Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 15
spölinn liggur gatan nærri gljúfrinu sem Fúla- kvísl fellur um á þessum slóðum og með suður- hluta Kjalhrauns á hina höndina. Landið er sléttlent með fremur þunnri jarðvegstorfu sem fætur hesta og kinda hafa markað í greinilega götu. Á móts við norðausturhlíð Baldheiðar er gatan beint eftir þurrlendum hraunjaðrinum þar sem sveigur er á Kvíslinni suður af Þver- brekkum. Leiðin nálgast hana síðan aftur við gljúfrið suðaustur af Þverbrekknamúla. Á þessu svæði má allvíða sjá götur í stefnu til norðausturs. Líklega eru þær bæði kindagötur og merki um leið yfir á hina gömlu Kjalarleiðina sem lá með Svartá, austan við Kjalfell og þar áfram inn yfir Kjalhraun. Vestri leiðin sveigir austur fyrir Kvíslarmúla en liggur svo áfram inn með Fúlukvísl og svo nærri henni sem hentugast er til að fá sem greiðasta og stysta leið. Þegar Fremra-Sandfell er að verða að baki handan Kvíslarinnar fer að sjást í Þjófadalakjaft og er þá stefnt nokkurn veginn beint á hann. Á sléttlendinu suður af Þjófafelli greinist leiðin í tvennt. Annars vegar liggur hún fyrir austan það og á litlu bili milli þess og Kjalhrauns og raunar allvíða yfir hraun- hellur. Nú er mælt með því að sem mest af ferðamannahestum fari þarna en ekki um Þjófa- dali til að hlífa þar viðkvæmu gróðurlendi. Leið- in í gegnum Þjófadali er meðfram læknum litla sem úr þeim rennur og inn um þröngt skarð milli Þjófafells og Þverfells; nefna heimamenn það Þjófadalakjaft. Leiðin liggur síðan um aust- anverðan dalinn, upp á Þröskuld sem lokar hon- um að norðaustan, yfir melöldur og gil þar fyrir norðan og sameinast svo leiðinni austan við Þjófafell syðst í Sóleyjardal. Áfram liggur svo þessi gamla leið um Miðdali norðan við fjalls- hnúkinn Stélbratt, austur yfir nyrsta tagl Kjal- hrauns og er þá orðið stutt á Hveravelli. Fram- haldið er niður með Þegjanda og Seyðisá, yfir þá síðarnefndu á vaði vestan Biskupsáfanga og áfram niður Auðkúluheiði í Blöndudal eða aust- ur yfir Blöndu og um Eyvindarstaðaheiði í Skagafjörð. Leið þessi er mikið notuð til að ferðast um á hestum og er nú yfirleitt upphaf hennar við há- lendismiðstöð Tungnamanna í Árbúðum við Svartá. Þaðan er farið í stefnu á Hrefnubúð og komið á gamla Kjalveginn suðaustur af henni. Endastöð reiðfólks á þessari leið er yfirleitt við hesthús Húnvetninga í Tjarnadölum norðan við Hveravelli. Margir halda áfram niður með Þegj- anda og Seyðisá og fara yfir Blöndu á vaði nyrst í Biskupstungum. Víðast er leiðin vörðuð allt sunnan frá Hvítá og norður að Blöndu. Líklega eru vörðurnar að mestu handaverk þriggja manna er unnu að til- hlutan vegamálastjóra sumrin 1920–1922 við að hressa upp á gamlar vörður og reisa nýjar á leiðinni norðan úr Mælifellsdal og suður að Hvítá. Verki stjórnaði Halldór Jónasson frá Hrauntúni í Þingvallasveit. Hann var bóndi þar 1922–1934, síðastur þriggja ættliða er þar bjuggu en afi hans og nafni hafði reist býlið árið 1830. Þar eru enn stæðilegir túngarðar úr hraungrýti og er líklegt að Halldór hafi í æsku lært handtök við hleðslu. Sumar af þessum vörðum kunna að hafa verið hresstar við tæpum áratug síðar en þær hafa ekki allar enst jafn vel og fer reisn þeirra nú bæði eftir undirstöðu og byggingarefni. Gamli-Kjalvegur eystri Síðasti spölurinn hér á undan er einnig á gamla Kjalveginum en þessi liggur austar en sá sem fyrr var lýst. Á báða var komið hvort sem var neðan úr Austur-Húnavatnssýslu eða Skagafirði. Eystri leiðin er með Þegjanda þar til komið er á móts við norðanvert Dúfunefsfell. Þarna er hún víða greinilega merkt með vörð- um. Þær eru misjafnlega reisulegar, sums stað- ar hefur ekki verið tiltækt nema hnullungagrjót til að hlaða úr og hafa þær margar hrunið. Aðrar eru úr molabergshellum og standa þær áratug- um