NT - 15.05.1984, Blaðsíða 7
\,*x.—1 tsftn M 1 '! , X t' iíib®!ívíí«4 Þriðjudagur15. maí 1934
iLli Fréttir
Hjólreiðadagurinn:
Tólfhundruð
þúsund
söfnuðust
■ Lionsmcnn og Kiwanismenn með hjúkr-
unarfólki við dropateljarann
Tvær gjafir til
Kvennadeildar
Landspítalans
■ Fæðingardeild-Kvennadeild Land-
spítalans hafa nýlega borist tvær góðar og
nytsamar gjafir. Eru það rafeindastýrðir
dropateljarar af gerðinni IVAC 531. Slíkir
dropateljarar eru mjög nákvæmir og auka
mjög öryggi við nákvæmar lyfjagjafir svo og
aðra vökvagjöf, sem gefin er beint í æð.
Gefendur voru Lionsklúbburinn Freyr í
Reykjavík og Kiwanisklúbbarnir Eldborg,
Elliði, Esja, Hekla, Jörfi, Katla, Nes og
Setberg.
Hin gjöfin kom frá Soroptimista-
klúbbnum á íslandi, og eru það vönduð
handverkfæri til smásjárskurðaðgerða á
eggjaleiðurum kvenna sem eiga við ófrjó-
semisvandamál að stríða vegna lokaðra
eggjaleiðara. Væntanlega mun þetta bæta
árangur slíkra aðgerða, sem hingað til hefur
verið lélegur.
■ Hjólreiðadagur Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra var á
laugardag. Þá hjóluðu þúsundir krakka frá hinum ýmsu skólum
á höfuðborgarsvæðinu niður á Lækjartorg og skiluðu þar fé því
sem þau höfðu safnað frá mánudegi til fímmtudags í heimahús-
um. Alls voru það um 3 til 4000 krakkar sem söfnuðu fénu, og
söfnuðust um 1.200.000 krónur. Þessum peningum verður varið
til að hefja framkvæmdir við byggingu dvalar- og hvfldarheimilis
fyrir fötluð börn að Reykjadal í Mosfellssveit. Ekki voru öll
börnin búin að skila fénu í gær, svo búast má við að upphæðin
eigi eftir að hækka eitthvað.
Nýr prestur á Hólmavík
■ Séra Flóki Kristinsson
hefur verið kosinn prestur
í Hólmavíkurprestakalli
á Ströndum, en hann hafði
áður verið þar settur sókn-
arprestur um skeið. Taln-
ingu atkvæða í prestkosn-
ingunm lauk í gær og fékk
Flóki sem var einn í kjöri,
341 atkvæði af344greidd-
um. Rúmlega 500 manns
eru á kjörskrá. Kosningin
er lögmæt.
■ Gjefendur og þiggjendur við hand-
verkfæri til eggjaleiðaraaðgerða.
Heyrna og talmeinastöðin:
Læknir fer um Norðurland
■ Sérfræðingar Heyrnar og talmeina-
stöðvar Islands verða á ferð um Norðurland
vestra í næstu viku. Meðal lækna í förinni
verður Einar Sindrason háls-, nef- og eyrna-
læknir. Rannsökuð verður heyrn og tal og
útveguð heyrnartæki.
Mánudaginn 21. maí verður hópurinn á
Ólafsfirði, næsta daga í Siglufirði og síðan
einn dag á hverjum eftirtalinna staða,
Sauðárkróki, Skagaströnd, Blönduósi og
síðast á Hvammstanga laugardaginn 26.
maí.
Tl
Bolholt 0 Suðurver
Sæluvika í Bolholti
18. maí — 24. maí. Nýtt
Nú brettum viö upp ermar og þær
allra höröustu bregöa sér á S»lu-
viku.
Hörku púl og svita vika.
80 mín. tímar alla daga vikunnar.
20 mín. Ijós — heilsudrykkur á eftir.
Tímar kl. 9 nokkur pláss lsus.
Kl. 13.30 lausir tknsr. kl. 20 fullbók-
aö.
Á laugardögum og sunnudögum
eru allir flokkar fyrir hádegi.
Verð kr. 1.000.
Kennari: Bára Magnúsd.
Innritun stendur yfir.
2ja vikna námskeiö þrisvar sinnum í
viku.
28. maí—7. júní. 50 mín. tímar.
Amerískt kerfi
mánud. þriöjud. og miövikud.
Kl. 6.30 nokkur pláss laus.
Kl. 7.30 laus pláss.
Kl. 8.30 nokkur pláss laus.
Gestakennari: Bjargey Ólafsson
frá Elaine Powers Figure Salon,
Michican USA.
Gjald kr. 600.-
Innritun er hafin í síma 36645.
Seinni
sæluvika
12. júní—18. júní.
Sömu tímar og áöur.
Innritun stendur yfir í síma 36645.
Seinni 2ja vikna námskeiö 19.
júní—29. júní.
Gestakennari: Bjargey Ólafsson.
Sömu tímar og áöur.
Innritun stendur yfir í síma 36645.
Sjáumst.
w Suðurver — sumarnámskeið
Stutt og strangt
3ja vikna námskeiö fjórum sinnum í viku
21. maí — 7. júní.
Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum
aldri.
Morgun- dag- og kvöldtímar.
Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk.
Sturtur — Sauna — Ljós.
Innritun stendur yfir, sími 83730.
Vigtun — Mæling.
50 mín. kerfi J.S.B.
Allir finna flokka viö sitt hæfi í Suöurveri.
Leitiö uppl. um flokka fyrir framhald, byrj-
endur eöa rólegri æfingar.
Kennarar: Margrét — Sigríöur — Anna.
Námskeiösgjald kr. 1100.-
Líkamsrækt JSB 2
........77:......«TaS