Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 15
Dvergvaxnir og kafloðnir hamstrar í náttúrulitum eru vinsæl gæludýr hjá yngri kynslóðinni. DÝRIN í gæludýraversluninni Fiskó í Hlíðarsmára í Kópavogi voru ýmist steinsofandi eða nývöknuð er blaða- mann bar að garði í gærmorgun. Það færist þó smám saman líf í tusk- urnar, starrinn Óliver leikur á als oddi, kanínurnar teygja úr sér og loðnaggrísirnir taka til við morg- unmatinn. Örkin hans Jóa, Jóhann- esar H. Sigmarssonar, eiganda Fiskó, er iðandi af lífi í orðsins fyllstu merkingu. Þar er landsins mesta úrval af skrautfiskum, bæði sjávarfiskum og ferskvatnsfiskum, nagdýrin eru af öllum stærðum og gerðum og páfagaukarnir sömuleið- is. Það er ekki frá því að blaðamanni bregði þegar hann sér risavaxið Greewings-parið sem lætur vel hvort að öðru og ekki er undrunin minni þegar Óliver lætur í sér heyra. Hermikrákan Óliver „Hann er alveg æðislegur,“ segir Jói um starrann. „Við fengum hann úr hreiðri sem verið var að fjar- lægja fyrir fjórum árum. Þá var hann lítill og bleikur.“ Óliver er skírður í höfuðið á svöluunganum í teiknimyndinni Fuglastríðið í Lumbruskógi og vek- ur mikla lukku allra þeirra sem heimsækja Fiskó. Hann getur hermt eftir nánast hverju sem er og kann ótal GSM-hringitóna utan að svo við- skiptavinir eiga það til að svara í símana sína, grunlausir um færni fuglsins. „Hann hermir líka eftir öðrum hljóðum, t.d. þjófavörninni í búðinni. Hún gefur frá sér hljóð þegar maður gengur inn í búðina á morgnana en þegar ég kom í morg- un var ég ekki fyrr búinn að snúa lyklinum í skránni en hann fór að herma eftir þjófavörninni.“ Skrautleg sjávardýr Eins og nafnið gefur til kynna felst sérstaða Fiskó í miklu úrvali fiska. Upphaflega seldi Jói eingöngu fiska og þeir njóta enn mestra vin- sælda. Jói segir fjölda fisktegunda í búðinni skipta hundruðum. Fiskó var fyrsta verslunin á Íslandi sem seldi sjávarfiska, þó að þorskar og ýsur hafi verið á boðstólum í búðum í áraraðir! Enda eiga marglitir skrautfiskarnir hans Jóa fátt annað sameiginlegt með þorski en að lifa í söltum sjó. Í sjávarbúrunum kennir ýmissa grasa, þar er að finna kór- alla og alls konar kvikindi sem í fyrstu virðast grjót. Þau lifna hins vegar við þegar Jói ýtir við þeim. Fiskana og páfagaukana flytur Jói inn frá Bretlandi, en um tíma stöðv- aðist allur innflutningur þaðan vegna gin- og klaufaveikinnar. Ferskvatnsfiskarnir eru ekki síð- ur litríkir og þá ræktar Jói marga hverja sjálfur. Mörg afbrigði eru ekki til í náttúrunni heldur hafa orð- ið til í fiskabúrum gæludýraversl- ana. Jói tekur sem dæmi gullfiska með augu sem virðast vera að springa út úr augnatóftunum. „Svo er búið að rækta upp slör [langa sporða og ugga] og litbrigði í ýmsar tegundir til að gera þá meira fyrir augað.“ Nagdýrin þarf hvorki að rækta né flytja inn, þau fjölga sér svo hratt að eigendur þeirra koma annað slagið með unga úr heimahúsum sem Fiskó selur síðan. Blaðamaður rifjar upp þegar hann kom með hamstur heim, ellefu ára að aldri, móður sinni til lítillar ánægju. „Við hringj- um í foreldrana ef krakkar koma hingað einir og vilja kaupa dýr,“ segir Jói. „Við höfum nú reyndar það orð á okkur að vera kannski ekki miklir sölumenn því við brýn- um alltaf rækilega fyrir fólki þá ábyrgð sem felst í því að sjá um dýr. En nagdýrin eru alltaf vinsæl, sér- staklega hamstrarnir, þó að mér finnist mýsnar og naggrísirnir skemmtilegastir.“ Jói segir að lítið sé um það að fólk komi með dýr sem það treysti sér ekki til að hugsa um lengur. „Það eru þá helst kanínurnar. Fólk kaup- ir litla unga sem geta síðan orðið risastórir, eins og hérar,“ segir hann og brosir. Það fer mikil vinna í að sinna öll- um dýrunum í Fiskó og Jói hefur tvo starfsmenn sér til aðstoðar. Þegar blaðamaður kveður dýr og menn í búðinni er verið að byrja að þrífa nagdýrabúrin svo að örkin hans Jóa geti siglt hrein inn í nýjan dag. Örkin hans Jóa Grænvængjaparið ástríka kann vel við sig í Fiskó. Sigursteinn Þorsteinsson, starfsmaður Fiskó, með einn af stærri páfagaukum búðarinnar. Kópavogur Morgunblaðið/Kristinn HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 15 tilboðsdagar 25% afsláttur Sokkabuxur Samfellur Sundfatnaður Laugavegi 80, sími 561 1330. Jakkar kr. 500 • Kápur kr. 1.000 Kápur kr. 2.000 • Frakkar kr. 3.500 Ullarkápur kr. 5.000 Snorrabraut 38  Sími 562 4362 Útsölulok • Þýsk jakkaföt • Stakir jakkar og buxur • Kjólföt (yfirstærðir) Tilboð: Peysur og úlpur GÆÐAVARA Á GÓÐU VERÐI Laugavegi 34, sími 551 4301 NÝJAR SENDINGAR Klapparstíg 27, sími 552 2522 DUO þríhjólakerra Hægt að nota bæði sem barnavagn og kerru. Kr. 24.900. Langur laugardagur. Opið frá kl. 10-17 Síðasti dagur útsölu. Enn frekari verðlækkun á síðustu kerrum o.fl. - Mikið úrval Enn meiri afsláttur. Síðustu dagar Ítölsk barnafataverslun Laugavegi 53, s. 552 3737 Erum byrjuð að taka upp nýja vorvöru. Útsala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.