og jafnvel öldum saman. Leið þessi lá um Dúfunefsskeið suðvestur af fjalli því sem eins og skeiðið er kennt við nef Þóris bónda á Flugumýri í Skagafirði, þess er þreytti kappreið á Flugu sinni við Örn lands- hornamann þarna fyrir meira en 1000 árum. Ekki væri úr vegi að þeir fjölmörgu sem þarna fara um á hestum reyndu með þeim þar á mel- unum. Nú er ekki unnt að ríða beint suður af Dúfunefsskeiði, svo sem gamla leiðin liggur, þar sem sauðfjárvarnagirðingin er þar fyrir en skammt er vestur í hliðið á bílveginum. Áfram liggur þessi gamli Kjalvegur nokkurn veginn beint í suður eftir melunum og stefnan vestan við Rjúpnafell. Kjalhraun er á hægri hönd og eins og víðar er farið milli hrauns og hlíðar. Þegar komið er suður fyrir Rjúpnafell er haldið út á hraunið. Þar er greinileg gata og vel vörðuð. Vörðurnar standa flestar eins og þær voru hlaðnar enda er hraungrýtið gott bygging- arefni. Þær eru um 2 m háar og grunnflötur rúmur hálfur til einn m á kant. Flestar eru þær með vegvísi til norðurs sem er ílangur steinn út úr þeim ofanvert við miðju. Þessar vörður munu flestar hafa verið hlaðnar rétt fyrir aldamótin 1900 og líklega standa margar þeirra óhreyfðar síðan. Þær eru á þessum slóðum í skipulegri röð, bil milli þeirra frá um það bil 70 til 150 m og hafa áreiðanlega þótt til mikilla bóta á sínum tíma fyrir þá er þar voru á ferð í dimmviðri. Sjaldan er skyggni svo lítið að ekki sjáist til næstu vörðu og vegvísirinn sýnir hvort stefnan er rétt. Gatan liggur svolítið uppímóti fyrst í stað en brátt er komið að Grettishelli sem er í löngum hraunhól með nokkrum vörðum. Hér er þessi leið hæst eða í nær 700 m y.s. Slóðin er milli hraunhólanna og þeir notaðir sem undirstöður fyrir vörðurnar og þar ber þær hátt og sjást langt að í góðu skyggni. Hér er farið að halla suður af og þangað opnast útsýn. Um þremur km sunnan við hábungu Kjalar, spölkorn austan við götuna, er Beinhóll þar sem Reynistaðar- bræður urðu úti með fé sitt og hross í vetr- arbyrjun 1780. Leiðin liggur austanvið Kjalfell og um Kjal- fellsver suðaustan undir því. Þar er tóft af göml- um leitarmannakofa í fallegri vin með vatns- miklar uppsprettur. Hér er stutt að fara yfir á vestri gamla Kjalveginn. Er þá stefnt til suð- vesturs og komið á hina leiðina austan við Fú- lukvísl sunnan við Múla. Á áberandi stað ofan við gróðurtorfuna á suðausturöxl Kjalfells eru nokkrir litlir steinar á stórum kletti sem líklega hafa átt að vísa leið til vesturs en grónar götur eru nokkru neðar og fleiri slíkar er að finna sunnar. Eystri leiðin liggur hins vegar niður með Kjalfellskvísl og nær 5 km sunnar er komið nið- ur undir Gránunes. Á þessu svæði er lítið um sýnilegar vörður og hefur líklega ekki þótt ástæða til að varða veg sem liggur meðfram á. Þessi leið hefur nýlega verið merkt með mál- uðum tréstikum allt sunnan frá Svartárvaði, skammt fyrir norðan Árbúðir, og inn undir Beinhól. Þar sem Kjalfellskvísl fellur niður af klapp- arbrún rétt áður en hún sameinast Svartá er gömul fjárrétt á grasflöt vestan við hana. Hún er kennd við Gránunes þar sem sagan segir að Grána Reynistaðarbræðra hafi fundist vorið eft- ir að þeir urðu úti. Nesið það er hins vegar hin- um megin kvíslarinnar. Áfram liggur leiðin nið- ur með Svartá og er þarna á sama stað og Eyfirðingavegur eins og hann hefur verið merktur á kortum. Þegar kemur niður á móts við miðja Baldheiði skilur leiðir á stað sem heitir Svartárbugar. Eyfirðingavegur liggur austur að Jökulfalli en gamli Kjalvegurinn áfram vestan- við Svartá. Hann er raunar mjög óljós á þessum slóðum, ekki sjást neinar greinilegar götur en helst má ráða leguna af merkingum sem eru þannig að nokkrir steinar hafa verið settir upp á stóra kletta. Gætu þær bent til þess að þessi leið hafi legið til vesturs frá