Fréttablaðið - 13.03.2004, Síða 6
6 13. mars 2004 LAUGARDAGUR
■ Afríka
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 70.66 -0.30%
Sterlingspund 127.01 -0.23%
Dönsk króna 11.63 0.19%
Evra 86.64 0.17%
Gengisvísitala krónu 120,08 -0,10%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 459
Velta 8.841 milljónir
ICEX-15 2.531 0,7%
Mestu viðskiptin
Eimskipafélag Íslands Hf. 2.995.857
Landsbanki Íslands hf. 615.350
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 257.471
Mesta hækkun
Og fjarskipti hf. 4,76%
Hlutabréfamarkaðurinn hf. 4,48%
Opin Kerfi Group hf. 2,55%
Mesta lækkun
Austurbakki hf -5,68%
Eimskipafélag Íslands Hf. -0,99%
Flugleiðir hf. -0,67%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.193,6 0,6%
Nasdaq* 1.969,4 1,3%
FTSE 4.467,4 0,5%
DAX 3.915,4 0,3%
NK50 1.407,2 0,1%
S&P* 1.115,9 0,8%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Hver er nýr stjórnarformaður Flug-leiða?
2Hver er framkvæmdastjóri krabba-meinsskrár?
3Nýr skemmtistaður var opnaður íHafnarstræti í gærkvöld. Hvað heitir
hann?
Svörin eru á bls. XX
Juceviciusi gefið
contalgin í tvo daga
Staðfest er að þremenningarnir, sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna líkfundarins í Norðfirði, gáfu
unga manninum sterkt morfínlyf í tæpa tvo sólarhringa áður en hann lést. Maður sem
handtekinn var á fimmtudag játaði við yfirheyrslur að hafa selt þremenningunum lyfið.
LÍKFUNDUR Staðfest hefur verið að
Litháanum, sem fannst látinn í
höfninni í Norðfirði, var gefið
sterkt morfínefni, contalgin eða
svokallað læknadóp, áður en hann
lést. Karlmaður á þrítugsaldri var
handtekinn á
fimmtudag og
játaði hann við
yfirheyrslur að
hafa selt einum
þ r e m e n n i n g -
anna, sem sitja í
gæsluvarðhaldi,
m o r f í n l y f i ð .
Maðurinn stað-
festi framburð
sinn fyrir Hér-
aðsdómi Reykja-
víkur og var honum sleppt að því
loknu.
„Maðurinn seldi einum sak-
borninga nokkrar töflur af
contalgini en það er þekkt lyf á
neyslumarkaði. Það er líklegt að
hinum látna hafi verið gefið lyfið
í einn til tvo sólarhringa áður en
hann lést. Rannsóknir á sýnum úr
hinum látna ganga meðal annars
út að finna hve mikið magn af lyf-
inu hann tók og hvort og þá hvaða
áhrif lyfjagjöfin hafi haft á heilsu
mannsins,“ sagði Arnar Jensson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
Ríkislögreglustjóra.
Heimildir herma að tveir sak-
borninga í líkfundarmálinu í Nes-
kaupstað hafi játað aðild sína að
málinu. Fréttablaðið greindi frá
því fyrir nokkru að Grétar Sigurð-
arson hafi játað aðild sína og nú
mun Tomas Malakauskas einnig
hafa játað. Þriðji sakborningur-
inn, Jónas Ingi Ragnarsson, neitar
allri aðild.
„Við gefum ekkert upp um
framburði þremenninganna sem
sitja í gæsluvarðhaldi vegna rann-
sóknar málsins. Við höfum fram
að þessu neitað að afhenda verj-
endum, og þar með sakborning-
um, aðgang að gögnum málsins.
Fyrstu gögnin verða hins vegar
afhent í dag, föstudag. Þá eru
þrjár vikur liðnar frá handtöku
mannanna,“ sagði Arnar Jensson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
Ríkislögreglustjóra, í gær og
bætti við að síðan fengju verjend-
ur og sakborningar aðgang að nýj-
um gögnum daglega.
Arnar sagði að afhending gagn-
anna nú breytti litlu um gang
rannsóknarinnar en afhending
gagna á fyrri stigum hefði breytt
töluverðu.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins skipulagði Malakauskas
innflutning á fíkniefnunum sem
fundust í iðrum hins látna. Þegar
efnin skiluðu sér ekki niður af
Jucevicius var brottför hans héð-
an til Kaupmannahafnar frestað
um einn dag. Síðar var ákveðið að
hann yrði sendur til baka, þrátt
fyrir að efnin hefðu ekki skilað
sér. Föstudaginn 6. febrúar veikt-
ist Jucevicius svo hastarlega og
var þá haldið með hann til baka í
íbúð Malakauskas. Jucevicius var
þá mjög illa haldinn og lést hann
aðfaranótt 7. febrúar.
Þremeningarnir óku með líkið
austur og komu því fyrir í höfn-
inni í Norðfirði þar sem það
fannst síðan 11. febrúar.
