Fréttablaðið - 10.10.2003, Síða 1

Fréttablaðið - 10.10.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 40 Leikhús 40 Myndlist 40 Íþróttir 36 Sjónvarp 44 FÖSTUDAGUR NOKKRAR STAÐREYNDIR UM Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03 Meðallestur fólks 25-49 ára á höfuðborgarsvæðinu á föstudögum 80% 54% 20% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V SÖGULEGUR AÐ- ALFUNDUR Fráfar- andi stjórnarformaður Eimskipafélags Íslands brýndi fyrir nýrri stjórn þess að slíta félagið ekki í sundur. Í fyrsta skipti í sögu Eimskipa var allri stjórn félagsins skipt út. Sjá síðu 2 ELDUR Í SLIPPNUM Allt tiltækt slökkvilið var kallað að Daníelsslippi eftir að elds varð vart. Í fyrstu var óttast að ein- hverjir starfsmanna fyrirtækisins kynnu að vera í hættu en fljótt kom í ljós að svo var ekki. Tjón var nokkuð. Sjá síðu 4 BAUÐ AFSÖGN SÍNA Ahmed Qureia, sem tók við forsæti í bráðabirgðastjórn Palestínu, reiddist þegar Palestínuþing dró fæturna við að staðfesta skipan hans sem forsætisráðherra nýrrar ríkisstjórnar og lagði fram afsagnarbréf sitt. Sjá síðu 4 VERKFALL VIÐ KÁRAHNJÚKA Portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka lögðu niður störf sín í gærmorgun og neit- uðu að vinna fyrr en þeir fengju hlífðarföt til að verjast kuldanum á hálendinu. Þau fengu þeir síðar um daginn. Sjá síðu 12 BÍLSKÚRSBÍÓ Stuttmyndahátíðin Bíl- skúrsbíó fer fram í bíósal MÍR um helgina og hefst með tónleikum klukkan 19.00 í kvöld. Djasstríóið H.O.D. stígur á stokk áður en tekið verður til við sýningar á fjórum stuttmyndum Lorts. Að auki verð- ur sýnd gestastuttmyndin Úr dagbók slökkviliðsins. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG BLÍÐAN MEST Í BORGINNI Veðrið er hrein hvatning til að skilja bílinn eftir heima og njóta blíðunnar sem mest. Veðrið er síðra á Norðurlandi. Sjá síðu 6 þitt eintak v iku legt t ímar i t um fó lk ið í l and inu birta 10. OKTÓBER TIL 16. OKTÓBER 2003 NR 31 Ruth Reginalds vill engu breyta Sjónvarpsdagskrá næstu7daga Hvað finnst nýju alþingismönnunum mikilvægast? Kvenfélagið Garpur frumsýnir spuna Hvenær dagsins er best að æfa?spaugstofan ● stjörnuspáin Ruth Reginalds: ▲ fylgir Fréttablaðinu dag Stolt af gömlu lögunum birta 10. október 2003 – 247. tölublað – 3. árgangur matur o.fl. síld ● til hnífs og skeiðar Solla á Grænum kosti: ▲ SÍÐUR 26 og 27 Sköpunarþörfin fær útrás í matnum ATVINNUMÁL Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir að helstu at- riði samnings um raforkusölu OR og Hitaveitu Suðurnesja til stækkaðs álvers Norðuráls séu frágengin og að nú sé verið að leggja lokahönd á viljayfirlýs- ingu og skaðleysissamning. Hann segir að ekkert standi í vegi fyrir því að viljayfirlýsing verði undirrituð í næstu eða þarnæstu viku. Í skaðleysissamningi felst að orkufyrirtækin eigi kröfu á hend- ur mótaðila, Norðuráli, ef af ein- hverjum ástæðum ekki verður af stækkun álversins. Ef Norðurál undirritar slíkan samning má telja það skýra vísbendingu um að mjög einarðlega sé stefnt að stækkun álversins. „Það er unnið hörðum höndum af hálfu lögfræðinga samnings- aðila að frágangi ýmissa atriða og ef því verður lokið innan fárra daga, sem flest bendir til, þá má búast við að skrifað verði undir viljayfirlýsingu ásamt skaðleys- issamningi, í næstu viku eða þarnæstu viku,“ segir Alfreð Þor- steinsson. Hann segir að endan- legir samningar verði svo undir- ritaðir í janúar á næsta ári. „Það er verið að vinna í samn- ingnum og verið að setja upp viljayfirlýsingu með helstu efnis- atriðum. Hvort það tekst í næstu eða þarnæstu viku veit ég ekki. Ég sé svo sem ekki af hverju það ætti ekki að geta gengið,“ segir Júlíus J. Jónsson, forstjóri Hita- veitu Suðurnesja. Búið er að semja um verð á raforkunni en orkufyrirtækin eiga enn eftir að ganga frá samn- ingum við Landsvirkjun um raf- orkuflutning og varaafl fyrir ál- verið. Að sögn Júlíusar standa samningaviðræður um flutning orkunnar enn yfir. Það er í verka- hring orkuveitnanna að tryggja flutning orkunnar og því mun Norðurál ekki koma beint að þeim þætti heildarsamninga um stækkunina. Áætlað er að framkvæmdir vegna stækkunarinnar hefjist á næsta ári og ljúki áður en um- svifin vegna álversins og virkj- unar á Austurlandi ná hámarki. Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar mun stækkun Norðuráls, og virkjunarframkvæmdir vegna hennar, hafa í för með sér á milli fjörtíu og fimmtíu milljarða inn- spýtingu í efnahagslífið á suð- vesturhorni landsins. thkjart@frettabladid.is MATURINN HITAÐUR Lífið gengur sinn vanagang í Kabúl, höfuðborg Afganistans, þrátt fyrir að hörðustu bardagar sem geisað hafa í landinu um margra mánaða skeið hafi brotist út í norðurhluta landsins. Lal Mohammad og félagi hans ristuðu hnetur og hituðu sér dryk- ki á viðarofni í verslun þeirra í miðborg Kabúl. ● Gefur líka út vínbók Dúi Landmark: ▲ SÍÐA 38 Kvikmyndagerða- maður í Frakklandi AP /M YN D /R IC H AR D V O G EL SMJÖRSKÓRNIR Kínverski listamaðurinn Yu Xiuzhen framkvæmdi gjörning árið 1996 en hann fólst í því að dreifa smjörfylltum skóm um Tíbetfjöll. Sænskir fjallagarpar fundu 70 skópör: Skórnir fullir af smjöri STOKKHÓLMUR, AP „Ef við vissum hver gerði þetta myndum við láta þann eða þá hreinsa til eftir sig,“ sagði Alf Kjællström, talsmaður Jæmtland-sýslu í Norður Svíþjóð. Fjallagarpar gengu á dögunum fram á 70 pör af skóm sem dreift hafði verið á víðavangi. Þarna voru strigaskór, spariskór og stíg- vél. Í hverjum einasta skó var hálft kíló af smjöri. Einhver hefur haft fyrir því að drösla 70 kílóum af smjöri á fjöll og koma því hag- anlega fyrir í 140 skóm úti í nátt- úrunni. Fundinum þykir svipa mjög til gjörnings sem kínverski listamað- urinn Yu Xiuzhen framkvæmdi fyrir sjö árum. Gjörningurinn bar heitið „Shoes With Butter“ eða smjörskórnir en þar dreifði lista- maðurinn skópörum fylltum með smjöri um Tíbetfjöll. ■ Íslendingar í Póllandi: Vopnaðir menn sátu fyrir þeim RÁN Fimm grímuklæddir og þung- vopnaðir ræningjar sátu fyrir tveimur Íslendingum þar sem þeir komu út úr fyrirtæki sem þeir reka skammt frá borginni Poznan í Póllandi í fyrrakvöld. Ræningjarnir voru vopnaðir skammbyssum og sjálfvirkum byssum auk táragass. Ræningjarnir tóku peninga og önnur verðmæti auk þess að nema bifreið Íslendinganna á brott. Ís- lendingarnir sögðust í samtali við Fréttablaðið telja að tjónið næmi mörgum milljónum króna. Íslendingarnir fara reglulega til Póllands til að fylgjast með rekstri fyrirtækis síns. Þeir segja að augljóst hafi verið að ræningj- arnir hafi þekkt til og vitað af ferðum þeirra fyrirfram. Ránið tók mjög skamman tíma og vegna táragassins áttu fórnarlömbin erfitt með að sjá hvað var að ger- ast í kringum þá. Íslendingunum tókst að komast frá Póllandi í gær þrátt fyrir að vegabréf þeirra hefðu verið tekin í ráninu. Þeir sögðust í gærkvöldi hafa það ágætt og höfðu sloppið ómeiddir frá hrakförunum sem þeir lentu í. ■ Búið er að semja um raforkuverð og önnur helstu atriði í viðræðum um orkumál vegna stækkunar Norðuráls. Forsvarsmenn OR og Hitaveitu Suðurnesja gera ráð fyrir undirritun viljayfirlýsingar á næstu vikum. SJÁVARÚTVEGSMÁL Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir ekkert út á það að setja ef umhleypingar í íslensku við- skiptalífi leiði til þess að Brim hf. verði hlutað upp og útvegs- fyrirtækin sem mynda það kom- ist aftur í eigu heimamanna. „Ég óttast ekki þróunina svo mjög hvað varðar stærri fyrir- tækin og stærri staði, þar held ég að staðsetning fyrirtækjanna sé þannig og þau eigi svo djúpar rætur að það sé hreinlega óhag- kvæmt að rífa þau upp með rót- um,“ segir Árni. „Auðvitað geta orðið einhverjar breytingar í þessum fyrirtækjum en að rífa þau upp með rótum og flytja þau eitthvað annað held ég að sé ekki skynsamlegt frá rekstrarlegu sjónarmiði.“ Árni segist á hinn bóginn hafa áhyggjur af smærri sjávar- byggðum en nú starfa helmingi færri við fiskvinnslu en fyrir áratug. Í viðtali í Fréttablaðinu í dag segir Árni einnig frá því að hann muni leggja fram frumvarp um línuívilnun í vetur, að hvalveiðar haldi að öllum líkindum áfram á næsta ári og að hann ætli ekki að svara tilboði Greenpeace um að hætta hvalveiðum. Sjá nánar bls. 18-19 Sjávarútvegsráðherra segir koma vel til greina að heimamenn kaupi útgerðir aftur: Óttast ekki um stærri sjávarbyggðir Orkusamningar eru á lokastigi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.