Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.07.2002, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁRIÐ 2002, miðvikudaginn 3. júlí, er á dóm- þingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp dómur í málinu nr: S-1393/2002: Ákæruvaldið gegn Árna Johnsen, Birni Kristmanni Leifs- syni, Gísla Hafliða Guðmundssyni, Stefáni Ax- el Stefánssyni og Tómasi Tómassyni, en málið var dómtekið 27. júní sl. Málið er höfðað með ákæru útgefinni 6. maí 2002 á hendur: „Árna Johnsen, kennitala 010344-4259, Höfðabóli, Vestmannaeyjum, Birni Kristmanni Leifssyni, kennitala 010759- 4049, Árlandi 8, Reykjavík, Gísla Hafliða Guð- mundssyni, kennitala 051157-2309, Melahvarfi 5, Kópavogi, Stefáni Axel Stefánssyni, kenni- tala 291170-2939, Hlíðarhjalla 16, Kópavogi, og Tómasi Tómassyni, kennitala 191044-2079, Vaglaseli 2, Reykjavík, fyrir hegningarlaga- brot eins og nánar greinir hér á eftir. I Ákærða Árna Johnsen einum er gefinn að sök fjárdráttur, umboðssvik, rangar skýrslur til yfirvalda og mútuþægni í opinberu starfi sem alþingismaður, formaður byggingar- nefndar Þjóðleikhússins og formaður bygging- arnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðar- nefndar. A. Ákærði Árni er sakaður um fjárdrátt í op- inberu starfi sem formaður byggingar- nefndar Þjóðleikhússins með því að hafa dregið sér; 1. eldhús- og baðinnréttingu sem hann tók út hjá Samnorræna, Reykjavík, í viðskipta- reikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ákærði fékk fyr- irsvarsmann sölufyrirtækisins til að til- greina úttektina sem hillueiningar og þil- plötur á reikningi dagsettum 28. janúar 1997 að fjárhæð kr. 326.000. Ístak hf. krafði reikningsfjárhæðina hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 19. febrúar 1997 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins. 2. hreinlætistæki og pípulagningaefni sem hann tók út hjá Tengi ehf., Kópavogi, sam- kvæmt reikningi dagsettum 8. júlí 1997 að fjárhæð kr. 231.810 og lét greiða af fjárveit- ingum byggingarnefndarinnar. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001. 3. fánastöng, límtrésbita, sem hann tók út hjá Stálsmiðjunni hf., Reykjavík, í við- skiptareikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Stálsmiðjunnar hf., dagsetts 19. mars 1999, kr. 39.999, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikn- ingi dagsettum 30. september 1999 að við- bættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjár- hæðina 13. ágúst 2001 án álagsins. 4. álstiga sem hann tók út hjá Húsasmiðj- unni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ís- taks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölu- fyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Húsasmiðjunnar hf., dagsetts 7. apríl 1999, kr. 12.047, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhússins með reikningi dagsettum 30. september 1999 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins. 5. þjóðfána og veifur sem hann tók út hjá Íslensku fánasaumastofunni, Hofsósi, sam- kvæmt reikningi dagsettum 16. ágúst 1999 að fjárhæð kr. 247.133 og lét greiða af fjár- veitingum byggingarnefndarinnar. 6. verkpalla sem hann tók út hjá Verkpöll- um ehf. – Brimrás, Reykjavík, í viðskipta- reikning Ístaks hf. samkvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings Verkpalla ehf. – Brim- rásar dagsetts 6. september 1999, kr. 249.245, hjá byggingarnefnd Þjóðleikhúss- ins með reikningi dagsettum 30. september 1999 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endur- greiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álags- ins. 7. tvær jólaljósaseríur sem hann tók út hjá Dengsa ehf., Reykjavík, samkvæmt reikn- ingi dagsettum 22. desember 2000 samtals að fjárhæð kr. 217.257 og lét greiða af fjár- veitingum byggingarnefndarinnar. 