Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 26
S AMTÖK aldraðra eru að hefja bygg- ingarfram- kvæmdir við nýtt fjölbýlishúsi á Dalbraut 14 í Reykjavík. Húsið verður fjórar hæðir og með lyftu, en í því verða 27 íbúðir. Þær verða 2ja og 3ja her- bergja í stærðunum 65 ferm, 86 ferm og 105 ferm með geymslum í kjallara. Bílastæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð og dekkjageymsla í sameign. Alls verður húsið um 3.940 ferm samtals með bílageymslu og kjallara. Hönnuður er Guðfinna Thordarson arkitekt, en Keflavíkur- verktakar hf. byggja húsið. Áætlað verð á íbúðunum er frá tæpl. 11 millj. kr. þær minnstu upp í tæpl. 17 millj. kr. þær stærstu miðað við byggingarvísitölu í apríl sl., en heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður 382 millj. kr. Íbúðirnar afhendast 15. septem- ber 2003 fullbúnar án gólfefna en með öryggisdúk á baðherbergi og í þvottahúsi. Veggir í baðherbergi verða flísalagðir. Talsvert er í þetta hús lagt, en það verður einangrað að utanverðu með álklæðningu og allur frágangur á húsinu að innan sem utan miðast við lágmarks viðhald á húsinu. Sameignin verður fullfrágengin með teppum á göngum og stiga- gangi en flísar á aðalinngangi. Snjó- bræðsla verður í stétt framan við inngang og innkeyrslu í bílageymslu og lóðin frágengin. Allir sem eru orðnir 50 ára gamlir geta gerzt félagar í Samtökum aldr- aðra og allir sem eru 60 ára og eldri hafa rétt til að sækja um íbúðir byggðar á vegum þessara samtaka að því tilskyldu að þeir séu félagar í samtökunum. Þessi samtök voru stofnuð 1973 og eru félagsmenn í þeim nú um 700. Samtökin hafa að- setur í Hafnarstræti 20 í Reykjavík og er félagsgjald nú 2.500 kr. á ári fyrir einstaklinga eða hjón. Mikil ásókn Samtök aldraðra hafa þegar byggt hátt í þrjú hundruð íbúðir. Að sögn Jóns Aðalsteins Jónassonar, gjaldkera samtakanna, hefur yfir- leitt tekizt vel til með þessar íbúðir og eftirspurn eftir þeim verið mun meiri en framboð. Af þessum íbúð- um er 71 íbúð á Dalbrautarsvæðinu. „Ásókn í þessar nýju íbúðir við Dalbraut 14 var mikil og hefur út- hlutun á þeim þegar farið fram,“ segir Jón Aðalsteinn. „Þessar íbúðir hafa líka marga kosti. Staðsetning þeirra er góð, en húsið á að rísa inni í vel byggðu hverfi, þar sem öll al- menn þjónusta er fyrir hendi. Al- menningsamgöngur eru góðar og þar er t. d. mjög stutt í sundlaugina í Laugardal. Annar kostur og kannski sá mik- ilvægasti felst í því, að í þeim fjöl- býlishúsum Samtaka aldraðra, sem þegar eru til staðar við Dalbraut, er þjónustukjarni, sem mun nýtast vel íbúunum í þessum nýju íbúðum við Dalbraut 14. Þar er góð félagsaðstaða. Íbúarn- ir geta fengið keyptan mat og notið margvíslegrar þjónustu enda íbúð- irnar tengdar þjónustmiðstöð. Allt miðast við að gera þessu fólki kleift að búa sem lengst heima hjá sér. Yf- irleitt er þetta fólk hætt að vinna, enda margt af því orðið háaldrað. Meðalaldur íbúanna í íbúðum aldr- aðra, sem þegar hafa verið byggðar, er 83-84 ár og þar er jafnvel fólk, sem er orðið 100 ára, en býr samt enn í eigin íbúð.