Fréttablaðið - 13.03.2004, Qupperneq 24
Kosningabaráttan íBandaríkjunum er
farin að taka á sig mynd,
þrátt fyrir að frambjóðandi
Demókrataflokksins, John
F. Kerry hafi ekki enn verið
útnefndur formlega sem for-
setaframbjóðandi. Það hefur
vakið athygli að George W.
Bush Bandaríkjaforseti hef-
ur ekki kosið að standa
þögull hjá, á meðan
demókratar ljúka
sér af, eins og
margir Banda-
ríkjaforsetar í
sömu stöðu hafa
oftsinnis kosið
að gera. Bush
hefur þegar hafið
auglýsingaherð af
fullum krafti gegn
mótframbjóðanda sínum.
Fyrir viku síðan
fór af stað auglýs-
ingaherferð á vegum
Bush, þar sem hann
lagði áherslu á já-
kvæðan boðskap, þó
svo reyndar að
nokkrar
deilur hafi spunnist um efni aug-
lýsinganna, einkum um það hvort
að Bush leyfðist að nýta sér rústir
Tvíburaturnanna í New York og
myndir af slökkviliðsmönnum sér
til framdráttar. Skilaboðin voru í
stuttu máli þau, að saman hefðu
Bandaríkjamenn, undir stjórn
Bush, komist í gegnum mikla erf-
iðleika, og nú myndu þeir saman,
undir stjórn Bush, eiga betri tíma
í vændum. Bush vísaði allri gagn-
rýni á bug, en nú viku síðar slær
Bush hins vegar nýjan tón. Í gær
fór önnur auglýsingaherferð hans
í sjónvarpi í loftið. Þar leggur
hann áherslu á neikvæðan boð-
skap gegn mótframbjóðanda
sínum John Kerry.
Atlaga að Kerry
Í auglýsingunum full-
yrðir Bush að John Kerry
myndi „hækka skatta um að
minnsta kosti 900 billjónir“
kæmist hann til valda, og að
hann myndi veikja varnarkerfi
Bandaríkjanna, draga úr mögu-
leikum þeirra til að heyja stríð og
til þess að mæta hugsanlegum
hryðjuverkum. „John Kerry –
vondur í skattamálum, vondur í
varnarmálum,“ segir í auglýsing-
unni, sem fór í loftið í 18 mikil-
vægum ríkjum Bandaríkjanna í
gær.
Í herbúðum Kerry hefur verið
tekin ákvörðun um að mæta hver-
ri einustu atlögu af hörku, og
strax í gær voru viðbrögðin kom-
in, í gagnauglýsingu sem ætlað er
að mæta áróðri Bush. Þar er því
staðfastlega neitað að Kerry ætli
sér að hækka skatta og minnt er á
áætlanir hans um skattalækkanir
til handa millistéttarfólki.
„Enn á ný leiðir George Bush
Bandaríkjamenn á villigötur,“
segir í auglýsingu Kerry. „Eiga
ekki Bandaríkin betra skilið frá
forseta sýnum en neikvæðar og
misvísandi auglýsingar?“
Barist um skilgreiningar
Ákveðin ástæða er fyrir því að
kosningabaráttan hefst svo snem-
ma. Frambjóðendurnir keppast nú
við að skilgreina vígvöllinn og skil-
greina andstæðinginn í hugum
kjósenda. Liðsmenn Johns Kerry
eru taldir hafa unnið gott verk að
þessu leyti, hvað varðar ímyndar-
sköpun, í forvali Demakrataflokks-
ins, þar sem bandarískir kjósendur
hafa horft á frægðarsól Kerrys
rísa, í raun án þess að mjög margir
hafi séð slíkan árangur fyrir. Hann
hefur komið á óvart. John Kerry
birtist mönnum nú sem áreiðanleg-
ur og raunhæfur valkostur við
Bush, enda sýna nýjustu skoðana-
kannanir að hann hefur forskot á
forsetann.
Faðir Bush beið átekta í svipaðri
stöðu á sínum tíma, þegar Bill
Clinton hlaut útnefningu demókra-
ta, og hóf sína kosningabaráttu
seint. Líklegt er að sonur hans ætli
sér ekki að gera svipuð mistök nú.
