Fréttablaðið - 13.03.2004, Page 18
Víða um Evrópu greip sig of-urótti sumarið 1910 þegar
fregnir bárust af því að hala-
stjarna Halleys myndi rekast á
jörðina og valda heimsendi.
„Það er verið að byggja Gas-
stöðina hér í Reykjavík þetta
sama sumar,“ segir Stefán Páls-
son sagnfræðingur, sem heldur
erindi um sögu Gasstöðvarinnar
á ráðstefnu í tilefni hálfrar aldar
afmælis Borgarskjalasafnsins í
dag. „Það varð frægt í bæjar-
slúðrinu að einhverjir hafi tekið
með sér brennivín í Gasstöðina
þegar heimsendir var í nánd og
hafst þar við fram að lokastund-
inni.“
Það segir sitthvað um samfélag
þess tíma að tólf metra hár stál-
geymir þótti nógu sterklegur til
að verjast heimsendi. „Þetta líkt-
ist litlum olíutanki í dag og enginn
hefði trú á að hann myndi veita
mikla vörn. Þetta ber með sér
anda einfalds samfélags þar sem
tvílyft hús þóttu tilkomumikil.“
Stefán bætir því reyndar við að
heimildirnar fyrir þessu séu fáar.
„Ég talaði á sínum tíma við eldra
fólk, en þetta var alltaf dálítið á
flökkusagnastiginu. Það var
aldrei neinn sem hafði þessa sögu
frá fyrstu hendi, heldur var um að
ræða nágranna afans eða eitthvað
slíkt.“
Síðan 1910 hefur lítið verið um
að fólk hafi streymt í byrgi eða á
aðra örugga staði til að verjast
heimsendi og því má segja að Ís-
lendingar taki sögusögnum um
slíkt með rósemd. „Ég tel það vera
heilbrigðisvottorð á samfélag að
það sé erfitt að hræða fólk.“ ■
18 13. mars 2004 LAUGARDAGUR
Miðvikudagurinn 13. mars1996 er svartur dagur í sögu
Bretlands en þá ruddist Thomas
Hamilton inn í leikfimisal grunn-
skóla í bænum Dunblane í
Skotlandi. Þar skaut hann á allt
kvikt og myrti sextán börn á aldr-
inum fimm til sex ára, auk þess
sem hann skaut kennara þeirra til
bana og særði tólf önnur börn.
Hann beindi síðan byssu að sjálf-
um sér og svipti sig lífi.
Hamilton þessum var lýst sem
undarlegum einfara með af-
brigðilegar tilhneigingar. Hann
hafði ástríðufullan áhuga á skot-
vopnum og hafði verið rekinn úr
starfi skátaforingja árið 1974 fyr-
ir ósæmilega hegðun gagnvart
krökkunum sem hann hafði um-
sjón með. Breska þjóðin var
harmi slegin vegna atburðarins
enda var árásin í Dunblane hroða-
legasta fjöldamorð í sögu lands-
ins. Þjóðarsorg var lýst yfir og
John Major, þáverandi forsætis-
ráðherra, og Tony Blair, formaður
Verkamannaflokksins, heimsóttu
Dunblane til að votta íbúum og
aðstandendum þeirra myrtu sam-
úð sína. Atvikið vakti reiði og
óhug um alla Evrópu og þjóðar-
leiðtogar sáu ástæðu til að tjá sig
um málið.
Enginn hafði hugmynd um
hvað Hamilton gekk til með voða-
verkinu eða hvað það var sem
fékk hann til að fremja ódæðið.
Faðir hans, sem hafði yfirgefið
Thomas og móður hans þegar
drengurinn var tæplega tveggja
ára, kom fram í fjölmiðlum og
sagðist vera eyðilagður maður
yfir því að vera faðir „þessa
skrímslis“. ■
■ Andlát
Ágúst Karl Guðmundsson brunavörður,
Sléttuvegi 13, lést þriðjudaginn 9. mars.
Bjarni Tryggvason, Furugerði 1, Reykja-
vík, lést sunnudaginn 22. febrúar. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey.
Eyjólfur S. Einarsson er látinn.
Gísli Þórðarson lést miðvikudaginn 10.
mars.
Jón Árni Jónsson lést þriðjudaginn 9.
mars.
Jakob Jensson, Ástralíu, lést sunnudag-
inn 7. mars.
■ Jarðarfarir
10.30 Kári Ólfjörð Nývarðsson kennari,
Hlíðarvegi 59, Ólafsfirði, verður
jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju.
11.00 Jón Jónasson verður jarðsunginn
frá Sauðárkrókskirkju.
13.00 Hildur Kristjánsdóttir, Lundi,
Varmahlíð, Skagafirði, verður jarð-
sungin frá Sauðárkrókskirkju.
13.30 Guðmundur Jón Magnússon
verður jarðsunginn frá Dalvíkur-
kirkju.
14.00 Halldór Jónasson, Skúlagötu 4,
Stykkishólmi, verður jarðsunginn
frá Stykkishólmskirkju.
14.00 Jóhanna Thorarensen frá Kambi
á Ströndum, síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Sæborg á Skaga-
strönd, verður jarðsungin frá
Hólaneskirkju.
14.00 Ragnheiður Björnsdóttir, Smiðs-
húsum, Eyrarbakka, verður jarð-
sungin frá Eyrarbakkakirkju.
14.00 Sigurpáll Aðalgeirsson, Baðsvöll-
um 19, Grindavík, verður jarð-
sunginn frá Grindavíkurkirkju.
14.00 Stefán Björn Ólafsson múrara-
meistari, Ólafsvegi 2, Ólafsfirði,
verður jarðsunginn frá Ólafsfjarð-
arkirkju.
