Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 40
40 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fast- eignasali Úlfar Þ. Davíðsson sölustjóri Börkur Hrafnsson lögmaður HATÚN 6A SÍMI 5 12 12 12 www.foss.is Netfang: foss@foss.is FASTEIGNASALA BYGGINGARÉTTUR TÆKIFÆRI FYRIR BYGGINGAFYRIR- TÆKI Byggingaréttur á 8 íbúðum er til sölu á eftirsóttum stað í austurbænum. Gert er ráð fyrir tveimur tveggja herbergja íbúðum, tveimur þriggja herbergja íbúðum og fjórum fjögurra herbergja íbúðum. Fyrirliggjandi teikn. á skrif- st., gera ráð fyrir stálgrindarhúsi og skemmti- legu fyrirkomul. í íbúðum. Skammur bygginga- tími og mikill áhugi á íbúðum á þessum stað. Eyjólfur Bragason arkitekt hannaði. Verð tilboð. ATVINNUHÚSNÆÐI HAFNARFJÖRÐUR – GLÆSILEGT Til sölu eða leigu í miðbæ Hafnarfj. stórglæsil. hús- næði með fráb. útsýni yfir höfnina, í góðu lyftu- húsi. Lyklar og allar nánari uppl. á skrifstofu. NÝBYGGINGAR KIRKJUSTÉTT - GRAFARHOLT Falleg raðhús alls 193,3 fm á tveimur hæðum á góðum stað í Grafarholtinu. Stutt verður í alla þjónustu og skóla. Húsin afhent fullbúin að utan en fok- held að innan og lóð grófjöfnuð. Húsin eru tilbú- in til afhendingar. Verð 15,5–15,8. Nánari uppl. og teikn. á skrifstofu. SÓLHEIMAR – ÚTSÝNI Rúmgóð og björt hæð með miklu útsýni yfir Laugardalinn. Þrjú góð svefnherbergi, stofa og sólstofa. Rúmgott eldhús. Flísalagðar svalir. Verð 14,9 millj. BRYGGJUHVERFI Til sölu 2ja og 3ja her- bergja íbúðir í bryggjuhverfi. Húsinu er skilað viðhaldsfríu með álklæðningu, fullfrágenginni lóð og sameign. Lyfta er í húsinu og bílageymsl- ur í kjallara. Íbúðir seljast fullbúnar án golfefna og er möguleiki að hafa áhrif á endanlegt inn- réttingaval. Nútímahönnun á eftirsóttum stað. Traustir byggingaaðilar. Verð 10,9 - 14,9 millj. EINBÝLISHÚS GARÐABÆR - ÚTSÝNI Vandað einbýlis- hús á einni hæð á frábærum útsýnisstað að Furulund í Garðabæ. Húsið stendur innst í botn- langa, er 162,5 fm að stærð ásamt 51,8 fm tvö- földum bílskúr. Í húsinu eru glæsilegar stofur, fjögur svefnherbergi, parket á flestum gólfum og fallegar innréttingar. Lóðin er 1.100 fm, garður mjög góður og hiti í plani. Verð 26,9 millj. SÉRHÆÐ GULLTEIGUR - GLÆSILEG Mjög góð sérhæð á þessum vinsæla stað ásamt um 50 fm tvöföldum bílskúr. Flísar og parket á gólfum. Hæðin er að hluta til undir súð. Góð eign á vin- sælum stað. SALAHVERFI Stórglæsileg 123,7 fm 5 her- bergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi með sér- inngangi ásamt bílskúr. Þrjú rúmgóð svefnher- bergi, tvö baðherbergi og tvennar góðar svalir. Þvottahús í íbúð. Mikil lofthæð. Verð 18,4 millj. 4RA - 5 HERBERGJA TÚNGATA - HÆÐ Stór og björt rúmlega 150 fm hæð á góðum í vesturbænum. Mikil loft- hæð og rósettur í loftum. Íbúð sem býður uppá mikla möguleika. Þarfnast standsetningar. Verð 15,5 millj. 