Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 48
Jón Helgi Þórarinsson og Margrét Einarsdóttir virtust afar ánægð. MYNDLISTARMAÐURINN Sigurður Árni Sigurðsson opnaði á föstudag sýningu á verkum sínum í 101 Gallery. Nokkur ár eru síðan Sigurður Árni hélt síðast einkasýn- ingu á Íslandi. Sigurður hefur m.a. sýnt í Galleríi Aline Vidal í París og á samsýningum í Montpellier, Korsíku og í Lúxem- borg. Þá var Sigurður fulltrúi íslands á Tvíæringnum í Feneyjum árið 1999 og verk eftir hann notað sem tákn- mynd Reykjavíkur, Menningarborgar Evrópu árið 2000. Að sögn viðstaddra létu gestir vel að sýningunni og kunnu vel að meta það samspil lita og forma á einföldum flötum sem einkennir verk Sigurðar. Erling Klingenberg, Rebekka Silvía Ragnarsdóttir og Sirra Sigrún virtu fyrir sér verk Sigurðar Árna og ígrunduðu listina gagnrýnum augum. Morgunblaðið/Kristinn Fagnaðarfundir voru hjá listamanninum Sigurði Árna og Þorsteini J. Voru þeir báðir kampakátir og mátti ekki annað sjá en að listamaðurinn væri ánægður með móttökurnar sem hann fékk við verkum sínum. Fyrsta sýningin á Íslandi í langan tíma Myndlist | Sigurður Árni Sigurðsson opnar sýningu á málverkum sínum í 101 Gallery 48 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI KEFLAVÍK  HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN! ... I ! Með Cole Hauser úr 2 FAST 2 FURIOUS. l . Það eru til staðir sem manninum var aldrei ætlað að fara á Eitthvað banvænt hefur vaknað. Magnaður spennutryllir út í gegn. a er til sta ir se a i ar al rei tla a fara á itt a a t ef r a a . a a r s e tr llir t í e . bönnuð innan 16 ára NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG Kalli og sælgætisgerðin H.J. / Mbl. TOPP5.IS KVIKMYNDIR.COM KVIKMYNDIR.IS Ó.H.T. / RÁS 2 DV LANG VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG Búið ykkur undir bragðbestu skemmtun ársins. Sat tvær vikur á toppnum í USA. JOHNNY DEEP Charlie and the Chocolate .. kl. 5.40 - 8 og 10.20 The Cave kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14 Strákarnir Okkar kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14 The Dukes of Hazzard kl. 5.50 - 8 og 10.10 The Skeleton Key kl. 5.55 og 8 b.i. 16 The Island kl. 10 b.i. 16 CHARLIE AND THE CHOCOLATE kl. 8 - 10.15 SKY HIGH kl. 8 - 10 CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY kl. 6 - 8 THE CAVE kl. 10 B.i. 16 ára SKY HIGH kl. 6 - 8 STRÁKARNIR OKKAR kl. 10 B.i. 14 ára GRUNNÞÆTTIR sögunnar sem hér er sögð eru flestum vel kunnir. Tveir menn sem eiga ekkert sameig- inlegt og eru í raun jafn ólíkir og hugsast getur, lenda fyrir tilviljun í slagtogi og verða að læra að vinna saman til að ná settum markmiðum. Markmiðið í þessu tilviki er að hand- taka hættulega bófa og félagarnir illsamræmanlegu eru tannlækna- vörusölumaður leikinn af Eugene Levy og harðsoðna löggan sem Samuel Jackson leikur. Hugmyndin um ósamræmanlega félaga er ekki beinlínis ný af nálinni sem uppskrift að gamansamri spennumynd. Mestum hæðum náði þessi frásagnaraðferð, a.m.k. hvað hugmyndavinnslu varðar, í gam- anmyndinni Twins þar sem þeirri af- káralegu hugmynd var varpað fram að Arnold Schwarzenegger og Danny DeVito væru löngum að- skildir tvíburar. Ekkert í myndinni sjálfri var þó jafn fyndið og hug- myndin sem lá henni til grundvallar. Gamansamar