Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 25 LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík 2002 kynnti dag- skrá sína á blaðamannafundi í Iðnó gær, en hátíðin mun standa frá 11. til 31. maí næst- komandi og hefst almenn miðasala hinn 2. apríl. Þau Halldór Guðmundsson, formaður stjórnar, Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi, og Hrefna Haraldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Listahátíðar, gáfu á fundinum innsýn í fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar og ræddu jafnframt nýjar áherslur í rekstri hennar. Sagði Halldór Guðmundsson m.a. að nýtt rekstrar- og stjórnarfyrirkomulag hátíð- arinnar hefði gert framkvæmdaaðilunum kleift að standa að yfirgripsmestu og glæsi- legustu listahátíð sem efnt hefur verið til hér á landi. Listahátíð í Reykjavík er nú í fyrsta sinn haldin samkvæmt nýju skipulagi sem sniðin er að alþjóðlegu starfi og miðar að sam- felldum rekstri stofnunarinnar milli einstakra hátíða. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar verður ráðinn til fjögurra ára í senn, svo vinna megi að skipulagningu dagskrár og eflingu innlends og erlends samstarfs til lengri tíma. Í máli Halldórs og Þórunnar við kynningu dagskrárinnar kom fram að ríki og borg hafa treyst mjög starfsemi Listahátíðar með rausn- arlegum fjárframlögum, þ.e. 25 milljónum frá hvorum aðila, sem hafi nær tvöfaldast frá því sem var árið 1999. Þá færi samstarf við at- vinnulífið mjög vaxandi, en öll stærstu fyr- irtæki landsins koma að hátíðinni með einum eða öðrum hætti og gerði það Listahátíð kleift að leggja fram sjálfaflafé nánast til jafns við framlag ríkis og borgar. Í yfirliti sínu yfir dagskrána benti Þórunn Sigurðardóttir á að áhersla væri lögð á að fá á hátíðina erlenda listamenn í fremstu röð, sem endurspegluðu framsækni og hræringar í al- þjóðlegu listalífi. Þá hefði þáttur innlendra listamanna verið aukinn og viðburðir valdir á hátíðina með því augnamiði að þeir megi stuðla að eflingu íslensks listalífs og kynningu þess og tengslamyndun við þá erlendu gesti og listamenn sem hátíðina sækja. Í því sam- bandi tekur Listahátíð í Reykjavík nú þátt í al- þjóðlegu samstarfi listahátíða (EFA), sem háð er ströngum skilyrðum og felur í sér kynn- ingu um allan heim á þeim listahátíðum sem aðild eiga. Yfirgripsmikil dagskrá Morgunblaðið/Þorkell Hrefna Haraldsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Halldór Guðmundsson kynntu yfirgrips- mikla dagskrá Listahátíðar 2002 í Iðnó í gær. Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2002 kynnt ÞÁTTUR innlendra listamanna er óvenjustór á Listahátíð 2002, og munu m.a. á fjórða hundrað íslenskir tónlistarmenn koma fram á hátíðinni og mikið verður frumflutt af nýjum íslenskum verkum. – Erlendir listamenn frá öllum heimshlutum verða með atriði á Listahátíð. Má þar helsta nefna rússneska undrabarnið Maxim Venger- ov sem talinn er einn þriggja fremstu fiðluleik- ara veraldar, June Anderson sem fyrst kom fram á Metropolitan aðeins 17 ára gömul og er nú ein fremsta sópransöngkona heims og Kronos-kvartettinn, einn allra virtasti og óvenjulegasti strengjakvartett síðustu ára- tuga. – Þrír forvitnilegir hópar af framandi slóð- um koma fram á Listahátíð, þ.e. rúmenska sí- gaunahljómsveitin Taraf de Haidouks sem var nýlega valin