Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir NÚ liggja fyrir upplýsingar um starfsemi Íbúðalánasjóðs fyrri hluta ársins 2002. Þegar litið er til fyrstu sex mánaða ársins kemur í ljós að áætlanir Íbúðalánasjóðs hafa í meginatriðum staðist. Ef fyrst er litið á nýliðinn júní- mánuð sést að lítilsháttar fækkun varð á innkomnum umsóknum í júní 2002 miðað við júní 2001. Í ár komu inn 769 umsóknir en í fyrra 803. Þetta rímar við áætlanir sjóðsins sem spáði sambærilegum fjölda um- sókna fyrri hluta ársins 2002 og 2001, en að umsóknum fækkaði síð- ari hluta ársins í samanburði við síð- ari hluta ársins 2001. Fjöldi samþykktra skuldabréfa- skipta varð hins vegar meiri og fjár- hæð samþykktra skuldabréfaskipta um 15% hærri á samanburðar- tímabilinu. Þetta kemur til af hlut- fallslegri fjölgun lána til nýbygg- inga. Fjárhæð samþykktra skulda- bréfaskipta er um 18% hærri fyrstu sex mánuði þessa árs miðað við fyrstu sex mánuðina 2001, sem er eðlilegt, þar sem hámarksfjárhæðir lána hækkuðu um 20% um mitt ár 2001. Misskilningur um fjárhæðir Þess misskilnings gætir að fjár- hæð samþykktra skuldabréfaskipta sé jöfn húsbréfaútgáfu. Svo er þó ekki. Samþykkt skuldabréfaskipti verða ekki útgáfa húsbréfa fyrr en skiptin hafa farið fram. Þannig eru samþykkt skuldabréfaskipti á fyrri hluta árs 2002 tæpir 16,5 milljarðar króna en útgáfa húsbréfa er hins vegar aðeins 15,6 milljarðar króna. Ástæður þessa mismunar gætu verið tvenns konar. Annars vegar hraðari og skilvirkari afgreiðsla Íbúðalánasjóðs (biðtími styst) og hins vegar að meira sé nú orðið um erfiðleika við að klára fasteigna- viðskipti, t.d. vegna veðrýmis, af- falla húsbréfa og/eða að ekki verði af viðskiptum. Áætlanir Íbúðalánasjóðs gerðu ráð fyrir um 4.500 innkomnum um- sóknum fyrri hluta árs 2002 og að meðalfasteignaveðbréf yrði um 3.250.000 króna. Útgáfa húsbréfa yrði því á bilinu 14,5 til 15 milljarðar króna á fyrri hluta ársins. Raunin varð 4.839 umsóknir, meðalbréfið tæpar 3,3 milljónir króna og hús- bréfaútgáfan tæpir 15,6 milljarðar eins og áður sagði. Aukningin í húsbréfaútgáfu er því um 1 milljarður króna frá áætlunum sjóðsins, en á sama tíma hefur út- gáfa húsnæðisbréfa verið 1 milljarði lægri en áætlun sjóðsins frá því í desember 2001 sagði til um. Útgáfa Íbúðalánasjóðs í heild er því nokkuð í takt við áætlanir sjóðsins. Þó vonir og væntingar hafi staðið til um að útgáfan yrði minni er langt frá því að um sé að ræða sprengingu í skuldabréfaútgáfu sjóðsins og því óviðeigandi af hendi fjármálafyrir- tækja og fjölmiðla að vísa í slíkt. Staðreyndin er sú að framboðsaukn- ingin umfram væntingar aðila á fjármagnsmarkaði er fyrst og fremst gríðarleg aukning í skulda- bréfaútgáfu banka og fyrirtækja. Mjúk lending hagkerfisins Mikil og stöðug útgáfa Íbúðalána- sjóðs undanfarin misseri, vegna mikilla viðskipta á fasteignamark- aði, hefur þó vissulega sín áhrif til þess að ávöxtunarkrafa á skulda- bréfamarkaði er svo há sem raun ber vitni og að sama skapi afföll húsbréfa. Hins vegar má velta því fyrir sér hvort hinn líflegi fasteignamarkaður á Íslandi hafi ekki á síðustu mán- uðum aðstoðað við mýkri lendingu hagkerfisins en ella og því séu heild- aráhrifin til góðs. Íbúðalánasjóður tekur þó undir með aðilum fjár- magnsmarkaðarins að tími sé kom- inn til að um hægist á fasteigna- markaði. Á eftirspurnahlið fjármagns- markaðarins ber þó að hrósa bönk- unum fyrir starf sitt við kynningu og sölu íslenskra skuldabréfa til er- lendra aðila. Það starf virðist hafa skilað sér með miklum ágætum, það sem af er 2002, og ljóst að ávöxt- unarkrafa skuldabréfa og afföll væru til muna hærri í dag ef ekki hefðu komið til þessi aukning á eft- irspurnarhlið markaðarins. Það er von Íbúðalánasjóðs að framhald verði á þessu öfluga og eftir- tektarverða starfi bankanna. 5.000 viðbótarlán Viðbótarlánin eru í stöðugri sókn og í júní voru afgreiddar tæpar 400 milljónir króna. Samhengi viðbótarlána og hús- bréfaútgáfu veldur kannski mestu um að útgáfa húsbréfa er meiri en áætlanir og vonir stóðu til. Miðað við umsagnir húsnæðisnefnda sveit- arfélaganna eru litlar líkur á að draga taki úr þessum lánaflokki á næstu mánuðum, þvert á móti. Til stendur að skoða sérstaklega lána- úthlutanir viðbótalána á næstunni og greina hvort hlutverki þeirra og markmiðum sé að fullu náð. Yfir 5 þúsund fjölskyldur hafa nú þegar fengið afgreitt viðbótarlán, eftir rúmlega þriggja ára starfstíma Íbúðalánasjóðs, en þess má geta að um 10.000 fjölskyldur voru í gamla félagslega kerfinu, sem lagt var nið- ur við stofnun Íbúðalánasjóðs. Leiguíbúðalán Leiguíbúðalán eru hins vegar töluvert undir áætlunum sjóðsins, en það gæti verið vegna þess að hægst hafi