Fréttablaðið - 13.03.2004, Qupperneq 57
57LAUGARDAGUR 13. mars 2004
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
MARS
Laugardagur
Landsvirkjun hefur sett á stofn sjó› til styrktar nemendum á fram-
haldsstigi háskólanáms (meistara- og doktorsnám) sem eru a› vinna
a› lokaverkefnum sínum og ver›a styrkir veittir úr sjó›num árlega.
Ákve›i› hefur veri› a› verja samtals 3 milljónum króna í námsstyrki á
flessu ári og ver›ur fyrstu styrkjunum úthluta› í maí næstkomandi.
Hver styrkur ver›ur a› lágmarki 400 flúsund krónur.
Markmi› me› námsstyrkjunum er a› efla menntun og hvetja til
rannsókna á hinum margvíslegu svi›um sem tengjast starfsemi
Landsvirkjunar. Umsækjendur eru sérstaklega hvattir til a› kynna sér
hina fjölbreyttu starfsemi Landsvirkjunar á vefsí›u fyrirtækisins.
Styrkjunum er ætla› a› standa undir hluta af kostna›i vi› lokaverkefni
sem hafi› er e›a mun hefjast á flessu ári. Umsækjendur flurfa a› leggja
fram l‡singu á verkefninu, me›mæli lei›beinanda og rökstu›ning fyrir
flví a› verkefni› tengist starfsemi Landsvirkjunar.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, merktum:
„NÁMSSTYRKIR LANDSVIRKJUNAR 2004“.
Umsóknarey›ublö› og nánari uppl‡singar um styrkveitinguna og starf-
semi Landsvirkjunar er a› finna á vefsí›u Landsvirkjunar, www.lv.is.
Einnig veitir Ólöf Nordal upplýsingar í síma 515 9000 og olof@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl 2004.
Öllum umsóknum ver›ur svara› og fari› me› flær sem trúna›armál.
Styrkir til nema
á framhaldsstigi
háskólanáms
Landsvirkjun er í hópi stærstu fyrir-
tækja landsins. Tilgangur fyrirtækisins
er a› stunda starfsemi á orkusvi›i
ásamt annarri vi›skipta- og fjármála-
starfsemi. Hjá Landsvirkjun starfa um
330 starfsmenn me› mjög fjölbreytta
menntun.
Forgangsverkefni fyrirtækisins eru
m.a. a› taka flátt í fyrirhugu›um breyt-
ingum á skipulagi orkumála til a›
tryggja stö›u Landsvirkjunar á orku-
marka›i og efla gæ›a- og umhverfis-
stjórnun. Mikil áhersla er lög› á nú-
tíma mannau›sstjórnun me› áherslu á
flekkingarstjórnun, fjölskylduvænt
starfsumhverfi, jafnrétti og tækifæri til
starfsflróunar.
L a n d s v i r k j u n a u g l ‡ s i r e f t i r u m s ó k n u m u m s t y r k i v e g n a m e i s t a r a - e › a d o k t o r s v e r k e f n a
RAFMAGN Á ÍSLANDI 1904–2004
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
0
1
4
1
4
•
s
ia
.i
s
Deildabikarkeppni KSÍ:
KR vann
Fylki
FