Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 12
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 K RISTJÁN Kristjánsson, for- stjóri Bifreiðastöðvar Akur- eyrar, BSA, lét sér annt um meistara Kjarval hvenær sem hann dvaldi nyrðra, segir Indr- iði G. Þorsteinsson í Jóhannes Sveinsson Kjarval – ævisaga, og var Kristján einn af þeim fáu, sem fékk að umgangast Kjarval við verk. „Kristján, sem oft var kenndur við fæðing- arbæ sinn og nefndur Birningur að fornmanna- sið, hafði yfir nægum bílakosti að ráða og naut Kjarval þess vildi hann eitthvað svifa sér um Eyjafjörð. Þyrfti Kristján Birningur að senda honum bréf eða ljósmyndir frá sumrinu, sem gjarnan voru teknar af bílstjóranum, Ragnari Skjóldal, þá taldi forstjórinn réttilega að hann þyrfti ekki annað heimilisfang með nafni Kjar- vals en Reykjavík.“ Kjarval sendi þessum vini sínum og velgjörð- armanni kort og málverk. Gísli Ólafsson, fyrr- verandi yfirlögregluþjónn, sem var bílstjóri hjá Kristjáni og keyrði rútu milli Akureyrar og Reykjavíkur, segist muna sérstaklega vel eftir einni sendingu frá Kjarval. Þetta var stór pakki og allur skreyttur utan með áletrunum og teikn- ingum. Og alveg eins og bílakóngurinn taldi nákvæmt heimilisfang óþarft á sendingum til meistarans, vissi Kjarval að það myndi duga að setja nafn Kristjáns og BSA á pakkann. Annað hvort væri nú, þegar flutningsaðilinn var enginn annar en bílstjóri í þjónustu bílakóngsins sjálfs! Tvö kort, sem hér fylgja með, eru jólakort. Ekkert ártal er á öðru og ekki kemur fram, hvar sendandinn var staddur. En aftan á kortið skrifaði Kjarval: „Herra Kristján Kristjánsson BSA Akureyri og Akureyrarbær Kæri vinur Gleðileg Jól Jól og Nýjár þakka ágætar jólakveðjur og alt gott Virðingarfyllst Jóhannes S. Kjarval“ Hitt jólakortið er með ljósmynd af verki eftir Kjarval og framan á kortið eru prentaðar óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Kjarval hefur sent Kristjáni a.m.k. tvö slík kort. Í texta annars kortsins segir hann, að myndin sé gerð í Róm 1920 og heiti Jólanótt hjarðmann- anna. Einnig þakkar hann Kristjáni afmælis- kveðjur. Í hitt kortið skrifar hann: Romaborg 1920 Kristján bílakóngur Jólanótt JohSKjarval. En Kjarval var ósköp vinalegur og elskuleg- ur. Ég stóð oft og horfði á hann mála niðri í kjall- ara. Það var nú verið að segja mér að hafa hægt Friðrik Kristjánsson, Kristjánssonar, segist ekki muna eftir Kjarval á æskuheimili sínu; Brekkugötu 4 á Akureyri. „Hann kom alltaf að sumarlagi, en þá var ég í sveit.“ En Friðrik rifjar upp með konu sinni; Berg- ljótu Ingólfsdóttur, þegar þeir félagar; Kristján og Kjarval heimsóttu þau í Skaftahlíðina. „Eitt sinn man ég að Kjarval fékk hjá okkur kæfu,“ segir Bergljót. „Og mikið dásamaði hann þessa kæfu. Hann hafði um hana svo mörg orð og mikil, að það var bara eins og hann hefði aldrei smakkað betri mat.“ Öðru sinni komu þeir félagar í baunir. „Ég man að pabbi sagði þá, að það væri mælikvarði á gæði bauna, hvort svita slægi út á ennið, eða ekki,“ segir Friðrik. „Þeir vildu svitna við baunaborðhaldið!“ Kjarval vildi hafa sitt lag á hlutunum: „Einu sinni var pabbi að fara með flugvél norður. Hann var kominn út í vél og allt klárt. Kjarval hafði staðið við húshorn og beið átekta, en þegar flugvélin var að síga af stað, kom hann skyndilega hlaupandi og baðaði út öll- um öngum. Það fór ekkert á milli mála, hver þar fór. Vélin var stöðvuð og beðið meðan Kjarval afhenti pabba stranga, sem efalaust hefur verið málverk!“ Þau Friðrik og Bergljót eiga bréf, sem Kjar- val skrifaði sínum kæra vini 1948; þannig dag- sett. „Reykjavík 20ugasta og eitthvað í septem- ber.“ Í bréfinu segir hann að myndirnar séu komn- ar að norðan með ríkisskip og búið að hengja þær upp í „Íþróttasalnum, hjá Jóni Þorsteins- syni kappa. Kæri vinur, Herra Kristján Krist- jánsson Akureyri. Alt óskemt ráð þín eru og voru góð eins og vænta mátti því þú ert hollur maður.“ Kolbrún, systir Friðriks, var ekki í sveit á sumrin og því heima við, þegar Kjarval var gest- ur foreldra þeirra; Málfríðar Friðriksdóttur og Kristjáns Kristjánssonar. „Ég var svo ung, þegar þetta var, innan við fermingu og því man ég ekkert þannig lagað sér- stakt. KORTIN FRÁ KJARVAL Kjarval veifar í Lj Teikning, sem Kjarval sendi Kristjáni á smjör- pappír, ef til vill í tengslum við Smjörbraginn. Jóhannesi Kjarval listmál- ara og Kristjáni Kristjáns- syni bílakóngi var vel til vina. FREYSTEINN JÓHANNSSON ræddi við börn Kristjáns og tengdadóttur, gluggaði í ævisögu Kjarvals eftir Indriða G. Þorsteinsson og skoðaði kort sem Kjarval sendi þessum vini sínum fyrir norðan. Myndin er fengin úr J Kristján Kristjánsson með Jólapakka „Ég keyrði Kjarval oft,“ segir Ragnar Skjóldal. „Oftast keyrði ég hann í Reykjadal eða sótti. Ég á enn eina ljósmynd, sem ég tók af honum í þessum ferðum. Þá stoppaði hann hjá stórum steini í Ljósavatnsskarði, tók ofan hattinn og veifaði í allar áttir. Kjarval var ágætur farþegi, glaður og ósköp þægilegur. Hann var ekkert voðalega ræð- inn og aldrei töluðum við um listir. Það var bara svona tal um daginn og veginn, sem á milli okkar fór. Hann reykti vindla mikið. Einu sinni gaf hann mér vindil og sá var allur löðrandi í máln- ingu af höndunum á honum. Ég á hann enn og hef oft sagt að ég eigi þó alltaf eitt Kjarvalsverk!“ Morgunblaðið/Kristján Ragnar Skjóldal með vindilinn Kjarvalsnaut. Ágætur farþegi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.