Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 9
inni sést stjörnuhrap sem fylgdarmaður henn- ar segir að boði feigð. Á andliti Péturs bregður fyrir þrjóskuglotti þegar hann sér hver komin er. Hann játar sekt sína. Annaðhvort hefði hann orðið að leita á náðir sveitarinnar eða halda inn á þessa braut. Á heimleiðinni fram hjá Bollagörðum skoðar Borghildur fylgsnið. Geðshræringin og áreynslan leiðir til þess að hún fær slag og lamast. Egill í Hvammi tekur Pétur fastan. Hann sýnir enga mótspyrnu, en opnaði kistil og tek- ur þar eitthvað sem Egill sér ekki hvað var. Í fyrstu er undarleg óró yfir Pétri, en svo réttir hann sig upp „beinn og keikur, léttur í lima- burði, stálmjúkur, eins og hann ætlaði í dans“. Hann kveður börnin og segist tilbúinn. Á leið- inni er áð og Pétur bregður sér í hvarf. Þegar að honum er komið engist hann sundur og saman. Hann hefir tekið inn eitur sem dregur hann til dauða. Borghildur í Hvammi er flutt á kviktrjám heim til sín. Hún kemur aftur til meðvitundar, en er lömuð og niðurbrotin. Hún gerir dóttur sinni skiljanlegt að hún vilji biðja Höllu fyr- irgefingar sem báðum verður mikill léttir. Þorradægur hefst á haustdegi. Sögusviðið er Heiðarhvammur. Kýrin í kotinu er felld þann dag og síðasti vetur Ólafs og Höllu í Heið- arhvammi fer í hönd. Ólafur hefir misst heils- una, bú hans hefir dregist saman og hann hefir sagt upp ábúðinni. Halla fær Sölku nýjan samastað. Sömu persónur og áður bera söguþráðinn uppi. Finnur í Bollagörðum er nú beitarhúsa- maður í Hvammi. Hann færir þeim þær fréttir að Þorsteinn sé kominn aftur og segir ljótar sögur af drykkjuslarki hans. Hugsýki sækir að Ólafi, Halla reynir að hughreysta hann þó að hún beri kvíðboga fyrir því sem við muni taka þegar þau flytja frá Heiðarhvammi. María Ragúelsdóttir og fylgdarmenn henn- ar komast naumlega í húsaskjól í Heiðar- hvammi áður en grimmdarstórhríð skellur á. Þessi gestkoma er kærkomin tilbreyting. María og Halla ræða margt saman og saga Maríu verður til þess að Halla lítur komandi daga bjartari augum en áður. Sólsetrið á kynd- ilmessu spáir fannfergi og harðindum. Ólafur ofkælist og veiktist af lungnabólgu sem dregur hann til dauða. Þegar hann er dáinn freistar Halla þess að ná fundi Finns í beitarhúsunum frá Hvammi og verður að skilja börnin ein eftir. Hún býst til ferðar og hefir fjárhundinn með sér, og bið- ur Halldór litla að gæta systur sinnar. Færð er hin versta, það skyggir og veður harðnar með renningskófi og frosti. Fyrr en varir er mjall- rokið svo þétt að hún nær varla andanum. Henni finnst hún heyra undarleg hljóð ekki langt frá sér. Hundurinn virðist einnig heyra þau, stekkur út í myrkrið og geltir, en kemur aftur og skelfur þá eins og hrísla. Finnur er farinn af beitarhúsunum þegar hún kemur þangað, svo að hún ákveður að fara niður að Hvammi. Veðurhæðin eykst, hún brýst áfram gegn veðrinu og frostið nístir hana. Hún heyrir of- heyrnir og sér ofsjónir. Hávaxinn og herða- breiður karlmaður gengur á undan henni gegn veðrinu. Gamla prestsfrúin og Jóhanna birtast henni og síðast kemur Salka fljúgandi. Hún hrekkur upp við ýlfrið í hundinum, og sér eitt- hvað sem líktist eldglæringum í fjúkinu. Þær koma aftur og verða tveir ljósgeislar sem teygja sig á móti henni. Hún er komin að Hvammi og drepur þrjú högg á gluggaþilið þar sem ljósinu brá fyrir. Þorsteinn kemur til dyra. Halla sagði honum alla málavöxtu og Þor- steinn fer þegar upp í Heiðarhvamm til að vera hjá börnunum. Í Heiðarhvammi dregur til tíðinda. Börnin undu sér við leiki og ævintýri fram eftir kvöldi. Skyndilega heyrast ógnvænleg högg og síðan er eins og gengið sé uppi á bænum. Þar eru komnir tveir menn að leita Sölku sem hefir strokið og ætlað að Heiðarhvammi. Brátt kem- ur Þorsteinn með þau gleðitíðindi að Halla hafi komist heim í Hvamm. Allt lifandi er flutt frá Heiðarhvammi næsta dag. Í Heiðarhvammi ber fundum Höllu og Þorsteins saman að nýju. Hann kemur í veg fyrir að hún og börnin lendi á sveitinni og fer án þess að kveðja móður sína. Sögunni lýkur þegar komið er fram á sumar og Halla fer í kaupstað. Þangað á hún fleiri en eitt erindi. Í kistu Ólafs kemur fram töluvert af spesíum sem Halla fer með til Þorgeirs versl- unarstjóra í Vogabúðum. Einnig ætlar hún reyna að sætta Þorstein og móður hans og ráð- færa sig við Maríu gömlu Ragúelsdóttur. Þorgeir er þurr á manninn, en hrósar áræði Höllu við fráfall Ólafs. Fram kemur að hann þekkir nokkuð til hennar og bendir henni á að kofi Maríu gömlu Ragúelsdóttur sé til sölu, og hjá sér geti hún fengið vinnu. Þorsteini er vart hugað líf eftir bardaga við norska sjómenn, Höllu verður ljóst að það eina sem geti gert honum lífið þolanlegt sé að sætt- ast við móður sína. Í sögulok sættast Þorsteinn og Borghildur. Halla afræður að setjast að í Vogabúðum. Meðal farþega á gufuskipi sér hún Settu og Þorbjörn, en í röðum höfðinga sem fagna skip- komunni kemur hún auga á séra Halldór. Það snertir hana ekki lengur. Heiðarbýlið náði miklum vinsældum. Í bók sinni Í túninu heima lætur Halldór Kiljan Lax- ness þau orð falla að Jón Trausti standi sér fyr- ir hugskotssjónum „sem einn mestur undra- maður að verið hafi í íslenskri sagnasmíð fyr og síðar.“ Hinn 15. október 1911 skrifaði Gunnar Gunnarsson greinina Ung islandsk Digte– kunst. Þar rakti hann rithöfundarferil Jóns Trausta og segir að Halla hafi vakið óskipta at- hygli þegar hún kom út. Eftir Heiðarbýlissögur Jóns Trausta liðu áratugir þar til saga kotunga í heiðarbýlum og lífsbarátta þeirra varð viðfangsefni íslenskra rithöfunda á ný. Halldór Laxness varð fyrstur til að taka upp þráðinn með Sjálfstæðu fólki sem kom út í tveimur bindum nær þremur ára- tugum síðar. Agnar Þórðarson rithöfundur skrifaði rit- gerð, sem hann nefndi Heiðarbýlið og Sjálf- stætt fólk, áratug eftir að sú síðarnefnda kom út. Þar bar hann þá Ólaf í Heiðarhvammi og Bjart í Sumarhúsum saman og benti á hlið- stæður og andstæður í eðli þeirra og örlögum. Bjartur er söguhetja Halldórs, en Ólafur hálf- gerð aukapersóna. Halla og Rósa í Sumarhús- um ganga að eiga þá vegna þess að þær eru barnshafandi af völdum manna sem þær fá ekki að eiga. Það sem skilur á milli þeirra er að Halla fórnar sér til að bjarga séra Halldóri. Rósa er aftur á móti að komast hjá því að ala óskilgetið barn með því að ganga að eiga Bjart. Ári eftir að síðara bindi Sjálfstæðs fólks kom út, leit fyrra bindi Dalafólks Huldu dagsins ljós. Síðara bindið kom 1939. Næstur varð Gunnar Gunnarsson til að fjalla um líf heið- arbúanna