Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 C 39HeimiliFasteignir Mosfellsbær - Hjá fasteignasölunni Tröð er nú til sölu húsnæði Reykja- garðs (Holtakjúklinga) í Mosfellsbæ, sem er 1.017 ferm. að grunnfleti auk 432 ferm. skrifstofuhúsnæðis á 2. hæð og um 120 ferm. á milligólfi, sem er nýtt sem söluskrifstofa eða sam- tals 1.570 ferm. Tvennar innkeyrsludyr eru í hús- næðið og lofthæð er um 5,5 m. Hús- næðið er útbúið 217 ferm. frysti og ca 150 ferm. kæli. Að auki er minni kælir, sem er um 18 ferm. Að öðru leyti skiptist jarðhæðin í grófum dráttum í aðkomu að skrif- stofum og tvo aðra vinnslusali. Ann- ar þeirra er spegilmynd af frystin- um, en hinn er beint inn af aðal innkeyrsludyrunum og er um 265 ferm. Gengið er upp á milliloftið um stiga úr vinnslusalnum, en þar er ný- lega innréttuð aðstaða fyrir sölu- menn, sem skiptist í sölubása og stórt fundarherbergi með parketi á gólfum. Ágæt lyfta er milli hæða, sem gengur frá jarðhæðinni og upp í skrifstofuhúsnæðið á 2.–3. hæð. Skrifstofuhæðin er um 430 ferm. og skiptist í sex lokaðar skrifstofur, stórt eldhús með matsal, snyrtingar, ræstikompu, almenning undir ljós- ritun, fax o.fl., góðar skjalageymslur og um 144 ferm. sal. Að utan er húsið í ágætu ástandi og lóðin er frágengin með malbik- uðum bílastæðum. Áhvílandi eru um 42 millj. kr., en ásett verð er 87 millj. kr. Húsnæðið er 1.017 ferm. að grunnfleti auk 432 ferm. skrifstofu- húsnæðis á 2. hæð og um 120 ferm. á milligólfi, sem er nýtt sem söluskrif- stofa eða samtals 1.570 ferm. Ásett verð er 87 millj. kr., en húsnæðið er til sölu hjá Tröð. Álafoss- vegur 40 Húsnæðið er 1.017 ferm. að grunnfleti auk 432 ferm. skrifstofuhúsnæðis á 2. hæð og um 120 ferm. á milligólfi, sem er nýtt undir sölumenn, eða samtals 1.570 ferm. Ásett verð er 87 millj. kr., en húsnæðið er til sölu hjá Tröð. EINB. - AUKAÍBÚÐ STAÐARSEL Í sölu glæsileg eign í einni fallegustu götu borgarinnar. Efri hæð er afar glæsileg með flísum og parketi á gólf- um, arinn, þrjár stofur, stórt eldhús og 3-4 svefnh. Á jarðhæð er falleg 70 fm íbúð sem er leigð út. 45 fm tvöfaldur bílskúr með flísalalögðu gólfi og 45 rými undir bíl- skúr. Áhv. 13,6 millj. Verð 26,9 millj. TIL GREINA KEMUR AÐ TAKA ÍBÚÐ UPPÍ. EINBÝLI MARÍUBAUGUR - GRAFARHOLTI Í sölu 206 fm einbýlishús/keðjuhús með innbygg. bílskúr á góðum stað innst í botnlanga. Húsið afhendist fulleinangrað að innan en að öðru leyti fokhelt. Verð 16,9 millj. LJÁRSKÓGAR - EINBÝLI 243 fm ein- býlishús með frábæru útsýni og vel skipu- lagt. Einkar skemmtilega innréttað hús. Möguleiki á séríbúð í kjallara. Eign sem vert er að skoða. Verð 24,9 millj. PARHÚS