Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Mosfellsbær Leikskólinn Hlaðhamrar Laus staða deildarstjóra Deildarstjóri óskast til starfa við leikskól- ann Hlaðhamra sem fyrst eða eftir nán- ara samkomulagi. Í leikskólanum Hlaðhömrum hefur verið lögð áhersla á gæði í samskiptum og skapandi starfi í anda Reggió stefnunn- ar. Kjör deildarstjóra eru samkvæmt kjara- samningi FÍL og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mosfellsbær rekur í dag fjóra leikskóla sem hver og einn státar af metnaðar- fullri stefnu og starfsháttum. Íbúafjöldinn er rúmlega 6.000 manns og er bærinn ört vaxandi útivistarbær enda stutt milli fjalls og fjöru og umhverfi bæjarins allt afar fagurt og mannlíf gott. Upplýsingar um stöðuna veitir leikskóla- stjóri Hlaðhamra í símum 566 6351 og 566 67951. Ennfremur veitir undirrituð upplýsingar um skólann í síma 525 6700. Leikskólafulltrúi. R A Ð A U G L Ý S I N G A R TIL SÖLU Dekkjasólningarvélar til sölu Til sölu vélar og tæki til sólningar á fólksbíla- dekkjum. Tækin eru nýleg og í góðu standi. Til sýnis og sölu í samráði við Halldór í síma 893 1030. Snjóblásari til sölu Til sölu Kahlbacher K800/2500 snjóblásari ásamt vökvatjakki. Allar nánari upplýsingar hjá Bílasölunni Geisla í síma 437 1200 eða 894 8620. Lagerútsala/barnavara Dagana 1.—3. febrúar höldum við lagerútsölu í Smiðsbúð 8. Í boði verður mikið úrval af barna- vöru og barnafatnaði, s.s. vagnar, kerrur, bílstól- ar, matarstólar, rúm og einnig mikið úrval af vönduðum barnafatnaði, m.a. frá Nike, Oshkosh og Confetti. Einnig mikið úrval leikfanga. Ath. allt að 40% afsláttur frá heildsöluverði. Opnunartími frá kl. 11—17 föstudag, laugardag og sunnudag. Lagerútsala, Smiðsbúð 8, Garðabæ. STYRKIR SAMIK Samstarfssamningur Íslands og Grænlands um ferðamál SAMIK auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til verkefna, sem aukið gætu samstarf Íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu og skyldra verkefna. Meðal styrkhæfra verkefna má nefna: — Nám, námskeið eða starfsþjálfun, sem lýtur að ferðaþjónustu í hvoru landi fyrir sig eða tengiferðum til landanna beggja. — Þróunarstarf, markaðssetning, stofnkostnaður og annað, sem snertir tengiferðir erlendra ferðamanna til beggja landa, í þeim tilgangi að auka heildartekjur landanna af ferðaþjón- ustu. — Samskipti og gagnkvæmar heimsóknir milli þjóðanna tveggja á sviði menningar og lista, vinabæjarsamstarfs, æskulýðsstarfs og skyld- ra mála, sem stuðla að gagnkvæmum kynnum og skilningi þjóðanna. — Rannsóknir á sviði markaðsmála, samgangna eða annars þess, sem gagnast ferðaþjónustu og samskiptum landanna beggja. Leggja skal fram kostnaðaráætlun fyrir það verk- efni, sem sótt er um auk nákvæmra upplýsinga um umsækjanda, verkefnið og tilgang þess. Styrkir geta að jafnaði ekki orðið hærri en hel- mingur heildarkostnaðar. Umsóknum skal skila á dönsku eða ensku á sér- stökum eyðublöðum, sem fást í samgönguráðu- neytinu og á heimasíðu ráðuneytisins. Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 28. febrúar nk. Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun styrkja liggi fyrir í lok mars. Helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar við ákvörðun um styrk- veitingu og síðari hlutinn við verkefnislok. Nánari upplýsingar veita: Sigurður Aðalsteinsson, símar 461 1841, 896 5664, netfang siggi@nonnitravel.is , Birgir Þorgilsson, sími 553 9799, netfang brabra@isl.is , Helga Haraldsdóttir, sími 891 7031, netfang helgahar@hi.is . SAMIK Samgönguráðuneytinu, Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu, 150 Reykjavík, www.stjr.is/sam TILKYNNINGAR Stofnfundur Lindasóknar í Kópavogi Á Kirkjuþingi haustið 2001 var tekin ákvörðun um stofnun Lindasóknar í Lindaprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi. Lindasókn stofnaðist 1. janúar 2002. Lindaprestakall stofnast 1. júlí 2002. Fram að þeim tíma nýtur Lindasókn þjón- ustu frá Hjallaprestakalli, Reykjavíkurprófasts- dæmi eystra. Mörk sóknarinnar og prestakalls- ins eru: Reykjanesbraut að norðvestan frá mörk- um Kópavogs og Garðabæjar norðaustur Reykjanesbraut að mörkum Kópavogs og Reykjavíkur norð-norðvestan Seljahverfis, þaðan eftir mörkum Kópavogs og Reykjavíkur til norðausturs og mörkum Kópavogs og Garðabæjar til suðausturs og suðvesturs. Hér með er boðað til stofnfundar sóknarinnar miðvikudaginn 13. febrúar n.k. kl. 20 í sal Lindaskóla. Dagskrá stofnfundar verður í sam- ræmi við 11. gr. starfsreglna um sóknarnefndir nr. 732/1998, sbr. og ákvæði til bráðabirgða í sömu reglum: 1. Gerð grein fyrir aðdraganda að stofnun sóknarinnar. 