Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 17
Með þeirri yfirlýsingu semríkisstjórnin gaf síðastliðinn
sunnudag í tengslum við gerð
kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði var tekin ákvörðun
sem markar ánægjuleg tímamót í
baráttunni fyrir bættum hag at-
vinnulausra. Yfirlýsingin felur í
sér að atvinnuleysisbætur verða
hækkaðar um 9 þúsund krónur á
mánuði þegar í stað, eða um
11,3%. Síðan munu atvinnuleysis-
bætur hækka í takt við þær hækk-
anir sem kveðið er á um í nýgerð-
um kjarasamningi Flóabandalags-
ins og Starfsgreinasambandsins
við atvinnurekendur.
Við upprifjun á því hvernig
stjórnvöld hafa
staðið að endur-
skoðun atvinnu-
leysisbóta aftur til
ársins 1991 kemur í
ljós að aldrei fyrr á
þessu tímabili hafa
atvinnuleysisbæt-
ur hækkað jafn-
mikið í einu.
Fullar atvinnu-
leysisbætur hækka með þessari
ákvörðun ríkisstjórnarinnar úr
79.767 krónum í 88.767 krónur á
mánuði.
Munur á bótum og lægstu
launum minnkar verulega
Fyrir gerð samninganna nú
var munur milli lægstu launa-
taxta og atvinnuleysisbóta um
tíu þúsund krónur. En eftir yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar um
11,3% hækkun bótanna og þær
3,25% upphafshækkanir sem
verða við gildistöku kjarasamn-
ingins er þessi munur kominn
niður í 3.633 krónur.Vissulega er
það ekki há fjárhæð og ljóst er
að enn má bæta kjör atvinnu-
lausra. Það ber hins vegar að
halda því til haga sem vel er gert
og þegar mikilvægum áföngum
er náð í þeirri baráttu. Þessi
áfangi á þeirri leið að jafna at-
vinnuleysisbætur og lágmarks-
laun er okkur framsóknarmönn-
um sérstakt fagnaðarefni því
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
færir okkur nær því baráttu-
máli, sem er að finna í stefnu-
skrá Framsóknarflokksins, að
stefna beri að því að atvinnu-
leysisbætur verði ekki lægri en
lægstu launataxtar.
Endurskoðun atvinnuleysis-
trygginga
Félagsmálaráðherra hefur lýst
því yfir á Alþingi að endurskoðun
atvinnuleysistryggingakerfisins
standi fyrir dyrum. Í því starfi
munum við framsóknarmenn hafa
að leiðarljósi að leita nýrra leiða
til þess að bæta hag atvinnu-
lausra. Þar hlýtur meðal annars
að koma til álita sú spurning hvort
fjárhæð atvinnuleysisbóta skuli
að einhverju leyti vera tengd við
tekjur atvinnulausra í síðasta
starfi. Augljóst er þó, að mínu
mati, að slík tenging gæti aldrei
náð upp allan launaskalann því
fráleitt væri að útbúa kerfi, sem
tryggir hálaunamönnum fast hlut-
fall þeirra launa sem þeir nutu í
síðasta starfi. Eðlilegra væri að
slík tekjutenging tæki mið af töxt-
um á almennum vinnumarkaði. ■
17LAUGARDAGUR 13. mars 2004
■
Fullar atvinnu-
leysisbætur
hækka með
þessari ákvörð-
un ríkisstjórnar-
innar úr 79.767
krónum í
88.767 krónur á
mánuði.
Umræðan
BIRKIR J.
JÓNSSON
■
skrifar um
atvinnuleysis-
bætur.
*
V
I‹
U
P
P
H
Æ
‹
IN
A
L
E
G
G
J
A
S
T
0
,5
%
S
T
IM
P
IL
G
J
Ö
L
D
.
G
IL
D
IR
F
R
A
M
a
›
p
á
s
k
u
m
.
opi›: laugardaga 10-16 og sunnudaga 13-16
EF KEYPT ER FYRIR 100.000 KR. E‹A MEIRA*
BJÓ‹UM VAXTALAUSAR GREI‹SLUR Í 12 MÁNU‹I
VAXTALAUS HAMINGJA
Bush sófi, tveggja sæta 9.631 kr.
Dæmi um ver› í 12 mánu›i vaxtalaust
Ventage bor›stofubor›
og 6 stólar 10.804 kr.
Dæmi um ver› í 12 mánu›i vaxtalaust
11,3% hækkun
atvinnuleysisbóta
100% ATVINNULEYSISBÆTUR
1991 - 2004
Dagsetning Fjárhæð á mánuði %
01.03.1991 44.467
01.06.1991 45.615 2.60%
01.05.1992 46.395 1.70%
21.02.1995 50.036 7.80%
01.01.1996 52.723 5.40%
01.01.1997 53.785 2.00%
01.03.1997 55.930 4.00%
01.08.1997 57.339 2.50%
01.01.1998 59.636 4.00%
01.01.1999 62.020 4.00%
01.01.2000 64.252 3.60%
01.01.2001 66.635 3.70%
01.02.2001 67.979 2.00%
01.01.2002 73.765 8.50%
01.01.2003 77.449 5.00%
01.01.2004 79.767 3.00%
01.03.2004 88.767 11.30%
KJARASAMNINGAR RÆDDIR
Ráðherrar úr ríkisstjórn ræða við forkólfa
Flóabandalagsins og Starfsgreina-
sambandsins vegna kjarasamninga.