Fréttablaðið - 13.03.2004, Side 28
28 13. mars 2004 LAUGARDAGUR
Ég er búinn að vera atvinnulausí rétt rúma viku og það hefur
lítið gerst. Ég er er skoða hvaða
möguleika ég á í stöðunni,“ segir
Guðjón Þórðarson knattspyrnu-
þjálfari, sem sagt var upp störf-
um hjá enska 2. deildar liðinu
Barnsley í byrjun mánaðarins.
„Það eru alltaf einhverjir mögu-
leikar – eitthvað sem ég verð sí-
fellt að vera vakandi yfir.“
Þetta er í annað sinn sem Guð-
jóni er sagt upp störfum síðan
hann lagðist í víking og hóf störf
sem knattspyrnustjóri. Hann
þjálfaði Íslendingaliðið Stoke City
um tíma en var sagt upp störfum
þótt hann kæmi liðinu upp um
deild. Guðjón hefur síður en svo
lagt árar í bát og ætlar að reyna
að komast að hjá öðrum liðum á
Englandi.
„Það eru ákveðnir aðilar sem
munu hjálpa mér í þeim efnum.
Markaðurinn hér er mjög harður
og óvæginn og það er ekki auðvelt
að komast inn. Ég sá það síðast að
það getur tekið tíma og það reynir
á þolinmæðina. En það er alltaf
möguleiki og þú skorar ekki nema
skjóta,“ segir Guðjón, sem var at-
vinnulaus í eitt ár áður en hann
fékk stöðuna hjá Barnsley. Í milli-
tíðinni vann hann þó að aukaverk-
efnum fyrir Aston Villa og um
nokkurra mánaða skeið í Noregi.
„Það er alltaf erfitt að hafa ekki
fasta vinnu. Ég hef aldrei verið án
atvinnu, þekki það ekki og kann
því illa,“ segir Guðjón, sem nýtti
þó tímann vel og sinnti sjálfum
sér. „Það er alltaf gott að fá tæki-
færi til að sinna sjálfum sér. Ég
hef hugað að eigin hagsmunum og
er heill á andlega og líkamlega
sviðinu.“
Árangur umfram væntingar
Guðjón var ráðinn til Barnsley
í lok júní á síðasta ári þegar
Kenny Moyes og Sean Lewis
keyptu félagið. Á þeim tíma var
Barnsley í greiðslustöðvun, öll
leikmannakaup voru bönnuð og
vinnuumhverfi Guðjóns því erfitt.
Knattspyrnustjórinn lét það þó
ekki hafa áhrif á sig og byrjaði
frábærlega með liðið. Moyes og
Lewis heltust úr lestinni og Peter
Ridsdale, fyrrum stjórnarformað-
ur Leeds, keypti félagið. Liðinu
gekk vel fram að jólum en síðan
fékk það aðeins átta stig af 33
mögulegum.
„Árangurinn sem slíkur var
langt umfram væntingar. Það má
segja sem svo að ég hafi að vissu
leyti orðið fórnarlamb eigin árang-
urs. Ég varaði mjög við vænting-
um því hópurinn var mjög þunn-
skipaður. Þegar ég gat stillt upp
öllum heilum var ég með ágætis
lið. Ég vissi hins vegar að þetta
yrði mjög erfitt. Í byrjun desem-
ber átti ég langan fund með eig-
endum félagsins og þá var mark-
mið félagsins mjög einfalt. Það var
fyrst og fremst að ná fjárhagsleg-
um og fótboltalegum forsendum á
rétta braut og ná stöðugleika. Það
voru engar kröfur um árangur. Þá
var sagt að ef við næðum í úrslita-
keppnina væri það algjör bónus
ofan á það sem við vorum að glíma
við,“ segir Guðjón.
Skiptir máli að þekkja fólk
Þegar knattspyrnustjóranum
Paul Hart var sagt upp störfum
hjá Nottingham Forest vegna lé-
legs árangurs var Guðjón látinn
fara en honum jafnframt þakkað
fyrir góð störf í þágu Barnsley.
„Þessi heimur á Englandi er
allt öðruvísi en gengur og gerist á
Íslandi. Það er oft sagt hérna úti:
„It’s not what you know - its who
you know“ sem hægt er að heim-
færa: „Það er ekki það sem þú
veist heldur hverja þú þekkir,“
segir Guðjón. „Ég vissi að Paul
Hart var hátt metinn hjá Ridsdale
og félögum og að hann yrði helsta
ógnin ef honum yrði sagt upp
störfum hjá Nottingham Forest.
