Tíminn - 30.10.1970, Page 3
FÖSTUDAGUR 30. október 1970
TÍMINN
KIRKJAN
FLUTT
Eins og sagt hefur veri'5 frá, var
gamla kirkjan á Svalbarði flutt til
Akureyrar á þriðjudaginn, en
reyndar var hún þó ekki komin alla
leið fyrr en um hádegi á mið-
vikudag, ýmissa erfiðleika vegna.
Eins og sjá má er kominn tals-
verður snjór fyrir norðan. Frost
hefur verið allmikið undanfanna
daga og voru akureyrskir krakkar
farnir að bera það við í gær að
skreppa á skauta á pollinum en
aðeins með landinu, því ísinn er
ótraustur. Þessa mync tók ED á
miðvikudagsmorgun, þegar komið
var með Svalbarðskirkju á móts
við Akureyrarflugvöll.
Þungfært
eystra
Samið um takmörk-
un á síldveiði
NTB—Bergen, fimmtudag.
í dag lauk fundi fulltrúa frá ís-
landi. Sovétríkjunum, Noregi og
Danmörku, þar sem rætt var um
takmörkun á síldveiði í Norður-
Atlantshafi. Varð samkomulag um
að leggja til við ríkisstjórnir við-
komandi landa að semja um tak-
mörkun á veiði Noregssíldars"nar.
Eo það er sá síldarstofn, sem ís-
lendingar hafa veitt þegar hún
finnst á sumrin og haustin í ætis-
leit og göngu við Færeyjar og
Noreg.
Síldarstofn þessi er nú illa 1 m
inn vegna ofveiði, og er það til-
gangur fundarins í Bergen að
semja um veiðitakmarkanir á hon-
um. Er talin mikil nauðsyn á að
friða hann. Varð það að samkomu-
lagi á fundinum að lagt yrði til
við ríkisstjómir viðkomandi landa,
að hver þessara þjóða takmarki
veiðarnar á vetrarsíld við það
magn sem hún veiddi þar 1969.
Einnig að hver þjóð takmarki veið
ar á smásíld og feitsíld við strend
ur Noregs, og við Múrmansk við
70% af því magni, sem hún veiddi
1969.
Framsóknarvist
að Hótel Sögu
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur Framsóknarvist að Hótel
Sögu fimmtudaginn 5. nóv. n.k,
Nánar auglýst síðar.
Áfengi, nælonsokk-
um og plötum stolið
Ekki er um takmarkanir að ræða I inn Már Elísson, fiskimálastjóri.
á veiði Islendinga þar sem þeir Jakob Jakobsson, fiskifræðingur og
veiða ekki á greindum miðum. | Þorsteinn Gíslason, varafiskimála-
Af hálfu Islendinga sátu fund-1 stjóri.
JK—Egilsstö'ðum, fimmtudag.
Hér gekk í snjókomu í fyrra-
dag, og snjóaði töluvert í gær,
en í dag hefur aftur gengið í
slyddu og rigningu. Fjarðarheiði
er fær, og var farin í dag, en er j 5
þungfær. Fært er milli Egilsstaða
og Reyðarfjarðar, en Oddsskarð er
ófært. Þungfært var suður á finði
í morgun.
Síðdegis í dag hefur rignt, og er
því allt útlit fyrir, að snjóinn taki
fljótt upp aftur.
Hoits g
□□
Sprautið burt
snjo og isingu
...
f&*-v •:
Aðeins lítil, i
& snöggsprauta;
losarogeyöir
V wrf&M öllu hrími af rúðum.
V Ömissandi að vetrinum.^
••• Hafiö ávalit brúsa af \
^ Holts De-ícer til taks í
hanzkahóifinu. Losar einnig
v frosnar dyralæsingar og
.. ' handföng.
h;. ,'r
De-icer
Leitíff uppiýsingá um meira en 60 viðhalds- og viffgerffarefni s
OÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Innbrotsþjófar hafa verið dálít-
ið á ferðinni í Reykjavík undan-
farið. S.l. nótt var brotizt inn í
bílskúr við Faxaskjól. en ekki er
vitað hvort einhveriu var stolið.
í bílskúrnum er geymdur varn-
ingur serr heildsali á og var þar
m. a. talsvert af nælonsokkum og
verið gæti að stolið hafi verið af
þeim birgðum.
Á mánudag var farið inn í
geymslu í íbúðarhúsi í Vestur-
bænum og var stolið baðan 10
flöskum af áfengi. Þá var brotizt
inn í herbergi í húsi við Háaleit-
isbraut og v:ar stolið baðan um
100 hljómplötum, sem á var að-
allega poptónlist. Úr herberginu
vár einnig stolið myndavél og
sjönauka.
