Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 28
LISTIR/KVIKMYNDIR 28 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Snjóbrettafélagarnir Rick, Luke, Anthony og Pig Pen lifa hátt uppi á Bolafjalli í Alaska. Lífið í snjóbænum snýst um stelpur, samkvæmi og skemmtanir. En þegar stofnandi Bull Mountain, Papa Muntz, deyr, ákveður Ted sonur hans að selja hin- um snjalla skíðamógúl frá Colorado, John Majors, vetr- arparadísina. Allir í bænum eru miður sín vegna fyrirætl- ananna um að snúa bretta- fjallinu, þar sem unga fólkið skemmtir sér, yfir í einhvern rólegheita stað fyrir eldra fólk. Það kemur til kasta fjór- menningaklíkunnar sem nýt- ur dyggrar aðstoðar hinnar uppreisnargjörnu Ingu, sem er dóttir Majors, og vinkon- unnar Önnu við að vinna bæ- inn á ný. Þetta er söguþráður kvik- myndarinnar „Out Cold“ sem Laugarásbíó frumsýnir í dag og framleidd er af Touch- stone Pictures. Í áhættuat- riðum er m.a. fjöldi snjó- brettakeppnismanna og kvenna. Þeirra á meðal eru: Todd Richards, Rio Tahara, Tara Dakides, Devun Walsh og Rob Boyce. Hraði og spenna er að sögn framleið- enda, einkenni myndarinnar, og ekki má gleyma að hún snýst um eitt vinsælasta vetr- arsportið nú til dags. Myndin var að mestu tekin í litlum bæ að nafni Salmo og er í British Columbia í Kanada. Í aðalhlutverkum eru Jas- on London, Lee Majors, Will- ie Garson, Zach Galifianakis, David Koechner, Flex Alex- ander, A.J. Cook, David Den- man, Caroline Dhavernas, Derek Hamilton, Thomas Lennon og Victoria Silvstedt. Leikstjórn er í höndum bræðranna Emmett og Brendan Malloy og handrits- höfundur er Jon Zack. Fram- leiðendur eru Lee R. Mayes, Michael Aguilar og Jonathan Glickman. Leikarar: Jason London (Broken Wessels, Poor White Trash, Dazed and Confused, The Man in the Moon); Lee Majors (Here, Big Fat Liar, Too Much Sun, Hard Knox); Willie Garson (There’s Something About Mary, Play it to the Bone, Mars Attacks, The Rock, Kingpin, Being John Malko- vich); Zach Galifianakis (Corky Romano, Bubble Boy, Heartbreakers) Ted Muntz (Willie Garson), til vinstri, ákveður að selja Jack Majors (Lee Majors), til hægri, brettaparadísina, en dóttir hans Inga, sem leikin er af sænsku leikkonunni Victoriu Silvstedt, á eftir að valda usla í litla bænum. Barist fyrir brettaæðið Laugarásbíó frumsýnir „Out Cold“ með Jason London, Lee Majors, Willie Garson og Zach Galifianakis. STÓRMYNDIN Pí- anókennarinn verð- ur frumsýnd í Regn- boganum í dag. Hér er á ferðinni marg- verðlaunuð mynd, sem naut mikillar athygli á kvik- myndahátíðinni í Cannes 2001. Myndin hlaut aðalverð- laun dómnefndar, en auk þess fengu aðalleikararnir, þau Benoit Magimel og Isabelle Huppert, verðlaun sem besti leikarinn og besta leikkonan. Þá fékk Isabelle Huppert Kvikmyndaverðlaun Evrópu fyrir leik sinni í myndinni. Handritshöfundur og leik- stjóri myndarinnar er Austur- ríkismaðurinn Michael Han- eke, sem hefur áralanga reynslu í kvikmyndaiðnaði og evrópskum leikhúsum sem bæði leikstjóri og handrits- höfundur, en myndin er byggð á sögu eftir kvenrithöf- undinn Elfriede Jelinek, sem fædd er og uppalin í Styria, sem er hérað í suðausturhluta Austurríkis. Myndin, sem er 130 mín- útna