Morgunblaðið - 13.04.2002, Side 6

Morgunblaðið - 13.04.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ AFSTAÐA Íslendinga til Evrópu- sambandsins vekur mikla og vaxandi athygli í Noregi, að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur, formanns þing- flokks Samfylkingarinnar. Hún er nú stödd í Noregi og átti í gær fund með Jens Stoltenberg, formanni þingflokks norska Verkamanna- flokksins. Á fundinum ræddu þau um Evr- ópumál og voru sammála um að auka samvinnu Samfylkingarinnar og Verkamannaflokksins í umræðunni um Evrópumálin. Var ákveðið að flokkarnir tveir stæðu fyrir sameig- inlegri ráðstefnu um framtíð EES- samningsins, sem verður hugsan- lega haldin á haustmánuðum, að sögn Bryndísar. Hún mun í dag flytja erindi á ráð- stefnu norsku Evrópuhreyfingarinn- ar um stöðu Íslands og Noregs gagn- vart Evrópusambandinu og EES í Noregi. Hafa áhyggjur af að Ísland sæki um og Noregur sitji eftir Bryndís sagði eftir fundinn með Stoltenberg í gær að hann hefði sýnt mikinn áhuga á Evrópuumræðunni á Íslandi, sem hefði farið mjög hátt í norskum fjölmiðlum. ,,Norðmenn eru farnir að velta því alvarlega fyrir sér hvað muni gerast ef Íslendingar skyldu sækja um aðild og þeir sætu einir eftir með Liechtenstein í EES. Þeir hafa m.a. áhyggjur af því með tilliti til sjávarútvegsmálanna og samningsstöðunnar gagnvart ESB. Þetta hefur hleypt nýju lífi í Evrópu- umræðuna í Noregi,“ segir Bryndís. Hún tók fram að þó rætt hefði ver- ið um meiri samvinnu flokkanna í Evrópuumræðunni væri það hennar skoðun að löndin verði engu að síður að meta hvert fyrir sig sína hags- muni og hugsanlega aðildarumsókn, ef til hennar kemur. Bryndís Hlöðversdóttir átti fund með Jens Stoltenberg þingflokksformanni Verkamannaflokksins í Ósló Flokkarnir haldi sameig- inlega ráðstefnu um EES Bryndís Hlöðversdóttir og Jens Stoltenberg á fundi sínum í Ósló í gær. SAMTÖK atvinnulífsins gengu í gær frá sölu á húseign samtak- anna í Garðastræti 41. Kaupandi hússins er kínverska sendiráðið, sem fær húseignina afhenta 1. júní næstkomandi. Samtök at- vinnulífsins flytja hins vegar höf- uðstöðvar sínar í nýbyggingu sem reist hefur verið við Borgartún 35 í lok maí og munu einnig öll aðild- arfélög samtakanna flytja þangað starfsemi sína í vor og sumar. Húsið í Garðastræti 41 mark- aði á sínum tíma tímamót í sögu íslenskrar byggingarlistar. Sig- urður Guðmundsson teiknaði húsið árið 1929 og var það fyrsta íbúðarhúsið hér á landi sem byggt var undir merkjum mód- ernisma í svokölluðum funkis-stíl. Var húsið íbúðarhús Ólafs Thors, fyrrverandi forsætisráð- herra og formanns Sjálfstæð- isflokksins, en Vinnuveitenda- samband Íslands eignaðist síðar húsið og hafa samtök atvinnurek- enda haft þar höfuðstöðvar sínar um árabil. Borgartún 35 verður sann- kallað „hús atvinnulífsins“ Samningar vegna sölu húseign- arinnar í Garðastræti 41 voru undirritaðir í gær. Söluverð húss- ins er 92 milljónir króna. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er ánægður með söluna á Garða- stræti 41 og lýst vel á fyrirhug- aðan flutning SA og aðildarfélaga þess í nýtt húnsæði í sumar. ,,Við stofnun Samtaka atvinnulífsins lá sú stefnumörkun fyrir að sam- eina starfsemi SA og aðild- arfélaga þess á einum stað. Það tók nokkurn tíma að finna lausn á því en mjög góð niðurstaða liggur fyrir,“ segir hann. Samtök atvinnulífsins keyptu fimmtu hæð húsnæðisins við Borgartún og munu koma sér þar fyrir í lok maímánaðar, að sögn Ara. Munu samtökin einnig leigja lítinn hluta af hæðinni til Sam- taka fjármálafyrirtækja. Samtök iðnaðarins kaupa fjórðu hæð hússins. Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök ferðaþjón- ustunnar og Samtök fisk- vinnslustöðva verða á þriðju hæð og Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði verða á annarri hæð. Þá hefur Vinnudeilusjóður samtakanna fjárfest í því rými sem af gengur í húsinu og leigir það út til Nýsköpunarsjóðs at- vinnulífsins og Útflutningsráðs Íslands, að sögn Ara. ,,Þetta verður sannkallað hús atvinnulífsins að Borgartúni 35. Það verður gjörnýtt af þessum tíu aðilum,“ segir hann. Komnir í næsta nágrenni við ASÍ og ríkissáttasemjara Við flutning SA og aðild- arfélaga þeirra að Borgartúni 35 verða samtök atvinnurekenda komin í næsta nágrenni við höf- uðstöðvar samtaka launþega því Alþýðusamband Íslands flytur skrifstofur sínar í nýtt húsnæði að Sætúni 1 í vor, í sömu bygg- ingu og Efling stéttarfélag er með skrifstofur sínar. Á milli húss Samtaka atvinnulífsins og húsnæðis launþegasamtakanna er svo Ríkissáttasemjari með skrifstofur sínar í nýlegri bygg- ingu við Borgartún 21, en emb- ættið flutti starfsemi sína þangað fyrir tvemur árum. ,,Við erum mjög ánægðir með þessa staðsetningu. Þetta er mjög gott hús og góð umgjör um starfsemi samtakanna, nærri miðbænum og liggur vel við sam- göngum. Við getum ekki verið annað en ánægð með þessa að- stöðusköpun fyrir starfsemi fé- laga atvinnulífsins vonandi til næstu áratuga,“ segir Ari. Morgunblaðið/Sverrir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Wang Xuwei, fulltrúi kínverska sendiráðsins, takast í hendur að lokinni undirritun samninga um sölu Garðastrætis 41 í gær. Undirritunin fór fram á skrifstofum Fasteignamarkaðarins við Óðinsgötu. Kínverska sendiráðið kaupir Garðastræti 41 Morgunblaðið/Golli Garðastræti 41 var upphaflega í eigu Ólafs Thors. Samtök atvinnulífsins og öll aðildarfélögin flytja í nýbyggingu við Borgartún 35 í sumar ALÞÝÐUSAMBAND Íslands mun flytja skrifstofur sínar um næstu mánaðamót í nýtt húsnæði sem sam- bandið hefur fest kaup á, í Sætúni 1, þar sem Samvinnuferðir-Landsýn voru til húsa. Um er að ræða 1. hæð bygging- arinnar en Efling-stéttarfélag, Líf- eyrissjóðurinn Framsýn og Lands- samtök lífeyrissjóða auk fleiri aðila, eru einnig með skrifstofur sínar í húsinu. Alþýðusambandið festi kaup á húsnæðinu í Sætúni í nóvember á seinasta ári fyrir framtíðarstarfsemi sambandsins. ,,Við flytjum inn um næstu mán- aðamót. Vinnudagsetningin núna er 28. apríl,“ segir Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ. Eru starfsmenn sambandsins í óða önn þessa dagana að undirbúa flutninginn af núverandi höfuðstöðvum við Grensásveg í Sæ- túnið. ASÍ flytur höfuð- stöðvarnar í Sætún 1 MÁNUDAGSBLAÐ DV verður unn- ið í nýjum húsakynnum en í gær hófust flutningar fyrirtækisins úr Þverholtinu í Skaftahlíð 24. Óli Björn Kárason, aðalritstjóri og einn eigenda útgáfufélags DV, segir að undirbúningur flutning- anna hafi staðið yfir að undanförnu og það flutt sem hægt hafi verið að flytja en í gær hafi verið byrjað að aftengja tölvur starfsmanna í Þver- holtinu og þær tengdar á nýja staðn- um. Að sögn Óla Björns Kárasonar verður allt annað líf að starfa í nýj- um höfuðstöðvum og það hafi mjög jákvæð, sálræn áhrif á starfsmenn- ina. Starfsumhverfið verði allt ann- að og betra og í stíl við vinnsluferli blaðsins auk þess sem tugir milljóna króna sparist í húsnæðiskostnað á leigutímanum. Morgunblaðið/Golli Óli Björn Kárason (lengst til hægri), aðalritstjóri og einn eigenda út- gáfufélags DV, vinnur við að gera allt tilbúið í nýjum höfuðstöðvum DV. DV flytur í Skaftahlíð TEKJUR bankanna af þjónustu- gjöldum voru 9,6 milljarðar á síðasta ári að því er fram kemur í skriflegu svari Valgerðar Sverrisdóttur við- skiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar þingmanns Sjálf- stæðisflokksins. Var svarinu dreift á Alþingi í vikunni. Þar kemur einnig fram að hlutfall þjónustugjaldanna af hreinum rekstrartekjum bankanna í fyrra hafi verið 29%. Hreinar rekstr- artekjur eru samanlagðar hreinar vaxtatekjur og aðrar rekstrartekjur s.s. tekjur af hlutabréfum. Einar spurði m.a. að því hverjar hefðu verið tekjur bankanna af þjón- ustugjöldum á árunum 1997 til 2001 reiknaðar á núgildandi verðlagi og hvert hefði verið hlutfall þeirra af hreinum rekstrartekjum bankanna. Í svarinu kemur fram að tekjur bank- anna af þjónustugjöldum hefðu einnig verið 9,6 milljarðar árið 2000 eða 24% af hreinum rekstrartekjum bank- anna, 8,1 milljarður árið 1999 eða 22% af hreinum rekstrartekjum, 6,7 millj- arðar árið 1998 eða 22% af hreinum rekstrartekjum og 6,3 milljarðar árið 1997 eða 23% af hreinum rekstrar- tekjum. Tekjur bankanna af þjónustugjöldum 9,6 milljarðar á síðasta ári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.