2. Framtíðarhugmyndir um kirkjustarf á svæðinu. 3. Kosning fimm sóknarnefndarmanna og jafn- margra varamanna til 2ja ára. 4. Kosning tveggja skoðunarmanna eða endur- skoðanda og varamanna þeirra til árs í senn. 5. Kosning í aðrar nefndir og ráð. 6. Önnur mál. Allt þjóðkirkjufólk á svæðinu er velkomið. Þeir sem áttu lögheimili í sókninni 23. janúar 2002 samkvæmt þjóðskrá hafa kosningarrétt og kjörgengi enda hafi þeir náð sextán ára aldri á fundardegi. Gísli Jónasson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Grafarholt, Þorláksgeisli 6-18 og 20-34, breyting á deiliskipulagi. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynn- ingar tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Grafarholti varðandi lóðirnar Þorláksgeisla 6-18 og 20-34. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðirnar sem eru tvær verði sameinaðar í eina lóð. Í stað 6 minni fjölbýlishúsa á 2-3 hæðum, með samtals um 49 íbúðum, verði heimilt að byggja fjögur stærri fjölbýlishús á allt að 3 hæðum, með samtals 58 íbúðum. Þá gerir tillagan ráð fyrir óverulegum breytingum á lóðarmörkum og minniháttar breytingum á skilmálum. Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 1. febrúar 2002 til 15. mars 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hags- muna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega til Skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulags- fulltrúa) eigi síðar en 15. mars 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 1. febrúar 2002. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir: Funi EA-51, skipaskrnr. 6975, þingl. eig. Guðjón Atli Steingrímsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 9:30. Sýslumaðurinn á Akureyri, 31. janúar 2002. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Ránargötu 1, Vík, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Arnardrangur, sumarhús, Skaftárhreppi, þingl. eig. Ólafur Logi Jónas- son, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., fimmtudaginn 7. febrú- ar 2002 kl. 14.00. Hvammur, Skaftárhreppi, þingl. eig. Oddsteinn Kristjánsson og Páll Símon Oddsteinsson, gerðarbeiðendur Lánasjóður landbúnaðarins og Vélar og þjónusta hf., fimmtudaginn 7. febrúar 2002 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Vík, 31. janúar 2002, Sigurður Gunnarsson. Uppboð Framhaldsuppboð á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hjallalundur 7C, Akureyri, þingl. eig. Ólöf Vala Valgarðsdóttir, gerð- arbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Lífeyrissjóður Norðurlands, þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 10:30. Hólar, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Valdimar Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Mjólkurfélag Reykjavíkur svf., þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 15:00. Keilusíða 4h, 0302, Akureyri, þingl. eig. Eyþór Hauksson, gerðarbeið- andi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 11:00. Melasíða 5b, Akureyri, þingl. eig. Helga Margrét Arnardóttir og Arnar Sverrisson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður, Íslandsbanki-FBA hf. og Melasíða 5, húsfélag, þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 10:00. Skarðshlíð 28g, 402, Akureyri, þingl. eig. Gunnlaugur Sigurgeirsson, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 11:30. Strandgata 23, 105, íbúð á 1. hæð að norðan, Akureyri, þingl. eig. Þórður Vilhelm Steindórsson, gerðarbeiðandi Penninn hf., þriðjudag- inn 5. febrúar 2002 kl. 13:30. Sveinbjarnargerði 2c, Svalbarðsstrandarhreppi, þingl. eig. Anný Petra Larsdóttir, gerðarbeiðendur Lánasjóður landbúnaðarins og sýslumaðurinn á Akureyri, fimmtudaginn 7. febrúar 2002 kl. 14:00. Tjarnarlundur 19J, 030403, eignarhl. Akureyri, þingl. eig. Steingrímur Egilsson, gerðarbeiðendur Tjarnarlundur 15-17-19, húsfélag og Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 5. febrúar 2002 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 31. janúar 2002. Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.