Fréttablaðið - 13.03.2004, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 13. mars 2004 35
ÍBerlín var nýlega flutt óperanDie Tote Stadt eftir austur-
ríska tónskáldið Erich Korngold.
Uppfærslan hefur vakið mikla
athygli og beint sjónum manna
að tónskáldi sem tónlistarfræð-
ingar telja vera einn af tónlistar-
snillingum 20. aldar. Korngold
fæddist árið 1897 og lést árið
1957. Hann byrjaði að semja tón-
verk 11 ára gamall og þá þegar
lýsti Gustav Mahler honum sem
snillingi og tónlistarfræðingur-
inn Ernest Newman sagði hann
vera hinn nýja Mozart. Giacomo
Puccini sagði að Korngold hefði
tvisvar sinnum meiri snilligáfu
en hann þarfnaðist og Richard
Strauss bar mikið lof á tónverk
hans. Tuttugu og þriggja ára
gamall samdi Korngold óperuna
Die Tote Stadt sem vakti gríðar-
lega hrifningu og átta árum síð-
ar var Korngold valinn, ásamt
Schoenberg, mesta núlifandi
tónskáld Austurríkis.
Korngold flutti 38 ára gamall
til Hollywood þar sem hann
samdi tónlist við 20 myndir, þá
síðustu árið 1956. Hann hlaut
tvisvar Óskarsverðlaun fyrir
tónlist sína, fyrir Hróa Hött og
Anthony Adverse, og er talinn
vera faðir nútímakvikmyndatón-
listar. Hann var þó flestum
gleymdur þegar hann lést. Árið
1984 var byrjað að hljóðrita tón-
list hans en Korngold þykir þó
ekki enn hafa öðlast þann viður-
kenningarsess sem honum ber.
Margir tónlistarsérfræðingar
gera sér vonir um að óperuflutn-
ingurinn í Berlín muni verða til
þess að þetta merka tónskáld fái
uppreisn æru. ■
ERICH KORNGOLD
Tónskáld sem var undrabarn og kallaður
hinn nýi Mozart. Þegar hann lést var hann
flestum gleymdur en áhugi á verkum hans
hefur vaknað á ný.
Í Berlín var nýlega flutt ópera eftir austurríska tónskáldið Erich Korngold.
Uppfærslan vakti mikla athygli:
Gleymdur snillingur endurvakinn
ast fyrir því sem fólk gerir í nafni
losta og munúðar innan vébanda
BDSM, að því gefnu að öryggi,
meðvitund og samþykki séu virt.
Kenndir sumra lúta t.d. að gríðar-
legri niðurlægingu og aðrir fá
mikið út úr því að klæðast regn-
göllum. Sérstakur regngalla-
klúbbur er starfræktur og hefur
hann haldið sín sérstöku sam-
kvæmi.
Þó skal ítrekað og skýrt tekið
fram að í umgengnisreglum
BDSM-félagsins segir að undir
engum kringumstæðum geti fé-
lagið samþykkt eða liðið á einn
eða annan máta: 1. Barnaklám eða
kynlíf sem tengist börnum undir
sjálfræðisaldri. 2. Dýraklám eða
kynlíf sem tengist dýrum. 3.
Nauðganir. 4. Heimilisofbeldi.
Gert erfitt fyrir
Þótt nú virðist komið að enda-
lokum BDSM-félagsins á Íslandi, í
bili í það minnsta, var það síðast í
lok nóvember sem gefið var út
fundarboð þar sem nokkur slag-
kraftur virtist í starfseminni. Á
fundinum var félagið kynnt for-
vitnum og væntanlegum félögum
auk þess sem farið var í grunn-
atriði fjötrunar, öryggisatriði,
tækni og hnúta.
Þá var rætt um vændisfrum-
varpið sem þá var til umfjöllunar
meðal þings og þjóðar en
atriði í því snerta þá
sem aðhyllast BDSM-
leiki. Á það var bent að
orðalagið „kynlífs-
þjónusta hverskonar“
væri æði víðtækt hug-
tak þó því væri fyrst
og síðast beint gegn
mansali og þvinguðu
vændi.
Svipuð umræða fór
fram innan félagsins
fyrir nokkrum misser-
um þegar skýrsla nefndar á
vegum dómsmálaráðuneytisins
um vændi og klám kom út en efni
hennar náði inn á svið BDSM
sinnaðra og fannst þeim sem
þrengt væri að frelsi sínu. Að
auki má nefna að ýmis tæki og
tól sem notuð eru til BDSM-
leikja þykja óæskileg og eru
jafnvel bönnuð og má þar
nefna handjárn og svipur.
Á þessu má sjá að líf og
yndi BDSM-fólks er síður en
svo auðvelt, lög og reglur
samfélagsins gera ekki ráð
fyrir ýmsum kenndum mann-
fólksins þó þær skaði engan
og séu í raun grunnur að full-
nægju og vellíðan.
bjorn@frettabladid.is