Fréttablaðið - 10.10.2003, Síða 38

Fréttablaðið - 10.10.2003, Síða 38
38 10. október 2003 FÖSTUDAGUR Í MÖRG HORN AÐ LÍTA Það verður nóg að gera hjá Ásgeiri Sigurvinssyni á næstu dögum. Fótbolti Íslenska A-landsliðið: Hermann, Pétur og Rúnar æfðu í gær FÓTBOLTI „Hermann Hreiðarsson, Pétur Marteinsson og Rúnar Kristinsson voru allir með á fyrri æfingunni og sluppu í gegnum hana,“ sagði Logi Ólafsson, annar þjálfara A-landsliðs karla. „En síðan ákváðum við í samráði við lækni og sjúkraþjálfara að hvíla Pétur og Rúnar á seinni æfing- unni. Hermann var með og það gekk mjög vel.“ „Í dag höldum við áfram þeirri venju að kalla hvern liðshluta, vörn, miðju og sókn, á minni fundi,“ sagði Logi. „Þar förum við yfir hlutverk hvers og eins innan hvers liðshluta. Síðan verður há- degismatur, hvíld og æfing á aðal- vellinum klukkan fimm.“ Eftir morgunmat í fyrramálið fara leikmennirnir í stutta göngu- ferð og eftir hvíld verður fundur með hópnum. „Við munum vænt- anlega ekki ná að tilkynna hóp eða lið fyrr en þá,“ sagði Logi. „Það telur hver sólarhringur, dagur og klukkutími í endurhæfingu þeirra sem eru meiddir og það hefur ekki verið lokað á neitt ennþá.“ Þjóðverjar léku gegn Skotum fjórum dögum eftir leikinn á Ís- landi. „Við Ásgeir sáum leikinn og við höfum trú á því að uppstilling Þjóðverja verði svipuð og hún var í þeim leik. Þá hurfu þeir aftur til fortíðarinnar og léku púra 3-5-2 leikkerfi. Það eru líkur á því að svo verði áfram. Við höfum séð tvær útgáfur af þýska liðinu og erum viðbúnir þó það komi ein- hver taktísk breyting. En við ger- um ráð fyrir að þeir muni spila leikkerfið 3-5-2,“ sagði Logi Ólafs- son landsliðsþjálfari. ■ Vonast eftir jafn- tefli gegn Skotum FÓTBOLTI Skotar fá Litháa í heim- sókn á laugardaginn kemur í 5. riðli undankeppni Evrópumóts- ins í knattspyrnu. Leikurinn skiptir Íslendinga miklu máli því fari Skotar ekki með sigur af hólmi er sæti okkar í umspili um laust sæti á Evrópumótinu í Portúgal tryggt. Skotar þurfa að sigra í leiknum til að komast í umspilið en einnig treysta á að Ísland tapi fyrir Þýskalandi á laugardag. „Þetta er afar mikilvægur leikur fyrir Skota því þeir eru að berjast um að komast í und- ankeppnina,“ sagði Algimatas Liubinskas, landsliðsþjálfari Lit- háen, í samtali við Fréttablaðið. „Þetta verður erfiður leikur fyrir okkur því við erum án sjö fasta- manna sem eru í leikbanni. Við munum samt reyna okkar besta.“ Liubinskas býst ekki við að Ís- lendingar fari með sigur af hólmi í Hamborg á laugardag en segir þó að allt geti gerst. „Þjóðverjar eru með gríðarlega sterkt lið og eru vanir því að leika mikilvæga leiki. Ég tel því ekki líklegt að Ís- land vinni en vonandi náum við jafntefli gegn Skotum og þá kemst Ísland í umspilið,“ segir Liubinskas. Litháíski landsliðsþjálfarinn segist eiga úr vöndu að ráða í leiknum gegn Skotum á Hamp- den Park þar sem sjö leikmenn liðsins eru fjarri góðu gamni. Hann segir fáa Litháa vera vana því að leika jafn mikilvæga leiki. „Ólíkt öðrum þjóðum í álfunni eru ekki margir leikmenn hjá okkur sem leika með liðum ann- ars staðar í Evrópu,“ segir lands- liðsþjálfarinn. Liubinskas segir leikinn þó sérstaklega mikilvægan fyrir Berti Vogts, landsliðsþjálfara Skota. Takist Skotum ekki að sigra í leiknum býst hann við að Vogts verði sagt upp störfum. „Það er erfitt að vera í þeirri stöðu sem Vogts er í. Hann er vanur því að vinna stóra titla í fótbolta en nú er hann að berjast fyrir lífi sínu,“ segir Algimatas Liubinskas, landsliðsþjálfari Lit- háen. kristjan@frettabladid.is Pétur Hafliði: Höfum trú á okkur FÓTBOLTI Pétur Hafliði Marteins- son gat tekið þátt í æfingu með ís- lenska landsliðinu í gær fyrir leik- inn gegn Þjóðverj- um á morgun. Þetta var fyrsta æfingin sem allir leikmenn íslenska liðsins tóku þátt í en þrír þeirra hafa átt við meiðs- li að stríða; Pétur, Rúnar Kristinsson og Hermann Hreiðarsson og óvíst hvort þeir verði klárir í slag- inn á laugardag. „Þetta verður strögl en við höf- um trú á okkur,“ sagði Pétur Hafliði í samtali við Fréttablaðið þar sem verið var að hlúa að hon- um eftir æfinguna. „Ég vil samt ekki spá fyrir um úrslitin. Ég er lélegur spámaður og spái alltaf með hjartanu. En ég hef fulla trú á því að við komum ánægðir af velli.“ Pétur Hafliði segir íslensku landsliðsmennina ekki hræðast neitt. „Þjóðverjar eru náttúrlega sterkir og eru silfurhafar úr síð- ustu heimsmeistarakeppni, þan- nig að við vitum alveg út í hvað við erum að fara. En við hræð- umst ekki neitt og komum fullir sjálftrausts í leikinn.“ ■ M ál þ in g - Í þ ró tt al ö g fr æ ð i Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samvinnu við Lagastofnun Háskóla Íslands heldur málþing um Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Föstudaginn 17. október 2003 kl. 14:00 - 17:00 Dagskrá Setning Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ Why Sports Law? - Because there are Sports Law Problems! Jens Evald, dr.jur. prófessor við Lagadeild Háskólans í Árósum Sports Law Krister Malmsten, yfirlögfræðingur Sænska knattspyrnusambandsins Samningar knattspyrnumanna við íslensk og erlend félagslið Álitamál og helstu ágreiningsefni Ólafur Garðarsson, hrl. UmræðurTekið er við skráningum í síma 514-4000 og á netfangið andri@isisport.is Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis Íþróttalögfræði BERTI VOGTS Skotar þurfa að sigra Litháa á Hampden Park á laugardaginn kemur til að tryggja sér sæti í umspili en verða um leið að treysta á að Ísland tapi fyrir Þýskalandi í Hamborg. Skoska landsliðið: Vogts vill halda áfram FÓTBOLTI Skotar hafa endurheimt þrjá sterka leikmenn, þá Christi- an Dailly, Steven Pressley og fyr- irliðann Barry Ferguson, fyrir leikinn gegn Litháum á morgun. Pressley og Ferguson eru báðir búnir að jafna sig af veikindum sem þeir áttu í. Kona Dailly átti hins vegar von á fjórða barni þeir- ra og óvíst var hvort hann yrði með. Hann ákvað þó að láta slag standa. Þetta er mikill léttir fyrir landsliðsþjálfarann Berti Vogts en Skotar berjast um að komast í umspil um laust sæti á EM við Ís- land og Þýskaland. Vogts segist tilbúinn að halda áfram með landsliðið þó svo það komist ekki í umspilið. „Ég er með langtímasamning og vildi gjarnan halda áfram með liðið. Við þurf- um að huga að yngri leikmönnum og undirbúa þá fyrir að leika með landsliðinu,“ sagði Vogts. ■ Þýskaland - Ísland: Ivanov dæmir FÓTBOLTI Rússinn Valentin Ivanov dæmir leik Þjóðverja og Íslend- inga í undankeppni Evrópumeist- arakeppninnar á laugardag. Ivanov hefur verið FIFA-dómari frá 1997 og hefur meðal annars dæmt tuttugu landsleiki í ýmsum aldursflokkum og þrettán leiki í Meistaradeildinni, síðast leik Juventus og Galatasararay fyrir þremur vikum. Ivanov dæmdi úrslitaleik Frakka og Kamerúna í Álfukeppn- inni í sumar og hefur dæmt leiki Rúmena og Norðmanna og Ítala og Finna í undankeppni Evrópu- meistarakeppninnar. ■ ■ ■ LEIKIR  19.15 Afturelding keppir við Gróttu/KR að Varmá í norðurriðli RE/MAX-deildar í handbolta.  19.15 Grindavík fær Njarðvík í heimsókn í INTERSPORT-deildinni í körfubolta.  19.15 Keflavík og Hamar keppa í Keflavík í INTERSPORT-deildinni í körfu- bolta.  20.00 KA leikur við Víking í KA- heimilinu í norðurriðli RE/MAX-deildar karla í handbolta.  20.00 Valur mætir Fram í Vals- heimilinu í norðurriðli RE/MAX-deildar karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og er- lendis.  18.30 Trans World Sport (Íþróttir um allan heim) á Sýn.  19.30 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) á Sýn.  20.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  20.30 Western World Soccer Show (Heimsfótbolti West World) á Sýn.  21.00 Fréttaþáttur um Meistara- deild Evrópu á Sýn.  21.30 Fastrax 2002 (Vélasport) á Sýn. Hraðskreiður þáttur þar sem öku- tæki af öllum stærðum og gerðum koma við sögu.  22.00 Mótorsport 2003 á Sýn. Ítar- leg umfjöllun um íslenskar akstursíþrótt- ir.  04.50 Formúla 1 á RÚV. Bein út- sending frá tímatöku fyrir kappaksturinn í Japan. PÉTUR HAFLIÐI MARTEINSSON Verður vonandi með í leiknum gegn Þjóðverjum á laugardag. Algimatas Liubinskas landsliðsþjálfari Litháen vonast eftir jafntefli gegn Skotum á laugardag. Segir skoska landsliðsþjálfarann vera að róa lífróður. ÍSLAND - LITHÁEN Liubinskas þjálfaði litháíska landsliðið á árunum 1991-1995. Hann var um tíma þjálfari U- 21 árs landsliðs Litháen en tók aftur við A-liðinu í byrjun þess árs. Hann segist ekki vita hvort hann verði með landsliðið áfram eftir að riðlakeppni EM lýkur. hvað?hvar?hvenær? 7 8 9 10 11 12 13 OKTÓBER Föstudagur HERMANN HREIÐARSSON Hermann tók þátt í báðum æfingum landsliðsins í gær.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.