Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 13 lagið á enda og Kjarval hneigði sig aftur fallega fyrir Jörundi áður en þeir settust aftur til borðs." Á útmánuðum 1948 var orðið þröngt um smjör, þrátt fyrir skömmtun. Indriði seg- ir, að Kristján hafi frétt af smjörleysi hjá Kjarval og þar sem hann vissi að maðurinn neytti harðætis, gerði hann út menn til að leita viðbitsins. Fundust þrjú kíló af smjöri handa Kjarval í Bárðardal og voru þau send suður með til- hlýðilegum tilskrifum, eins og: „Heill sé kvígum og hvöl- um, ég tek ofan. Vonandi hef- ur þú fengið smjörhungur- lúsina frá mér. Þinn einlægur Kr.Kr.“ Kjarval tók feginn við smjörinu að norðan og út- býtti mestu af því meðal vina sinna. Í þakkarskyni gerði hann stórt smjörkvæði og sendi Kristjáni, og í Reykja- vík spruttu upp mörg smærri kvæði um bárðdælska smjör- ið, svona eins og í þakkar- skyni líka. Þá er að þakka smjörið, Bárðdælingamjöðið. Ekki má vanta ölið í kveðjusmérsins söng, kvað Kjarval. Síðan hóf hann að rekja tilurð smjörs- ins og byrjaði á tímgun kúa- kynstofnsins, en um fóðrið kvað hann: Það er víst að heyið er alltaf þurrkað legið, en uppistandandi slegið með sinuruddanum. Smérið hér á jörðu eins og steinn úr vörðu er mýkra en hart úr hörðu hjá listamönnunum. Smér af sméri úr sméri. Er von að maður þéri jafnvel hverja meri síðan maður fékk smér.“ þessa mynd; hann yrði að mála aðra handa henni. Það gerði Kjarval og tengdamóðir mín fékk stórfallega mynd af Hrauni í Öxnadal, en tengdapabbi tók við hinni! Kjarval var svo kómískur og kátur. Hann gerði mikið að gamni sínu. Það var ekkert slæmt í honum, ekki nokkur hlutur. Það var bara gam- an að karlinum! Einu sinni erum við setzt til borðs uppi; það var alltaf borðað í borðstofunni. Jörundur Páls- son, arkitekt, var þá líka gestur tengdaforeldra minna. Svo kemur fallegt lag í útvarpinu og þá stend- ur Kjarval upp og hneigir sig fyrir Jörundi og þeir svífa út á gólfið. Kjarval var á ullarsokkum, en hann var mjög liðugur maður. Svo dansa þeir hefði alveg bjargað sér með hugmyndir í málverkið! Hann var afskaplega kurt- eis maður, hann Kjarval! Ég sá hann síðar inni á Hressingarskála, þegar ég var orðin stærri, en gaf mig ekki fram við hann. Hann var allur annar mað- ur en í kjallaranum heima á Brekkugötu. Þarna var sláttur á honum og hann hafði hátt.“ En gesturinn í bernsku- kjallaranum varð með árun- um uppáhaldsmálari Kol- brúnar. „Hvort hann er! Hvort hann er! Ég á eina mynd, sem hann málaði 1918. Hafís á Húna- flóa heitir hún. Einar Bene- diktsson átti hana, þeir skiptu á einhverju, sem ég veit nú ekki lengur hvað var. En myndin fór svo á upp- boð og þar keypti pabbi hana.“ Stella Sæberg, sem var gift Kristjáni Kristjánssyni yngri, bjó lengi hjá tengda- foreldrum sínum, og man vel eftir Kjarval á Brekkugöt- unni. „Hann fékk stórt herbergi niðri, sem maðurinn minn hafði, og þar var stórt hol fyrir framan og bakgangur út í port. Einu sinni erum við að skreppa frá, ég og tengdaforeldrar mínir, og lítum við hjá Kjarval. Þá er hann að ljúka við fallegt málverk af Hraundranga í Öxnadal, sem tengdamóðir mín; Málfríður, verður mjög hrifin af. „Farið þið bar- a,“sagði Kjarval. „Ég verð búinn með myndina, þegar þið komið aftur.“ En þegar við komum aftur, varð okkur ekki um sel, og sérstaklega varð tengdamóður minni bilt við. Kjarval hafði þá málað inn í myndina nakta konu á hestbaki og andlit út og suður. Okkur fannst þetta eyðilegging á myndinni, en Kjarval gaf þá skýringu, að dönsk vinnukona, sem bjó þarna í kjallaranum líka, hefði haft þessi áhrif á sig. Hún er svoddan engill!, sagði hann. Málfríður sagðist ekki geta hugsað sér að eiga um mig til að trufla hann ekki, en ég fór lítið eftir því, enda amaðist hann ekkert við mér. Einu sinni man ég, að ég var að æfa mig á pí- anó. Hann var þá ægilega hrifinn og sagði, að ég Ljósm./Ragnar Skjóldal jósavatnsskarði. Jóhannes Sveinsson Kjarval – ævisögu eftir Indriða G. Þorsteinsson. frá Kjarval og Kjarvalsverk á bak við. Morgunblaðið/Árni Sæberg Málverkið af Hraundranga, sem danska vinnukonan komst í.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.