NT - 01.04.1985, Qupperneq 12
Mánudagur 1. apríl 1985 12
Sovétríkin:
Embættismenn fjúka
- Gorbachev hreinsar til
\1oskva-Keutcr
■ Enn hefur fleiri sovésk-
um embættismönnum veriö
vikiö úr starfi þar eö þeir
þykja ekki hafa staðið sig
sem skyldi. Samkvæmt
blaöafréttum eru upp-
sagnirnar runnar undan rifj-
um hins nýja leiðtoga Sovét-
ríkjanna, Mikhail Gorba-
chevs.
Ritari Kommúnistaflokks-
ins í Kazakhstan og starfs-
maður flokksdeildar í Úkra-
ínu, voru reknir samkvæmt
blaðafréttum um helgina,
hinn síðarnefndi fyrir spill-
ingu.
Sú nýbreytni hefur veriö
tekin upp í aðgerðum hins
nýja leiðtoga að menn fá
ekki lengur nýjar háttsettar
stöður þegar þeim er sagt
upp.
Fjöldi embættismanna
hefur verið látinn fjúka að
undanförnu og telja sérfræð-
ingar um Sovétríkin, að
dragsúgurinn muni leika um
sovéska embættiskerfiö enn
um sinn.
—Danmörk:
Útlönd
Villt skæruverkföll hafin
Ruupmannuhöfn-Keutcr.
■ Baráttufúsir félagar í
dönsku verkalýðsfélögunum
hafa hótaö að halda áfram lam-
andi aðgerðum þrátt fyrir að
danska þingið hafi samþykkt að
binda enda á verkfallið í gær-
kveldi. Verkfallið hefur staðið í
viku og voru 300.000 manns
starfandi hjá einkafyrirtækjum
í verkfalli, sem lamaði danskt
efnahagslíf.
Þrátt fyrir að sektir muni
verða miklar segja talsmenn
verkalýðsfélaganna að þau
muni hafa að engu samþykkt
þingsins.
Baráttufúsir félagar verka-
lýðsfélaganna segjast ætla í óop-
inber verkföll til að mótmæla
samþykkt þingsins sem var snar-
að gegnum þingið á örskömm-
um tíma til að koma í veg fyrir
verkfall ýmissa félaga opinberra
starfsmanna en það hefði hafist
í dag.
Talsmenn lögreglunnarsögðu
í gær að leyfi lögreglumanna í
Kaupmannahöfn og á Sjálandi
hafi verið afturkölluð en þau
áttu að hefjast í dag.
Kastrupflugvöllur var lokað-
ur í þrjá tíma í gær vegna
skæruverkfalls öryggisvarða.
Farþegar á dönsku ferjunum
sem sigla á V-Þýskaland gátu
ekki keypt mat, því starfsfólk
matstofa ferjanna voru í skæru-
verkfalli.
Þingið samþykkti á laugar-
dag, eftir tíu tíma deilur, að
starfsfólk opinberra fyrirtækja
jafnt sem einkafyrirtækja fengi
aðeins 2% kauphækkun í ár og
1,5% á næsta ári. í samþykkt
þingsins er vinnuvikan stytt í 39
ensú ákvörðun tekurgildi 1987.
Mikil reiði ríkir í verkalýðs-
hreyfingunni og segja talsmenn
hennar að kauphækkanirnar'
sem samþykkt þingsins gerir
ráð fyrir séu allt of lágar og að
samsteypustjórn miðju- og
hægriflokkanna hafi gengið til
liðs við atvinnurekendur í
vinnudeilunni.
Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar sem blaðið
Jyllands posten birti í gær hefur
fylgi flokkanna sem standa að
ríkisstjórninni minnkað úr 49%
í byrjun mars í 45%, en þessar
niðurstöður benda til þess að ef
kosið yrði nú þá myndi stjórnar-
andstaðan hafa eins þingmanns
meirihluta.
Jafnframt kom fram að 55%
spurðra voru hlynntir afskiptum
af vinnudeilunni en 39% vildu
engin afskipti.
Nýr Opel er nýjasti bíllinn
BiLVANGURstr
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
FJÖLSKYLDUBÍLL í FYRSTA SÆTI
OPEL KADETTer nýjasta meistaraverk hinna víðfrægu bílahönnuða í Þýskalandi- „Bíll arsins"
í Evrópu, handhafi „gullstýrisins" í sínum stærðarflokki og fjölda annarra viðurkenninga.
