Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 8

Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hjúkrunarheimilið Droplaugarstaðir 20 ára Gott að dvelja hjá Droplaugu NÝLEGA var haldiðupp á 20 ára af-mæli Hjúkrunar- heimilisins Droplaugar- staða. Af því tilefni ræddi Morgunblaðið við Ingi- björgu Bernhöft, forstöðu- mann og hjúkrunarfor- stjóra heimilisins. – Hver er saga Drop- laugarstaða? „Framan af var hér blandað heimili með hvoru tveggja vistdeild og hjúkr- unardeild. Heimilið var opnað hinn 30. júní 1982 og var þá opnuð vistdeild fyrir 36 einstaklinga. Um haust- ið sama ár var opnuð hjúkrunardeild fyrir 32 einstaklinga. Samtals eru 68 manns í heimili hér. Droplaugarstaðir voru opnaðir með öðrum heimilum á ár- unum 1979–1982, má þar nefna íbúðirnar á Dalbraut og við Norð- urbrún. Í ársbyrjun 1996 var heimilinu breytt alfarið í hjúkrun- arheimili og hefur svo verið síð- an.“ – Hverjir fá að dvelja á Drop- laugarstöðum? „Viðkomandi fer í svonefnt vist- unarmat þar sem metin er þörf hans fyrir aðstoð og aðhlynningu. Þeir sem dveljast hér verða að vera í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrun. Stefnan er að hlúa sem best að fólki í heimahúsum, en þegar vistunarmatið úrskurðar að viðkomandi sé í brýnni þörf á hann rétt á að koma til okkar. Þess vegna eru margir veikir hjá okk- ur.“ – Hvernig er herbergjaskipan? „Við erum með þrettán tvíbýli, annað er einbýli. Framtíðarstefan er sú að hafa alla í einbýli. Það er nútímakrafa að hafa svæði útaf fyrir sig þrátt fyrir að vera kom- inn á hjúkrunarheimili. Áður fyrr var algengt að margir væru saman í herbergi, en nú eru aðeins byggð heimili með einstaklingsherbergj- um. Þannig viljum við einnig vera. Þess vegna hafa verið þróaðar hugmyndir um stækkun heimilis- ins, sem eru á vinnslustigi.“ – Hvernig myndi heimilið breytast ef það yrði stækkað? „Það fengju allir einbýli og það yrði pláss fyrir fjórtán manns til viðbótar, sem gerði heimilið að mjög þægilegri rekstrareiningu. Einnig höfum við hug á að nýta þakið yfir húsinu betur, til dæmis með því að opna þar samkomusal. Þessar breytingar eru þó enn að- eins á vinnslustigi.“ – Hvernig er andinn á Drop- laugarstöðum? „Við reynum að hafa allt sem heimilislegast. Þetta er að sjálf- sögðu heimili þeirra sem hér búa, ekki stofnun. Að sama skapi eru engir sérstakir heimsóknartímar, hér geta ættingjar og vinir litið við þegar þeim hentar, heimsótt ást- vini sína og fengið sér kaffisopa. Við viljum koma til móts við þær óumflýjanlegu breytingar sem verða á umhverfi þess sem flytur af fyrra heimili inn á hjúkrunarheimili eins og þetta. Einnig erum við að breyta fatnaði starfsfólks á þann veg að það getur mætt í sín- um fötum en klæðist ekki ein- göngu einkennisklæðum. Það ger- ir samveruna persónulegri. Starfsandinn er einnig mjög góð- ur, og hafa tvær konur unnið hér frá upphafi, og margir unnið hér lengur en 10 ár.“ – Hvernig er hjúkrun háttað? „Hér starfar fjöldi hjúkrunar- fræðinga, sjúkraliða og Eflingar- starfsfólks sem sinnir íbúum heimilisins og rekur það. Svo er samningur um læknaþjónustu við Landspítala – háskólasjúkrahús, öldrunarsvið.“ – Hvað með félagsstarf? „Félagsstarfið hefur verið stundað alveg frá byrjun, en það er að sjálfsögðu í samræmi við getu heimilisfólks. Við höfum mjög góðan iðjuþjálfa sem sér um félagsstarfið ásamt iðjuþjálfun. Sjúkraþjálfun er einnig mjög virk hér. Hér hafa allir fótavist á hverj- um degi og sjúkraþjálfun og iðju- þjálfun er mjög góð til að viðhalda þeirri færni sem fyrir er og byggja upp. Við fáum alls konar listafólk í heimsókn og höldum ýmsar hátíð- ir, þorrablót og þess háttar. Fólki finnst mjög gaman að fá tónlist- armenn í heimsókn eða að sjá myndasýningu. Einnig förum við í stuttar ferðir saman um Reykja- vík og utan Reykjavíkur.“ – Þið hafið líka fallegan garð, ekki satt? „Jú, við búum svo vel að eiga yndislegan garð og gróðurhús, þar sem við ræktum, bæði starfsfólk og gamla fólkið, tómata, papriku, vínber og alls konar annað græn- meti. Nú í vor prófuðum við einnig í fyrsta sinn að setja niður kart- öflur. Við viljum endilega gera heimilisverk saman til að viðhalda heimilis- bragnum.“ – Hvers vegna ber heimilið nafnið Drop- laugarstaðir? „Það er saga á bak við það. Þannig er mál með vexti að hér í grenndinni eru götur sem nefndar eru eftir hetjum Íslendingasagna, Njálsgata og Bergþórugata til dæmis. Hér rétt við heimilið var stígur, og bar sá stígur nafnið Droplaugarstígur. Hann er nefnd- ur eftir Droplaugu, móður Drop- laugarsona, Helga og Gríms, í samnefndri Íslendingasögu.“ Ingibjörg Bernhöft  Ingibjörg Bernhöft er fædd í Reykjavík 1949. Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands 1973. Tók réttindi sem Dale Carnegie- kennari frá Syracuse U.S.A. 1989 og kenndi á Dale Carnegie- námskeiðum hjá Stjórnunarskól- anum í 5 ár. Starfaði sem hjúkr- unarfræðingur á Landspítala í 2 ár strax eftir nám og svo í 8 ár aðstoðardeildarstjóri á Reykja- lundi. Var hjúkrunarforstjóri heilsugæslunnar í Mosfellsbæ. Sölumaður fyrir hjúkrunarvörur hjá Austurbakka, síðan hjúkr- unaforstjóri í Víðinesi og nú síð- ustu 7 árin forstöðumaður Drop- laugarstaða. Ingibjörg er gift Bjarnþóri Aðalsteinssyni lög- reglufulltrúa og eiga þau tvær dætur, Ingibjörgu og Bryndísi. Heimilislegt og vinsamlegt umhverfi Þið standist vel skilyrðið um mikla erlenda peninga, en þið eruð ekki útlendingar og ekki heldur með rétt flokksskírteini, herrar mínir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.