Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Blaðsíða 19

Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Blaðsíða 19
Friðrik Halldórsson loftskeytamaður Friðrik Halldórsson loftskeyta- maður, Vifilsgötu 23, hann var fæddur 19. marz 1907 i Hafnarfirði, sonur Halldórs Friðrikssonar skipstjóra og konu hans önnu Ragnheiðar Erlends- dóttur. Friðrik lauk námi við Flensborgar- skólann i Hafnarfirði 1924 og við Loft- skeytaskólann 1926. Hann var siðan um hrið loftskeytamaður á togurum, en réðst á skip Skipaútgerðar rikisins 1972 og starfaði hjá þvi útgerðarfirir- tæki á varðskipunum og siðar á strandferðaskipunum til 1941, að hann hætti sjómennsku og vann á loft- skeytastöðinni i Reykjavik siðan, þegar heilsa hans leyfði. 1 mai 1936 kvæntist Friðrik eftir- lifandi konu sinni Helgu Ingibjörgu Stefansdóttur, ættaðri úr Hunaþingi. Þau eignuðust þrjár dætur: Sjöfn, Öldu Guðrúnu og Huldu Guðriði Þær systur eru nú 8, 6 og 5 ára. Friðrik Halldórsson var meðal- maður á vöxt og vel á sig kominn, hann var gáfaður, vel hagmæltur, góð- gjarn og glaðlyndur: félagsmaður góður og drengur hinn bezti, viðsýnn, óbilandi atorkumaður og sistarfandi Hann tók mikinn þátt i félagsmálum sjómanna, var i stjórn Félags islenzkra loftskeytamanna um 12 ára skeið,oftast formaður. Meðstjórnandi i stjórn Farmanna og fiskimanna- sambandi tslands um 5 ára skeið. Löngum I sjómannadagsráði og rit- stjór Sjómannadagsblaðsins 1943 og 1944. Hann átti sæti i stjórn Slysa- varnarfélagi Islands frá siðasta landsþingi þess. Hann var ritstjóri timarits Alþýðusambandsins, „Vinnunnar” frá stofnun þess til siðustu áramóta, er hann lét af þvi starfi sakir vanheilsu. Fjölmörgum öðrum trúnaðar- störfum gengdi hann fyrir samtaka sjómanna og önnur félagssamtök. Friðrik vann nokkuð að þýðingum og þýddi meðal annars bókina ,,1 sjávar- háska” sem M.F.A, gaf út. Öll þessi trúnaðarstörf vann Friðrik af sérstakri fórnfýsi, lipurð og skiln- ingi. A málbingum málþingum var hann mikill málafylgjumaður en svo drenglundaður að af bar, enda sköpuðu afskipti hans af opinberum málum honum enga óvini, þótt hann ætti andstæðinga nokkra. Hann var frjálslyndur i stjórnmálaskoðunum og heigðist að jafnaðarstefnunni. Sár harmur er kveðinn að eftirlifandi ekkju Friðriks heitins og dætrum þeirra ungu, fráfall góðs og um- hyggjusams eiginmanns og vöðurs verður aldrei bætt. En sú er huggun i raun, að Friðrik Halldórssyni fylgja út yfir hafið óþekkta óskiptir vinarhugir stéttarbræðra og samstarfsmanna, sem lúta höfði i þögulli sorg yfir hinu sviplega fráfalli hugþekks ágætis- manns. Við vinir og samstarfsmenn Friðrik Halldórssonar munum ávallt geyma minninguna um hann meðal okkar helgust dóma. Minningin um hann er okkur tákn þess hvernig bezt verður barizt til sigurs yfir öfgum og aftur- haldi án þess að skilja eftir þyrna ó- samlyndis og óvildar. Með Friðriki Halldórssyni, er horfin einn af glæsi- legustu forsvarsmönnum sjómanna- stéttarinnar, skarð hans þar verður vandfyilt, en dæmi hans visa fram á veginn til samstarfs og samhyggju, við skulum heiðra minningu hans, með að vinna ótrauðir áfram að hugðarefnum hans. Friðrik Halldórs- son var ekki auðugur maður á fé, þótt hann væri vel bjargala, en hann var flestum sérjafngömlum mönnum auðugri á vinsldir og vinarhugi sam- borgaranna. Sá mun reynast dætrum hans arfurinn beztur, að þær eiga kyn eitt að rekja til heilsteypts ágætis- manns og engann skugga ber á minn- ingu þeirra um látinn föður. Friðrik lézt á Landakotsspitalanum 18 þ.m. pg verður jarösettur á kostnað félaga sinna úr hópi loftskeytamanna, á þann hátt vilja þeir votta honum þakklæti sitt og virðingu fyrir farsæla forustu og ánægjulegt samstarf. Samúð og vinarhugir umvefja harmi lostna ættingja og vini hins látna ágætismanns blessuð sé minning hans. S.E.Ó. islendingaþættir 19

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.