í skáldsögunni Heiðaharmi sem kom út 1940. Síðastur var Ólafur Jóhann Sigurðs- son með sögunum um Herdísi Hermannsdótt- ur. Sú fyrri, Fjallið og draumurinn, kom út 1944, en sú síðari, Vorköld jörð, 1951. Eitt af því sem einkennir þessar sögur sem hér eru nefndar, með einni undantekningu, er að söguhetjan er kona. Halla, Bjargföst í Heiðaharmi og Herdís eiga margt sameigin- legt, en Ísól Árdal í Dalafólki eru önnur örlög sköpuð. Bjartur í Sumarhúsum fer einn og sér. Ólafur Jóhann Sigurðsson komst svo að orði í viðtali við Jón Óskar í Birtingi 1958: „Jón Thoroddsen, Jón Trausti og Einar H. Kvaran skiptu mér á milli sín þegar eg var á ferming- araldri“. Hins vegar getur hann að engu hvaða áhrif þessi lestur hafði á sig. Hér á eftir verður lítillega hugað að því hvernig áhrifa frá Höllu og Heiðarbýlinu gætir í sögu Ólafs Jóhanns um Herdísi Hermannsdóttur. Fjallið og draumurinn Fjallið og draumurinn, saga Herdísar Her- mannsdóttur, hefst á júnídegi, þar sem hún liggur í grasi sjö ára gömul og hlustar á niðinn í ánni. Á þessum degi skilst hún við móður sína og ekkjuna á Fossi og flyst til gömlu hjónanna Markúsar og Sigurlaugar á Rauðalæk, þar sem hún er fóstruð upp. Það er Benjamín Franklín sem sækir hana og uppfræðir á leið- inni um leyndardóma fjallsins og byggðina og þá sem þar búa. Lífið á Rauðalæk er fábreytt, en menn og málleysingjar virðast una því og Herdís nýtur umhyggju Sigurlaugar fóstru sinnar. Sveitungarnir koma til sögunnar einn af öðrum, hver með sín séreinkenni: Grímur á Hausastöðum, Sigurbergur í Dal, refaskyttan, Kristján á Hamri séra Pétur og Þrúður vin- kona Herdísar. Sér í flokki er Ásta vitlausa. Draumum og þrám lítilmagnans er vel lýst og lesandinn fylgist með hvernig Herdís vex og þroskast. Samhliða því unir hún hlutskipti sínu verr en meðan hún var yngri. Fóstra hennar skilur þetta og gerir ráðstafanir til að koma henni í skóla hjá sr. Pétri. Þar kynnist hún Guðmanni Eiríki syni Gríms á Hausastöðum og þar með eru örlög hennar ráðin. Sögunni lýkur með fráfalli Markúsar á Rauðalæk, Her- dís á von á barni þegar hún kveður æskustöðv- arnar og fóstru sína og flyst að hinni vorköldu jörð Hamri. Ritdómur um Ó.J.S. Halldór Laxness skrifaði ritdóm í Tímarit Máls og menningar 1844 um Fjallið og draum- inn undir fyrirsögninni Ljóðræn skáldsaga. Þar kemst hann svo að orði að söguefnið sé „bundið einni sókn, þröngu svæði, án umtals- verðrar íhlutunar utan frá.“ Ljóðræna stílsins hafi „hvarvetna yfirhönd yfir inntakinu“. Höf- undur forðist að skapa átök og stígandi. Sleppa megi úr nokkrum tugum blaðsíðna hvar sem er, án þess að missa samhengi: „... maður les stundum síðu eftir síðu án þess nokkurs staðar að örli á frásögn eða söguefni.“ Í ritdóminum talar Laxness um afkáralegar og ámáttlegar myndir af persónum og atvikum sem raski stíl verksins og nefnir Ástu vitlausu sem dæmi, en lýkur lofsorði á vandvirkni höf- undar, en talar jafnframt um „skrifstofulegt“ handbragð. Náttúrulýsingarnar standi hvergi að baki því besta í óbundnum ljóðrænum stíl. Þær megi lesa sér til yndis þó að söguna vanti. Snorri Hjartarson telur mannlýsingar höf- undar misgóðar. Með ágætum séu lýsingarnar á gömlu hjónunum á Rauðalæk, fósturforeldr- um Herdísar. Einnig séu