Svartá rétt sunnan við syðsta tagl Kjalhrauns austanverðs og þaðan á vestri gamla Kjalveg nyrst í Tjarnheiði eða norðan hennar. Á þessu svæði hefur verið mikill uppblástur á síðustu öldum svo að gamlar götur hafa horfið. Líklegt er að sumir þeir er fóru eystri leiðina yfir Kjöl hafi farið með Svartá nið- ur undir Hvítárvatn. Eyfirðingaleið Leið þessi hefur löngum verið talin draga nafn af því er Norðlendingar fóru í skreiðarferð- ir suður á Eyrarbakka. Þær fólust í því að farið var suður með ýmsan varning, svo sem smjör, tólg, ull, skinn, prjónles og smíðisgripi, og hon- um skipt fyrir harðfisk og herta þorskhausa í veiðistöðvunum við suðurströndina. Líklega hafa skreiðarferðir um Kjöl verið algengastar á átjándu öld en lagst af á síðari hluta þeirrar nítjándu, en heimildir eru um slíka ferð úr Skagafirði árið 1888. Sérstakt vað á Hvítá var kennt við þessar ferðir og kallað Eyfirðingavað. Nokkuð hefur verið á reiki hvar það væri en samkvæmt munn- legum heimildum staðkunnugra virðist mér að það sé norðan við Lambafell við stóra kvos sem þar er í suðurbakka árinnar. Landtakan að norðan er á eyrunum suður af Tangaveri, skammt fyrir vestan mynni Jökulfalls. Greini- legar götur eru austast í torfunum í Tangaveri en ekki er unnt að slá því föstu að þetta séu ferðamannagötur. Sauðféð markar víða tölu- verðar götur, þar sem það rennur, og oft dýpka þær og breikka af vatnsrennsli. Leiðin hefur svo legið áfram til norðurs skammt vestan Jökul- falls, austan við Fremri-Skúta og svo norðan hans vestur í Svartárbuga. Þar er nokkurt gras- lendi og því góður áningarstaður. Allvíða á þess- ari leið má sjá að nokkrum steinum hefur verið hlaðið upp á stór björg. Það hefur verið auðveld- asta aðferð fyrritíðar manna til að merkja leiðir á grýttu landi. Leiðarsteinar þessir eru víðast þar sem hátt ber og ekkert í landslaginu sem vísar leiðina. Áfram er þessi leið inn með Svartá, gæti verið hvorum megin við hana sem er, en öllu slétt- lendara er vestan hennar. Þá hefur verið farið yfir Kjalfellskvísl, um Gránunes og áfram til norðausturs inn í Eystri-Svartárbotna. Ljósari merki virðast um leið þarna svolítið austar. Leiðarsteinar eru á melöldu austan Svartár og á gróðurtorfum austan öldunnar eru sjánlegir einir 20 götuslóðar sem stefna á leiðarstein norðan við hlykk á Svartá sunnanvert í Svart- árbotnum. Gæti það bent til þess að farið hafi verið austan við Svartá vestan við Innri-Skúta en trúlega hafa margir farið vestur yfir Svartá til að á í Gránunesi. Við suðausturhorn Kjal- hrauns innst í Svartárbotnum er hlýlegur grasi vaxinn hvammur. Þar er ágætur hvíldarstaður þreyttra ferðalanga og ekki skortir vatnið því að töluverður hluti Svartár kemur upp þarna í næsta nágrenni og hún liðast lygn og tær framhjá hvamminum og áfram niður milli grasi gróinna bakka. Næsti áfangi leiðarinnar til norðurs er grýtt- ur og lítt grasi vaxinn. Farið hefur verið við austurjaðar Kjalhrauns og er þar allgóður reið- vegur á sléttlendum melum. Þegar hraunkant- urinn sveigir til vesturs er Fjóðungsalda á hægri hönd. Leiðin er nú eftir greiðfærum mel- um með lágum öldum. Enn er stefnan í norð- austur um 5 km að Blöndu. Yfir hana mun hafa verið farið neðan við Blöndutjörn en við hana er svolítill gróðurreitur þar sem unnt hefur verið að á eftir ferð um grýtt land. Áfram liggur leiðin til norðausturs og nú eftir áreyrum og yfir Blöndukvíslar og Eyfirðingakvísl sem koma úr Hofsjökli en hann gnæfir þarna yfir í suðaustri og austri. Hér verður hætt að lýsa Eyfirðinga- leið þar sem hún sveigir aðeins til austurs eftir að komið er yfir Svörtutungukvíslarupptök við Álftabrekkuhorn. Kjalvegur – F 35 Mikil framför var það í samgöngumálum á Kili þegar Hvítá var brúuð norðan Bláfells. Áð- ur hafði gangandi ferðafólk notast við báta