Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 10.10.2003, Blaðsíða 27
Þessi uppskrift fæddist, eins ogallar bestu uppskriftirnar, út frá spekúlasjón um hvaða hráefni fara vel saman og kalla það besta fram hvert í öðru. Ég er yfir mig ánægð með útkomuna sem er sannkallaður drottninga og kónga matur, án fjárlagahalla. 350 g lambanýru 80 kr. 2 msk. ólífuolía 1 msk. þurrkað rósmarín 2 msk. þurrkað sage 1 karlottulaukur 1 hvítlauksgeiri salt og pipar um 40 kr. 1 sellerístilkur 1/2 rauð paprika 1/2 rauður laukur um 40 kr. Hreinsið himnu af lambanýr- unum, losið frá æðar og skerið hvert nýra í fernt. Setjið saman í skál: nýrun, saxaðan lauk og hvít- lauk, ólífuolíu og krydd. Sneiðið sellerí, rauðlauk og papriku og setjið saman við nýrnablönduna sem er svo sett í ofnfast fat og bökuð á 200 ˚C í ofni í 20 til 30 mínútur. Sósan 4 msk. smjörvi safi úr 1/2 sítrónu 2 msk. sojasósa 3 skvettur af tabaskó 1 tsk. hveiti 1/2 glas vatn 1/4 tsk. rifinn engifer um 100 kr. Bræðið smjör og bætið engifer, sítrónusafa, sojasósu, og tabaskó útí. Leysið hveitið upp í vatninu og hellið blöndunni hægt útí og hrærið stöðugt þar til sósan hefur þykknað nokkuð, þynnið með mjólk eftir þörfum. Hellið sós- unni því næst yfir nýrnaréttinn og bakið áfram í 10 mín. Berið rétt- inn fram með kartöflustöppu af himneska taginu. Það er úr nýupp- teknum kartöflum með hýði, smjörva, rifnum parmesan- osti og nýmöluðum svörtum pipar. ca 100 kr Kostnaður með kartöflu- stöppu samtals um 400 kr. 29FÖSTUDAGUR 19. september 2003 Gómsæt nýrnakássa með kartöflu- stöppu Til hnífsog skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ■ Eldar handa minnst fjórum fyrir 1.000 kr. eða minna. Nýjung frá Ora: Jólasíld á markaðinn Síld er herramannsmatur og aðdönskum sið er hún nú orðin fastur liður í jólahlaðborðum þeg- ar líða tekur á haustið. Um miðjan nóvember kemur á markað sér- stök jólasíld frá Ora, en fyrirtæk- ið vill með þessu efla stemmning- una sem skapast kringum þessar síldarveislur. Jólasíldin verður árgangssíld, sem þýðir að fyrir hver jól verður valin ný síld með nýju bragði og verður hún eingöngu í sölu í kringum jólahátíðarnar. Í ár að- stoðuðu kokkarnir á Perlunni við að velja síldina, sem er maríneruð með léttu madeira-bragði. Síldin verður fáanleg í takmörkuðu magni fram yfir jól. Síldin hefur ekki notið sann- mælis á Íslandi, að mati forsvars- manna Ora, en þeir vilja gera síld- ina að föstum sið á íslenskum heimilum, ekki bara fyrir jólin. Því gefa þeir upp tvær síldarupp- skriftir sem hægt er að nota allt árið. VEISLUSÍLD 6 flök maríneruð Ora-síld 1 laukur 1 dl sýrður rjómi 2-3 græn epli soðin egg til skreytingar Skerið síldina í hæfilega bita og laukinn í jafna strimla og rað- ið á disk. Skerið eplin í teninga, blandið saman við sýrða rjómann og setjið á diskinn. Berið fram með brauði og soðnum kartöfl- um. ■ Villibráð er ómissan-di hluti haustsins á íslenskum heimilum og veitingastöðum og við- eigandi að fá sér öfl- ugt rauðvín með villi- bráðinni. Fáar þrúgur henta betur með ís- lensku villibráðinni en shiraz-þrúgan. Ís- lenska kjötið er frem- ur sætt og kryddað þar sem að dýrin lifa mikið á berjum og grösum. Shiraz-þrúg- an býður uppá gott mótvægi, vín úr henni eru allajafna berjarík og krydduð í senn og henta íslensku villi- bráðinni mjög vel. J. Lohr Shiraz er enn eitt gæðavínið frá þess- um kunna framleið- anda í Paso Robles í Kaliforníu sem kem- ur á markað hér á landi. Gott samræmi er milli þéttleika, sýru og fyllingu en á sama tíma er þægileg sæta og mild eik sem kemur fram í eftirkeim. Þetta er vínið bæði með hreindýrinu og villigæsinni en ekki síður með lamba- kjötinu sem er auð- vitað ekkert annað en villibráð! Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 1.790 kr. J. Lohr Shiraz með villibráðinni Nýtt í vínbúðum Bon Courage Shiraz erbragðmikið shiraz-vín frá Suður-Afríku (shiraz hentar sérlega vel með villibráðinni). Vínið hefur verið í stöðugri þróun og nýjasti árgangurinn hefur hlotið mikið lof undan- farið. Á vínsýningunni SA Young Wine Show hlaut vínið aðalverðlaunin, General Smuts Trophy, fyrir besta vín- ið á sýningunni. Þetta er gríð- arlegur heiður fyrir feðgana André og Jacques Bruwer sem standa á bak við Bon Courage og staðfestir stöðu Bon Courage sem einnar af leiðandi víngerðum Suð- ur-Afríku. Einnig fékk vínið 4 stjörnur í einu hel- sta vínblaði landsins, SA Wine Magazine. Ein- kunnargjöfin er unnin af Deloitte & Touche, sem lýsir víninu svo: Rautt, með fjólulit- aðri umgjörð. Vanilla og ávaxtaangan. Krydduð eik, pipar og svartir ávextir í safa- ríku bragði. Gott jafn- vægi, ásamt löngu ljúfu eftirbragði. Safaríkt og ljúffengt vín. Drekkist núna eða innan þriggja ára. Verð í Vínbúðum 1.150 kr. ■ 4 stjörnu vín frá S-Afríku Vín vikunnar JÓLASÍLD FRÁ ORA Tilvalin á jólahlaðborðið. Glæsilegt hádegisver›a hla›bor› Heitur réttur, salatbar, súpa, brau›, kaffi og te á a›eins 9 8 0 k r . Hla›bor›i› er opi› frá kl: 11.30-14.00 alla virka daga Listhúsinu í Laugardal Engjateig 17-19, sími 568 4255 www.veislugallery.is Auk fless bjó›um vi› upp á veislufljónustu og glæsilegan veislusal. Kaffihúsi› opi› virka daga frá kl: 9.00 -18.00 og laugardaga frá kl: 10.00-15.00 Alltaf næg frí bílastæ›i

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.