Sakborningarnir þrír komu
fyrir dómara í Héraðsdómi
Reykjavíkur á fimmtudag og stað-
festu þar ítarlegar frásagnir sem
þeir höfðu gefið í yfirheyrslum
hjá lögreglu. Heimildir herma að
yfirheyrslurnar hafi enn styrkt
þann grun lögreglu að atburðarás
hafi verið með þeim hætti sem
lýst var þegar upphaflega var
gerð krafa um gæsluvarðhald yfir
mönnunum þremur.
the@frettabladid.is
Afmæli Mladics:
Fékk kaldar
kveðjur
SARAJEVO, AP Kveðjurnar sem frið-
argæsluliðar Atlantshafsbanda-
lagsins í Bosníu sendu Ratko Mla-
dic, sem leitað er vegna stríðs-
glæpa, voru heldur kaldar. Aug-
lýsingar og veggspjöld með mynd
af handjárnum og texta um að
fljótlega verði þetta eina gjöfin
handa Mladic sást víða í Pale í
Bosníu þar sem Mladic réði áður
ríkjum.
Mladic, sem hélt upp á 62 ára
afmæli sitt, hefur verið í felum
frá því borgarastríðinu í
Júgóslavíu lauk. Hann er talinn
halda sig að mestu í Serbíu en
einnig af og til í Bosníu. ■
EIGURNAR FRYSTAR Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti
einróma að frysta eigur Charles
Taylor, fyrrum leiðtoga Líberíu,
fjölskyldu hans og samstarfs-
manna. Öll aðildarríki heims
verða að framfylgja ákvörðun-
inni. Taylor er ákærður fyrir
stríðsglæpi með stuðningi við
uppreisn í Sierra Leone.
43 FELLDIR Yfirvöld í Chad segja
her sinn hafa fellt 43 vígamenn
hreyfingar sem grunuð er um
tengsl við al-Kaída hryðjuverka-
samtökin. Þrír hermenn féllu og
átján særðust í tveggja daga bar-
dögum. Bandaríkin aðstoða yfir-
völd í baráttunni við meinta
hryðjuverkamenn og telja al-
Kaída reyna að fá landsmenn til
liðs við sig.
Netsalan ehf.
Knarravogur 4, - 104 Reykjavík - Sími 517 0220
Netfang: netsalan@itn.is
RISATILBOÐ
OPIÐ Í DAG LAUGARDAG FRÁ KL. 11.00 - 16.00
á nýjum Cherokee jeppum árg. '03
og Dodge Ram 2500 Quad Cab
Laramie, leður, árg. '04
Cherokee Overland
'03 og '04
Einnig eigum við til á súperverði
Dodge Ram 1500 quad cab bensínbíll, árg. '03
Alltaf
með
nýung
ar
LEIDDUR FYRIR DÓMARA
Tomas Malakauskas, sem hér er á leið í
Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur samkvæmt
heimildum blaðsins játað aðild að
líkfundarmálinu í Norðfirði.
„Það er lík-
legt að hinum
látna hafi ver-
ið gefið lyfið í
einn til tvo sól-
arhringa áður
en hann lést.
NETAGERÐARBRYGGJAN Í NORÐFIRÐI
Þremenningarnir vöfðu teppi um lík Vaidasar
Juceviciusar, óku með það frá Reykjavík til
Norðfjarðar, og hentu því í höfnina. Tveir þre-
menninganna hafa játað aðild að málinu.
Þingmenn tókust á þegar forseti Suður-Kóreu var sviptur völdum:
Handalögmál á þinginu
SEÚL, AP Það gekk mikið á þegar
suður-kóreska þingið svipti Roh
Moo-hyun völdum í atkvæða-
greiðslu í fyrrinótt. Stuðnings-
menn forsetans tóku sér stöðu við
stól þingforsetans til að koma í
veg fyrir að af atkvæðagreiðsl-
unni gæti orðið. Flutningsmenn
þurftu því að brjóta sér leið að for-
setastólnum til að tryggja að
atkvæði yrði greidd um frumvarp-
ið áður en frestur til þess rann út.
Það var ekki bara í þinginu
sem menn deildu. Einn stuðnings-
maður forsetans kveikti í sér
fyrir framan þinghúsið og annar
reyndi að keyra bíl sínum inn í
þinghúsið.
Suður-kóreska þingið hefur
aldrei áður svipt forseta völdum
sínum. Samþykktin er þó ekki
endanleg því stjórnlagadómstóll
þarf að taka afstöðu til þess
hvort forsetanum verði vikið frá
eða ekki. Í millitíðinni fer for-
sætisráðherrann með völd for-
setans, þar á meðal yfir hernum
sem hann skipaði í viðbragðs-
stöðu við landamærin að Norð-
ur-Kóreu.
Þingmenn sviptu Roh völdum
vegna brota hans á kosningalög-
gjöf. Gagnrýnendur andstæð-
inga forsetans segja þeirra eig-
in brot á kosningalöggjöf enn
stórtækari en forsetans. ■
SLEGIST UM VÖLDIN
Stuðningsmenn Roh reyndu sitt besta til
að koma í veg fyrir fall hans og reyndu að
meina þingforsetanum aðgang að stól
sínum þaðan sem hann stjórnar fundum
þingsins. Hefðu þeir haldið út nokkru leng-
ur hefði vantrauststillagan fallið á tíma.