Fréttablaðið - 13.03.2004, Page 1
STJÓRNMÁL Árni Magnússon félags-
málaráðherra gagnrýndi harðlega
starfsemi íslensku viðskiptabank-
anna á iðnþingi í gær. Hann sagði
það verulegt umhugsunarefni
með hvaða hætti þeir hefðu breyst
á undanförnum árum.
„Það sem áður voru þjónustu-
stofnanir á sviði fjármála við
heimilin og atvinnulífið eru nú
orðnir virkir gerendur á fyrir-
tækjamarkaði. Er það raunveru-
lega svo að eðlilegt sé að einstakir
viðskiptabankar verji mestum
kröftum sínum og fjármunum,
jafnvel með stórkostlegum er-
lendum lántökum, í að brytja nið-
ur fyrirtæki í íslensku viðskipta-
lífi, til hagnaðar fyrir sjálfa sig,“
spurði hann í ræðu sinni. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 58
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 56
Sjónvarp 60
LAUGARDAGUR
DAGURINN Í DAG
13. mars 2004 – 72. tölublað – 4. árgangur
MILLJÓNIR MÓTMÆLTU Spánverjar
sýndu samstöðu með því að fjölmenna út
á götur í gærkvöldi. Þjóðlíf er í lamasessi.
ETA neitar aðild að árásunum. Talið er að
ódæðin geti haft áhrif á þingkosningar á
morgun. Sjá síðu 2
ENSKI Á SKJÁ 1 Skjár einn hefur feng-
ið einkarétt á útsendingum frá ensku knatt-
spyrnunni næstu þrjú árin. Skjárinn skoðar
samstarf við RÚV og Símann um útsend-
ingar. Sjá síðu 4
JÁTNINGAR Þremenningarnir sem sitja í
varðhaldi vegna líkfundarins í Norðfirði
gáfu hinum látna sterkt morfínlyf í tvo sól-
arhringa áður en hann lést. Tveir sakborn-
inga hafa játað aðild að málinu. Sjá síðu 6
GRÓF BROT Jón Steinar Gunnlaugsson
telur Hæstarétt hafa brotið gróflega á skjól-
stæðingum sínum í máli er varðar lækna-
mistök. Hann útilokar ekki málskot til
Evrópudómstóls. Sjá síðu 8
Atvinnulaus í Englandi
● í sporum kóngsins í 10 ár
Steinn Ármann Magnússon:
▲
SÍÐA 36
Í sambandi við
Elvis
● ekki systir jóhönnu
Þórey Vilhjálmsdóttir:
▲
SÍÐA 18
Nýtt andlit í
Íslandi í dag
● félagið lagt niður
BDSM-félagið:
▲
SÍÐA 34
Engin aðsókn
í sadómasó
Guðjóni Þórðarsyni var fyrir rúmri viku
sagt upp störfum hjá enska knattspyrnu-
liðinu Barnsley. Hann hefur ekki lagt árar
í bát og ætlar að reyna komast aftur að í
Englandi. ▲SÍÐA 28 og 29
● toyota prius ● nudd í bílnum
Silfurgrár vin-
sælasti liturinn
bílar o.fl.
Hannes Strange:
▲
SÍÐUR 34 og 35
VEÐRIÐ Í DAG
LOKSINS LOKSINS má fara að búast
við sæmilega hægum vindi á Reykjavíkur-
svæðinu. Úrkomusamt suðaustan og sunn-
an til. Þurrt nyrðra. Áfram milt. Sjá síðu 6.
Guðjón Þórðarson:
Hitnar í kolunum
George W. Bush hóf nýja auglýsingaherferð
í sjónvarpi í gær gegn mótframbjóðanda sín-
um John Kerry. Kerry svaraði af hörku. Hiti
færist nú óðum í baráttuna.
ÚRVALSDEILDIN Í HANDBOLTA
Heil umferð verður í úrvalsdeild RE/MAX í
handbolta karla í dag. Fram og KA leika í
Framhúsinu klukkan 15. ÍR og Grótta KR
mætast í Austurbergi klukkan 16.30 og á
sama tíma hefst toppslagur Hauka og Vals
að Ásvöllum. Loks eigast botnliðin, Stjarn-
an og HK við í Ásgarði og hefst leikur þeir-
ra klukkan 17.
