Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 16. júlí 2002 Prentsmiðja Morgunblaðsinsblað C Nú gefst þér kostur á að fjárfesta í nýrri og rúmgóðri íbúð á frábærum stað. Íbúðirnar eru glæsilega hannaðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja og allar með sérinngangi af yfirbyggðum svalagangi. Íbúðirnar verða afhentar 1. des. 2002, fullbúnar án gólfefna en baðherbergi verða flísalögð. Húsin eru einangruð að utan og klædd áli og harðviði og þarfnast því lágmarks viðhalds. Njóttu þess að búa í hjarta borgarinnar! Góðir kostir: • Sér bílastæði í bílageymsluhúsi. • Þvottahús innan íbúðar. • Dyrasími tengdur myndavél í anddyri. Söludeild okkar er að Höfðabakka 9, sími 530 4200. Ítarlegar upplýsingar um eignirnar eru á www.iav.is. Laugarnesvegur 87 og 89 • Möguleiki á sjónvarps-, síma- og nettengingum í öll herbergi. • Vandaðar innréttingar og hurðir. • Lögð er sérstök áhersla á góða hljóðeinangrun. Dæmi um 3ja herbergja íbúð Stjórnbúnaður fyrir varmaskipta Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Fagrar skreytingar Hönnuðustofuna sjálfir Grand Hotel í Salsomaggiore 33 Mötuneyti breytt í hárgreiðslustofu 44                                                                           )'"(&!"( & & '* %&( '*"               ! "##" +%,*-* %-""%& &$%&. /01   2$"$-3  4. 5%&&&6( !&  7!(*(8 %7!(*(8        (    $     2%'!'#9&%'"!*'&'"& :%&-$&%'"9;;;($!('&                :&' -"<=>>? !"( !"( !"( !"( @ @ @          %&   -<=?   (   '    "##  "##"         A<&( "" > (( " ) *  * )+, *-( >>   .   /     )  + ! "##" 4%&''* ""' B""' %'"     (  ( >      AUKNAR horfur á stóru álveri á Reyðarfirði eru þegar farnar að hafa áhrif á fasteignamarkaðinn á Aust- urlandi. „Það er nú þegar fyrir hendi veruleg eftirspurn eftir íbúðarhús- næði í Fjarðabyggð og verð hefur heldur farið hækkandi,“ sagði Smári Geirsson, formaður Sambands sveit- arfélaga á Austurlandi. „Samkvæmt úttekt, sem gerð var í tengslum við umhverfismat álvers á Reyðarfirði, var gert ráð fyrir að byggja þyrfti 900–1.000 íbúðir í tengslum við uppbyggingu álversins. Um 500–600 manns munu væntan- lega starfa í álverinu, en auk þess er gert ráð fyrir fjölda afleiddra starfa vegna þessarar uppbyggingar. Á grunni þeirra útreikninga er gert ráð fyrir að það þurfi 900–1.000 nýj- ar íbúðir á áhrifasvæði álversins samkvæmt framansögðu,“ sagði Smári ennfremur. Smári benti auk þess á að víðtæk atvinnuuppbygging væri hafin á öðr- um sviðum á miðsvæði Austurlands. „Laxeldið er þar komið vel á veg og gert ráð fyrir að á næstu fjórum ár- um fjölgi þeim sem starfi í tengslum við laxeldið upp í 120 manns og það bara í Fjarðabyggð.“ Ljóst er að síðustu fréttir varð- andi álverið hafa aukið mjög á bjart- sýni á meðal margra byggingaraðila. „Það liggja fyrir allmargar lóðaum- sóknir og þær eru flestar um lóðir á Reyðarfirði,“ sagði Smári. „Þessar umsóknir eru yfirleitt frá smærri byggingarfyrirtækjum, en það er greinilegt að stærri byggingarfyrir- tæki eru líka farin að sýna lóðum á þessu svæði miklu meiri áhuga en áður og fylgjast gjörla með fram- vindu mála.“ Gott lóðaframboð Smári kvað lóðaframboð vera gott á þessu svæði. „Í þeim þremur byggðarlögum, sem tilheyra Fjarða- byggð, það er Neskaupstað, Reyðar- firði og Eskifirði, eru til deiliskipu- lögð svæði fyrir 357 íbúðir og það er því strax hægt að úthluta lóðum á þessum svæðum til þeirra, sem áhuga hafa,“ sagði hann. Smári Geirsson sagði að lokum að fleiri sveitarfélög á Austurlandi hefðu búið sig undir mikla uppbygg- ingu í tengslum við álver. Á Egils- stöðum væri t.d. tilbúið deiliskipu- lagt svæði þar sem hægt væri að byrja að byggja með stuttum fyrir- vara. Að sögn Ásmundar Ásmundsson- ar hjá fasteignasölunni Hóli, sem hefur útibú í Fjarðabyggð, má gera ráð fyrir ört vaxandi eftirspurn þar í kjölfar álvers á Reyðarfirði. „Það eru strax farnar að koma fyrirspurn- ir frá fólki sem hefur áhuga á að flytja hingað og setjast hér að,“ sagði Ásmundur. „Ég tel því að íbúðarhúsnæði eigi eftir að hækka hér verulega, en fram að þessu hefur verð á einbýlishúsi hér verið svipað og verð á þriggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæð- inu.“ Um 900–1.000 nýjar íbúðir þarf í tengslum við álver á Reyðarfirði Ljósmynd/Hallfríður Bjarnadóttir Frá Reyðarfirði. Gott lóðaframboð er fyrir hendi bæði þar og í öðrum byggðarlögum í Fjarðabyggð sem og víðar á Austur- landi til þess að mæta aukinni eftirspurn. Nýbyggingvið Dalbraut14 Íbúðir fyrir aldraða 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.