Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 22

Fréttablaðið - 10.10.2003, Side 22
22 10. október 2003 FÖSTUDAGUR ■ Andlát Auðvitað gengu Kanadabúar ígegnum ýmsar hremmingar í kringum 1970 rétt eins og flestar aðrar þjóðir. Í Kanada gerðist það að aðskilnaðarsinnar í Quebec rændu vinnumálaráðherranum á þessum degi fyrir 33 árum. Þeir kröfðust þess að félagar þeirra úr FLQ (Frelsisher Quebec) yrðu látnir lausir úr fangelsi. En áður höfðu þeir rænt viðskiptafulltrúa Bretlands og sögðu að þessir menn myndu deyja yrði ekki orð- ið við óskum þeirra. Sem og gerðist því viðskipta- fulltrúi Breta var drepinn en Pierre Laporte vinnumálaráð- herrann lifði einhvers staðar í haldi og stjórn Quebec sendi út beiðni um aðstoð frá ríkisstjórn Kanada. Hún kom í formi her- deilda og á örfáum dögum var lýst yfir neyðarástandi, herlög sett, og hundruðir aðskilnaðarsinna settir í hald lögreglu án þess að mál þeirra færi fyrir dómstóla. Svo var það loksins í desember að yfirvöld komust í samband við mannræningja Laporte og sömdu við þá um að þeir slepptu honum og fengju í staðinn að fara í útlegð til Kúbu. Það gerðist en síðar voru mannræningjarnir handteknir og dæmdir sekir fyrir morð og mannrán. ■ Björgvin Janus Eiríksson, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést mánudaginn 29. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Brynjar Þór Leifsson, Blásölum 17, lést mánudaginn 6. október. Haukur Gíslason, Holti, Breiðdalsvík, lést fimmtudaginn 2. október. Helga Þorkelsdóttir, Borgarbraut 43, Borgarnesi, lést þriðjudaginn 7. október. Kristbjörg Jónsdóttir lést laugardaginn 27. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Stefanía Kristín Árnadóttir frá Gegnis- hólaparti í Gaulverjabæjarhreppi lést mánudaginn 6. október. ■ Jarðarfarir 13.30 Erika Vilhelmsdóttir verður jarð- sungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.30 Hafsteinn Eðvarð Oddsson, dval- arheimilinu Grund, áður til heimil- is að Lynghaga 6, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju. Hundaræktarfélag Íslands stóðfyrir því að heiðra í fyrsta sinn afrekshund ársins á haustsýn- ingu félagsins um helgina. Fyrir valinu urðu fjórir hundar sem höfðu það hlutverk að taka þátt í tilraun á öldrunardeild Landakotsspítala. „Við fórum með hundana tvisvar í mánuði á deildir fyrir heilabilað gamalt fólk sem margt hvert var alveg farið út úr heiminum,“ segir Halldóra Frið- riksdóttir sem á Cavalerhundinn Nettu. Halldóra segir alveg ótví- rætt að koma þeirra með hundana hafi haft mjög góð áhrif og margir sem áttu mjög erfitt með að tjá sig og gerðu það sjaldan brugðust við með gleði og vildu klappa og halda á hundunum. „Þetta var óskaplega gefandi og skemmtilegt og ég hlakkaði alltaf til að koma með Nettu. Gamla fólkið sagði frá lífinu í sveitinni og hundunum sínum og greinilegt var að það lifnaði allt við,“ segir Halldóra en ásamt Nettu voru þrír aðrir hunda, tveir íslenskir og einn Pommerian. Hall- dóra segir að það hafi komið í ljós að smáhundarnir hafi reynst betur því þeir eru mannblendnari og sjúklingarnir gátu haldið á þeim í kjöltu sinni en íslensku hundarnir lágu frekar á gólfinu. „Það fór hins vegar ekki á milli mála að karl- mennirnir voru hrifnari af þeim ís- lensku, þóttu þeir meiri hundar en minni hundarnir,“ segir Halldóra sem hefur haldið áfram að fara með hundana sína í heimsókn á öldrunarheimilin þrátt fyrir að til- rauninni sé formlega lokið. „Mig langar mjög mikið til að fara með þá í heimsókn á barnadeildir og þá sérstaklega þar sem liggja lang- veik börn,“ segir Halldóra sem vonar að það verði næsta skrefið og er viss um að hundar hafi ekki síður góð áhrif á börn en gamal- menni. ■ Afrekshundar ■ Þeir voru heiðraðir sérstaklega á haustsýningu Hundaræktarfélagsins fyrir að gleðja gamla fólkið á öldrunardeild Landakots. Yfir gamla fólkinu lifnaði og margir sem ekki höfðu tjáð sig lengi töl- uðu um hundana sína og sveitina í gamla daga. Hundar gleðja gamla fólkið Ég hef verið í Frakklandi að und-anförnu þar sem vínmenning á sér langa sögu og fór að velta fyrir mér hvort það sem vantaði heima væri ekki einmitt fræðsla um allt sem