Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 42
42 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir . F a s te ig n a m ið lu n in B e rg F a s te ig n a m ið lu n in B e rg Hannes Jóna Pétur Sæberg Þekking - öryggi - þjónusta Sími 588 55 30 • Fax 588 55 40 Netfang: berg@berg.is • Heimasíða: www.berg.is Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 9-17 Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali ur Eigendur fasteigna athugið! Vantar allar gerðir eigna á skrá, skoðum og verðmetum samdægurs Fasteignamiðlunin Berg, Háaleitisbraut 58, www.berg.is Helgaland Nýkomið í sölu einstaklega fallegt og vel skipulagt 143 fm einbýlishús auk 53 fm tvíbreiðs bílskúrs með gryfju og geymsluplássi. Parket á gólfum. 4 rúmgóð herbergi og 2 snyrtingar. Fallegur sólpallur og garður í mikilli rækt og góðri umhirðu. Hellulagt bílaplan. Áhv. 8,9 m. húsbréf og byggsj. 2282 Helgaland Erum með í sölu 90 fm sér- hæð auk 26 fm bílskúrs. Parket á gólfum. Fallegt útsýni og góður garður. Rólegt og fallegt umhverfi. V. 13,2 m. 2278 Lindarbyggð Glæsilegt 164 fm parhús auk 22 fm bílskúrs við þessa fallegu götu. Parket og flísar á gólfum. Upptekin loft og mikil lofthæð. Sólskáli tengdur stofu. 4 svefnherbergi. Fallegur garður. Örstutt í leikvöll og leikskóla. Lokuð gata í yndislegu umhverfi. Myndir á netinu. V. 19,8 m. 2277 Helgaland - Mos. Nýkomið í sölu gott einbýlishús, 211 fm, með afar góða staðsetningu. Parket og flísar á gólfum. Gott fjölskylduherbergi með kamínu. Stór garður. Séríbúð fylgir húsinu með parketi á gólfi. Hagtæð áhv. lán. V. 19,9 m. 2009 MOSFELLSBÆR Í smíðum Raðhús Snekkjuvogur - aukaíbúð Til sölu falleg 257 fm 3ja hæða endaraðhús ásamt sérbyggðu aukahúsi. Húsið er innst í botn- langa. Eignin hefur verið mikið endurn. að undanförnu. V. 24,5 m. Áhv. 9,2 m. 2257 Hæðir 2 4ra-6 herb. 6 Kjarrhólmi - Kópav. Í einkasölu falleg 90 fm íbúð á 3. hæð í góðu fjöl- býli. Þrjú svefnherbergi, stofa með góðu útsýni. Stórar svalir á móti suðri. Góð staðsetning. Húsið er klætt að mestu að utan. V. 10,9 m. 2294 Hjallabrekka - Kóp. Í einkasölu 111 fm efri sérhæð ásamt 29 fm bíl- skúr. Þrjú svefnherbergi, stofa og borðstofa með parketi á gólfi og lituðu gleri. Hellulögð innkeyrsla. Þetta er eign í rólegu umhverfi og grónu hverfi. V. 15,9 m 2249 Bræðratunga - raðhús Erum með í sölu raðhús á tveimur hæðum, sem er 114,4 fm, auk 20,7 fm geymslu. Bílskúrsréttur. Eignin skiptist þannig: Stofa ásamt borðstofu og tveim svefn- herbergjum. Fataherbergi og tvö bað- herbergi. Barnvænt umhverfi og stutt í skóla. V. 15,9 m. 2263 Ásgarður - raðhús Vorum að fá í einkasölu 129 fm raðhús á þremur hæðum. Hver hæð er 43,2 fm. Á efstu hæð eru þrjú svefnherbergi ásamt bað- herbergi með sturtu. Miðhæð anddyri, eldhús og stofa. Í kjallara er lítið eld- hús, herbergi auk snyrtingar. Þar er einnig geymsla og þvottahús. 