til að komast yfir ána. Á þeim var einnig farangur fluttur og a.m.k. stundum fráfærulömbin þegar þau voru flutt til fjalls á vorin. Annars var áin riðin á vöðum og fjallféð rekið yfir hana vor og haust. Var það erfitt og fórst oft eitthvað af kindum. Það þótti því mikil framför hjá fjár- bændum í Tungunum þegar brúin kom og mun hafa verið efnt til hlutaveltu í sveitinni til að afla fjár til byggingar hennar. Sagt er að gefið hafi verið lamb á hana frá hverjum bæ. Brúin hafði verið á Soginu við Alviðru frá 1905 en hún var tekin í sundur, flutt inneftir og sett á stöpla sem steyptir voru undir hana. Þetta var sumarið 1935 og um haustið var fjallsafnið rekið yfir ána á göngubrú sem notuð var við brúarbygg- inguna. Þegar brúarsmiðirnir voru að ljúka verkinu um veturnætur fór að snjóa og hröðuðu þeir sér til byggða og fundu ekki öll verkfærin sem biðu undir snjónum til næsta vors. Þetta var hengibrú, mjó og með takmarkaða burð- argetu, og var ekki fært yfir hana á stórum bíl- um svo sem vöru- og langferðabifreiðum. Kom það sér illa eftir að bílar tóku að stækka eftir miðja öldina. Brúin var notuð þarna til 1973 en þá var byggð á sama stað öflug stálbitabrú á steinsteyptum stöplum, miklu stærri en voru undir gömlu brúnni. Þegar brúin var komin var haldið áfram að leggja akfæran veg áfram inn á Kjöl. Sú vega- gerð fór þannig fram að menn jöfnuðu eitthvað brautina með skóflum og veltu steinum til hliðar með járnköllum þar sem þurfti. Þeir völdu jafn- óðum leiðina þar sem hentugast þótti. Sumarið 1936 komust þeir inn fyrir Innri-Skúta en árið eftir þurfti að flytja girðingarefni á Kjöl. Þá mun vegarslóðinn hafa verið kominn upp á öld- una austan við Svartárbotna en haldið var áfram með flutninginn á tveimur vörubifreiðum og röktu bílstjórarnir sig eftir melunum austan Dúfunefsfells alla leið norður fyrir það. Næsta sumar var víðast farið í för þeirra með veginn. Hann liggur hæst á Fjórðungsöldu um 670 m y.s. Síðan fyrsta brautin var lögð hafa verið gerð- ar á henni margháttaðar endurbætur og breyt- ingar. Vegur var ruddur að Hveravöllum sum- arið 1938 og haldið var áfram með hann norður fyrir Seyðisá. Síðar var hann lagður vestan Dúf- unefsfells. Mikil breyting varð á þessum vegi þegar farið var að nota jarðýtur og veghefla til að breikka hann og slétta. Fyrst lá vegurinn vestur yfir Svartá skammt frá ósum hennar og var þar byggð á hana brú. Brúna tók af í flóði í mars 1948 en var endurbyggð um sumarið. Veg- urinn lá síðan skammt austan við Hvítárnes og aftur yfir Svartá á vaði svolítið innar. Seinna var lagður nýr vegur austan við Svartártorfur og var þá Seyðisá eina vatnsfallið sem enn var far- artálmi. Hún var svo brúuð 1994 og byggður upp vegur þar í kring. Enn er samt vegurinn yf- irleitt lægri en landið í kring og sitja því víða í honum pollar í vætutíð og hann verður fljótt tor- fær í snjó. Áform eru um að hlaða hann allan upp á næstu árum eða áratugum. Þá, og jafnvel nú þegar, er fólk ekki öllu fleiri klukkutíma að fara á bíl milli byggða yfir Kjöl en daga meðan hestar voru einu fararskjótarnir. Vegur í Kerlingarfjöll liggur af Kjalvegi norð- an Innri-Skúta. Á vegamótunum var áður fyrr skilti sem vísaði á Árskarð. Eitt sinn var Helgi Haraldsson bóndi og fræðimaður á Hrafnkels- stöðum í Hrunamannahreppi þar á ferð. Hann kvað þetta nafn rangt því að staðurinn héti Ás- garður, kenndur við bústað goðanna, hærri og tignarlegri en flestir aðrir. Hann lét gera skilti með þessu nafni og festa það á sömu stöngina og hitt. Fyrrnefnda skiltið brotnaði nokkru síðar og ríkti skilti Helga þarna um tíma. Síðar hvarf það einnig og síðan hafa þeir sem vegvísum ráða ekki tekið afstöðu til þess hvort nafnið væri rétt en vísað á Kerlingarfjöll. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.