Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.09.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 23 UMRÆÐAN ÚTSÖLUMARKAÐUR Verðlistans er á Suðurlandsbraut 8 (Fálkahúsinu) Sólarlandafarar, gerið góð kaup á sumarfatnaði. Opið kl. 12-18 mán.-föstud.                                                  !  ! "             # $   %% $!   #    & ' ()* +)** ' ()* +),* ' ()* +))* ' ()* +)+* MIG langar til að segja frá því hvað ég er ánægð með Leikskól- ann Marbakka í Kópavogi. Ég hef oft rætt þetta við vinkon- ur mínar og fjöl- skyldu. Það er nefni- lega ekkert smá mál hvort börnunum okk- ar líður vel þann tíma dags sem við full- orðna fólkið erum í vinnunni. Sonur minn fékk pláss á leikskóla rétt um tveggja ára aldur og var þar í u.þ.b. þrjá mánuði og allur sá tími var honum mjög erfiður. Hann aðlagaðist ekki og var mjög vansæll. Kannski tengist það að einhverju leyti veikindum sem hann hafði átt við að glíma. En þegar fjölskyldan flutti í Vesturbæ Kópavogs komst hann á Marbakka. Eðlilega tók aðlögun dálítinn tíma en hann hefur hvergi á leikskóla eða í annarri gæslu verið eins ánægður. Það sést langar leiðir að þarna líður honum vel. Í dag er ég með tvö börn á leikskólanum. Þessi þriggja ára son- ur minn er á Bakka sem er miðdeild. Svo er litla stelpan mín á Bóli á deild yngstu barnanna. Svo á ég eldri dóttur sem eyddi sínum leikskólaárum á þessum yndislega leikskóla, þann- ig að ég þekki vel til hans. Yngsta dóttir mín sem var að byrja á Marbakka núna í september hefur einungis verið þar í tæpar tvær vikur þegar þetta er skrifað og ég sé það sama gerast hjá henni og gerðist hjá syni mínum. Aðlögun hefur tekið smá tíma en hún er orðin nokkuð örugg þarna og ég greini hjá henni framfarir á hverj- um degi. Ég finn hvað hún er ánægð með dagana sem þarna líða. Það sem mig langar að koma á framfæri er hversu frábær þessi leikskóli er í alla staði, starfið sem þar er unnið er gott, mikið gert með og fyrir krakkana. Starfs- fólkið er yndislegt. Hér gæti ég talið upp margar góðar konur sem vinna á Marbakka. Svo er skemmtilegt að sjá að á þessum vinnustað er sama starfsfólkið ár- um saman. Eitthvað hlýtur það að segja til um vinnustaðinn. Maturinn greinilega góður, son- ur minn er nefnilega með mjög viðkvæma húð og í því efni hefur heilnæmur matur mikið að segja. Draslmatur hefur slæm áhrif á húðina. Svona mætti lengi telja. Eftir að hann byrjaði hjá þessu yndislega fólki sem þar vinnur hefur hann verið yfir sig ánægður. Bara svona til dæmis um hversu gaman er á leikskólanum, þá spyr ég hann stundum þegar ég er að sækja hann. „Hvað eigum við að gera skemmtilegt núna?“ Þá svar- aði hann oft. „Förum á leikskól- ann mamma, þar er svo gaman.“ Það fólk sem hefur byggt upp starfið á Marbakka vinnur frábært starf. Einnig finnst mér skemmtilegt frá því að segja að ég fór á Netið til að skoða heimasíðu leikskólans og þar eins og annars staðar er ekki slegið slöku við. Þar getum við foreldrarnir skoðað og fylgst með hvað er að gerast hjá börn- unum okkar. Ég vona að ég hafi komið því til skila sem ég hugsaði í upphafi og því sem ég er alltaf að segja fólk- inu í kringum mig – að á Mar- bakka er gott að vera. Þessi grein er skrifuð sem lítill þakklætisvottur fyrir það sem vel er gert. Ég vona að mér hafi tek- ist að koma þakklæti mínu og fjöl- skyldu minnar til skila. Karitas Þráinsdóttur fjallar um Leikskólann Marbakka Karítas Þráinsdóttir ’Það fólk sem hefurbyggt upp starfið á Marbakka er að vinna frábært starf.‘ Höfundur er þjónustufulltrúi og nemi. Förum á leikskólann, mamma! ÞEGAR lög um fjármagns- tekjuskatt voru sett voru háir vext- ir og lítil verðbólga. Á þeim for- sendum var ákveðið að jafnt verðbólga sem vextir væru flokkuð sem fjármagnstekjur og skattlögð sem slík. Hins vegar var þetta alrangt og í engu sam- ræmi við eignarrétt- arákvæði stjórn- arskrár. Í verðbólgu er hækkun eigna í krónutölu aðeins til að mæta verðminni krón- um, og því ekki eigna- aukning og alls ekki skatthæf sem fjár- magnstekjur. Það er dæmigert að enginn byrjaði málaferli, litlu karlarnir treystu sér ekki til þess og þeir stóru voru ánægðir með stöðu mála í sinni stétt, en það er und- arlegt að enginn lög- fræðingur skuli hafa fundið hjá sér hvöt til að taka þetta mál upp. Núna hefur hins vegar orðið grundvall- arbreyting á for- sendum þessara laga, vextir lækka og verð- bólga eykst, þannig að við búum við nánast sömu prósentutölu verðbólgu og vaxta. Það breytir mjög miklu. Hér fjalla ég aðeins um það hvernig þetta horfir við ellilífeyr- isþegum, sem hafa reynt að spara eitthvað til elliáranna. Í dag er fjármagnstekjuskattur í raun og veru 20% af raunávöxtun, og í þokkabót eru tekjutryggingar lægst launuðu eldri borgara lækk- aðar um 45% af svokölluðum fjár- magnstekjum og það þrátt fyrir að aðeins helmingur þessara tekna sé í dag raunverulegar fjármagnstekjur eins og ég hef áður sagt. Þannig er refsing ríkisins til handa tekjulitlum eldri borg- urum fyrir að spara til elliáranna sú að skatt- leggja þá í raun og veru um 65% af raun- ávöxtun sparnaðarins. Getur einhver gert betur, eða talaði ein- hver um það að lækka skatta! Ef ríkisstjórn sýndi sanngirni miðað við núverandi aðstæður ætti aðeins einn fjórði af fjármagnstekjum að skerða lífeyri, ef þeir aðeins væru sjálfum sér samkvæmir! En í pólíkik eru menn ekki sjálfum sér sam- kvæmir. Það er víst borin von um úrbætur, rík- isstjórnin dregur það í lengstu lög að ræða við aldraða, því ennþá er langt til kosninga. En ég get ekki látið hjá líða að benda unga fólkinu á að það er undir þrýstingi bank- anna að spara og spara. Hvernig verður farið með sparnað ykkar á eldri árum í ljósi þeirra afarkosta sem ríkisvaldið býður eldri borgurum í dag? Svari hver fyrir sig. Hverjir njóta vaxtalækkana? Pétur Guðmundsson fjallar um sparnað og kjör eldri borgara ’Þannig er refs-ing ríkisins til handa tekju- litlum eldri borgurum fyrir að spara til elli- áranna sú að skattleggja þá í raun og veru um 65% af raun- ávöxtun sparn- aðarins.‘ Pétur Guðmundsson Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður í FEB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.