3JA HERBERGJA HÁTÚN - GÓÐ Mjög snyrtileg þriggja her- bergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á góð- um stað. Parket á öllum gólfum og flísalagt baðherbergi. FYRIR ELDRI BORGARA GRANDAVEGUR Falleg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð með glæsilegu út- sýni á besta stað í Vesturbænum. Ýmis þjónusta í húsinu m.a. mötuneyti, hús- vörður o.fl. Stutt í verslanir og félagstarf aldraða. Óskað er eftir tilboðum. ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU EÐA SÖLU TIL LEIGU EÐA SÖLU HÚSNÆÐI Á HELSTU VERSLUNARSVÆÐUM BORGARINNAR ÁSVALLAGATA - VESTURBÆR Góð íbúð á vinsælum stað í Vesturbænum. Dökkt plastparket á stofu og eldhúsi. Falleg hvít eld- húsinnrétting. Góður garður. 15 fm parketlagt herbergi í kjallara. Búið að taka allt húsið í gegn. Góð eign á vinsælum stað. Verð 11,4 millj. VESTURBÆR - GRANASKJÓL Mjög skemmtileg, tæplega 80 fm íbúð á jarðhæð (ekki kjallari). Sérinngangur. Parket og flísar á gólf- um. Tvö rúmgóð svefnherbergi og góð stofa. Verð 12,5 millj. REYNIMELUR - GÓÐ Falleg íbúð í góðri blokk á góðum stað í Vesturbænum. Bjart eld- hús með nýlegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Stór og björt stofa. Hjónaherbergi einnig stórt og bjart. Rúmgott barnaherbergi. Góð eign á góðum stað. GRENSÁSVEGUR Rúmgóð og björt 72,8 fm íbúð í snyrtilegu fjölbýli. Nýuppgert baðher- bergi, eldhús með hvítri innréttingu og parket- lögð stofa. 2JA HERBERGJA LJÓSVALLAGATA - SÉRINNGANG- UR Björt og falleg 56 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Íbúðin er mjög opin, parket og flís- ar á gólfum. Baðherbergi flísalagt hólf og gólf m. baðkari. Nýlega endurnýjað rafmagn, lagnir og gler. Einstök íbúð á frábærum stað. GRANASKJÓL - ARINN Mjög björt og vel skipulögð íbúð á fyrstu hæð í góðu 3-býli á góðum stað í vesturbænum. Sérstaklega björt stofa með miklum gluggum og arni. Gott svefn- herbergi. baðherbergi með flísum. Svalir út frá stofu. Góð eign. Verð 9,5 millj VESTURBÆR - GÓÐ Opin og björt 2ja herbergja íbúð á vinsælum stað í vesturbænum. Parket og flísar á gólfum. Góð eign á vinsælum stað. Verð 8,9 millj. Magnús I. Erlingsson lögmaður Fasteignasalan Foss er flutt í nýtt húsnæði í Hátúni 6a (Fönix-húsið) VANTAR VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ ÞAÐ munu vera rúmir tveir ára- tugir síðan svissneska fyrirtækið JRG Gunzenhauser þróaði nýja hugmynd að lagnakerfi fyrir hita- og neysluvatnskerfi. Hugmyndin var nánast fengin frá rafmagnsiðn- aðinum, en þar hafa menn um lang- an aldur lagt allar raflagnir í bygg- ingum með því að draga víra í rör. Upphaflega voru rafmagnsrörin úr málmi, en síðan breyttist það í plast. Einangrun víranna var fyrir langa löngu tjöruborinn strigi eða eitthvað álíka, en hefur einnig breyst í plast. Svissneska fyrirtækið yfirfærði þessa tækni á vatnslagnir þannig að plaströr, sem flytja vatnið og við köllum kjarnarör, eru dregin inn í annað plaströr sem nefnast kápu- rör. Þannig er hægt að draga ný rör í kápurörið ef nauðsynlegt reynist á sama hátt og unnt er að draga nýj- ar rafleiðslur í rafmagnsrörin og endurnýja þannig eldri og úr sér gengna rafmagnsvíra. Margir tóku þessari nýjung fagn- andi og hérlendis gerðu menn það einnig. Þeir