Vísir - 05.07.1980, Page 12
VÍSIR
Laugardagur
5. júli 1980.
helgarpopp
Of frumleg?
semur
Nýjasta breiöskifa hennar,
„Me Myself I” hefur setiö um
miBbik topp tlu listans I Bretlandi
siöustu þrjár vikurnar og platan
þar á undan „To The Limit”
seldist ákaflega vel og jók hróöur
hennar mjög. Hér heima viröist
hún eiga tiltölulega fáa en trygga
aödáendur, en þaö er segín saga,
aö sá sem festist I neti hennar
einu sinni, — hann er fangi
hennar ævina út.
trading:
Stúlkan
sem
Fáir en tryggir
Joan
Arma-
Þar sem Glyn Johns hefur stjórnað upptökum á plöt-
um Rolling Stones, Eagles, Who og Traffic, vega
skoðanir hans þungt á vogarskálunum. Hin tilvitnunin
segir lesandanum að Joan Armatrading sé sérstök.
Þekkir þú hana? Ef svo er skilur þú þetta mætavel, en
hinir eiga e.t.v. bágt með að trúa. Það eru þeirra
bágindi.
Sex breiðskífur.
Joan Armatrading er þeldökk
bresk stúlka, tæplega þrltug aö
aldri. Hún hefur gefið út sex
breiöskifur sem allar hafa hlotið
góða dóma. Sjálf hefur Joan
Armatrading ekki þurft að kvaka
undan lofleysi, hvarvetna hefur
henni verið borið hólið i trogum
og henni likt við Joni Mitchell,
Van Morrison, Elton John og
Jackson Browne. En verulegar
almennar vinsældir hefur hún
ekki hlotið fyrr en nýverið og þá
einvörðungu I sinu föðurlandi. Þó
eru til lönd þar sem aðdáendurnir
eru fjölmargir, Kanada, Astralia
og Nýja-Sjáland eru i þeim hópi.
,,Við þörfnumst Joan Armatrading á sama
hátt og við þörfnumst Bob Dylan og The
Beatles”
—Phil Sutcliffe, blm. Sounds
„Þegar við höfðum lokið við plötuna ,,Joan
Armatrading” fannst mér hún vera besta
platan sem ég hefði nokkru sinni gert.”
—Glyn Johns upptökustjóri
t Bandarikjunum fer þaö orö af
henni, aö hún sé „öðruvisi” og
þaö hefur veriö henni fjötur um
fót. Fyrir vikiö hefur hún ekki náö
til fjöldans. Gagnrýnir einn
skrifaöi: „Sala á hljómplötum
hennar hér hefur ekki veriö
geypileg sökum þess aö hún
semur góöa tónlist sem hljómar
ekki eins og allra annarra.
öllum byrjendum i lagasmiö-
um er sagt aö vera frumlegir, þvi
frumleikinn ráöi úrslitum á tón-
listarsviöinu. Hvaö Joan Arma-
trading áhrærir er spurningin
þessi: Er hún of frumleg?
Frá Vestur Indíum
Joan Armatrading fæddist
niunda dag desembermánaöar
áriö 1950 i Vestur-Indium. Er
stúlkan var sjö ára gömul tóku
foreldrar hennar sig upp af
eyjunum ásamt börnum sinum,
sex aö tölu og fluttu tii Birming-
ham á Bretlandi.
Tónlistin skipaöi ekki veglegan
sess I lifi Joan Armatrading fyrr
en hilla fór undir tvitugsaldurinn.
Og raunar var þaö tilviljun sem
réöi. Vinur hennar hugöist fá
hlutverk I söngleiknum „Hair”
sem þá var á fjölunum i Lundún-
um. Joan lét tilleiöast aö fara
meö, en hikandi þó. Vinurinn var
ekki rábinn, heldur Joan, og hún
99öðruvisi” tónlist
Bob Dylan — Saved
CBS 86113
Dyian heldur áfram aö boöa
sitt fagnaðarerindi og nú
heitir platan „Saved” eöa
„Frelsaöur”.
Platan er I beinu framhaldi
af „SIow Train Coming”, en
nokkuð mikiö ööruvlsi og full-
komnari, enda enn meö þá
Jerry Wexler og Barry
Beckett sem upptökustjórn-
endur.
Dylan semur öll lögin nema
eitt og hefst platan á laginu „A
Satisfied Mind” sem er I
gospel-stil og er til undirstrik-
unar á trúhita hans, og þar á
eftir skiptir hann beint yfir I
titillagiö „Saved”. Annars eru
engin lög sem bera af öörum á
plötunni, sem er bæöi vönduö
og góö og er aö mati undir-
ritaös besta plata Dylans
slöan „Blood on the Tracks”.