Því er raunar haldið fram að
forsetinn sé einstaklega áfjáður í
að hefja baráttuna um þessar
mundir, og hann sé með hugann all-
an við hana. Kosningasjóðir hans
eru stútfullir af peningum og aug-
lýsingaherferðir hans eru þegar
orðnar þær dýrustu í sögu forseta-
kosninga í Bandaríkjunum. Samt
er hann rétt að byrja. Í Bandarísk-
um fjölmiðlum er það fullyrt að
auglýsingarnar núna séu algerlega
að undirlagi forsetans sjálfs, og að
engar ákvarðanir séu teknar í
kosningabaráttunni nema með
hans samþykki og vitorði, ef ekki
beinlínis að hans undirlagi. Hann
er því herstjórinn í sinni eigin
kosningaherferð, sem er ekki endi-
lega sjálfsagt mál. Stundum er for-
setanum hreinlega ýtt til hliðar af
auglýsingamönnum og ímyndar-
sérfræðingum.
Það er því Bush sjálfur sem hef-
ur ákveðið að freista þess nú að
skilgreina andstæðing sinn, sjálfan
sig og vígvöllinn í huga
kjósenda. Og leiðin
sem hann kýs að
fara er þessi:
Kerry er
s j a l d a n
nefndur
annað en
„frjáls-
l y n d i
maður-
inn frá
M a s s a -
c h u -
setts“ sem
vill hækka
skatta og
veikja varnir.
■ Maður að mínu skapi
24 13. mars 2004 LAUGARDAGUR
LJÓSIÐ Í MYRKRINU
„Ég upplifði það á myndinni sem var tekin
í Klink og Bank að Björgólfur eygði veginn
fram á við. Framundan var myrkrið og allt
óákveðið. Hann kom með ljósið fyrir litlu
listamennina,“ segir Ólafur Egill Egilsson
um myndina sem hann tók sjálfur.
Snyrtilegir
til fara
Björgúlfsfeðgar eru menn aðmínu skapi,“ segir Ólafur Eg-
ill Egilsson leikari. „Ég veit svo
sem ekkert hvað þeir eru að gera
í bisness og það eru ekki allir á
eitt sáttir við þá þar. En ég er
ákaflega ánægður
með það sem þeir
hafa verið að gera
fyrir listabransann.
Björgólfur eldri og
Landsbankinn hans
opnaði meðal ann-
ars Klink og Bank í
gamla Hampiðju-
húsinu fyrir unga
listamenn. Björgólfur yngri hefur
hins vegar verið sérstakur vel-
gjörðarmaður Vesturportsins og
styrkti meðal annars útrás okkar.
Án hans hefði ævintýrið með
Rómeó og Júlíu í Lundúnum
aldrei átt sér stað. Hann stofnaði
líka í félagi við Vesturport list-
framleiðslufyrirtækið Artbox
sem stendur meðal annars að sýn-
ingunni Brim eftir Jón Atla Jónas-
son sem er sýnt í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu. Svo er hann hress og
skemmtilegur og góður partímað-
ur,“ segir Ólafur Egill. „Þeir feðg-
ar eru líka yfirleitt snyrtilegir til
fara. Það er nú alltaf kostur.“ ■
ÓLAFUR
EGILSSON
Harka er farin að færast í kosningabaráttuna í Bandaríkjunum þrátt fyrir að baráttan sé ekki formlega hafin.
Demókratar eiga eftir að ganga endanlega frá vali á framjóðanda, þótt John Kerry hafi tryggt sér útnefningu.
Bush sér þó litla ástæðu til að halda aftur af sér og auglýsingarnar frá honum dynja nú á bandarísku þjóðinni.
JOHN F. KERRY
Hefur ákveðið að svara hverri
árás af hörku, enda gamall her-
maður, og hefur þegar sett aug-
lýsingar í umferð þar sem hann
vísar ásökunum Bush á bug.
Stefnir í hörkusl
milli Kerry og B
Kerry lét þau orð
falla á miðvikudaginn að
repúblikanar væru „hópur
lævísra lygara“, en þessi
ummæli urðu til þess að
hópur þingmanna úr röðum
repúblikana gerði það sem
nú virðist vera til siðs að
gera í bandarískum stjórn-
málum: blés til auglýsinga-
herferðar.
,,
GEORGE BUSH
Ræðst beint á John F. Kerry í nýrri auglýs-
ingaherferð og sakar hann um að vilja
hækka skatta og veikja varnir Bandaríkjanna