Þetta er einstaklega rúmgóður fjölskyldubíll, sterkur, öruggur og snaggaralegur við allar þær
aðstæður sem íslenskir vegir og veðurfar bjóða upp á.
OPEL KADETT er ósvikin þýsk úrvalshönnun - og verðlaunaður fyrir minnstu loftmótstöðu,
eldsneytissparnað, þægindi, öryggi, stjórnunar- og aksturseiginleika, snerpu og vinnslu, hæfni
við misjafnar aðstæður og síðast en ekki síst - gæði miðað við verð.
OPEL KADETT er framhjóladrifinn. • Lengd:
3998 mm. • Breidd 1666 mm. • Hleðslurými
485L-1385L m/niðurfelldu aftursæti. • Þyngd
830 kg. • Rými bensfntanks 421. • Lengd
milli hjóla 2520 mm. • Sporvíddframan 1400
mm. • Sporvídd aftan 1406 mm. • Hjólbarðar
155SR13. • Hæð undir lægsta punkt 16 sm.
• Vélarafn 55HP - 115 HP. • Rafkerfi 12 volt
• Alternator45 amper. •Gírkassi: 4gírar, 5
gírar eða sjálfskiptur. • Bensíneyðsla 6,5-7,5
1/100 km.
--------------------—---------
RSINS I
KADETT
Frakkland:
Bíósprengju
París-Reuler
■ Frægir kvikmyndaleikarar,
stjórnmálamenn og þekktir söngvarar
voru meðal þátttakenda í þögulli
mótmælagöngu í miðborg París í gær
til að mótmæla sprengingu sem varð í
kvikmyndahúsi einu í París á föstu-
daginn s.l., en í kvikmyndahúsinu
stóð yfir kvikmyndahátíð með kvik-
myndum gyðinga. Um 5000 manns
tóku þátt í mótmælunum.
Jihad, múhameðsku samtökin Hei-
lagt stríð, hafa lýst ábyrgð á sprengju-
tilræðinu.
Samtökin hafa lýst yfir að sprengju-
tilræðið hafi nefnst „aðgerð númer
eitt” og sé hluti alþjóðlegra hefndar-
aðgerða gegn „járnhnefa-aðgerðum"
ísraelsmanna í Suður-Líbanon en þær
beinast gegn skæruliðum múhameðs-
trúarmanna.
Samtökin Heilagt stríð hafa lýst
ábyrgð á fjölda árása á frönsk, banda-
rísk og ísraelsk skotmörk í Líbanon
síðan 1983.
Alþjóðaþing
verkakvenna
23. apríl
Briissel-Rcutcr
■ Mismunun kynjanna mun verða
megin umræðuefnið á Alþjóðaþingi
verkakvennafélaga sem haldið verður
í Madrid í næsta mánuði.
Að sögn upplýsingafulltrúa Al-
þjóðasamtaka frjálsra verkalýðsfé-
laga (ICFTU) sem skipuleggja þingið,
munu um 350 fulltrúar taka þátt,
þingið mun standa í fjóra daga og
hefjast 23. apríl. Á dagskrá þingsins
eru umræður um stöðu kvenna á
vinnumarkaði og framlag kvenna í
friðarmálum og alþjóðasamvinnu.
Að sögn Jolín Vanderveken mun
þingið styðja réttindabaráttu verka-
kvenna en þær hafa öðrum fremur
orðið fyrir barðinu á auknu atvinnu-
leysi í núverandi efnahagskreppu.
Lufthansa
vigtar
farþega
‘Köln-Reuter
■ Vestur-þýska flugfélagið . Luft-
hansa vigtar nú farþega sína í New
Y ork, Frankfurt og Bangkok, áður en
þeir stíga um borð í vélar flugfélags-
ins, til að ganga úr skugga um það
hver sé nú meðalþyngd flugfarþega.
Farþegarnir eru beðnir um að stíga
á vigt með allan handfarangur sinn.
Vilji þeir af einhverjum ástæðum ekki
láta vigta sig leyfir flugfélagið þeim
samt að sleppa við vigtunina.
Seinast þegar Lufthansa vigtaði
farþega sína árið 1978 var sá þyngsti
168 kíló ásamt handfarangri.