bjartsýnustu sáu fyrir sér slíkt lagnakerfi í hvert hús og þar með væri á enda að brjóta þyrfti upp gólf og veggi til að end- urnýja leiðslur, þær eldri einfald- lega dregnar út og aðrar inn í stað- inn. Hvernig hefur þróunin verið hér- lendis? Það er greinilegt að útbreiðsla þess hefur ekki orðið jafn mikil og þeir bjartsýnustu bjuggust við. Það hefur samt verið, og er enn, talsvert notað bæði í nýbyggingar og við endurlagnir í eldri bygg- ingar. Sá lagnamáti, að leggja skrúfuð rör inn í einangrun bygginga, er nánast að hverfa sem betur fer. Auk þess eykst það jafnt og þétt að hús séu einangruð að utanverðu, það er mikil framför. Einhverjir hönnuðir vildu elta einangrunina og leggja lagnirnar í hana þótt hún sé komin út fyrir hússkrokkinn, en líklega er búið að koma vitinu fyrir þá sem það vildu. Íslendingar hafa alla tíð verið mjög viðkvæmir fyrir að lagnir sjáist innanhúss, þó er það talsvert að breytast. Fyrir þá sem eru mjög viðkvæmir fyrir að sjá lagnir er rör-í-rör kerfið líklega besti kosturinn í byggingum sem eru einangraðar að utan, þá sjást þau ekki og endurnýjunarmöguleikinn er til án þess að brjóta nokkuð. Þeir sem hafa verið gagnrýnir á rör-í-rör kerfið hafa spáð því að það verði ómögulegt að draga göm- ul rör úr kápurörinu og ný inn í staðinn. Þessi ótti ætti að vera ástæðulaus ef rétt er staðið að lögn í upphafi. Þar þarf að tryggja tvennt; að beygjur á rörum séu ekki of krappar og að ekkert klemmi kjarnarör fast í kápurörinu, svo sem steypustyrktarjárn. Kostnaður Eitt af því sem hefur hamlað notkun rör-í-rör kerfisins er kostn- aðurinn, en því er ekki að neita að það stenst vart samjöfnuð í kostn- aði við önnur lagnakerfi, það er nokkuð dýrara. Hérlendis tóku menn nokkuð blinda trú á ýmsa þætti kerfisins, t.d. þann eiginleika að ef kjarnarör- ið bilaði og færi að leka ætti vatnið að skila sér þangað sem það skað- aði sem minnst, svo sem til tengi- klefa þar sem væri niðurfall. Þetta er gott og gilt svo langt sem það nær, en má ekki verða að trúarbrögðum. Til að uppfylla þetta hafa verið notaðar sérstakar tengi- dósir þar sem kjarnarörin tengjast tækjum, ofnum, blöndunartækjum o.s.frv. Þessar dósir eru eitt af því sem heldur kostnaði við kerfið uppi, við hvern ofn þarf tvær dósir og það kostar talsvert. Í rauninni eru tengidósir ekki nauðsynlegar við ofna og það er engin goðgá að plaströrið, sem flytur vatnið, komi beint út úr kápurörinu, dósinni sé sleppt og rörið tengt beint við ofn- inn. Þessi þróun er þegar komin á veg erlendis og á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig sænskur ofnaframleiðandi hefur leyst þetta og þessi lausn hefur fallið í góðan jarðveg þar í landi. Allir hlutir eiga rétt á að þróast, við megum aldrei verða föst á ein- hverjum sporbrautum þar sem engu má hnika. Hefur rör-í-rör kerfið staðist væntingar? Hér sést hvernig plaströrin eru tengd við ofninn án tengidósa. Þetta er bakhlið ofnsins og þess vegna eru rörin og tengingin ekki sýnileg. Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.