2289 ÓLAFSGEISLI - M/ BÍLSKÚR Höfum í einkasölu nýbyggt einbýlishús á tveim hæðum, 211 fm, ásamt 28 fm bílskúr. Húsið selst frágengið að utan, fokhelt að innan, möguleiki á 4 til 5 herb. og lítilli íbúð á 1. hæð. FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ EIGN MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI. V. 17,5 m. 2029 Dúfnahólar Nýkomin í einkasölu mjög góð 117 fm íbúð á 5. hæð í vönduðu lyftu- húsi. 4 svefnherbergi. Hálfyfirbyggðar svalir með stórkostlegu útsýni yfir höfuðborgar- svæðið frá Esju til Keflavíkur. Góð sameign og vandaður bakgarður með leiktækjum fyrir börnin. V. 14,2 m. 2279 3ja herb. 7 Snorrabraut Nýkomin í sölu 73 fm kjall- araíbúð við Snorrabraut, gengið inn frá Guð- rúnargötu. Nýtt parke t á gólfum. Nýlegt gler og opnanleg fög. Nýlegt þak. Áhv. Bygging- arsj. 4,2 m. V. 8,9 m. 2252 2ja herb. 8 Langholtsvegur Vorum að fá í sölu 2ja herbergja íbúð, 59 fm, á jarðhæð. Íbúðin er öll ný standsett, nýjar innréttingar, gólfefni og innihurðir. Parket og flísar á gólfum. V. 10,0 m. 2295 Hraunbær Nýtt á skrá. Vorum að fá í einkasölu mjög fallega 67 fm íbúð í vinsælu fjölbýli. Nýl. Merbauparket á gólfum. Góðir skápar og góðar svalir. Afar snyrtilegur frágangur. Áhv. 4,9 m. húsbréf. V. 9,3 m. 2286 Þórufell Vorum að fá í einkasölu 3ja herbergja íbúð 73 fm á 3ju hæð. Parket, flísar og dúkur á gólfum. Íbúðin skiptist í gott eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og stofu með frábæru útsýni af góðum svölum. V. 9,6 m. 2272 Möðrufell Vorum að fá í sölu 3ja herbergja 78 fm íbúð á annarri hæð. Parket og flísar á gólfum, eldhús inn- rétting frá IKEA. Baðherbergi allt ný uppgert með nuddbaðkari. Fallegt út- sýni í austur. V. 9,9 m. 2276 Háaleitisbraut Nýkomin í sölu afar skemmtileg og falleg 74 fm íbúð í kjall- ara í þessu vinsæla hverfi. Parket og flísar á gólfum. Hagstæð áhv. lán. kr. 4,7 m. V. 9,9 m. 2275 Unufell - gott verð Nýkomin í sölu vel skipulögð og björt 97 fm íbúð á 3ju hæð í vel viðhöldnu fjölbýli. 3 stór svefn- herbergi. Yfirbyggðar svalir. Þvottahus inn af eldhúsi. V. 9,7 m. 2292 GRÝTUBAKKI Höfum í einkasölu rúm- góða 2ja herbergja íbúð, 73 fm, á 1. hæð. Parket. Sérgarður með timburverönd og garðlýsingu. EIGN Á GÓÐUM STAÐ MEÐ GÓÐU AÐGENGI. LAUS STRAX V. 8,5 m. 2268 Atvinnuhúsnæði 9 Bæjarlind - Kópavogi Vorum að fá í sölu 224 fm skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á góðum stað með góðu útsýni. Raf- og tölvulagnir. Parket á gólfum. LAUST STRAX. V. 25 m. 2284 AKRALIND - KÓPAVOGI Til sölu eða leigu nýtt glæsilegt 300 fm atvinnuhús- næði með þremur innkeyrsludyrum ásamt gönguhurð. Hagstæð lán. LÆKKAÐ VERÐ. LAUST STRAX. 2011 Esjumelar - Mos Erum með í sölu 109 fm iðnaðarhúsnæði, mikil loft- hæð,stórar innkeyrsludyr ásamt göng- uhurð,Búið er að útbúa 30 fm milli- loft.Góð staðsetning í nýju iðnaðar- hverfi. V.6,5 m. 2210 Skemmuvegur - Kóp. Vorum að fá í sölu 240 fm iðnaðarhúsnæði með tveimur innkeyrsludyrum. Í dag er eignin tvískipt með léttum vegg á milli. Í báðum bilum er salerni og kaffistofur. V. 16,8 m. 2287 Bjargartangi - Mos. Í einkasölu fal- legt 188 fm einbýlishús auk 35 fm bílskúrs. Húsið er allt hið glæsilegasta. Parket og flís- ar á gólfum. Stórt og fallegt eldhús. Úr eld- húsi er útgengt í sólstofu, sem er með flís- um á gólfi. Glæsileg stofa með parketi og fallegum arni. Vandað hús og vel viðhaldið. V. 22,7 m. Áhv. 12 m. 2242 SUMARBÚSTAÐUR - skógi vaxið land Nýkominn í sölu 42 fm sumarbústaður með 50 fm timburver- önd í landi Syðra-Fjalls í Borgarfirði. Skógivaxið land. Rafmagn. 2 góð svefnherbergi, fallegt eldhús og stofa. Góð snyrting. Bústaðurinn verður til sýnis um helgar í sumar. Hagtætt verð. V. 3,5 m. 1796 Stóriteigur - Mos. Í einkasölu vandað 186 fm einbýlishús ásamt 40 fm bílskúr. 