Fréttablaðið - 13.03.2004, Síða 41
■ Hvað merkir skiltið?
41LAUGARDAGUR 13. mars 2004
Nú eru liðin 15 ár síðan BMWkynnti síðast bíl úr 6 línunni.
V8 vélin er hin sama og er í 7 lín-
unni sem kynnt var á síðasta ári,
átta strokka línuvél sem skilar
333 hestöflum.
BMW kynnti fyrstu sjálf-
stæðu coupé-bílgerðina árið
1937, BMW 327. Nægur
tími var tekinn í það
að hanna nýja
coupé-inn og
koma fyrstu
eintökin á göt-
urnar nú í mars
um allan heim.
BMW 645Ci
Coupé fékk fullt hús stiga í
umsögn hjá tímaritinu WhatCar,
meðal annnars fyrir vel heppnaða
útlitshönnun og sérstaka þyngd-
ardreifingu á undirvagni sem
gefur aksturseiginleika sem jaðra
við fullkomnun.
Bíllin verður sýndur milli kl.
12 og 16 í dag. ■
SVAR:
Bannað að stöðva ökutæki.
Í árslok 2003 voru ökutæki ágötum höfuðborgarsvæðisins
skráð 131.251 talsins. Þann mikla
bílafjölda upplifa flestir öku-
menn á annatímum hversdagsins
og víst að ekki fer sem best um
bak margra að sitja fastir í um-
ferðarhnút eða við langkeyrslur
innanbæjar sem utan. Margir
kannast við trékúluteppi sem
smokrað er yfir bílstjórasætið til
aukinnar vellíðunar og baknudds,
en framþróunin í þeim geira er
stöðug.
Nú er hægt að fá í Bílanausti
nýjustu týpur trékúluteppis með
mjúkum kanti á alla vegu, en
einnig kúluteppi sem eru bólstr-
uð og nudda bæði bak og aftur-
enda, bílstjórum til mikils batn-
aðar. Teppin fást í svörtu, bláu og
gráu; litum sem falla vel að sæta-
áklæðum. Nýjasti meðlimur
nuddteppafjölskyldunnar er upp-
blásið nuddteppi sem veitir há-
marksstuðning við mjóbakið um
leið og það nuddar bak og herðar
bílstjórans. Nuddteppin má líka
nota heima og á skrifstofunni. ■
ÞREYTT Í BAKINU?
Leyfðu þér smá lúxus og fáðu
nudd í bílnum.
Nudd í ökuferðinni:
Bólstruð og uppblásin
nuddteppi í bílinn
BMW 645CI COUPÉ
Fékk fullt hús stiga í umsögn hjá tímaritinu
WhatCar.
BMW 645Ci Coupe kynntur hjá B&L:
Fyrsta sexan í 15 ár
Það besta við bílinn minn erhvað hann er stór,“ segir
Péturína Laufey Jakobsdóttir,
sem varð akstursíþróttamaður
ársins 2001 en hefur nú látið akst-
ursíþróttirnar víkja í bili fyrir
móðurhlutverkinu. „Þetta er
Landcruiser á 38“ dekkjum. Það
taka náttúrlega allir eftir svona
stórum bíl og þegar ég kem í bæ-
inn fréttist það. Þegar ég legg í
stæði þarf ég heldur ekkert að
hafa áhyggjur af því að fólk skelli
hurðum eða öðru utan í bílinn, það
lendir bara á dekkjunum og brett-
unum. Svo get ég bara hoppað upp
í bílinn og keyrt af stað, hvernig
sem veðrið er. Þetta er mjög mik-
ið frelsi og ekkert vesen.“
Péturína segist stundum fara í
fjallaferðir á jeppanum og þá sé
gott að hafa mikið pláss inni í hon-
um. „Ég bý á Skagaströnd og
keyri oft til Reykjavíkur, þannig
að ég er mjög mikið á ferðinni.“
Hún er nú samt að fara að selja
bílinn og segist ætla að fá sér
bæði jeppa og fólksbíl í staðinn.
„Ég mun örugglega alltaf eiga
jeppa en svo þarf maður stundum
líka að fara hratt,“ segir hún
hlæjandi. ■
PÉTURÍNA LAUFEY JAKOBSDÓTTIR
Akstursíþróttakona sem er ánægð með
að vera á stórum bíl.
Það besta við bílinn minn:
Mikið frelsi sem
fylgir stórum bíl