Grímur á Hausastöð- um og Kristján á Hamri vel gerðir. Lýsingin á Herdísi sé gerð af miklum næmleik og skiln- ingi í upphafi, en hún verði að „hálfleiðinlegum kvenmanni“ þegar dregur að bókarlokum. Sama máli gegni um Guðmann Eirík, manns- efni hennar, „og því miður eru margar persón- urnar því marki brenndar ... að dofna fremur en skýrast eftir því sem líður á söguna“. Eina undantekningu nefnir Snorri: lýsinguna á fóstru Herdísar sem hann telur sterkustu mannlýsinguna í bókinni. Líkt og Halldór Lax- ness taldi hann lýsingunni á Ástu vitlausu ofaukið og hún væri mikið lýti á sögunni. Snorri Hjartarson leit málfar höfundar öðr- um augum en Halldór Laxness. Hann dáði orðauðgi Ólafs Jóhanns og lauk umsögn sinni með þessum orðum: „Í hópi hinna yngri skálda kem ég ekki auga á neinn líklegri til stórra af- reka en Ólaf Jóhann Sigurðsson.“ Vorköld jörð Vorköld jörð kom út sjö árum síðar. Hún gerist um áratug síðar en Fjallið og draum- urinn. Flestar persónurnar eru þær sömu og áður. Fjölskylda Guðmanns og Herdísar á Hamri er tveir synir og dóttir í reifum. Fólkið er á engjum þegar sagan hefst. Jakobína í Hamarskoti, nágrannakona Herdísar og föð- ursystir Guðmanns, leitar á náðir hennar. Hún er að bugast vegna andlegrar veiklunar sem er kynfylgja ættarinnar. Óráðsdraumar hennar um óskasteina í tjörninni upp á fjallinu hafa al- tekið hana. Í augum hennar þekkir Herdís ætt- areinkenni sem skelfa hana. Ólína móðir Herdísar kemur og sest upp hjá þeim vetrarlangt. Guðmann þolir hana ekki, tilfinningasamband mæðgnanna reynist blá- þráðótt og svo fer að Ólína hverfur aftur á braut. Skilnaður þeirra er mjög með öðrum hætti en í upphafi sögunnar. Jakobína í Hamarsseli gerir alvöru úr því að klífa fjallið um hávetur. Þegar Herdís reynir að koma vitinu fyrir hana, ræðst Jakobína á hana svo að minnstu munar að bráður bani hljótist af. Herdís ofreynir sig við heyannir og missir fóstur. Drengirnir óttast um líf hennar og Guðmanni farast heimilisstörfin óhöndug- lega. Um haustið kemur Þrúður Pálsdóttir að heimsækja þau. Henni fylgir þvílíkt líf og fjör að Guðmann lifnar allur við. Hann fylgir henni á leið með örlagaríkum afleiðingum. Um haustið segir hann upp ábúð jarðarinnar, kem- ur dauðadrukkinn heim í fylgd Þórarins á Laxabakka. Þegar Þórarinn kveður Herdísi biður hann hana að leita til sín fremur en ann- arra því að hann vilji verða henni að liði. Guðmann gerir árangurslausa leit að jarð- næði. Svo berst honum bréf í hendur og við það þyrmir yfir hann. Hann brennir ljóð sín, fær byssu að láni undir því yfirskini að hann ætli að veiða rjúpur. Síðdegis kveður hann dóttur sína og sviptir sig lífi. Hundurinn fylgir honum en kemur ýlfrandi heim. Herdís fer að leita og finnur hann helskotinn við fjallsræturnar. Hún verður að fara í kaupstað og skilur börnin ein eftir en lætur hundinn fylgja sér. Á heimleið- inni hreppir hún versta veður og liggur við að hún verði úti. Þórarinn á Laxabakka kemur aftur að máli við hana og leitar eftir að fá hana fyrir ráðskonu og hún hafi börnin með sér. Herdís tekur boði hans og sögunni lýkur þegar hún ríður úr garði ásamt börnum sínum. Saga Herdísar Hermannsdóttur er hetju- saga. Hún er heilbrigð, þrekmikil og þrautseig alþýðukona. Þungamiðja sögunnar er hjóna- bandsharmleikur hennar og Guðmanns, sveimhuga skálds, sem gefst upp í lífsbarátt- unni. Skuldum vafinn og brotlegur í hjóna- bandi brennir hann ljóð sín og sviptir sig lífi. Sverrir Kristjánsson komst svo að orði um Fjallið og drauminn að hann hefði eiginlega verið „búinn að gleyma söguþræðinum, en jafnan finnst mér anda einhverri angan að vit- um mínum, þegar ég minnist þeirrar bókar.