Móffuiausar
r ú ð u r
Strjúkiö rúBurnar einu sinni
meB móBuklútnum og þær
haldast hreinar og móðufríar
I lengri tlma. Klútarnir geymast
lengi I plastpoke, sem fylgir.
Ánti-Mist Cloth
Isvörn
í rúðusprautur
Mátuleg blöndun á sprautu-
geyminn kemur í veg
fyrir að í honum frjósi
Losar snjó og (singu og heldu
þeím hreinum og tærum.
Winter Screenwash
Ein áfylling af Redweld vatns-
kassaþétfi er varanleg viðgerð,
sem miklar hitabreytingar eða
frostlögur hefur engin áhrif á..
Radweld
Ry ff o I í a
á sprautubrúsa
Inniheldur grafít, sem gefur
langvarandi ryðvörn.
Hentugt til aö úða með hluti,
sem erfitt er að ná til.
Rustola
Holts vörurnar fást á stærri benzínstöðvum,
hjá kaupfélögunum og Véladeild SlS Ármúla 3
Hver er þörf lands-
manna fyrir skóla
næstu !0—15 árin?
Sex þ ngmenn Framsóknar-
flokksins lögðu í gær fram á
Alþingi tillögu til þingsályktun
ar um heildaráætlun um skóla
þörf landsmantia næstu 10—15
árin. Skv. tíllögunni skal ríkis-
stjórnin láta gera heildaráætl-
un um þörf landsmanna fyrir
skóla næstu 10—15 ár, bæði
að því er varðar almenna skóla
og hvei-s kyns sérskóla og aðrar
fræðslustofnanir, enda nái áætl
unin jafnt til þeirra skóla, sem
kostaðir eru sameiginlega af
ríki og svitarfélögum, sem
hinna, er ríkið stendur eitt und
ir eða nú eru reknir af einka-
aðilum. Skal áætlunin vertfa
grundvöllur undir gerð fram-
kvæmdaáætlana á sviði skóla-
bygginga.
Nauðsynleg undir-
staða skynsamlegra
framkvæmdaáætlana
um skólabyggingar
næstu árin
í greinargerð segja flutn-
ingsmenn m.a.:
„f 4. gr. Iaga nr. 49, 1967,
um skólakostnað, segir svo, að
menntamálaráðuneytið láti
gera „framkvæmdaáætlun“ um
skólabyggingar fyrir allt land-
ið, í fyrsta lagi þess háttar,
sem til tíu ára tímabils, og
í öðru lagi árlega framkvæmda-
áætlun, sem fylgi tillögum til
fjárveitinga í fjárlögum.
Þar sem skólakostnaðarlögin
gilda einungis um þá skóla,
sem kostaðir eru sameiginlega
af ríki og sveitarfélögum, má
ætla, að áætlanir um skólafram
kvæmdir samkvæmt nefndri
lagagrein yrðu einskorðaðar við
þessa ákve'ðnu skóla, og ef við
slíkar áætlanir einar yrði látið
sltja, mundi það leiða af sér
mjög ófullkomna mynd af raun
verulegri þörf landsmanna fyr-
ir hvers kyns skóla og fræðslu
stofnanir í næstu framtíð. Raun
ar er flutningsmönnum ókunn-
ugt um, að fyrir liggi neins
konar áætlunargerð um skóla-
framkvæmdir eða skólaþörf
næsta áratug, hvort heldur er
í þrengri eða rýmri skilningi
þess orðs.
Með þvi að ekki er á neinn
hátt kleift að ge-a sér skyn-
samlega grein fyrir þeim verk
efnum, sem óhjákvæmilega
bíða úrlausnar á sviði skóla-
bygginga í næstu framtíð, er
brýn þörf áætlunar af því tagi,
sem tillaga þessi gerir ráð fyr-
ir. Skólabyggingar eru og verða
ætíð hvað fyrirferðamestar á
vettvangi opinberra fram-
kvæmdí. og mynda nú þegar
drjúgan hluta heildarfjárfest-
ingar þjóðfélaginu árlega.
Áætlun á sviði skólabygginga
er þvf mikilvæg frá efnahags-
legu sjónarmiði séð og hlýtur
að teljast nauðsynlegur þáttur
í skynsamlegri stjórn efnahags
mála, sem öðru fremur verður
að byggjast á raunhæfum áætl
unum um þróun allra megin-
þátta efnahagslífsins Um langt
Framhald á bls. 11