tengist víni,“ svarar Dúi Land- mark kvikmyndagerðarmaður sem hefur svipt sér úr gervi kvik- myndagerðarmannsins um stund og klæðst kápu bókaútgefandans með því að gefa út bók um vín. Eftir að hann áttaði sig á að okk- ur Íslendingum væri nauðsynlegt að eiga þannig bók, fór hann á stúf- ana og velti um nokkrum steinum í Frakklandi og hringdi síðan í Þorra Hringsson. „Mér fannst Þorri hafa skrifað skemmtilega um þessa hluti og hann gerir það á manna- máli en ekki eins og rigni upp í nefnið á honum. Því tókum við þá ákvörðun eftir okkar fyrsta fund að koma þessari bók út. Þorri sett- ist niður í vor og hóf skriftir með- fram því að mála norður í Aðaldal og lauk bókinni í sumar,“ segir Dúi sem leitaði eftir samstarfi við vín- innflutningsaðila en tekur skýrt fram að það séu ekki nein vín aug- lýst umfram önnur. Í bókinni er leitast við að svara algengum spurningum sem fólk er alltaf að spyrja sig. „Menn eru ekki alltaf með það á hreinu hvort hvítvín passi við kjúkling eða hvort hægt sé að hafa rósavín með einhverju öðru. Margir vilja vita meira um vín og eiginleika þeirra eftir því hvaðan þau koma. Hvaða stærð á glösum nota á eru mönnum ekki alltaf ljóst,“ segir Dúi og bæt- ir við að það hafi verið eins og að tappa vatni af krana að fá Þorra til að skrifa bókina. „Hann er vínsér- fræðingur og veit allt um vín. Hef- ur lengi safnað að sér upplýsing- um og átti ekki í neinum vanda með að skrifa bókina,“ segir hann og bætir við að í bókinni séu einnig nokkrar mataruppskriftir. Bókin er skemmtilega mynd- skreytt af Halldóri Baldurssyni en engar ljósmyndir eru í bókinni. „Það er ekki endilega nauðsynlegt að lesa bókina frá upphafi til enda, hún er ekki síður gott uppflettirit ef einhverjar spurningar vakna þegar von er á gestum. Allt sem menn þurfa að fá að vita finnst í bókinni sem er mjög aðgengileg og þægileg í uppsetningu,“ segir Dúi Landmark sem nú dvelur í Frakk- landi og starfar með franskri sjón- varpsstöð við þáttagerð. ■ Tímamót DÚI LANDMARK KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR ■ Hann er í Frakklandi og vinnur að þáttagerð með franskri sjónvarpsstöð. Meðfram þeirri vinnu var hann að gefa út bók sem svarar öllu því sem menn þurfa að vita um vín. HAROLD PINTER Skáldið er 73 ára í dag. 10. október ■ Þetta gerðist 732 Charles Martel, kristinn Frakki, verst fimlega innrás herliðs Mára í Frakklandi. 1865 John Wesley Hyatt fær einkaleyfi fyrir Billíard-kúlunni. 1911 Sun Yat-sen tekst að koma Manchus frá völdum í Taívan. Þjóðhátíðardagur þeirra. 1973 Varaforseti Bandaríkjanna, Spiro Agnew, segir af sér. 1974 I Honestly Love You með Oliviu Newton-John er á toppi listans. 1985 Orson Welles deyr, 70 ára. 1985 Palestínumennirnir sem rændu ítalska skemmtiferðaskipinu Achille Lauro neyðast til að gef- ast upp. 1999 Árþúsundahjólið í Lundúnum opnað. KANADÍSKIR HERMENN Fyrir 33 árum voru sett herlög Quebec vegna mannránsins á Pierre Laporte vinnumálaráðherra. Rændu ráðherra MANNRÁN ■ Aðskilnaðarsinnar í Kanada rændu vinnumálaráðherranum í Quebec á þessum degi fyrir 33 árum. Þeir kröfðust þess að fé- lagar þeirra yrðu látnir lausir úr fangelsi. 10. október 2001 Frakkarnir komu honum á bragðið HAUSTDAGAR Í HÓLAGARÐI 9. 10. og 11. október. Tilboð, vörukynningar og uppákomur. HÓLAGARÐUR Lóuhólum 2-6 ■ Afmæli Sigurlaug Rósinkranz óperusöngkona, 68 ára. Matthías Halldórsson aðstoðarland- læknir, 55 ára. Ragnhildur Guðrún Richter, túlkur og sálfræðinemi, 33 ára. DÚI LANDMARK Hann er í Frakklandi að vinna að sjónvarpsþáttum fyrir franska sjónvarpsstöð. Hér er hann við vinnu sína hjá frönskum vínbónda. AFREKSHUNDAR ÁRSINS MEÐ EIGENDUM SÍNUM Frá vinstri: Kristín Sveinbjörnsdóttir með mynd af Kröku, sem var orðin fimmtán ára og lést á árinu, Ágústa Berg með Pommerian-tíkina Skoppu, Helga Andrésdóttir með Stjörnu og Halldóra Friðriksdóttir með Nettu. Lengst til hægri er Þórhildur Bjartmarz formaður HRFÍ. ■ Tilkynningar Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um dán- arfregnir, jarðarfarir, afmæli eða aðra stórviðburði. Tekið er á móti tilkynningum á tölvupóstfangið: tilkynningar@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.