“ Um Vorkalda jörð segir Sverrir að hann sé illa svikinn ef persónur eins og Ólína, móðir Her- dísar, eða Sigurbergur í Dal, refaskyttan, eigi ekki fyrir sér langa ævi í íslenskum bókmennt- um, en lýsingar á lofti og láði beri oftar en ekki söguþráðinn ofurliði. Í upphafi rithöfundarfer- ils síns er Ólafur Jóhann greinilega undir áhrifum frá Halldóri Laxness og jafnvel Hem- ingway eins og Snorri Hjartarson vék að. Með auknum þroska fjarlægðist hann fyrirmyndir sínar og skapar sinn eigin stíl. En hvað um efniviðinn, var hann þar jafn frumlegur? Til að kanna þetta betur er forvitnilegt að skoða sögu Herdísar Hermannsdóttur, en hverfa jafn- framt aftur til upphafs hinna viðamiklu rit- verka um heiðarbýlin og líf fólksins þar. Sögutími heiðarbýlissagnanna er áratugur- inn fyrir 1880 og Jón Trausti nefnir ár sem tengist tilteknum atburðum. Saga Herdísar hefst skömmu fyrir aldamótin síðustu og Vor- kaldri jörð lýkur röskum áratug síðar. Hliðstæður og frávik Hér á eftir verður hugað að því hvaða hlið- stæður og hvers eðlis er að finna í þessum tveimur ritverkum. Þar er fyrst til að taka að Halla er vinnukona á prestssetri í upphafi sög- unnar. Hún er í uppáhaldi hjá húsmóður sinni prestsekkjunni sem lætur sér mjög annt um hana svo að samband þeirra nálgast að vera eins og milli móður og dóttur. Gömlu hjónin á Rauðalæk, Markús og Sigurlaug, taka Herdísi hins vegar í fóstur og umhyggja Sigurlaugar og lífsspeki hennar verður það veganesti sem dugar Herdísi best í lífsbaráttunni. Á milli þeirra ríkir fullur trúnaður og einlægni alla tíð. Halla kallar hins vegar yfir sig böl með því að breiða ósannindi yfir leyndarmál sitt. Hlutskipti Höllu og Herdísar í lífinu er svip- að á ytra borði. Þær hefja búskap á heiðarkot- um, Heiðarhvammi og Hamri. Lífsbaráttan er áþekk hjá báðum. Þær stofna til hjónabands af ólíkum hvötum, og eiginmennirnir eru þeim ósamboðnir þótt ólíkir séu. Á báða sækir von- leysi og þunglyndi undir ævilokin og þeir segja upp ábúð jarðanna án þess að hugsa um hvað við taki. Í báðum tilvikum bera konurnar heim- ilin uppi. Þær drýgja miklar hetjudáðir við frá- fall eiginmannanna og óvæntir peningar koma að góðu gagni í viðskiptum við kaupmenn þeg- ar kemur að skuldaskilum. Hjá Höllu hefst nýtt líf í sögulok. Ástarþríhyrningurinn í sögu Herdísar Her- mannsdóttur er mikill örlagavaldur. Séra Hall- dór og Guðmann falla báðir í sömu freist- inguna. Guðmann Eiríkur fellur fyrir kyntöfrum Þrúðar ólofuðu, fermingarsystur Herdísar og vinkonu, og svipað hendir séra Halldór. Líkt og hjá Jóni Trausta veldur þrí- hyrningurinn óhamingju og í báðum tilvikum láta veiklyndustu aðilarnir – Jóhanna og Guð- mann – lífið. Lýsingunni á Höllu í upphafi sögu hennar svipar nokkuð til Þrúðar sem kemur í heim- sókn að Hamri að áliðnum slætti: „hnellin kona í blárri peysu og dökku pilsi, ... mófreknótt í framan, kringluleit og glaðleg, hárið rautt ... barmurinn mikill og hvelfdur.