SÍÐA 24 og 25
▲
Bandaríkin:
STRAND Fjöldi manna vann að björg-
un fjölveiðiskipsins Baldvins Þor-
steinssonar EA-10 í Skarðsfjöru í
gær. Að björguninni komu þyrlur
frá Landhelgisgæslunni og varnar-
liðinu, auk björgunarsveita úr Vest-
ur-Skaftafellssýslu, mönnum frá
Samherja og Tryggingamiðstöðinni.
Undirbúningur stóð mestallan
daginn í gær. Hluti skipverja Bald-
vins Þorsteinssonar voru fluttir um
borð í skipið með þyrlu Landhelgis-
gæslunnar, TF-SIF, um hádegi í gær.
Þá voru tóg og fleiri hlutir til björg-
unaraðgerða flutt með þyrlunum í
gær. Reynt verður að toga skipið á
flóði í dag ef veður leyfir.
„Það verður bara að fara hverja
ferð fyrir sig og sjá hvernig það
gengur. Við leigðum flugvél frá
Flugleiðum sem fór til Noregs og
sótti fyrir okkur tóg og fleiri hluti
sem komu til Keflavíkur í gær og
var í framhaldinu flutt hingað,“ seg-
ir Þorsteinn Már Baldvinsson.
„Þessi undirbúningsvinna er
tímafrek og tafsöm að ekki gafst
tími til að draga skipið í gær. Við
verðum að sjá hvort ekki náist að
draga skipið á eftir eða í kvöld. Allt
fer það eftir hvernig veðrið verður,
það er eina aflið sem við ráðum ekki
við,“ segir Kristján Vilhelmsson.
Sjá bls. 4
VIÐSKIPTI Landsamband íslenskra
útvegsmanna seldi allan hlut sinn
í Íslandsbanka á fimmtudag. Út-
vegsmenn áttu 114 milljónir
króna að nafnvirði sem seld voru
á genginu 7,6. Verðmæti viðskipt-
anna var því vel á níunda hundrað
milljónir króna. Góð ávöxtun hef-
ur verið af bréfum Íslandsbanka
undanfarin ár og útgerðarmenn
því hagnast ágætlega á sölunni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins liggur ástæðan ekki síður
í óánægju LÍÚ með brotthvarf
Kristjáns Ragnarssonar úr banka-
ráði bankans. Fyrir lá vilji Krist-
jáns að sitja eitt kjörtímabil enn
og studdu útvegsmenn sinn gamla
formann. Samkvæmt þessu greiða
útvegsmenn atkvæði í Íslands-
banka með sölu bréfanna. Bréfin
hafa verið í eigu LÍÚ frá stofnun
bankans. Hvorki Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, né Björgólfur Jóhannsson,
formaður sambandsins, vildu tjá
sig um málið.
Töluverð barátta var um völdin
í Íslandsbanka fyrir aðalfund
bankans. Kristján stefndi að því
að sitja áfram sem formaður, en
Víglundur Þorsteinsson og
Helgi Magnússon studdu Einar
Sveinsson til formennsku í
bankaráðinu. Kristján varð und-
ir í baráttunni um sæti í banka-
ráðinu og mislíkar útvegsmönn-
um niðurstaðan.
Kristján Ragnarsson hefur tal-
að mjög ákveðið gegn ásókn
Landsbankans í Íslandsbanka og
sagði í kveðjuræðu sinni á aðal-
fundi bankans að í ljósi samskipta
við forsvarsmen Landsbankans
teldi hann heppilegast að vinna að
markmiðum Íslandsbanka án
tengsla við þá. Talið er að öfl inn-
an bankaráðsins séu á annarri
skoðun í þeim efnum.
haflidi@frettabladid.is
Árni Magnússon félagsmálaráðherra:
Eiga bankar að brytja
niður fyrirtækin?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
ÁRNI MAGNÚSSON
Félagsmálaráðherra var hvassyrtur í garð viðskiptabankanna á iðnþingi í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
E
LM Allt tilbúið í Skarðsfjöru:
Vonast til að ná
Baldvini á flot
KRISTJÁN VILHELMSSON ÚTGERÐARMAÐUR
Tók þátt í undirbúningi björgunar Baldvins
Þorsteinssonar í gær. Hér er hann að aðstoða
varnarliðsmann við að hengja togvír, sem verður
notaður til að draga Baldvin á flot, í þyrlu .
Útgerðin úr
Íslandsbanka
Útvegsmenn eru ósáttir við brotthvarf síns
gamla formanns úr bankaráði Íslandsbanka.