Morgunblaðið - 27.07.2002, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.07.2002, Qupperneq 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 39 RÍKISSTJÓRN Davíðs Oddssonar ger- ir nú eina tilraunina enn til að ná lendingu í einu af sínum erfiðustu verkefnum. Það er að selja ríkisbankana. Það hafa verið mörg ljón í vegi þeirra fyrirætl- ana. Stefna stjórnar- flokkanna hefur tekið ótal beygjur og króka þannig að ekki hefur verið gott að skilja hvert í raun væri stefnt. Að undanförnu hefur verið gert ráð fyrir að selja svokölluð- um kjölfestufjárfesti stóran hlut í Landsbankanum. En þegar Björg- ólfur Guðmundsson og félagar leit- uðu eftir kaupum á þeim banka hljóp ríkisstjórnin í baklás. Viðbrögð stjórnarflokkanna við því að kominn var aðili með fulla burði til að kaupa banka urðu þau að auglýsa báða ríkisbankana til sölu. Sú ákvörðun er furðuleg út frá því sjónarmiði að fyrst og fremst skuli gæta hagsmuna þjóðarinnar sem að- aleiganda bankanna og almennings og fyrirtækja sem viðskiptavina. Einkavæðing í bankakerfinu er vandasöm og það er vandséð að þjóð- inni liggi á að selja báða bankana. Viðskiptavini bankanna og þjóðina sem eiganda skiptir mestu máli að fjármálastofnanir í landinu séu traustar og byltingar eða hraðstígar breytingar geta hæglega farið úr böndum. Það er því meira en nógu stórt skref nú að selja annan bank- ann. Að selja báða bankana í einu lækkar líka verðið. Þetta er stjórnarherrunum ljóst. Menn hljóta að spyrja hvers vegna þessi ákvörðun er þá tekin. Á að taka mark á því að til standi að selja báða bankana? Kornaxið og haförninn Það er ástæða til að óttast að svo sé. Sú ákvörðun að auglýsa báða bankana segir sína sögu. Áhugi Björgólfs og félaga fyrir kaupum á Landsbankanum vakti ríkisstjórnina með andfælum. Hinn þráði kjölfestufjárfestir var kominn en við að selja honum myndi raskast það brothætta samkomulag um völd og ítök stjórnarflokkanna í fjármála- heiminum sem varð til við fyrri myndun þessarar ríkisstjórnar og í átökunum um Landsbankann á sín- um tíma. Það er að vísu stöðugt teflt um völdin í viðskiptaheiminum en þeir sem sitja við það taflborð í skjóli stjórnmálanna ætla að tryggja sér völd og áhrif í þessari lotu. Þess vegna vilja þeir hafa báða bankana undir. Þetta er auðvitað ekki orðið nið- urstaða en þeir sem stjórna ferðinni telja sig eygja land. Þess vegna er lagt í siglinguna. Þegar ljóst verður hverjir kaupa bankana og hverjir halda ítökum og völdum við söluna mun sjást hvort kornaxið og haförninn muni auð- kenna sinn hvorn kaupendahópinn. Forystumenn stjórnarflokkanna eru nú að leita samkomulags í ein- hverjum stærstu hrossakaupum í sögu stjórnarsamstarfsins. Þar eru hagsmunir annara en þjóðarinnar í fyrirrúmi. Láti stjórnarflokkarnir langtíma- hagsmuni þjóðarinnar víkja, fyrir því að tryggja ítök sín og völd í þessu máli, verður skrifaður ömurlegasti kaflinn í sögu einkavæðingar á Ís- landi. Hrossakaup með þjóðarhagsmuni Jóhann Ársælsson Höfundur er alþingismaður. Einkavæðing Forystumenn stjórn- arflokkanna eru nú að leita samkomulags, seg- ir Jóhann Ársælsson, í einhverjum stærstu hrossakaupum í sögu stjórnarsamstarfsins. HINN nýi mennta- málaráðherra mælti af mikilli visku er hann taldi menntamál vera helsta landsbyggðar- málið. Að styrkja menntun heima í hér- aði styrkti um leið bú- setu og atvinnutæki- færi. Hér er sannarlega tekið undir þessa staðhæfingu og um leið reistar nokkr- ar tölulegar stoðir undir hana. Þegar nýj- ustu tölur um atvinnu- leysi eru skoðaðar kemur í ljós að hlutfallslegt at- vinnuleysi er mest í gamla kjör- dæmi ráðherrans. Tafla 1: (Vinnumála- stofnun júl. 2002) Þó ekki séu þetta stórar tölur og jafnvel ekki skilgreindar sem atvinnuleysi af al- þjóðastofnunum þá er þetta vísbending um margt. Þetta sýnir m.a. að atvinnuleysi er meira en á Austur- landi en þeir hafa skil- merkilega bent á mik- ilvægi atvinnuuppbyggingar. En hverjir eru at- vinnulausir og á hvaða aldri eru þeir? Skoðum þessa töflu sem merkt er tafla 5: Á henni sést að það er ungt fólk á aldrinum 15–30 ára, og enn er norð- urlandskjördæmið efst á þessum lista. Það þarf því að efla menntun þessa hóps enda sýna tölur einnig að stærsti hópurinn er fólk með litla eða enga menntun. Hér þarf því að gera átak í menntun þessa hóps. Því er yfirlýs- ingu ráðherra fagnað og beðið eftir að henni sé fylgt eftir. Menntun er landsbyggðarmál Gísli Baldvinsson Atvinnuleysi Það þarf því að efla menntun þessa hóps, segir Gísli Baldvinsson, enda sýna tölur einnig að stærsti hópurinn er fólk með litla eða enga menntun. Höfundur er náms- og starfsráðgjafi. Alltaf á þriðjudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.