Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Blaðsíða 18

Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Blaðsíða 18
hennar þekkti ég frá barnæsku og vorum við góðir kunningjar. Þar sem svo stutt var orðið á milli okkar, kom ég þar oft ýmissa erinda og raunar án þess, og tel ég mig hafa kynnzt heim- ilinu allmikið. Það sem fyrst vakti eftirtekt manns, var hin einstaka snyrtimennska hvert sem litið var, og gaf heimilinu hugljúfan og skemmtilegan svip, jafnt þvi sem það bar húsmóðurinni gott vitni um smekk hennar og hæfileika. Þá var viðmót hennar einstaklega hlýlegt og aðlaðandi. Og er maður kynntist henni nánar komst maður að raun um það að hún bjó yfir óvenju mikilli hjartahlýju og mannkærleika, er lýsti sér meðal annars i þvi að bera ávallt klæði á vopnin og taka aldrei þátt í vafasömu spjalli um náungann og vera i öllu dagfari söm og jöfn, berandi birtu og yl á annarra leið og þá ekki sizt til þeirra, er áttu við mótlæti að búa. Það hefur sagt mér góður vinur minn og næsti nágranni Kristinar, er varð fyrir miklu áfalli og ástvina missi, að allir hefðu verið sér góðir og hjálplegir en enginn eins og Kristin. Hjá henni hefði hann kynnzt meiri fórnarlund, næmleika og mann kærleika en hann hefði áður þekkt. Svo sem áður er getið. eignaðist Kristin tværdætur áðurenhún giftist, Laufeyju, sem alltaf fylgdi móður sinni og giftist Benóný yngsta bróður manns hennar og bjuggu þær mæðgur alltaf saman, fyrst i Miðhúsum og siðan i Bæ. Benóný og Laufey búá i Bæ 11. Guðrún dóttir Kristinar giftist Bjarna Andréssyni, kennara i Ölafs- vik, nú starfsmanni i menntamála- ráðuneytinu. Þau hjónin heimsóttu Kristinu oft og hafa alitaf haft mjög náið samband við heimili hennar, og mörg af börnum þeirra hafa verið þar i sumardvöl og notið ástriki og um- önnunar ömmu sinnar. Með Kristinu og Guðrúnu var mjög ástúðlegt sam- band þó að hún ælist ekki upp hjá henni. Elztu börn Laufeyjar og synir Kristinar voru á mjög liku reki og eins og alltitt er hjá börnum koma upp ýms deilumál, er útkljá þarf með að- stoð hinna fullorðnu, og það ætla ég að þar hafi Kristin verið hlutlaus og góður sáttasemjari og það hef ég fyrir satt, að börn Laufeyjar hafi alveg eins leitað til ömmu sinnar eins og mömmu.efeitthvaðbar útaf. ömmu- börnin voru orðin mörg, en ömmu- faðmurinn var stór, og mér sýndist hún ánægðust þegar hún hafði þau sem flest i kringum sig. Ég hef mjög orðið þess var hvað sveitungar hennar og raunar allir, sem eitthvað kynntust henni bera til hennar einstakan hlýhug og það að Páll Sveinsson landgræðslustj óri i. Gróðurrán i ellefu aldir iðkað hafðiþjóð, blinduð, hrakin isi og eldi, ánauðug og móð. Rúin þjóð i rændu landi reif sinn hinzta meið. Urðuð fold og orpin sandi, eyðimörk i deyð. Þér var fengið verk að vinna, virt af mörgum smátt, sem við endi ævi þinnar allir meta hátt. Eggjan þin og athöfn hefur opnað þjóðar sýn, endurgræðslan — málið mesta — mótuð stefna þín Merkisberinn mikli setti markið fastog hátt. Fáliðaður, fullum rómi, fékk þvi liðskost brátt. tturmennið ókvalráða efldi sókn úr vörn' Eyðisandar gróðri gæddir gleðja landsins börn, II. Hvi var tekinn sá, er djarfast sótti, sá er vann af mestum hug og þrótti, hann, sem land og þjóð ei missa mátti, maðurinn sem stærsta hugsjón átti? Ekkert svar. En þjóðin þrumu lostin. Þörfust sókn tif landsins gæfu brostin. Minnumst, að hann hefur til vor talað, töfraö, vakiö, unniö, frætt og svalað. Hræðumst ei, þótt duftið fölni og deyi, dáðir lifa, tala, þagna eigi. Undrið varir. Einhver sætið fyllir: Algrætt land i vonarframtið hillir. Kveðjum Pál með gleði en eigi gráti Gerum heit að forða skák og máti. Efnum heit, og þá er þakkað Páli. Þetta er vort — og skiptir öllu máli Björn Haraldsson t vonum. Það var aðall lifsins hennar að strá blómum á veg annarra og greiða götu þeirra eftir mætti. Mann sinn missti Kristin árið 1967. Hún brá þá búi og lét jörðina i hendur sonar sins Þórarins, og hjá honum og konu hans og viö hlið Laufeyjar dóttur sinnar hygg ég að hún hafi átt gott skjól er aldur færðist yfir og heilsa fór aðbila.Hún andaðist á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga 30. mai s.l. Kæra vinkona.þér þakka ég fyrir samfylgdina og allar ánægjustundir á heimili þinu bæði fyrr og siðar. En mér er i minni, er ég ásamt vanda- mönnum þinum og fjölda annarra stóð við gröf þina i kirkjugarðinum á Prestbakka, að sólin kom allt i einu undan skýi og hellti vermandi geislum yfir gröfina þina og okkur, sem þarna stóðum. Þetta var hinzta kveðjan, mér fannst þetta táknrænt fyrir vegferö þina, sólarkveöju áttir þú skilið eins og allir þeir er tileinka sér fagurt mannlif. Jón Kristjánsson. islendingaþættir 18

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.