Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Blaðsíða 16

Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Blaðsíða 16
Þorlákur Aðalsteinn Hallgrímsson °g Aðalsteinn Jóhannsson „Hvað er Hel? Ollum likn, sem lifa vel”. bessi orð komu mér i hug, er ég spurði andlát góðra vina og granna, borláks og Aðalsteins frá Reistará, en þeir urðu svo að segja samferða til hinztu náða á sl. vori. Lengi höfðu þeir farið saman um lifsveginn og voru svo samrýmdir að varla var unnt að hugsa sér annan án hins. bvi fór vel á þvi að handtak þeirra skyldi ekki slitna nema örskamma stund. beir höfðu lokið góðu dagsverki og þreytan eftir langan dag var tekin að ganga þeim nærri, enda árin mörg að baki. Gott er að ganga frá verki með skyggðan skjöld og við sæmdarorð samferðámanna og láta eftir þær minningar, sem ylja og auðga. borlákur Hallgrimsson fæddist að Syðri-Reistará i Arnarneshreppi 27. mai 1885. Foreldrar hans voru Hólm- friður Jónsdóttir og Hallgrimur Sig- fússon,er bjuggu á Reistará um árabil. Ungur að árum varð borlákur að sjá föður sinum á bak og tók þá fljótlega við stjórn á búi móður sinnar. Mun sú ábyrgð, sem það hafði i för með sér, svo og föðurmissirinn hafa mótað hann mjög. bótti hann strax hinn mæt- asti i hvivetna. Árið 1918 kvæntist borlákur önnu Jóhannsdóttur frá Nunnuhóli i Arnar- neshreppi og gekk þar til móts við mikla gæfu. Var Anna hin ágætasta kona. Bjuggu þau á Reistará við vinsældir og sæmd. 1 hlut borláks kom að gegna trúnaðarstörfum fyrir sveit sina. Mun hann þó eigi hafa minnt á sig til sliks kjörs svo hófstillt- ur sem hann var og laus við löngun til þátttöku i valdatafli og sviðsýningum. En sveitungar og vinir sáu góðan full- trúa i þessum trúverðuga drengskap- armanni og völdu samkvæmt þvi. borlákur Hallgrimsson var hár maður vexti og myndarlegur i sjón. Bar hann i yfirbragði og framgöngu virðuleik, sem eftirtekt vakti og virð- ingu og munu fáir hafa orðið til að Þorlákur Aðalsteinn Hallgrímsson F. 27. mai 1885 D. 22. júni 1972. gjöra honum á móti. Hóglæti og hiýju átti hann i rikum mæli og var að öllu leyti maður þeirrar gerðar, er vinnur traust og vinsældir, hvar sem hann fer. Hlutur húsfreyjunnar á Reistará lá ekki eftir. Skipaði hún sæti sitt með prýði, vakti af aluð yfir arni sinum svo ylurinn var æ samur og ljós lagði út um alla glugga. A Reistará leið öllum vel, jafnt mönnum sem málleysingj- um. Segir það sina sögu um menningu heimilisins. Vorið 1948 brugðu þau Anna og bor- lákur búi og fluttust til Akureyrar. Aðalsteinn Jóhannsson F. 29. janúar 1894 D. 27. mai 1972 Samleið þeirra þar varð stutt, þvi að Anna lézt árið 1951. Mun þá hafa rökkvað yfir heimilinu, sem fjölskyld- an frá Reistará hafði búið sér i hinu nyja umhverfi og ærin reynsla orðið að svo miklum missi ofan á það að hverfa frá þeim stöðvum, þar sem ræturnar stóðu svo djúpt. En æðrulaust var brugðist við örlögunum og góðar disir áttu eftir að kveikja raðir ljósa hjá borláki frá Reistará og þeim sem hann unni. Börn hans, Hólmfriður, gift Eiriki Stefánssyni og Árni kvæntur Kristínu Zophóniasdóttur, sem bjuggu fyrst i sama húsi, Brekkugötu 21 — og siöar i nálægð, reyndust auðug 16 tslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.