Heimilistíminn - 14.11.1974, Page 3
Kæri Alvitur.
Þannig er mál meö vexti, aö mig lang-
ar aö veröa Ieikkona og þess vegna
langar mig aö spyrja þig, hvort starf-
ræktur sé leiklistarskóli hér á landi og
hvaöa menntunar sé krafizt.
Og svo aö lokum: Hvernig eiga hrát-
ur (stelpa) og sporödreki (strákur)
saman? Hvaö helduröu, aö ég sé
gömul?
Alla
svar: Hér á landi eru starfræktir tveir
leiklistarskólar, annars vegar Leik-
listarskólinn Sál, sem áhugafólk rekur
og hins vegar Leiklistarskóli Þjóöleik-
hússins og Leikfélags Reykjavíkur,
sem leikhúsin reka ásamt Félagi isl.
leikara. Mikillar menntunar er ekki
krafizt, en gagnfræðapróf er lágmark
þó stúdentspróf sé æskilegt. Þá er ein-
hver tungumálakunnátta nauðsynleg.
Hrútsstelpa og sporðdrekastrákur
eiga margt sameiginlegt, en þurfa þó
að gæta þess að vera ekki sífellt að rif-
ast eða þrasa. Ég get imyndað mér að
þú sért 16-17 ára.
Alvitur.
Kæri Alvitur.
Mig langar til aö spyrja um skólatann-
lækningar. Fæ ég ekki friar tannviö-
geröir? Ég er 15 ára og er I skóla eftir
áramót. Er ekki sama hvert ég fer,
eöa þarf ég aö fara á tannlæknastof-
una á Heilsuverndarstööinni?
Svo langar mig lika aö fá svör viö
eftirfarandi spurningum: Hvaöa
sinfónia var alltaf leikin I byrjun
„Mannaveiöa” i sjónvarpinu i fyrra?
Hefur lagiö „Seasons in the sun” kom-
iö á plötu og ef svo er, hvaö heitir hún
þá? Hvað eru Bitlarnir eiginlega aö
gera núna? Er hvergi hægt aö fá texta
vinsælla erlendra laga, gamalla og
nýrra?
Aö endingu vil ég þakka gott blaö og
þá alveg sérstaklega Pop-þáttinn. Meö
kveöju. H.B.
svar: Skipulagningu skólatannlækn-
inga er ekki lokið, en þú átt að geta
fariö á hvaða tannlæknastofu sem er.
Þar greiðir þú fullt verð, en sjúkra-
samlag endurgreiðir siðan að minnsta
kosti helminginn. Annars breytist
þetta vist eitthvað um áramótin.
Sinfónian, sem leikin var I upphafi
„Mannaveiða” er fimmta sinfónia
Beethovens. Lagið „Seasons in the
sun ” er á samnefndri plötu og það er
Terry Jacks sem syngur. Bitlarnir eru
ýmislegt að snúast. Paul McCartney
hefur verið á hljómleikaferðum með
hljómsveit sina, en hyggst þó bráðlega
snúa sér alveg að sveitabúskap sinum
I Skotlandi. Ringo og John Lennon
munu vera iðnir við samkvæmislifið i
Hollywood um þessar mundir, en sá
fyrrnefndi er eitthvað að syngja inn á
plötur. Af George Harrison hef ég ekk-
ert frétt, en minnir þó að konan hans
hafi fariö frá honum i sumar. Textana
mun vera erfitt að fá. Það væri helzt
aö athuga i fornbókaverzlunum með
þá gömlu, en þeir nýrri fást vist bara i
hljóðfæraverzlunum með nótum og þá
fokdýrir. Vona að þú sért ánægður
með þetta.
Alvitur.
Meðal efnis
í þessu blaði:
Hann kynnti heiminum Skotland ...bls. 4
Lambið fór lika í sumarleyf i....bls. 6
Limbó I jónshvolpur, barnasaga...bls. 7
Að búa í eyðimörk................bls. 10
Pop — Mouth og MacNeal............bls. 12
Langur, dauf ur dagur, smásaga....bls. 13
Búiðtil lampaskerm................bls. 16
Hjátrú um spegla..................bls. 17
Langir dagarnir eru henni kvöl ..bls. 18
Kínversk vélritun.........................bls. 19
Húsgögn í brúðuhúsið......................bls. 20
Prjónaðir nálapúðar.......................bls. 21
Eru þær eins?..........................bls. 21
Hekláður ömmudúkur........................bls. 22
Mynsturprjónað vesti ..................bls. 23
Hef ur ekki sof ið í 30 ár.....1......... bls. 24
Neyðaróp úr geimnum.......................bls. 25
Úr gömlum blöðum, Saltvinnslan á Reykja
nesi......................................bls. 26
Hvað veiztu?..............................bls. 27
Merkar uppf inningar, Niðursuða...........bls. 28
Kjúklingur, verði ykkur að góðu .......bls. 30
Spé-speki .............................bls. 32
Kötturinn Bastian, f rh. saga barnanna .... bls. 33
Ökunnur eiginmaður, frh.saga...........bls. 35
Ennfremur Krossgáta, bréfakassi, pennavinir,
skrítlur gátur o.fl.
3