á framkvæmdum. Í píp- unum eru úthlutanir í samræmi við fjárlög en ekki hafa allir nýtt sér heimildir sínar og nokkuð er um að framkvæmdir séu ekki hafnar, þrátt fyrir að fyrir liggi lánsloforð. Uppgreiðslur Uppgreiðslur voru 145 milljónir í húsbréfakerfinu í júní 2002 og 257 milljónir í gömlu byggingasjóð- unum, eða samtals um 400 milljónir króna. Tilflutningur lána yfir í hús- bréfakerfið úr gömlu sjóðunum kann að vera hafinn eftir að kaup- skylda sveitarfélaganna var afnum- in fyrir stuttu í gamla félagslega kerfinu. Það ætti að þýða meiri útgáfu húsbréfa en minni útgáfu húsnæð- isbréfa. Í heildina litið væntanlega góð áhrif á sjóðsstöðu Íbúðalána- sjóðs og hagstæð þróun fyrir fjár- málamarkað. Lítil vanskil Vanskil viðskiptavina Íbúðalána- sjóðs jukust lítillega í júní en eru sem fyrr minni en venja var. Einnig má reikna með að við næstu mánaðamót verði staða van- skila enn minni vegna skuldajöfn- unar í gegnum vaxtabótakerfið. Íbúðalánasjóður mun í þriðju viku júlímánaðar birta endurskoðaða áætlun sína fyrir útgáfu hús- og húsnæðisbréfa og það nýmæli tekið upp að áætlunin verður til 12 mán- aða. Áætlanir Íbúðalánasjóðs fyrri hluta árs standast Markaðurinn eftir Hall Magnússon, yfirmann gæða- og markaðsmála Íbúðalánasjóðs/hallur@ils.is Morgunblaðið/RAX Efnisyfirlit Austurbær .................................. 23 Ás ................................................ 4-5 Ásbyrgi ........................................ 36 Berg .............................................. 42 Bifröst ......................................... 44 Borgir ............................................ 12 Eign.is ............................................. 6 Eignamiðlun ........................ 24-25 Eignaval .......................................... 8 Fasteign.is .................................. 27 Fasteignamarkaðurinn ............ 48 Fasteignamiðlunin .................... 37 Fasteignamiðstöðin .................... 5 Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 21 Fasteignasala Íslands .............. 29 Fasteignastofan ......................... 41 Fasteignaþing ............................. 39 Fjárfesting .................................. 38 Fold ............................................... 43 Foss .............................................. 40 Garður .......................................... 47 Garðatorg .................................... 32 Gimli ................................................ 9 Grund ............................................. 10 Híbýli ............................................ 47 Holt ............................................... 34 Hóll ................................................. 13 Hraunhamar ......................... 30-31 Húsakaup ....................................... 7 Húsavík ........................................ 24 Húsið ........................................... 22 Húsin í bænum ........................... 35 Höfði .............................................. 19 Höfði Hafnarfirði ........................ 18 Kjöreign ........................................ 17 Laufás ........................................... 14 Lundur .................................. 28-29 Lyngvík ........................................ 45 Miðborg .......................................... 11 Óðal ................................................ 15 Skeifan ............................................ 3 .Smárinn ....................................... 22 Stakfell ......................................... 10 Valhöll .................................... 20-21 Þingholt ........................................ 16 Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Gimli er nú til sölu 101,6 ferm. íbúð við Öldugötu 34 í Reykjavík. Þetta er fimm herbergja sérhæð á fyrstu hæð ásamt 22,3 ferm bílskúr. Í forstofu er fataskápur og hol er með tölvuhorni. Í stofu og borðstofu eru fallegir gipslistar og úr stofu er gengið út á suðursvalir. Í eldhúsi er eldri innrétting, borð- krókur og dúkflísar. Baðherbergið er með glugga og flísalagt í hólf og gólf. Af þremur svefnherbergjum er dúkur á tveimur og parket á þriðja. Hjónaherbergið er mjög rúmgott, með miklu skápaplássi og útgangi út á 22 ferm. afgirtar svalir, sem eru yfir bílskúr. Þvottahús er sameiginlegt. Íbúðin er með sérhita og henni fylgir sérgeymsla og útigeymsla, sem er undir tröppunum. Húsið var málað og viðgert fyrir um það bil fjórum ár- um. Ásett verð er 17,8 millj. kr. Öldugata 34 Þetta er 101,6 ferm. fimm herbergja sérhæð á fyrstu hæð ásamt 22,3 ferm. bíl- skúr. Ásett verð er 17,8 millj. kr., en íbúðin er til sölu hjá Gimli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.