KROSSALIND - PARHÚS Vorum að fá í einkasölu 206 fm parhús á 2 hæðum á þessum vinsæla stað með innbyggðum bílskúr. Vel skipulagt hús. Nánast fullbúið að innan. Eign sem vert er að skoða. Verð 21,5 millj. RAÐ- OG PARHÚS ÁLFHEIMAR - M. AUKAÍBÚÐ Mjög gott og nýuppgert 215 fm raðhús með 2ja herbergja aukaíbúð í kjallara. Parket og steinflísar á gólfum. Verð 23,8 millj. Áhv. 11,8 millj. FOSSVOGUR - FYRIR VANDLÁTA Gott 245 fm einbýlishús innst í botn- langa á eftirsóttum stað, heildarstærð ca 400 fm. 4 rúmgóð svefnh., hobby- herb., miðjurými, stofa, sjónvarpsherb., eldhús og glæsilegt baðherb. Gólfefni eru að mestu náttúrusteinn og vandað- ar flísar. Verð 29,7 millj. VÆTTABORGIR - GRAFARVOGI Í sölu 178 fm parhús á tveimur hæðum með inn- byggðum bílskúr, á rólegum útsýnisstað í Borgarhverfi. Húsinu verður skilað nánast fullbúnu. Stutt í skóla og verslun. HÆÐIR LOGAFOLD Í sölu falleg 79,3 fm neðri sér- hæð í tvíbýlishúsi á rólegum stað í Grafar- vogi. Sérinngangur. Eldhús opið inn í stofu. Sérbílastæði. Verð 11,7 millj. ÁLFHEIMAR - EFRI SÉRHÆÐ - BÍL- SKÚR Vorum að fá í sölu töluvert endur- nýjaða, glæsilega efri sérhæð á þessum vinsæla stað. 4 svefnh. í svefnherbergis- álmu ásamt forstofuherb. Þvottahús á hæðinni. Tvennar svalir. Verð 18,5 millj. SKIPASUND - RISHÆÐ M. BÍLSKÚR Nýkomin í einkasölu falleg 80 fm hæð og ris ásamt rúml. 40 fm bílskúr í þríbýli. Parket á gólfum. Gólfflötur talsvert stærri en fermetratalan gefur til kynna. Björt og falleg íbúð. Verð 12,7 millj. 5 TIL 7 HERB. VEGHÚS - GRAFARVOGI Í einkasölu 120,6 fm íbúð á tveimur hæðum ásamt 27 fm bílskúr Neðri hæð: Stofa, borðstofa, eldhús, bað og 16 fm suðursvalir. Efri hæð fjölskyldurými, 3 svefnherbergi. Hús- ið nýlega tekið í gegn. Verð 14,9 millj. Áhv. byggingasjóður. KLEPPSVEGUR - ENDAÍBÚÐ Á FYRSTU HÆÐ Vorum að fá rúmgóða rúml. 100 fm íbúð sem getur verið laus við samning. Þrjú góð svefnh. og tvær samliggjandi stofur. Verð 11,9 millj. BERJARIMI - M. BÍLSKÝLI! Í einka- sölu falleg og vel skipulögð 93 fm íbúð á 3. hæð (efstu). Fallegar innréttingar og gólfefni. Verð 12,5 millj. Áhv. 5 millj. LAUGAVEGUR Í einkasölu stórglæsileg íbúð á 3. hæð í hjarta borgarinnar. Þessa verður þú að skoða! Verð 10,3 millj. Áhv. 4,7 millj. LAUGAVEGUR - 101 - LAUS Í einka- sölu góð 98,9 fm íbúð í fallegu steinhúsi. Íbúðin er töluvert endurnýjuð og skiptist í tvær samliggjandi stofur, svefnherbergi, stórt eldhús, baðherbergi. Möguleiki að bæta við herb. Geymsla og hjólageymsla í kjallara. Verð 11,8 millj. 