innan flokksins. Það þarf alls ekki að draga í efa að; ýmsum Sjálfstæðismönnum af gamla skólanum hefur sviðið það sárt á síðustu árum að sjá frjáls- hyggjuna festa æ dýpri rætur í flokknum og fyrir utan beinharða fylgjendur Alberts Guðmundsson- ar, hafa ýmsir þessara manna ákveðið að ganga til liðs við Borg- araflokkinn. Á hinn bóginn eru enn margir andstæðingar frjálshyggjunnar eft- ir í Sjálfstæðisflokknum og senni- lega einkum af tveimur ástæðum. Annars vegar lágu ekki fyrir neinar tölur um hugsanlegt fylgi hins nýja flokks þá daga sem verið var að undirbúa stofnun hans og skipan lista hans fyrir kosningarnar í vor. Margir hafa ugglaust ekki þorað að taka þátt i klofningnum, vegna þess að þeir mátu stöðuna þannig að sér- framboð Alberts væri fyrirfram dauðadæmt, eða því sem næst. Ein- hverjir þessara manna munu ugg- Iaust eiga eftir að naga sig sárlega í handarbökin, ef í ljós kemur að Þorsteinn Pálsson var „vitlaus hest- ur“. Hin ástæðan fyrir því hversu marga andstæðinga frjálshyggj- unnar er enn að finna í gamla flokknum er sú að afsögn Alberts úr ráðherraembætti var knúin fram vegna gruns um skattsvik og margir hafa ugglaust ekki komið auga á það í upphafi að málið gæti átt sér fleiri hliðar. Ef svo fer sem nú horfir og Borg- araflokkurinn verður í hópi stærri þingflokka eftir kosningar, gæti svo farið að einhverjir þeirra manna sem kosningu hljóta fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, eigi eftir að sjá sig um hönd og ganga í Borgaraflokk- inn að kosningum loknum eða ein- hvern tíma á næsta kjörtímabili. Margir þeirra stjórnmálaleiðtoga sem spurðir hafa verið álits á ástæð- um þessa mikla fylgis Borgara- flokksins í fyrstu skoðanakönnun- um eftir stofnun hans, hafa lýst því yfir að ástæðurnar séu fyrst og fremst tilfinnanlegs eðlis. Það er tæpast nokkrum vafa undirorpið að þessi skýring er rétt. Almenning- ur gerir sér auðvitað grein fyrir þeirri augljósu staðreynd að ef ekki hefði gætt þeirrar sterku andstöðu við Albert innan Sjálfstæðisflokks- ins sem raun ber vitni, hefðu skatta- mál hans aldrei verið gerð opinber, heldur málið þaggað niður á venju- legan hátt. Þetta gerir það auðvi tað að verk- um að hinn almenni kjósandi fyllist samúð með Albert og þá vill gleym- ast að málið snerist líka um undan- drátt frá skatti og jafnvel fleiri mis- fellur í fjármálum. Að öllu þessu at- huguðu, þarf varla að teljast bein- línis skrýtið þótt Albert Guð- mundsson njóti umtalsverðrar sam- úðar. En það liggur líka í augum uppi að samúðin endist ekki enda- laust og þegar kemur að kosninga- deginum eftir tvær vikur verður stór hluti hennar farinn veg allrar veraldar. Svo virðist sem kosningaskipu- leggjendur Borgaraflokksins geri sér þetta fyllilega ljóst og hafi jafn- framt nokkuð haldgóðan skilning á því hvar raunverulegir atkvæða- möguleikar þeirra liggja, — nefni- lega hjá þeim kjósendum Sjálf- stæðisflokksins sem eru andsnúnir hinni kaldranalegu frjálshyggju, sem byggir á því að fólkið sé til fyrir Fréttaskýring: Jón Daníelsson hagkerfi peninganna en ekki öfugt. Af því sem hingað til hefur heyrst um stefnumál Borgaraflokksins, má glögglega ráða að á þessi mið hyggjast Borgaraflokksmenn sækja atkvæði. Þetta hefur reyndar í för með sér að spjótum Borgaraflokksins er fyrst og fremst beint gegn Sjálf- stæðisflokknum, sem aftur þýðir að þegar talið verður upp ður kjör- kössunum munu fylgi Borgara- flokksins og fylgistap Sjálfstæðis- flokksins haldast í hendur að veru- legu leyti. Það væri auðvitað ekki raunhæft að halda því fram að Borgaraflokk- urinn muni eingöngu sækja fylgi sitt til kjósenda annarra flokka, en á hinn bóginn virðast allar líkur benda til að það muni að lang- stærstum hluta koma úr þeim her- búðum. Til viðbótar munu óánægðir kjósendur annarra flokka, einkum Framsóknarflokks og jafnvel Alþýðubandalags, taka á sig rögg og greiða Borgaraflokkn- um atkvæði. Það má líka færa rök að því að einhver atkvæði óánægðra sjálfstæðismanna, sem annars hefðu farið á aðra flokka, muni fara á Borgaraflokkinn. Enn er þó langt til kosninga á pólitískan mælikvarða og margt getur enn gerst og orðið til þess að skipta sköpum um úrslit kosning- anna. En á hinn bóginn má ganga nokkurn veginn að því vísu að úrslit þessara kosninga muni ráða úrslit- um um svör við þeim spurningum sem hér voru bornar fram í upp- hafi: Fái Borgaraflokkurinn tiltölu- lega fáa þingmenn upp úr kjörköss- t unum þann 25. apríl, — kannski 4 til 7 — þá á flokkurinn einkum þá tvo kosti að velja að sameinast móðurflokknum aftur eða veslast upp og deyja á einu til tveim kjör- tímabilum að hætti annarra smá- flokka hérlendis. Fái flokkurinn hins vegar meira fylgi, eru hverfandi líkur á því að af nokkurri sameiningu verði við Sjálfstæðisflokkinn og jafn vel eicki líklegt að um stjórnarsamstarf verði að ræða milli þessara tveggja flokka að kosningum loknum. Tak- ist Borgaraflokknum svo til viðbót- ar að skapa sér málefnalega sér- stöðu gagnvart móðurflokknum, eru verulegar líkur á því að flokkur- inn sé kominn til að vera í íslenskum stjórnmálum. Gerist þetta, er líka allt í einu komin upp ný staða í íslenskri póli- tík þar sem hægri vængur stjórn- málanna er klofinn, líkt því sem gerist í öðrum löndum. Slíkt flokkakerfi gæti gefið íslenskum jafnaðarmönnum byr undir báða vængi og kannski er þess ekki svo langt að bíða að hérlendis renni upp blómaskeið hinna rauðu rósa.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.