Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 C 33HeimiliFasteignir Í HINU íburðarmikla fyrrverandi Grand Hotel í Salsomaggiore í Norður-Ítalíu var mikið um að vera síðari hluta sl. júnímánaðar. Þar stóð þá yfir Evrópumót í brids. Sjö- tíu ár eru nú liðin síðan farið var að halda slík mót, en Evrópusam- bandið í brids kom þó til sögunnar síðar. Tímamótanna var minnst með viðtölum og verðlaunaafhend- ingum í ráð- stefnusal um- rædds hótels, og var sýnt frá at- höfninni í sjón- varpi. Íslendingar sendu bæði opinn flokk og kvenna- lið á þetta brids- mót og varð landsliðið í opn- um flokki nr. 13 í hópi 38 þjóða. Þar mætast fortíð og nútíð Fólki var sann- arlega ekki í kot vísað að spila í þessu fallega gamla hóteli. Það var augljóslega mjög vandað að fyrstu gerð og margt af hinum ríkmannlegu skreytingum stóð enn fyrir sínu. Í þessari byggingu mætast fortíð og nútíð á heldur harkalegan hátt, en hið gamla hótel er nú helsta ráð- stefnuhús Salsomaggiore og hefur verið byggður við það ráðstefnu- salur í mjög nútímalegum stíl. Hann stendur hvað aðstöðu snertir vel undir nafni sem slíkur. Gamla hótelið má muna sinn fífil fegri, þetta var ekki aldeilis neitt venjulegt hótel – um er að ræða eitt helsta „flaggskip“ þeirra hótela sem byggð voru fyrir yfirstétt Evrópu þegar hún hópaðist í heilsulindar- bæi sér til andlegrar og líkamlegrar upplyftingar fyrir um það bil hundrað árum. Í hótelinu voru 300 herbergi Grand Hotel des thermes, nú Pa- lazzo dei Congressi í Salsomaggi- ore, var teiknað 1898 af Luigi Broggi, frægum arkitekt frá Mil- ano. Hótelið var opnað 1901. Bygg- ingin var fjármögnuð af Cesare Ritz og rekin af honum ásamt Bar- on Pfyffer til 1910. Í hótelinu voru 300 herbergi á fjórum hæðum og það var í laginu eins og hesthófur. Að utan var það steinlagt með skreyttum keramikflísum við glugga og dyr. Skreytingar úr járni, m.a. við stiga, voru gerðar af Alessandro Mazzucotelli. Fagrar skreytingar hið innra sem ytra Hið innra var hótelið skreytt fögrum myndum og munstrum, einkum þykja verk Gottardo Val- entini glæsileg. Eftir fyrri heimsstyrjöldina, sem vitaskuld breytti miklu í högum hinnar evrópsku yfirstéttar, komst hótelið í eigu Anonima Grandi Al- berghi Salsomaggiore sem einnig átti fleiri glæsihótel í þessum fína heilsulindabæ. Hótelið var stækkað og gerður hinn íburðarmikli Mára- salur og fleiri vistarverur, verk Ugo Giusti og Galileo Chini. Sá síð- arnefndi myndskreytti sali í már- ískum stíl. Byggt í „Liberty“-stíl Eftir seinni heimsstyrjöldina varð Leoni greifi eigandi að Grand Hotel og rak það til 1965 þegar yf- irvöld í Salsomag- giore gerðu það að ráðstefnusal sín- um. Grand Hotel er byggt í hinum fræga „Liberty“- stíl (ítalska nafnið yfir art nouveau), eins og mörg önn- ur glæsihótel fyrir yfirstéttina sem byggð voru á Ítalíu á svokölluðu Belle époque (fallega tímabilinu). Salsomaggiore var mikið sóttur heilsulindabær frá því þar hófst slík starfsemi og kepptust aðal- bornir menn og konur, stjórnmála- menn og viðskiptajöfrar við að eyða þar fríum sínum. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til þess að sjá fyrir sér þann glæsi- leika sem svifið hefur yfir vötnum meðan það ágæta fólk skundaði þar um hús og grundir á sínum mektar- tímum. Grand Hotel er í hjarta Salso- maggiore. Hinn nýi ráðstefnusalur sem byggður hefur verið við húsið er sem fyrr sagði í mikilli andstöðu við þann glæsistíl sem einkennir hina fjóra glæstu sali gamla hótels- ins, Márasalinn, Cariatidi, Pompa- dour og Taverna Rossa. Þeir bera allir merki hins besta sem fáanlegt var á þeim tíma í arkitektúr og skreytilist, sannarlega var þar ekk- ert til sparað, hvorki í efniviði, vinnu né fyrirhöfn – það er augljóst þeim sem séð hafa. Mósaík og munúðarfull bros Í ráðstefnusalnum nýja geta setið um sjö hundruð manns og hægt er að halda í þessum húsakynnum hin- ar fjölbreytilegustu samkundur fjölda fólks, bæði í sölunum sjálfum og fjölda herbergja sem tilheyra að- stöðunni. Ég varð vitni að undirbúningi lokaveislu Evrópumótsins í brids í hinum sögufræga Márasal. Sett voru upp fjölmörg hringlaga borð og mig hreint sundlaði þegar ég hugsaði um allar þær veislur sem á undan voru gengnar í þessum til- komumiklu húsakynnum. Ég sá í anda hvítklæddar yfirstéttardömur með munúðarfull bros sem þær földu að mestu bak við létta og leikandi blævængi með- an karlarnir sneru upp á yfir- skeggin og lögðu á ráðin með sjálf- um sér hvaða konu þeir hyggðust táldraga en töluðu um leið í lágum hljóðum um viðskipti og heilsufæði. Ég reikaði um salinn og skoðaði veggina sem eru dökkmálaðir neðst með viðarlíkingu, svo og súlur í stíl. Mesta athygli mína vakti hvolfþak- ið, sem er úr járni og lituðu gleri og varpar mildri og ævintýralegri birtu yfir önnum kafinn mannskap- inn í salnum. Víða má sjá glæsilegar skreyt- ingar í márastíl í loftum og á veggj- um, svo og fallegt dökkt tréverk, mósaíkgólf og fallega parketlögn. Það er næstum óþægilegt að koma í hina nýju byggingu. Svo grá, ein- föld og gríðarlega ólík er hún hinni gömlu og miklu síðri, a.m.k. hvað íburð og glæsileik snertir. Þó er einn útveggur hennar með grjót- lögn sem minnir talsvert á Drápu- hlíðargrjótið okkar fræga. Ég vona aðeins að það sé ekki svo að litlaus einfaldleiki viðbygg- ingarinnar, þar sem hún mætir tig- inmannlegum glæsileika gamla hót- elsins, endurspegli fábreytileikann í lífi nútímamannsins. Ríkmann- legur íburð- ur – æpandi einfaldleiki Á Evrópumótinu í brids var spilað í gömlu Ritz-hóteli sem var á sínum tíma byggt fyrir yfirstétt Evrópu í ítalska heilsulindabænum Salsomaggiore. Guðrún Guðlaugsdóttir kynnti sér sögu byggingarinnar og gekk um glæsta sali hennar. Dyraumbúnaður er eins og allt annað á gamla Grand Hotel með miklum glæsibrag. Morgunblaðið/Guðrún Guðlaugs Grand Hotel var í upphafi smekklega skreytt bæði að utan sem innan. Við gluggaumbúnað eru m.a. keramikflísar með fallegum blómaskreytingum. Gamla fallega lagða parketgólfið í Márasalnum í Grand Hotel má muna sinn fífil fegri og gæti sagt frá mörgu sögulegu úr hinum mannmörgu glæsiveislum sem þar voru haldnar þegar yfirstéttin í Evrópu hélt þar til í fríum sínum. Inngangurinn á Grand Hotel í Salsomaggiore, sem nú er ráðstefnuhús með nútímalegri viðbyggingu þar sem er 700 manna salur. Á stórum svölum á bakhlið Grand Hotels bar íslenska landsliðið í brids saman bækur sínar að afloknum leikjum. Fyrir ofan höfuð spilaranna eru forkunnarfagrar skreytingar í loftum á milli súlna og veggja í márískum stíl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.