40 fm sólstofa. Heitur pottur og verönd girt skjólveggjum. 4 góð herbergi. Parket og flísar. 2 snyrtingar. Þetta er góð eign í rólegu hverfi i Mos- fellsbæ. V. 21,0 m. 2178 Lögbýli. Mosfellsdal. Nýkomið í einkasölu smábýlið Hraðastaðir í Mosfellsdal. Afar vel staðsett ásamt einb.húsi og bílskúr. Gróðurhús, iðnað- arhúsnæði og hesthús. Ath. hægt að fá leyfi til byggingar tveggja einbýlishúsa á jörðinni. Landareignin er í næsta ná- grenni við Gljúfrastein. Fallegt umhverfi og útsýni yfir dalinn. 3. ja hektara eign- arland. Kjörið til skógræktar og útivist- ar. Allar nánari uppl. veitir Pétur. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Reykjavík – Hjá fasteignasölunni Húsakaupum er nú til sölu sérlega fallegt gamalt íbúðarhús við Grett- isgötu 50. Þetta er timburhús á þremur hæðum, alls 158 fm. Á baklóðinni er 148 fm hlaðið at- vinnuhúsnæði, sem skiptist í 100 fm rými með stórum innkeyrslu- dyrum og góðum gluggum. Að auki tengist þessu húsnæði rúm- lega 40 fm steinhús með um 8 m lofthæð. Ásett verð er 29,9 millj. kr. „Þessi húseign er tveir eignar- hlutar, en seljendurnir vilja selja saman,“ segir Sigrún Þorgríms- dóttir hjá Húskaupum. „Húsið var byggt 1908 en er allt uppgert, meðal annars er nýleg þakklæðning, nýlegt rafmagn og ofnakerfi. Innréttingar og gólfefni eru líka endurnýjuð að mestu leyti.“ Lítil 2–3 herbergja íbúð er á jarðhæð og blómaskáli í garði. Húsinu fylgir 148 fm sérlega vand- að atvinnuhúsnæði á baklóð, það er við Grettisgötu 50b. Stórt hellulagt bílastæði er við húsið með hitalögn og fallegur lítill garður og blómakantar. Vandaður útskurður á tréverki er ofan við glugga, en gluggar eru endurnýj- aðir af Leif Blumenstein í upp- runalegri mynd. Aðal inngangur er á 2. hæð, en þar er komið inn í litla forstofu með skáp. Á hæðinni eru tvær samliggjandi stofur og stórt fallegt eldhús með hvítri fulningarinnrétt- ingu og borðkrók. Flísalagt er á milli skápa. Aðal baðherbergið er einnig á þessari hæð, flísalagt með keri, innréttingu og glugga. Á efri hæðinni er lítil snyrting með glugga og sjónvarpshol, en gengið er úr því út á skemmtilegar suðursvalir. Tvö stór svefnher- bergi eru uppi og lítið herbergi inn af hjónaherberginu, sem nýtist hvort sem er sem barna- eða vinnuherbergi. Á jarðhæð er sérinngangur í 2–3 herb. íbúð, sem er leigð út í dag. Sérinngangur er í sérþvottahús og litla geymslu, en sérhiti er fyrir jarðhæð annars vegar og efri hæð- ir hins vegar. Gólfefni eru flísar og parket og endurnýjað teppi á stiganum. Á baklóðinni er 148 fm mjög snyrtilegt atvinnuhúsnæði, sem skiptist í 100 fm rými með stórum innkeyrsludyrum og góðum glugg- um. Lofthæð í því rými er 3–4 metrar. Þessi hluti er hlaðinn og síðan timburklæddur. Að auki tengist þessu húsnæði rúmlega 40 fm steinhús með um 8 m lofthæð. Þetta húsnæði þarfnast endurbóta, en fyrir liggja sam- þykktar teikningar af nýtingu þess sem skrifstofu og lagerrými á tveimur hæðum. Fyrir hendi er þriggja fasa rafmagn og heitt og kalt vatn. Grettisgata 50 Þetta er timburhús á þremur hæðum, alls 158 ferm. Á baklóðinni er 148 ferm. hlaðið atvinnuhúsnæði. Að auki tengist þessu húsnæði rúmlega 40 ferm. steinhús með um 8 m lofthæð. Hellulagt bílastæði er við húsið. Ásett verð er 29,9 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Húsakaupum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.