■ Afmæli
Erlingur Gísli Gísla-
son leikari er 71 árs.
Nýtt andlit hefur birst á skján-um undanfarna daga með Þór-
halli Gunnarssyni í Íslandi í dag,
andlitið á Þórey Vilhjálmsdóttur
sem mun verða fastur meðstjórn-
andi þáttanna. „Ég verð áfram
þegar Jóhanna kemur aftur,“ segir
Þórey og því ljóst að hún er ekki
einungis að leysa Jóhönnu af á
meðan sú síðarnefnda er í fríi. „Ég
er í hlutastarfi fyrst um sinn, bæði
að safna efni en svo verð ég eitt-
hvað á skjánum reglulega.“
Þó svo að Þórey bætist við
tvíeykið reiknar hún ekki með að
þátturinn muni breytast mikið
með tilkomu hennar. „Við höldum
áfram á sömu braut. Ég kem inn til
að létta aðeins undir með þeim
þannig að það verður bara ennþá
meiri kraftur í þættinum.“
Fyrsta viðtal hennar í beinni út-
sendingu var á fimmtudaginn fyr-
ir viku og viðurkennir Þórey að
hún hafi verið ansi stíf í því viðtali.
„En ég finn rosalega mikinn mun
núna. Það er gott að vera búin að
spreyta sig í eina viku og æfa sig.
Þetta er viðamikil útsending og
mikið sem þarf að huga að en mér
er farið að líða vel og vera afslapp-
aðri.“ Hún segist þó reyndar enn
fá fiðrildi í magann þegar kemur
að beinum útsendingum, „en nú er
fiðringurinn bara jákvæður en
ekki heftandi eins og í fyrstu út-
sendingunni.“ Þetta var þó ekki
frumraun Þóreyjar í sjónvarpi því
fyrir þremur árum síðan stjórnaði
hún þættinum Vélin í Sjónvarpinu
ásamt Kormáki Geirharðssyni.
Þórey var á tímamótum þegar
hún ákvað að þiggja boð dagskrár-
stjóra Stöðvar 2 um starf í þættin-
um. „Ég var að útskrifast úr við-
skiptafræði og farin að huga að því
hvað ég ætlaði að gera næst. Það
var smá tilvistarkreppa sem ég
lenti í þegar mér var boðið starfið
því viðskiptafræðin er ástríða mín
og ég stefndi alltaf á að gera eitt-
hvað henni tengt að loknu námi. En
ég ákvað að stökkva á þetta tæki-
færi því þetta er svo mikil reynsla
og ég held að það geri mér bara
gott upp á framtíðina þegar ég
mun gera eitthvað tengt viðskipta-
fræðinni.“
svanborg@frettabladid.is
Tímamót
ÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIR
■ Nýtt andlit í Íslandi í dag.
Saga
STEFÁN PÁLSSON
■ Fjallar um fólksflótta í geymi Gas-
stöðvarinnar vegna yfirvofandi heimsenda.ADAM CLAYTON
Bassaleikari U2 er 44 ára í dag.
13. mars
■ Þetta gerðist
1462 Jóhannes Gutenberg prentar
fyrstu Biblíuna með lausaletri.
1781 Stjörnufræðingurinn Herschel
finnur reikistjörnuna Úranus.
1881 Alexander II Rússakeisari er
myrtur.
1925 Þróunarkenningin er bönnuð
með lögum sem kennsluefni í
Tennessee.
1951 Teiknimyndasagan um Denna
dæmalausa kemur fyrir sjónir
bandarískra blaðalesenda í fyrsta
sinn.
1957 Alríkislögreglan handtekur verka-
lýðsleiðtogann Jimmy Hoffa
vegna gruns um mútuþægni.
1963 Krúsjéff, forseta Sovétríkjanna, er
boðið í opinbera heimsókn til
Kína.
1969 Geimfarið Apollo 9 hrapar í Atl-
antshafið.
1980 Ford-verksmiðjurnar eru sýknað-
ar af ákæru um manndráp af gá-
leysi eftir að þrjár konur brunnu
til dauða í Ford Pinto-bíl.
MICHAEL MOORE
Hefur vakið athygli á því að byssueign og
fjöldamorð brjálæðinga með skotvopn séu
þjóðfélagsvandamál sem einkenni Banda-
ríkin. Evrópubúar voru skelfingu lostnir
þegar voðaverk á borð við þau sem Moore
berst gegn var framið í Skotlandi.
Harmleikur í Dunblane
THOMAS HAMILTON
■ Gekk berserksgang, vopnaður fjórum
skammbyssum, í leikfimisal grunnskóla í
Dunblane.
13. mars
1996
Þórey í dagÞÓREY VILHJÁLMSDÓTTIRSegir að hún og Jóhannaséu ekki systur þótt þærberi sama föðurnafnið.Margir hafi spurt að
þessu en þetta sé bara
skemmtileg tilviljun.
Brennivín til
síðustu stundar
STEFÁN PÁLSSON
Einn þeirra sem halda fyrir-
lestur í Kornhlöðunni í dag
klukkan 14 í tilefni 50 ára af-
mælis Borgarskjalasafnsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
JÓ
N
AS
SO
N
Í fyrra...
...voru allir dauðarokksdiskarnir mínir
ofan í kassa vegna plássleysis.
Núna...
...hef ég dustað af þeim rykið og er
kominn aftur á þá skoðun að Entombed
sé mesta og besta rokksveit sem uppi
hefur verið.
Frosti Logason, gítarleikari Mínus
og útvarpsstjóri X-ins 977.
Breyttirtímar