Heimilistíminn - 14.11.1974, Qupperneq 12
Mouth
&
MacNeal
LAGIÐ sem opnaði alþjóða pop-mark-
aöinn upp á gátt fyrir Mouth &
MacNeal hét og heitir reyndar enn ,,I
see a star” og reyndist hættulegur
keppinautur „Waterloo” hjá Abba i
Grand Prix-söngvakeppninni, sem við
sáum í sjónvarpinu I sumar. En Mouth
& MacNeal urðu loks að láta sér nægja
þriðja sætið. En þau eru harla ánægð
meö það, þvi þau vöktu slika athygli á
sér I Brighton, að nú standa hljóm-
leikahaldarar alls staðar i heiminum I
röðum eftir að semja við þau um
hljómleika. Hljómleikar þeir, sem þau
hafa þegar haldið utan heimalands
sins, Hollands, hafa reynzt áheyrend-
um (og -horfendum) ósvikin skemmt-
un.
Mouth & MacNeal varð til árið 1971.
Báðir listamennirnir höfðu skapað sér
frægð og vinsældir heima fyrir einir á
báti. Mouth, sem i rauninni heitir
Willem Duyn, hefur verið i skemmti-
iðnaðinum i meira en 15 ár. Nú er hann
33 ára og þess má geta, að hann leit
dagsins ljós i Harlem (i Hollandi).
Ferill hans hófst er hann var tromm-
ari i Holland Quartet, þekktri dans-
hljömsveit. Siðan tók hann við tromm-
unum I Whiskers og Jay Jays. Um
tima starfaði hann sem plötusnúður og
einnig stofnaði hann eigin hljómsveit,
sem lék aðallega á næturklúbbum.
Smátt og smátt varð hann þekktur
sem :joe Cocker Höllands, en hljóm-
sveit hans Speedways leystist upp,
þegar hann fékk einkasamning.
Fyrsta plata hans var „Remember”
og gekk hún bara vel. Mouth-nafnið
fékk hann vegna þess að hann sagði oft
hluti, sem þóttu ekki finir. Einn söng
Mouth inn á nokkrar LP-plötur, en 1971
tók hann saman við MacNeal, en rétt
nafn hennar er Sjoukje van t’Spijk.
Sjoukje hafði lært klassiskan söng i
þrjú ár, áður en hún ákvað að leggja út
á pop-brautina heldur. Aður en hún
varö helmingurinn af Mouth &
MacNeal, náði hún að senda frá sér
eina litla plötu „I hear it through the
Grapewind” Hún hefur aldrei eitt
augnablik séð eftir að ganga i lið með
Mouth, þvi strax frá byrjun urðu þau
ákaflega vinsæl. Fyrsta litla plata
þeirra var „Hey, you love” og siðan
„How do you do?” og „Hello-A” Þau
hafa sent frá sér margar litlar plötur,
en „I see að star” er kórónan og nú er
komin LP-plata með sama nafni.
12