besta hljómsveit Evrópu af BBC, kúbverska salsasveitin Vocal Sampling sem notar eingöngu rödd, hendur og fætur í flutn- ingi sínum og argentínski danshópurinn El Escata sem skartar nokkrum af fremstu tangódönsurum Argentínu. – Þáttur innlendra menningarstofnanna verður mjög stór á Listahátíð. Þrjár af stærstu listastofnunum þjóðarinnar, Sinfóníuhljóm- sveit Íslands, Þjóðleikhúsið og Íslenska óperan taka höndum saman með Listahátíð í Reykja- vík um uppfærslu á Wagneróperunni Hollend- ingnum fljúgandi, sem frumsýnd verður á opnunardegi Listahátíðar 11. maí. – Nýtt skref verður stigið í samstarfi Listahátíðar í Reykjavík við önnur sveitarfélög en Hafnarfjarðarbær er samstarfsaðili Listahátíðar, Kvikmyndasafns Íslands og myndadeildar Þjóðleikhússins um verkefni þar sem ljósmyndarans og kvikmyndagerðar- mannsins Lofts Guðmundssonar verður minnst. Þá verða þrjár menningarstofnanir Reykjavíkur, Borgarbókasafnið, Árbæjarsafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur, með verkefni á Listahátíð í fyrsta sinn. – Listahátíð tekur í fyrsta sinn þátt í stórum erlendum samstarfsverkefnum með öðrum há- tíðum og listamiðstöðvum. Á Listahátíð 2002 verður frumflutt samstarfsverkefni með Tón- listarhátíðinni í Trento á Ítalíu, þar sem ís- lenskir og ítalskir tónlistarmenn flytja Brúð- kaupið eftir Stravinsky. Sigur Rós og Hilmar Örn Hilmarsson ráðast í sitt metnaðarfyllsta verkefni til þessa á Listahátíð 2002 , er hið gleymda Eddukvæði Hrafnagaldur Óðins verður hafið til vegs og virðingar á ný á risatónleikum í Laugardals- höll í samstarfi við stærstu listamiðstöð í Evr- ópu, Barbican Center í London. – Fjölbreytt ókeypis dagskrá verður í boði á Listahátíð 2002 fyrir borgarbúa og gesti þeirra, m.a. hádegistónleikarnir Fyrir augu og eyru á listasöfnum Íslands og Reykjavíkur, þar sem íslenskir tónlistarmenn flytja verk tengd myndlistarsýningunum. Á Rás 1 verða beinar útsendingar á frumsömdum íslenskum örleikritum undir samheitinu Níu virkir dag- ar. Sent verður út frá ólíkum stöðum víðsvegar um borgina að viðstöddum áhorfendum. Opnunarhelgi Listahátíðar munu hinir þekktu frönsku hljóðfæraleikarar og loftfim- leikamenn Mobile Homme, berja á bumbur í 40 metra hæð yfir tjörninni. – Myndlistarsýningar innlendra listamanna verða á dagskrá hátíðarinnar. Haldin verður viðamikil sýning á íslenskri samtímalist í Hafnarhúsinu, nýtt hljóðverk helgað Halldóri Laxness eftir Finnboga Pétursson verður vígt við setningu Listahátíðar og í i8 verður sýning á verkum eins þekktasta núlifandi íslenska myndlistarmanns, Ólafs Elíassonar. – Sérstök dagskrá tileinkuð því að 100 ár eru liðin frá fæðingu Halldórs Laxenss verður haldin í Borgarleikhúsinu og mun Íslenski dansflokkurinn m.a. frumsýna nýjan ballett byggðan á Sölku Völku. – Fjölskyldudagskrár og verkefni fyrir börn verða áberandi á hátíðinni. Í Gerðubergi verð- ur sýning Pero-leikhússins í Stokkhólmi, Týndar mömmur og talandi beinagrindur og frá Barcelona kemur sápukúlusýningin Ambr- ossa, þar sem galdraðar eru fram risastórar sápukúlur. Borgarbókasafnið og Borgarleik- húsið eiga samstarf um verkefnið Laxness fyr- ir ungu kynslóðina. – Listahátíð í Reykjavík 2002 lýkur með Lokaballi í Listasafni Reykjavíkur – Hafnar- húsi, 31. maí. Stiklað á stóru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.