löng, segir frá Eriku Kohut, sem kennir á píanó við Tónlistarskólann í Vín. Hún er komin yfir fertugt og býr ennþá með móður sinni sem drottnar á heimilinu og hefur þar af leiðandi mikil áhrif á líf dóttur sinnar. Erika á sér þó leyndarmál og það er ekki allt sem sýnist í hennar lífi. Hún flýr reglulega inn í heim klámiðnaðarins og kynhneigð hennar felur m.a. í sér sjálfs- píningahvöt sem jaðrar við sjúklegt óeðli. Einn daginn dettur einum af nemendum hennar í hug að draga kenn- ara sinn á tálar. Leikarar: Isabelle Huppert (Nightcap, A Judgement in Stone, Malina, Madam Bovary, Story of Women); Benoit Magim- el (The King is Dancing, The Children of the Century, Lisa, Al- ready Dead). Leikstjóri og hand- ritshöfundur: Michael Haneke. Isabelle Huppert og Benoit Magimel. Píanókennarinn Regnboginn frumsýnir „The Piano Teacher“ með Isabelle Huppert, Benoit Magimel, Annie Giradot, Anna Sigale- vitch, Susanne Lothar og Udo Samel. ÞEGAR íbúar bæjarins Lib- erty, Missouri, í miðvesturríkj- um Bandaríkjanna uppgötva að spilltur járnbrautaauðjöfur hyggst neyða þá af landi sínu í nafni framfara, ákveða nokkrir ungir heimamenn, sem þjónað höfðu í stríðinu, að snúa til baka og taka höndum saman um að endurheimta það sem þeir telja að með réttu tilheyri þeim. Á meðan þeir standa í stríði við að þjóna réttlætinu, hefst einn mesti eltingaleikur sem sögur hafa farið af í villta vestrinu. En enginn er eins al- ræmdur og vegsamaður og hinn ungi leiðtogi kúrekanna, hinn hrífandi ungi útlagi, Jesse James, sem fer fyrir hópnum. Hér er á ferðinni villtur vestri í nútímabúningi frá Morgan Creek Production í leikstjórn Les Mayfield eftir handriti Roderick Taylor og John Rogers. Í aðalhlutverk- um eru Colin Farrell, Scott Caan, Ali Larter, Gabriel Macht, Gregory Smith, Harris Yulin, Will McCormack, Ronny Cox, Kathy Bates og Timothy Dalton. Hugmyndin að myndinni kom frá James G. Robinson, stjórnarformanni Morgan Creek, sem vildi gera ferskan vestra, sem gæti heillað nú- tíma bíógesti. „Við áttum handrit um Jesse James svo við byrjuðum á því að vinna með rithöfundinum John Rog- ers til að gera hugmyndina spennandi og skemmtilega. Í gegnum tíðina hafa útlag- ar alltaf verið vinsælir, sér í lagi meðal yngri kynslóða á mótþróaskeiði. „Þær eiga auð- velt með að setja sig í spor uppreisnarseggja, sem lifa gegn viðurkenndum gildum þjóðfélagsins,“ segir framleið- andi myndarinnar, Jonathan Zimbert og bætir við að James-klíkunni megi á marg- an hátt líkja við rokkhljóm- sveit á sínu fyrsta ferðalagi. Áhorfendur geti tengst þessari samlíkingu. Þegar Zimbert er spurður af hverju ákveðið hafi verið að gera enn eina myndina um Jesse James, sem verið hefur ódauðlegur á hvíta tjaldinu um langan aldur, svarar hann því til að Jesse, líkt og Hrói höttur, sé orðinn að eins konar þjóð- sagnapersónu. „Goðsögnin um Jesse James stendur fyrir eina af þessum tímalausu dæmisög- um, þar sem óréttlæti er lag- fært og hefndar krafist. Eins og við á um margar aðrar vin- sælar hetjusögur, vilja áhorf- endur fá að sjá meira af Jesse James vegna þess að saga hans er ekki síst saga um sigur á hinu illa.