Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÓVISSA Í ÞÝSKALANDI Mikil óvissa ríkir um hvers konar stjórn verður mynduð í Þýskalandi eftir þingkosningar sem fram fóru í gær. Kristilegir demókratar fengu mest fylgi en þó ekki nógu mikið til að geta myndað meirihlutastjórn með frjálsum demókrötum. Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demó- krata, og Gerhard Schröder, kansl- ari og leiðtogi Jafnaðarmanna- flokksins, gerðu bæði tilkall til kanslaraembættisins. Schröder sagði að jafnaðarmenn léðu ekki máls á stjórnarsamstarfi við kristi- lega demókrata ef Merkel yrði kanslari. Sögulegar þingkosningar Embættismenn í Afganistan sögð- ust í gær vera ánægðir með kjör- sóknina í þingkosningum, sem fram fóru í gær. Þeir sögðu að fólk hefði flykkst á kjörstaði þrátt fyrir nokkr- ar sprengju- og skotárásir sem kost- uðu tíu manns lífið. Óháðir eftirlits- menn sögðu hins vegar að kjör- sóknin hefði verið minni en vonast var eftir. Aukinn kostnaður Upplýsingar um aukna kostn- aðarþátttöku sjúklinga sem hlytist af vaxandi göngu- og dagdeildar- starfsemi Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) verða teknar saman á næstunni auk þess sem at- hugað verður hvað af þeim kostnaði yrði endurkrefjanlegt hjá Trygg- ingastofnun. Margrét S. Björns- dóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórnarnefnd LSH, óskaði eftir samantektinni. Skiptar skoðanir Skiptar skoðanir eru meðal stjórnarandstöðuflokkanna á alþingi varðandi framboð Íslands til Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, segir það verða mjög slæmt fyrir Ísland út á við ef hætt verði við á miðri leið. Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, segir að þingflokk- urinn hafi ekki tekið formlega af- stöðu til framboðsins. Hann kveðst þó hafa efasemdir um framboðið. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 28/40 Vesturland 12 Dagbók 42 Höfuðborg 12 Myndasögur 42 Viðskipti 13 Víkverji 42 Erlent 14/15 Staður og stund 44 Daglegt líf 16/18 Leikhús 45 Menning 19, 45/49 Bíó 46/49 Umræðan 20/25 Ljósvakar 50 Bréf 25 Veður 51 Forystugrein 26 Staksteinar 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is UNDIRBÚNINGUR stendur nú yf- ir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands að takast á hendur og annast sjúkra- flutninga í Árnessýslu sem lögreglan í sýslunni hefur hingað til haft á sinni könnu. Heilbrigðisráðuneytið fól stofnun- inni að taka við sjúkraflutningunum eftir að viðræðum milli Brunavarna Árnessýslu og ráðuneytisins var slit- ið en forsvarsmenn Brunavarnanna treystu sér ekki til að annast verk- efnið fyrir þá fjárhæð sem ráðuneyt- ið bauð. Að mati Brunavarna var tal- ið að það þyrfti 60 milljónir til að annast reksturinn en ráðuneytið bauð 50 milljónir. Ráðherra telur niðurstöðu komna í málið Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra segist reikna með að endanleg niðurstaða sé komin í málið og of seint sé að breyta einhverju úr þessu. Hann segist telja að Heil- brigðisstofnun Suðurlands geti sinnt verkefninu, en þeir þurfi mannskap í það og þegar hafi verið auglýst eftir fólki. „Við buðum [Brunavörnunum] 20 milljónir til viðbótar við það sem þetta kostaði áður, en þeir gengu ekki að því og við höfum ekki ramma til að fara hærra,“ segir Jón. „Ég er auðvitað ekki ánægður með að þeir skuli ekki taka tilboði okkar fyrst við teygðum okkur langt. Það hefði ver- ið æskilegt að slökkviliðið sæi um þetta. Mér finnst að þeir hefðu getað teygt sig lengra og finnst að við höf- um gert þeim gott tilboð. Við þurfum að semja um sjúkraflutninga um allt land og getum ekki teygt okkur miklu lengra þarna en annars stað- ar.