“ „Íbúðir byggðar á vegum Sam- taka aldraðra eru ekki byggðar í hagnaðarskyni heldur í þjónustu- skyni við aldraða,“ heldur Jón Að- alsteinn áfram. „Að því kemur yf- irleitt, að fólk, sem komið er á efri ár, vill breyta um húsnæði, þar sem að húsnæðið, þar sem það bjó áður, hentar ekki lengur. Kröfurnar eru orðnar aðrar. Margir vilja minnka við sig hús- næði. Þeir áttu kannski áður hús og garð, en eiga erfiðara um vik með halda húsinu og garðinum við, þegar aldurinn færist yfir. Kannski er hús- næðið líka of stórt eftir að börnin eru farin að heiman. Eitt megin markmið samtakanna er einmitt að gera þessu fólki kleift að fá hent- ugra húsnæði og á viðráðanlegu verði. Til þess að tryggja þetta eru sér- stök ákvæði í kaupsamningum um þessar íbúðir um forkaupsrétt sam- takanna við eigendaskipti á íbúðun- um. Þar segir einnig, að íbúðir sem seljast á vegum Samtaka aldraðra mega ekki seljast á hærra verði en framreiknaður byggingarkostnaður segir til um, miðað við byggingar- vísitölu. Með þessu hefur tekizt að halda verði á þessum íbúðum í skefj- um.“ Að sögn Jóns Aðalsteins er það al- gengast, að fólk eigi einhverja eign frá því áður, sem er seld og andvirð- ið notað til þess að kaupa íbúð hjá Samtökum aldraðra. Ef á vantar hefur yfirleitt tekizt að brúa bilið með lánum frá Íbúðalánasjóði. Þörf á meiri heimahjúkrun og heimaþjónustu Jón Aðalsteinn segir brýna nauð- syn á að efla heimahjúkrun og heimaþjónustu til þess að aldrað fólk geti verið heima hjá sér sem lengst. „Þar vill þetta fólk vera,“ segir hann. „Það er alveg ótrúlegt, hvað fólk getur bjargað sér sjálft, þó að aldur og hrumleiki sæki að því. Það er líka miklu ódýrara fyrir samfélagið að bæta og efla heima- þjónustuna heldur en að fá þetta fólk inn á stofnanir. Það er margfalt dýrara.“ Jón Aðalsteinn segir, að allar íbúðir samtakanna séu miðaðar við þarfir eldra fólks. „Íbúarnir þurfa að geta komizt í hjólastól um alla íbúð- ina, ef þeir vilja,“ segir hann. „Þess vegna eru engir þröskuldar í þeim. Öryggisdúkur er settur á bað en ekki flísar, þar sem þær eru hálar og fólki er hjálpað eins og kostur er varðandi innréttingar. Í göngum eru handlistar til þess að styðja sig við. Reiknað er með að húsið við Dal- braut 14 verði fokhelt í janúar nk. og íbúðirnar fullbúnar til afhendingar 15. september 2003 samkvæmt framansögðu eða eftir rúmt ár. „Það er greinilega mikil þörf á þessum íbúðum Samtaka aldraðra og næst er fyrirhugað að byggja hús með um 50 íbúðum á lóð við Sléttuveg í Foss- vogi, sem samtökin sóttu fyrst um fyrir rúmum þremur árum en hafa nú nýverið endurnýjað umsókn sína á,“ sagði Jón Aðalsteinn Jónasson að lokum. Morgunblaðið/Arnaldur Útlitsteikning af fyrirhuguðu fjölbýlishúsi Samtaka aldraðra við Dalbraut 14 í Reykjavík. Húsið verður fjórar hæðir og með lyftu. Í því verða 27 íbúðir. Þær verða 2ja og 3ja herbergja í stærðunum 65 ferm., 86 ferm. og 105 ferm. og með geymslum í kjallara. Hönnuður er Guðfinna Thordarson arkitekt en Keflavíkurverktakar hf. byggja húsið. Nýbygging aldraðra með 27 íbúðum rís við Dalbraut 14 Hátt í þrjú hundruð íbúðir hafa verið reistar á vegum Samtaka aldraðra og eftirspurnin ávallt verið meiri en framboðið. Magnús Sigurðsson kynnti sér nýjar íbúð- ir samtakanna við Dalbraut. Á byggingarstað. Frá vinstri: Einar Waldorff, frá Keflavíkurverktökum, sem byggja húsið, Jón Aðalsteinn Jónasson, Helgi Guðjón Samúelsson frá verkfræðistofunni Hús og ráðgjöf, Jakobína Guðmundsdóttir, Sigurður Óskarsson, Dóra Sif Wiium, Albert B. Hjálmarsson frá Keflavíkurverktökum, Páll Jónsson og Guðmundur Gunnarsson, formaður Samtaka aldraðra. Í baksýn er fjölbýlishúsið Dalbraut 16, sem Samtök aldraðra fengu afhent í apríl 1999. Í því eru 23 íbúðir. Á myndina vantar Magnús Siguroddson raftæknifræðing, hönnuð raflagna í nýbyggingunni. Morgunblaðið/Sverrir Guðfinna Thordarson arkitekt er hönnuður nýbyggingarinnar. 26 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.