“ Leikarar: Colin Farrell (Tiger- land); Scott Caan (Gone in 60 Seconds, Varsity Blues); Ali Lart- er (Final Destination, Varsity Blu- es) Leikstjóri: Les Mayfield (Blue Streak). Scott Caan og Colin Farrell í „American Outlaws“. Ferskur vestri um Jesse James Sambíóin í Kringlunni og á Ak- ureyri frumsýna „American Out- laws“ með Colin Farrell, Scott Caan og Ali Larter. „HEARTS in Atlantis“, sem byggð er á samnefndri sögu Stephens Kings, segir sögu ellefu ára stráks, sem vingast við ókunnan og dul- arfullan mann. Sú vinátta á eftir að breyta sýn hans á heiminn. Myndin hefst á því að Bobby Garfield, sem orð- inn er fimmtugur að aldri og starfar sem ljósmyndari, er að snúa aftur til heimabæj- arins til að sækja jarðarför æskuvinar. Við heimkomuna endurupplifir Bobby það ör- lagatímabil í lífi sínu sem varð til þess að unglingsárin tóku við af saklausri barn- æskunni. Örfáar sumarvikur með ókunnum manni, Ted Brautigan, sem leikinn er af þeim víðfræga leikara Anth- ony Hopkins, urðu til þess að breyta lífi Bobbys á 12. aldursári árið 1960. Pabbi Bobbys er löngu dáinn og hann elst upp hjá biturri móður, sem finnst að hlutskipti sitt eigi að vera annað og meira í lífinu en að enda sem einstæð móðir með barn sem hún bað aldr- ei um. Inn í líf Bobbys kemur Ted og fyllir upp í tómarúmið. Hann býður upp á at- hygli og vináttu fullorðins manns og hjálpar til við að opna augu Bobbys út í hinn stóra heim. En Ted er ekki allur þar sem hann er séður. Hann ber með sér ýmsa fortíðar- drauga og sérkennilega krafta, sem bæði hræða og valda Bobby heilabrotum. Og þegar Ted býður Bobby vinnu við að lesa fyrir sig blöð býr annað og meira undir en versnandi sjón hans sjálfs. Ted fær strák til að hjálpa sér við að forðast mikla hættu, sem hann segir að fylgi sér. Hann öðlast nýjan skilning á föður sínum og nýja sýn á lífinu og ást- inni áður en atburðarásin tekur við stjórninni. Ted fylgir Bobby fast eftir og neyðir hann til að finna þá dýpt, þann kjark og þá fyr- irgefningu sem hann gat aldrei ímyndað sér að gæti orðið innra með honum. Fyrir Bobby fullorðinn er ferðalagið heim og hugar- flugið aftur á bak ákveðinn endapunktur. Leikstjóri myndarinnar er Scott Hicks, sem m.a. hefur leikstýrt „Shine“ og „Snow Falling on Cedars“. Kvik- myndahandrit að „Hearts in Atlantis“ vann Óskarsverð- launahafinn William Gold- man eftir samnefndri met- sölubók Stephens Kings sem út kom 1999, en Gold- man er ekki alls ókunnur verkum Kings þar sem hann skrifaði m.a. kvikmynda- handrit árið 1990 að „Mis- ery“ með góðum árangri og miklum vinsældum. Gold- man segist hafa orðið fyrir miklum hughrifum við lest- ur „Hearts in Atlantis“ og því hafi hann ekki lengi þurft að velta því fyrir sér hvort hann vildi gera úr þessu kvikmynd eða ekki, en sem stendur vinnur Goldman að því að semja handrit að kvikmynd upp úr vísindaskáldsög- unni „Dream- catcher“ eftir Stephen King. „Ég hef unun af King, aðallega þó þegar hann er að fást við mannlegar skepnur.