8. timbur sem hann tók út hjá Húsasmiðj- unni hf., Reykjavík, í viðskiptareikning Ís- taks hf. samkvæmt beiðni sem meðákærði Tómas Tómasson gaf út til sölufyrirtæk- isins. Fjárhæð tveggja reikninga Húsa- smiðjunnar hf. vegna úttektarinnar dag- settra 2. janúar 2001, samtals kr. 251.857, krafði Ístak hf. hjá byggingarnefnd Þjóð- leikhússins með reikningi dagsettum 28. febrúar 2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álagsins. 9. 300 stk. óðalskantsteina og 30 stk. óðals- steina sem hann tók út hjá BM Vallá, Reykjavík, samkvæmt reikningi dagsettum 11. maí 2001 að fjárhæð kr. 160.978 og lét greiða af fjárveitingum byggingarnefndar- innar. Reikningurinn var áritaður af Fram- kvæmdasýslu ríkisins 17. júlí 2001 um end- urgreiðslu. 10. timbur, saum o.fl. sem hann tók út hjá BYKO, Kópavogi, samkvæmt reikningi dagsettum 23. maí 2001 að fjárhæð kr. 400.930 sem hann lét stíla á Þjóðleikhúsið vegna leikmunageymslu og færa til skuldar á viðskiptareikningi Þjóðleikhússins hjá BYKO. Reikningurinn var síðar bakfærður af reikningi Þjóðleikhússins og hefur ákærði greitt reikningsfjárhæðina. 11. þéttidúk og lím sem hann tók út hjá Gróðurvörum ehf., Reykjavík, samkvæmt reikningi dagsettum 2. júlí 2001 að fjárhæð kr. 173.658 sem hann lét stíla á bygging- arnefnd Þjóðleikhússins vegna bílaplans og smíðaverkstæðis Þjóðleikhússins. Reikn- ingnum var framvísað hjá Framkvæmda- sýslu ríkisins en reikningsfjárhæðin var ekki greidd af fjárveitingum byggingar- nefndarinnar. 12. timbur, þéttiull og aðrar byggingavör- ur sem hann tók út hjá BYKO, Kópavogi, samkvæmt reikningi dagsettum 3. júlí 2001 að fjárhæð kr. 1.016.069 í nafni bygging- arnefndar Þjóðleikhússins vegna leikmuna- geymslu. Reikningsfjárhæðina greiddi ákærði 20. júlí eftir að mál þetta kom upp. 13. þéttidúk sem hann tók út hjá Fagtúni ehf., Reykjavík, samkvæmt reikningi 9. júlí 2001 að fjárhæð kr. 157.320 sem hann lét stíla á byggingarnefnd Þjóðleikhússins. Reikningnum var framvísað hjá Fram- kvæmdasýslu ríkisins en reikningsfjárhæð- in var ekki greidd af fjárveitingum bygg- ingarnefndarinnar. B. Ákærði Árni er sakaður um fjárdrátt í op- inberu starfi sem formaður byggingar- nefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíð- arnefndar, með því að hafa dregið sér; 14. kr. 782.790 af bankareikningi Vestnor- ræna ráðsins við Landsbanka Íslands, Reykjavík, hinn 22. júní 2001 er ákærði fé- nýtti í eigin þágu andvirði tékka sem hann fékk útgefinn af Landsbanka Íslands til X og lét skuldfæra á bankareikning Vestnor- ræna ráðsins vegna tilhæfulauss reiknings, dagsetts 20. júní 2001, á hendur Brattahlíð- arnefnd yfir smíði á þrjátíuogtveimur kist- ilhnöllum sem hann blekkti X til að und- irrita. Hinn 22. júlí 2001 fékk ákærði X til að undirrita yfirlýsingu um að hann gæti ekki sinnt smíði kistilhnallanna og afhenti honum reiðufé til þess að skila fjárhæðinni sem X gerði næsta dag með því að fara í Landsbanka Íslands, Kópavogi, og leggja peningana inn á bankareikning Vestnor- ræna ráðsins við Landsbanka Íslands, Reykjavík. Brot ákærða samkvæmt 1.