2JA HERB. SKÚLAGATA Í sölu nýstandsett íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi í miðbænum. Nýjar inn- réttingar og gólfefni. Eldhúsið er opið inn í stofuna sem er rúmgóð. Verð 7,8 millj. ATVINNUHÚSNÆÐI ÞINGHOLTSSTRÆTI Vorum að fá í einkasölu eða leigu gott atvinnuhúsnæði sem skiptist í ca 225 fm á götuhæð og ca 210 fm kjallara. Glæsilegt húsnæði. FAXAFEN - TIL LEIGU EÐA SÖLU Verslunarhúsnæði - 219 fm Skrifstofuhúsnæði - 290 fm Lagerhúsnæði - 400 fm Lagerhúsnæði - 158 fm TANGARHÖFÐI - 570 FM Í sölu gott iðnaðarhúsnæði sem skiptist í 240 fm iðn- aðarhúsnæði. Iðnaðarhúsnæði 90 fm. Skrifstofuhæð 240 fm. Áhv. ca 21 millj. Verð kr. 29 millj. FJÁRFESTAR SKIPHOLT Gott skrifstofuhúsnæði í lyftu- húsi. 10 ára leigusamningur við trausta aðila. Verð 25 millj. NÝBYGGINGAR ÞRASTARÁS - HAFNARF. Í sölu fjögur raðhús á tveimur hæðum með innbyggð- um bílskúr í Áslandi. Húsin skilast fullbúin að utan með grófjafnaðri lóð en fokheld að innan. LAUGAVEGUR Glæsilegt húsnæði sem er allt nýlega innréttað á glæsileg- an hátt. Verð 49,5 millj. 10 ára leigu- samningur! 1011 GISTIHEIMILI Í sölu 850 fm gisti- heimili á höfuðborgarsvæðinu. Góð viðskiptavild. Rúmgóð herbergi. Áhv. langtímalán. Verð 85 milj. SÚLUHÓLAR - 51 FM Vorum að fá í einkasölu fallega 2 herb. íbúð á 2. hæð. Parket á gólfum, frábært útsýni. Verð 7,7 millj. OKKAR METNAÐUR - ÞINN ÁRANGUR 4RA-5 HERB. VESTURBERG - 4RA Góð 105 fm íbúð með stórkostlegu útsýni í húsi sem hefur nýlega verið tekið í gegn að utan. Þrjú svefnherbergi. Sameign í toppstandi. Verð 11,7 millj. ÁRSALIR - M. BÍLSKÝLI! - LAUS! Í sölu falleg 114 fm íbúð á 2. hæð í nýju lyftuhúsi neðarlega í Salahverfi. ÍBÚÐIN SKILAST FULLBÚN ÁN GÓLFEFNA. Verð 14,7 millj. SAFAMÝRI Mjög góð og vel skipulögð 100 fm 4ra herbergja íbúð ásamt 20 fm bílskúr er nýkomin á einkasölu til okkar. Verð 13,5 millj. Áhv. 7,6 millj. DVERGABAKKI 95 fm björt og falleg íbúð með 13 fm íbúðarherbergi í kjallara er á einkasölu hjá okkur. Íbúðin er mjög smekkleg með góðum innréttingum og fal- legum gólfefnum. Verð 11,8 millj. Áhv. ca 4 millj. KLEPPSVEGUR - 4 HERB. Mjög falleg 108 fm íbúð á 3. hæð með fallegu útsýni. Nýleg eldhúsinnrétting, parket á gólfum. Eign sem vert er að skoða. Verð 12,3 millj. 3JA HERB. ÆSUFELL - MIKIÐ ÚTSÝNI Vorum að fá í sölu snyrtilega 3 herb. íbúð á 2. hæð með útsýni yfir Reykjavík. Parket á gólfum, tengi fyrir þvottavél á baði. Snyrtileg íbúð. Verð 9,9 millj. LANGHOLTSVEGUR - MEÐ AUKA- ÍBÚÐ Erum með í sölu 96 fm 3 herb. íbúð í kjallara ásamt 70 fm bílskúr, innréttaður sem íbúð. Verönd með heitum potti í grón- um fallegum garði. Verð 15,7 millj. SAFAMÝRI Falleg 75 fm íbúð með sér- inngangi á þessum góða stað var að koma til okkar á einkasölu. Góð svefnherbergi með skápum. Húsinu verður