“ Hún var kölluð Þrúður ólofaða og hefir breyst mikið, fríkkað og þroskast, ljómar af glaðværð og hlær svo að skín í hvítar og sterklegar tennur. Guðmann horfir forvitnislega á þessa rauð- hærðu, þreknu og blómlegu konu. Kjóldulan þröngdi allt að því ókurteislega að brjóstum sem líkjast gíghólum og kröftugum mjöðmum hennar. Hún er ekki aðeins forkur dugleg, heldur minna vinnubrögð hennar á leik og æv- intýri. Guðmann lifnar allur við ákafa hennar og kátínu. Um kvöldið rakar hann sig og hefir fataskipti áður en hann fylgir Þrúði á braut. Hún ríður klofvega í hnakk og kippir pilsinu upp að hnjám þegar hún stígur á bak. Guð- mann kemur ekki heim fyrr en undir morgun, og skýrir fjarveruna með því að honum og Sig- urbergi í Dal hafi orðið skrafdrjúgt við að ferja Þrúði yfir fljótið. Þegar hann fær að vita að Þrúður er barnshafandi af hans völdum brotn- ar hann niður og fremur sjálfsvíg. Líkt og í sögu Herdísar sviptir ein af sögu- persónum Jóns Trausta sig lífi. Pétur á Kroppi og Guðmann eiga það sameiginlegt að vera með listræna æð. Pétur leikur á fiðlu, en Guð- mann yrkir ljóð. Lýsingarnar á því þegar þeir hafa tekið ákvörðun um að binda enda á líf sitt og kveðja litlar dætur sínar eru áþekkar. Pétri er áður lýst, en fastahrukkurnar þrjár á enni Guðmanns virtust hafa grynnkað, augnaráð hans bar vitni um óvænta rósemi, en jafnframt nokkra angurværð. „Litla dóttir mín, sagði hann við Sigurlaugu og strauk blíðlega mjúka og viðhrokkna lokka hennar. Skelfing verður hún litla dóttir mín falleg stúlka þegar hún er orðin stór. Babbi! hjalaði telpan og klappaði á andvökubleika vanga föður síns.“ Grími á Hausastöðum, föður Guðmanns, og Pétri svipar einnig saman bæði í útliti og fram- komu. Að auki eru þeir bendlaðir við sauða- þjófnað þótt ekkert sannist á Grím. Pétri er svo lýst að hann „var stór maður vexti, limaður vel, herðabreiður og mittisgrannur, með stórar hnúfaberar hendur. Hann var mikilleitur og svipmikill, með hátt enni og mikil brúnabein. Nefið var beint, varirnar þunnar og hakan nokkuð breið. ... Andlitið var magurt, með hörðum og þunglyndislegum dráttum, og hör- undsliturinn öskugrár, ... Augun voru fremur lítil, grá og hvöss. Í öllum svipnum brá jafnan fyrir storkunar- og hæðnisglotti, sem mörgum stóð stuggur af. Fámáll var hann, en ýmsum þótti kenna kaldrar nepju í orðum hans.“ Grími á Hausastöðum lýsir Ólafur Jóhann svo: „Hann var meðalmaður á hæð, grannvax- inn, svartskeggjaður og fölur í andliti. Í dökk- um augum hans fólst bitur gremja, eins og hann væri í töpuðu stríði og hefði verið beittur ranglæti og óverðskulduðum fjandskap, en þunnt kónganefið virtist bjóða öllu byrginn, – og drættirnir frá nefinu til munnsins dýpkuðu í storkandi hæðnisbrosi, þótt augun væru köld og hvöss.“ Þegar Benjamín Franklín fer að sækja Her- dísi að Fossi í upphafi sögunnar hittir hann Grím á Hausastöðum. Þjófaleit berst í tal, enda hafði verið leitað hjá Grími um veturinn og grunur um sauðaþjófnað liggur í loftinu. Grím- ur er ekki sekur fundinn í sögunni þó að við- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 9 SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.