“ Heilbrigðisstofnunin hefur nú auglýst eftir sjúkraflutningamönn- um og liggur fjöldi umsókna fyrir. Einnig er unnið að því að leysa að- stöðuvanda vegna þessa og útvega húsnæði fyrir sjúkrabíla og sjúkra- flutningamenn. Gert er ráð fyrir að Heilbrigðisstofnunin taki við sjúkra- flutningunum frá næstu áramótum og allur undirbúningur stofnunar- innar miðast við það. Eftir að ráðuneytið fól Heilbrigð- isstofnuninni að annast sjúkraflutn- ingana og hefja undirbúning hefur Félag slökkviliðsmanna hjá Bruna- vörnum Árnessýslu lýst óánægju sinni og sendi heilbrigðisráðherra nýlega ályktun um málið þar sem ráðherra er hvattur til að endur- skoða ákvörðun sína. Bent er á að sjúkraflutningar séu verkefni margra slökkviliða í landinu og um heim allan. Þá séu sjúkraflutning- arnir ein forsenda fyrir því að unnt sé að byggja upp atvinnuslökkvilið. Bæjarstjórn Árborgar ályktaði um málið á fundi sínum 14. septem- ber. Þar segir meðal annars: „Sjúkraflutningar eru grundvallar þjónusta við íbúa. Fyrirkomulag og framkvæmd þeirra er stórt hags- munamál fyrir alla íbúa á svæðinu. Einnig verður að hafa í huga að í Ár- nessýslu er þéttasta sumarhúsa- byggð landsins og fjölsóttustu ferða- mannastaðir. Bæjarstjórn telur eðlilegast að sjúkraflutningar á þessu svæði séu á hendi Brunavarna Árnessýslu og lýsir vonbrigðum með að heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið skuli ekki hafa gengið til samninga við BÁ þar sem mjög lítið bar í milli fjárhagslega. Ráðuneytið hefur falið Heilbrigðisstofnuninni á Selfossi að taka að sér verkefnið. Bæjarstjórn leggur mikla áherslu á að stofnuninni verði skapaðar full- nægjandi aðstæður fjárhagslega og tæknilega til þess að unnt sé að framkvæma þessa grundvallar þjón- ustu í samræmi við nútíma kröfur um öryggi.“ Kristján Einarsson, slökkviliðs- stjóri Brunavarna Árnessýslu, hefur unnið lengi að því að Brunavarnirnar tækju við sjúkraflutningunum. „Ég tel að þarna sé tækifæri fyrir ríkið að koma að uppbyggingu atvinnuslökk- viliðs í Árnessýslu með sveitarfélög- unum. Ég held að aðilar málsins; Brunavarnir, ráðuneytið og Heil- brigðisstofnun eigi að setjast niður og finna lausn á málinu,“ sagði Krist- ján. Breytingar á sjúkraflutningum í Árnessýslu eru í undirbúningi Heilbrigðisstofnun tek- ur við sjúkraflutningum Eftir Sigurð Jónsson og Hrund Þórsdóttur Morgunblaðið/RAX Slökkviliðsmenn og bæjarstjórn vilja flutningana til brunavarna sýslunnar. SNARFARI, félag sportbátaeigenda í Reykja- vík, bauð aðstandendum þeirra sem létust í slysinu í Viðeyjarsundi sl. helgi og félögum í Snarfara til bænastundar í félagsheimili Snar- fara við Naustavog í gær. Í gær átti Snarfari 30 ára afmæli en sökum slyssins var ákveðið að fella niður öll hátíðarhöld og boða til bæna- stundar. Séra Sigurður Helgi Guðmundsson stjórnaði athöfninni. Að henni lokinni sigldu Snarfara- félagar og aðstandendur hinna látnu í fylkingu út Viðeyjarsund og fleyttu blómum til minn- ingar um hina látnu og þann atburð sem átti sér stað. Stjórn Snarfara segir í tilkynningu að félagið sé í sárum vegna atburðanna en hefur þó getað veitt aðstandendum aðstoð þá erfiðu viku sem liðin sé frá slysinu. Félagið tók þátt í leit þar sem allt að 130 félagar á samtals 35 bátum sigldu um hafsvæðið frá Gróttu að Akranesi. Morgunblaðið/Þorkell Félagar í Snarfara og aðstandendur fleyttu blómum til minningar um þá sem létust í slysinu. Bænastund Snarfara LÍK Friðriks Ásgeirs Hermannssonar, sem leitað hefur verið að eftir að skemmtibátur fórst í Viðeyjarsundi sl. helgi, fannst um kl. 16.15 á laugardag. Það fannst með aðstoð neðansjáv- armyndavélar björgunarskips Slysavarna- félagsins Landsbjargar á svipuðum slóðum og talið er að bátnum hafi hvolft. Fjöldi manns tók þátt í leitinni á laugardag og voru fjölmargir kafarar frá Landhelgisgæsl- unni, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins við leit vestan við Viðey en þeir gerðu út frá varðskipinu Ægi. Lík Friðriks fannst á laugardag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.