“ Í aðalhlutverki í Hearts in Atlantis er Óskarsverðlaunahafinn Anthony Hopkins, sem hef- ur farið með eftirminnileg hlutverk í mörgum mynd- um, en aðrir helstu leikarar myndarinnar eru: Anton Yelchin, Hope Davis, Mika Boorem, David Morse, Alan Tudyk, Tom Bower, Celia Weston, Adam Lefevre, Will Rothhaar, Deirdre O’Conn- ell og Timmy Reifsnyder. Leikarar: Anthony Hopkins (Silence of the Lambs, Hanni- bal, The Remains of the Day); Anton Yelchin (Along Came a Spider, 15 Minutes); Hope Davis (Mumford, Next Stop Wonderland); Mika Boorem (Along Came a Spider, The Patriot); David Morse (Proof of Life, The Green Mile). Ný sýn á lífið Sambíóin í Álfabakka og á Snorrabraut frumsýna „Hearts in Atlantis“ með Anthony Hopk- ins, Anton Yelchin, Hope Davis, Mika Boorem og David Morse. Anthony Hopkins í hlutverki sínu sem Ted Brautigan í kvikmyndinni „Hearts in Atlantis“. STJÖRNUBÍÓ frumsýnir í dag gamanmyndina „Just Visiting“, sem kemur frá Hollywood Pictures, með Jean Reno, Christinu Applegate, Christian Clavier og Matthew Ross í aðalhlutverkum. „Just Visiting“ er amerísk endur- gerð frönsku stórmyndarinn- ar „Les Visiteurs“ frá árinu 1993 en þá fóru frönsku stór- stjörnurnar Jean Reno og Christian Clavier með sömu hlutverk og nú í leikstjórn sama leikstjóra, Jean-Marie Gaubert, sem er einn vinsæl- asti gamanmyndaleikstjóri Frakka. Les Visiteurs, sem var ekki síður fjölskyldumynd en gamanmynd, fór sigurför um Evrópu og Asíu á sínum tíma. Söguþráðurinn er um franska hefðarmanninn Thib- ault greifa af Malfete, sem leikinn er af Jean Reno, og þjón hans André, sem leikinn er af Christian Clavier. Þeir vakna allt í einu upp við það að vera staddir í Chicago-borg nútímans og hafa þar með ferðast í tíma frá 13. öld og fram í nútímann eftir að hafa lent í álögum miskunnarlausr- ar nornar og drukkið töfra- mixtúru sem gerir tímaflakk mögulegt. Ringlaðir, týndir og gagnteknir hitta þeir félagar einn af afkomendum Thib- aults, Júlíu Malfete (Christina Applegate), og slóttuga kær- astann hennar, Hunter (Matthew Ross). Thibault og André læra fljótt inn á nú- tímann með skondnum afleið- ingum og uppgötva að þeir verði að finna sér leið til baka eins fljótt og hægt er. Annars verði ættleggur þeirra Júlíu og Thibaults þurrkaður út með öllu. Því miður fyrir þá fer allt úrskeiðis en með sæmd og hugrekki tekst þeim fé- lögum að setja allt á annan endann þegar þeir tveir leggja á ráðin. Þeir þurfa að snúa aft- ur til 13. aldar og þá þurfa þeir að finna sér galdramann. Kvikmyndahandritið var í höndum þeirra Christian Clavier, Jean-Marie Poiré og John Hughes. Framleiðendur eru Patrice Ledoux og Ric- ardo Mestres, sem hófu und- irbúning myndarinnar með því að fara sjálfir til Parísar til að hitta fyrir þá hugmynda- ríku menn sem stóðu að gerð frönsku útgáfunnar, sem varð ein vinsælasta gamanmynd Frakka til þessa. Leikarar: Jean Reno (Mission Impossible, Godzilla, The Pro- fessional, Ronin), Christina Applegate (Jesse, Family Ties, 21 Jump Street, Amazing Stor- ies, The Big Hit, Kiss of Fire), Christian Clavier (Revenge of a Blonde, The Thirst for Gold), Matthew Ross (Pushing Tin, The Last Days of Disco, American Psycho). Leikstjóri: Jean-Marie Gaubert. Tímaflakk í gamanleik Stjörnubíó frumsýnir „Just Visit- ing“ með Jean Reno, Christinu Applegate, Christian Clavier og Matthew Ross. Christian Clavier og Jean Reno í myndinni „Just Visiting“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.