–14. tölulið þykja varða við 247. gr. sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga að því er 7. lið varð- ar. C. Ákærði Árni er sakaður um rangar skýrslur til yfirvalda með því að; 15. framvísa á skrifstofu Alþingis með um- sókn, dagsettri 28. desember 2000, um lækkun á tekjuskattstofni starfskostnaðar- greiðslna, tilhæfulausum greiðslukvittun- um a) fyrir leigu á fundaraðstöðu 15. janúar til 15. desember 2000 að fjárhæð kr. 112.000, dagsettri 15. febrúar 2000, sem hann fékk fyrirsvarsmann Drífandi ehf. til að gefa út og b) fyrir veitingar handa 70 manns að fjárhæð kr. 118.000, dagsettri 3. júní 2000, sem hann fékk X til að gefa út. Brot ákærða samkvæmt 15. tölulið þykir varða við 147. gr., sbr. 138. gr., almennra hegningarlaga. D. Ákærði Árni er sakaður um brot í opinberu starfi, mútuþægni, með því að hafa; 16. í marsmánuði 2000 fengið Ístak hf., sem hann átti umfangsmikil samskipti við sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhúss- ins og formaður byggingarnefndar Vest- norræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar, til þess að greiða n.kr. 67.308.40 samkvæmt reikningi dagsettum 13. apríl 2000 fyrir til- sniðið timbur í stafkirkju sem ákærði festi kaup á fyrir sjálfan sig hjá Materialbanken AS í Noregi á sama tíma og hann vann að viðtöku stafkirkju, þjóðargjafar Norð- manna til Íslendinga, sem formaður bygg- ingarnefndar stafkirkju í Vestmannaeyjum. Ístak hf. færði fjárhæð reikningsins til gjalda í bókhaldi sínu í maímánuði 2000 á bókhaldsreikning vegna byggingafram- kvæmda í Brattahlíð en með færslu dag- settri 30. júní 2001 voru timburkaup ákærða færð honum til skuldar með kr. 875.694 á viðskiptareikningi ákærða sem þá var stofnað til í bókhaldi Ístaks hf. 17. sem formaður byggingarnefndar Þjóð- leikhússins, í marsmánuði 2001, heimtað og þegið kr. 650.000 úr hendi fyrirsvarsmanna Þjóðleikhúskjallarans hf., meðákærðu Björns Kristmanns Leifssonar og Gísla Hafliða Guðmundssonar, fyrir að sam- þykkja reikning Þjóðleikhúskjallarans hf., dagsettan 8. febrúar 2001 að fjárhæð kr. 3.154.419, vegna ýmissa lagfæringa í Þjóð- leikhúskjallaranum á fimm ára tímabili frá dagsetningu reiknings að telja, til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndar Þjóð- leikhússins. Brot ákærða samkvæmt 16. og 17. tölulið þykir varða við 128. gr. almennra hegning- arlaga. E. Ákærði Árni er sakaður um umboðssvik í opinberu starfi með því að hafa sem for- maður byggingarnefndar Vestnorræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar, misnotað að- stöðu sína, sér eða öðrum til ávinnings; 18. hinn 22. júní 2001 er hann greiddi af bankareikningi Vestnorræna ráðsins við Landsbanka Íslands, Reykjavík, Torf- og grjóthleðslunni ehf. Hellu, reikning á eyðu- blaði „Torf- og grjóthleðslna“, dagsettan 10. ágúst 2000, að fjárhæð kr. 645.000, vegna hleðslu í Brattahlíð og tækjaleigu, þótt Torf- og grjóthleðslan ehf., sem verið hafði undirverktaki Ístaks hf. við fram- kvæmd verks í Grænlandi á árinu 2000 og fengið fullnaðargreiðslu frá Ístaki hf., hafi ekki átt lögvarða kröfu á hendur Bratta- hlíðarnefnd. Brot ákærða samkvæmt 18. tölulið þykir varða við 249. gr., sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga. II Ákærða Árna eru í eftirgreindum tilvikum gefin að sök umboðssvik í opinberu starfi sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og ákærða, Gísla Hafliða Guðmundssyni, hlut- deild í þeim með því að; 19. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og samþykkti til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndarinnar ár 1998, sér eða öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning sem meðákærði Gísli Hafliði Guðmundsson útbjó og gaf út í nafni Þjóðleikhúskjall- arans hf. dagsettan 18. mars 1998 að fjár- hæð kr. 82.500 fyrir kaffi og kökur á tut- tuguogníu fundum byggingarnefndarinnar á tímabilinu júlí 1997 til mars 1998. 20. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og samþykkti til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndarinnar ár 1999, sér eða öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning Þjóðleikhúskjallarans hf. sem meðákærði Gísli Hafliði Guðmundsson útbjó og gaf út í nafni Þjóðleikhúskjallarans hf. dagsettan 20. janúar 1999 að fjárhæð kr. 88.000 fyrir kaffiveitingar á fundum vegna endurbóta í Þjóðleikhúsi. Þykir brot ákærða Árna samkvæmt 19. og 20. tölulið varða við 249. gr., sbr. 138. gr. al- mennra hegningarlaga, en brot ákærða Gísla Hafliða samkvæmt sömu töluliðum við 249. gr., sbr. 22. gr. almennra hegning- arlaga. III Ákærða Árna eru í eftirgreindu tilviki gefin að sök umboðssvik í opinberu starfi sem for- maður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og Stefáni Axel Stefánssyni hlutdeild í þeim um- boðssvikum með því að; 21. ákærði Árni misnotaði aðstöðu sína og samþykkti til greiðslu af fjárveitingum byggingarnefndarinnar, sér eða öðrum til ávinnings, tilhæfulausan reikning Forum ehf. dagsettan 14. desember 2000 að fjár- hæð kr. 169.000 sem meðákærði Stefán Ax- el Stefánsson útbjó og gaf út í nafni Forum ehf. fyrir kaffiveitingar í Leikhúskjallaran- um á þrjátíuogþremur fundum byggingar- nefndarinnar á tímabilinu nóvember 1999 til október 2000. Brot ákærða Árna samkvæmt 21. tölulið þykir varða við 249. gr., sbr. 138. gr. al- mennra hegningarlaga, en brot ákærða Stefáns Axels samkvæmt sama tölulið við 249. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningar- laga. IV Ákærða Árna eru í eftirgreindum tilvikum gefin að sök umboðssvik og fjárdráttur í op- inberu starfi sem formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins með því að hafa misnotað að- stöðu sína og dregið sér verðmæti sér til ávinnings og ákærða Tómasi Tómassyni, verk- fræðingi hjá Ístaki hf., umsjónarmanni með verkum við Þjóðleikhúsið, er gefin að sök þátt- taka í umboðssvika- og fjárdráttarbrotunum. A. Umboðssvik 22. Ákærði Árni fékk meðákærða Tómas til þess á árinu 1999 að láta Ístak hf. annast innréttingu á bílskúr í Haukalind 17, Kópa- vogi, sem var byggingarnefnd Þjóðleik- hússins algjörlega óviðkomandi, og gera byggingarnefndinni reikning vegna kostn- aðar við framkvæmdina sem nam kr. 305.825 samkvæmt reikningi Ístaks hf. á hendur byggingarnefndinni dagsettum 30. mars 2000 að viðbættu 15% álagi. 23. Ákærði Árni fékk meðákærða Tómas til þess að gefa út beiðni í nafni Ístaks hf. til Funa ehf. blikksmiðju, dagsetta 30. mars 2001, um sandblástur, efni og viðgerðir á ofni, sem var byggingarnefndinni algjör- lega óviðkomandi, en Ístak hf. krafði kostn- að vegna verksins, kr. 32.800, samkvæmt reikningi Funa ehf, blikksmiðju, dagsettum 23. apríl 2001, með reikningi á hendur byggingarnefndinni dagsettum 28. maí 2001 að viðbættu 15% álagi. Ákærði endur- greiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álags- ins. B. Fjárdráttur Ákærði Árni er sakaður um að hafa með að- stoð meðákærða Tómasar dregið sér; 24. flísar og fylgiefni sem hann tók út hjá Vídd hf., Kópavogi, í viðskiptareikning Ís- Sakfelldur fyrir 18 ákæru- atriði en sýknaður af níu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Árna Johnsen, fyrrverandi alþingismann, í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt og umboðssvik í opinberu starfi, mútuþægni og rangar skýrslur til yfirvalda. Aðrir voru sýkn- aðir. Dómurinn er birtur hér í heild sinni. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ákæruvaldsins gegn Árna Johnsen og fleirum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.