vangaveltur um ósam- ræmanlega félaga sem eru á spori glæpamanna voru síðan fágaðar og pússaðar og gerðar að sannkallaðri gullnámu í Lethal Weapon mynda- seríunni sem var fyrirtaks dæmi um það sem Hollywood á níunda ára- tugnum lagði mikla áherslu á: Há- værar hasarmyndir sem blönduðu saman húmor, spennu og spreng- ingum. En nú er nokkuð um liðið og það sem Hollywood virðist stundum gera sér grein fyrir er að formúlum verður að breyta dálítið eigi þær að endast. Þannig var mynd Michael Bay, The Rock, til að mynda skemmtileg úrvinnsla á frásagn- arhefðum hasarmyndarinnar og hugmyndinni um ósamræmanlegu félaganna. Formúlur þróast með öðrum orðum eða deyja. Kvikmynd- in Maðurinn (The Man) er síðan ágætt dæmi um það sem gerist ef reynt er að vekja til lífsins formúlur sem hafa löngu geispað golunni. Það er reyndar nokkuð ljóst að aðstandendur myndarinnar hafa ákveðið að treysta á að það væri ein- faldlega fyndið í sjálfu sér að stilla Levy og Jackson upp á móti hvor öðrum. Og því verður ekki mótmælt. Þetta eru afar ólíkir leikarar sem hafa í gegnum tíðina lagt áherslu á gjörólík hlutverk í jafnólíkum mynd- um. Levy hefur t.d. skapað sér ímynd sem miðaldra yfir-nörd bandarískra kvikmynda í röð ágætra gamanmynda undir stjórn Christophers Guest, og American Pie þríleiknum. Jackson hefur á hinn bóginn sannað sig sem eitt eft- irminnilegasta hörkutól síðastlið- inna ára í myndum eins og Pulp Fiction og Jackie Brown. Saman hljóta þeir því að vera skondnir, ekki satt? Rangt. Jafnvel þótt þeir félagar geri það sem hægt er fyrir myndina dugir það einfaldlega ekki til. Tæki- færin sem þeim eru gefin í handrit- inu eru of fátækleg og á stundum vandræðaleg. Þvingaður söguþráður um stolin vopn og neðanjarðar- starfsemi ólöglegrar vopnasölu, er kannski ekki hugsaður sem drif- kraftur myndarinnar en hroðvirkn- isleg úrvinnsla umgjarðarinnar gef- ur vísbendingu um að ekki liggi mikill metnaður að baki. Og það sýn- ir sig þegar að því kemur sem vissu- lega á að vera drifkraftur verksins, en það eru samskipti félaganna. Fátt reynist broslegt við það brölt sem tekur við eftir að leiðir þeirra liggja saman. Tannlæknavöru- sölumaðurinn hefur t.d. órólegt meltingarkerfi. Því liggur beint við að hann reki við í tíma og ótíma og er sá ágæti verknaður gerður að einni af þungamiðjunum í kómedíu myndarinnar. Örfá atriði eru vel heppnuð, s.s. hefndin sem Levy nær fram eftir stöðuga niðurlægingar af hálfu félaga síns, þegar þeir félagar hitta vopnasölumennina og Levy verður að útskýra nærveru Jack- sons. Þetta er þó undantekning því annars er myndin að mestu röð hálf- misheppnaðra atriða sem bera lítilli hugsun og enn minni frumleika vitni. Útkoman er því ekki ýkja kræsileg. Myndin fær þó tvær stjörnur frekar en eina. Aukastjarn- an er þó fyrst og fremst sam- úðarstjarna. Þessir tveir ágætu að- alleikarar hljóta að geta fengið launatékkann sinn á annan hátt en að ganga í gegnum svona niðurlæg- ingar. Hver er maðurinn? Hefur gamla formúlan um ósamrýmanlegu félagana, töffarann og lúðann, gengið sér til húðar? A.m.k. hefur ekki tekist sem skyldi að vinna úr henni hér. KVIKMYNDIR Maðurinn (The Man)  Leikstjórn: Les Mayfield. Aðalhlutverk: Samuel L. Jackson og Eugene Levy. Bandaríkin, 83 mín. Smárabíó, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.