Eins og á fyrri plötum notar
hann þekkta session-hljóö-
færaleikara sem kunna sitt
fag og sjálfur er Dylan greini-
lega I essinu sinu.
9,5
9,5
Gunnar
Salvarsson
skrifar.
söng meö leikflokknum i átján
mánuöi samfleytt á feröalögum. t
fristundum notaöi hún tækifæriö
og samdi lög á pianó.
Kunningi hennar I leikflokkn-
um, Pam Nestor, fékkst viö
textagerð og var nokkurt sam-
starf þeirra á milli. Eitt af lögum
Joan viö texta Pam náöi til út-
sendara Cube Records og varö til
þess að samningur var geröur viö
þau. Þekktur upptökustjóri, Gus
Dudgeon, sem haföi unniö tals-
vert meö Elton John, var fenginn
inn I stúdióið Joan og Pam til
hjálpar og útkoman heyrðist
brátt á plötunni „Whatever’s For
Us”.
Af hálfu fyrirtækisins var litiö
þannig á, aö Joan heföi mögu-
leika á þvi aö veröa stjarna og þvi
dekrað viö hana, en aumingja
Pam var geröur hornreka og látiö
sem hann væri núll og nix. Þetta
kunni Joan ekki aö meta og vildi
rifta samningnum, sem þó tókst
ekki. Þaö var þvi ekki fyrr en einu
og hálfu ári siöar aö næst heyrðist
i Joan á plötu er hún var laus
undan samningnum viö Cube.
Hún haföi komist 1 kynni viö
Michael Stone, núverandi
umboðsmann sinn, sem áöur
haföi aöstoöaö Randi Newman og
Jimi Hendrix. Hann náöi aö rifta
samningnum viö Cube og skrifa
undir nýjan hjá A & M. önnur
plata hennar, „Back To The
Night” vakti verulega athygli og
fyrsta hittlagiö leit dagsins ljós,
en þaö var titillag plötunnar.
Plata ársins 1976
Engu aö siöur, fóru hjólin ekki
verulega aö snúast fyrr en Glyn
Johns kom til sögunnar og
stjórnaöi upptökum á plötunni
„Joan Armatrading” áriö 1976.
Breska poppritiö Sounds útnefndi
plötuna bestu plötu ársins og
bandariska timaritiö nefndi plöt-
una I sömu andrá og plötur Rod
Stewarts, Boz Scaggs, Jackson
Browne og Bob Segers.
A sviöi vakti Joan mikla
athygli, áriö 1977 var hún kjörin
efnilegasta söngkonan og mikla
eftirtekt vakti þegar George
Benson, gitarsnillingurinni kunni,
fór þess á leit viö Joan aö hún léki
á gitar meö honum á hljómleikum
I New York.
Nýlega kom sjötta breiöskifa
hennar, „My Myself I” út og
hefur veriö vel tekiö. Hvort þessi
plata mun opna eyru tslendinga
fyrir þessari merku tónlistarkonu
skal ósagt látið, en vissulega er
tónlist hennar og ( og textarnir
ekki siöur) þess viröi aö allir tón-
listarunnendur gefi henni gaum.
—Gsal
Linton Kwesi Johnson — Bass
Culture
ISLAND ILPS 9605
Stórskáldiö Linton Kwesi
Johnson hefur á ný sent frá sér
plötu og ber hún nafnið „Bass
Culture”.
Eins og áöur er ljóöiö númer
eitt og er platan full af boö-
skap og baráttu fyrir auknum
réttindum svartra og miöar
aöallega út frá Bretlandi.
Enda spyr hann á einum staö
hvort England sé oröiö
fasistarlki. Linton er ómyrkur
I máli I sinum boöskap og
þorir aö segja þaö sem I hon-
um býr.
Hann syngur eins og áöur
viö undirleik heföbundinnar
reggaetónlistar og er smekk-
lega útfærö þannig aö Ijóð
hans njóta sln fullkomlega.
Erfitt er aö draga fram ein-
hver atriöi sem skara veru-
lega fram úr en lögin „Inglan
isa Bitch”, „Reggae Sounds”,
„Loraine”, „Reggae Fi
Peach” eru fjögur af átta
lögum plötunnar og mætti
alveg eins nefna hin en þessi
hafa mest áhrif á undirritaö-
an, og eru mjög góö sem
platan öll.