Hann vann í mörg ár hjá þeim hjá
Leeds. Það má kannski segja svo
að það hafi frekar verið persónu-
leg tengsl og kynni þeirra á milli
sem réðu úrslitum um starfið mitt
en faglegar forsendur.“
Með ágætis sambönd
Guðjón segist vissulega vera
svekktur yfir því að hafa misst
starfið hjá Barnsley. „Ég held að
það séu allir svekktir með að
missa vinnuna, sérstaklega ef þér
er annt um hana og setur stolt og
kjark í það sem þú ert að takast á
við. Ég er engin undantekning þar
á. Viðskilnaðurinn er hins vegar í
góðu og enginn illska þar. Ég gerði
mér grein fyrir því á hvaða for-
sendum uppsögnin var enda var
ég í óvinnanlegri aðstöðu. Það er
kannski kaldhæðni örlaganna að
sá sem tekur við af mér var nærri
búinn að missa Nottingham Forest
niður um deild. Hann kom liðinu í
úrslitakeppni um laust sæti í úr-
valsdeildinni í fyrra en var með
liðið í fallsæti í deildinni í ár. Það
eru því kannski ekki fótboltaleg
rök fyrir ákvörðununum og styrk-
ir kannski það sem ég sagði að
margar af ákvörðunum eru teknar
í tengslum við hverja formennirn-
ir þekkja.“
Guðjón segist sjálfur hafa
komið sér upp ágætis samböndum
í knattspyrnuheiminum í Bret-
landi. Hann segist þó ekki þekkja
nógu marga formenn félaganna.
„Það eru formennirnir sem ráða
því hvað gerist hjá félögunum. En
ég held að það verði mér til fram-
dráttar að hafa unnið með Rids-
dale og félögum. Það var mjög
mikilvægt fyrir mig að vinna ein-
ungis með Englendingum og sýna
að ég gat gert hluti án þess að
vera í tengslum við aðra.“
Eini Íslendingurinn sem
hefur náð árangri
Það er ljóst að knattspyrnu-
heimurinn er afar harður enda
viðurkennir Guðjón fúslega að
hann hefði getað valið sér auð-
veldari starfsvettvang. „En það er
með þetta eins og svo margt
annað að þetta er mikil áskorun.
Fótboltalega séð var ég búinn að
gera allt sem hægt var að gera á
Íslandi. Ég ákvað að stökkva út í
vatnið þar sem það er hvað dýpst
og reyna fyrir mér. Ég var ágætis
sundmaður á mínum yngri árum
og er ekki vatnshræddur,“ segir
Guðjón og bætir við að Íslending-
ar sjái ekki það bakland sem
knattspyrnustjórarnir vinna á.
„Heimurinn er bæði harður fyrir
atvinnumennina og stjórana. Ég
er að berjast um örfá störf sem
eru í boði og það eru ekki margir
sem fara inn á þennan markað. Ég
er raunverulega eini útlendingur-
inn sem hefur verið að herja á
neðri deildirnar og eini útlending-
urinn sem hefur náð einhverjum
árangri þar. Einu útlendingarnir
sem starfa hérna eru í toppklúbb-
unum þar sem er nóg af öllu.“
Guðjón bendir máli sínu til
stuðnings á að hann hafi verið at-
vinnulaus í eitt ár en Bryan Rob-
son, fyrrum stjóri Middlesbrough
og fyrirliði enska landsliðsins,
hafi verið atvinnulaus í rúm tvö
ár. „Ég er að keppa í hörðum
heimi og það eru menn eins og
John Barnes sem hefur ekki
komist inn á markaðinn í mörg ár
þótt hann hafi reynt það ítrekað.
Það er fullt af stórum fótbolta-
nöfnum sem hafa reynt fyrir sér
en ekki komist inn. Það hlaupa
kannski ekki allir upp til handa og
fóta þegar þeir frétta af einhverj-
um G.Þ. frá Íslandi en ég hef feril-
skrána með mér og það er það
sem ég get selt.“
Guðjóni Þórðarsyni var fyrir rúmri viku sagt upp störfum hjá enska knattspyrnuliðinu Barnsley. Guðjón hefur ekki lagt árar í bát og ætlar
að reyna að komast aftur að á Englandi. Hann útilokar ekki að taka aftur við íslenska landsliðinu.
Fórnarlamb eigin árangurs
KNATTSPYRNUSTJÓRINN
„Ég mun fá mjög góð meðmæli frá Barnsley fyrir það sem ég vann að hjá þeim og stóð
fyrir. Ég hafði fullan stuðning fyrir þeim aðgerðum sem ég var að reyna að ýta áfram og
hafði fullan stuðning stjórnarmanna þar. Ég veit fyrir víst að Paul Hart mun halda því
áfram,“ segir Guðjón.
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON
Er atvinnulaus í annað sinn á
stuttum tíma. Hann hefur þó ekki
lagt árar í bát og ætlar að reyna að
herja á ensku deildina á ný.
Ég ákvað að
stökkva út í vatnið
þar sem það er hvað dýpst
og reyna fyrir mér. Ég var
ágætis sundmaður á mínum
yngri árum og er ekki
vatnshræddur.
,,