skilað nýmál- uðu Verð 10,9 millj. Áhv. 5,3 millj. LAUGAVEGUR - NÝTT Á SKRÁ! Vorum að fá fallega og nýuppgerða 3ja herbergja ósamþykkta íbúð í bakhúsi. Íbúðin er mjög snyrtileg, m.a. nýjar rafl. og nýtt eldhús. Parket og flísar á gólfi. VERÐ 6,3 MILLJ. ÁHV. 3,5 MILLJ. Í GÓÐUM LÁNUM. STRANDASEL - NÝTT - Í EINKA- SÖLU! Glæsileg 100 fm íbúð á fyrstu hæð. 3 góð svefnherb. Nýuppgert bað- herbergi flísalagt í hólf og gólf. Rúm- gott eldhús með góðri innréttingu. AF- HENDING GETUR VERIÐ VIÐ SAMN- ING. Verð 12,5 millj. Áhv. 7,6 millj. MARÍUBAUGUR - GRAFARHOLTI! Í sölu 148 fm raðhús á einni hæð með bíl- skúr. Húsið er með mikilli lofthæð og er sérhannað með útsýni og birtu í huga. Húsin eru afhent fullbúin að utan en nán- ast tilbúin undir tréverk að innan. TEIKN- INGAR Á SKRIFSTOFU! Verð 14,7 millj. KÓRSALIR 5 - M. BÍLSKÝLI - KÓPA- VOGI! Nú eru aðeins eftir 4ra herb. íbúðir í þessu glæsilega 7 hæða lyftuhúsi í Sala- hverfi. Íbúðirnar eru mjög rúmgóðar og verða afhentar fullbúnar án gólfefna ca í jan.-maí. Stórkostlegt útsýni! Teikningar á skrifstofu. 4ra herb. verð frá 14,9-17,9 millj. BYGGINGARAÐILI LÁNAR ALLT AÐ 85% KAUPVERÐS Á 9-9,6% VÖXT- UM TIL 15-30 ÁRA! ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR. BLÁSALIR Erum með í sölu 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í 12 hæða lyftublokk ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar en án gólfefna. Allur frá- gangur mjög vandaður og er sérstök gæða hljóðeinangrun í öllu húsinu. Verð frá 13,1 millj. FYRIRTÆKI VINNUVÉLAVERKSTÆÐI Í einkasölu vinnuvélaverkstæði sem sérhæfir sig í við- gerðum á vinnuvélum o.fl. Uppl. gefur Ísak. TÆKIFÆRI MARIBERGSVEGEN - SUÐUR-SVÍ- ÞJÓÐ! Einstakt tækifæri! Í sölu einbýlis- gistihús, um 250 fm, sem stendur á eignarlóð. Allt innbú fylgir, m.a. rúm fyrir átta og tæki. SJÖ GÓÐIR GOLFVELLIR Í NÆSTA NÁGRENNI. Verð með öllu 7,5 millj. SUMARBÚSTAÐIR 60 fm bústaðir um 4 km frá Klaustri. Bústaðirnir afhendast á byggingarstigi eða fullbúnir. Stórar lóðir. Verð 2,5 millj. fokheldir til 5,4 millj. full- búnir. FRÁBÆRT TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA - LÁTIÐ BÚSTAÐINN BORGA SIG SJÁLFAN! GRAFARHOLT - STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI Vorum að fá í sölu 3ja-5 herb. íbúðir í 3ja hæða fjölb, ein íbúð á hæð. Stórkostlegt útsýni yfir Reykja- vík og sundin. Þetta eru vandaðar sér- hæðir með útsýni sem mun ekki verða tekið frá þér! Verð frá 13,7 millj. VEGNA MIKILLAR SÖLU AÐ UNDANFÖRNU VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ! SKOÐUM SAMDÆGURS - EKKERT SKOÐUNARGJALD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.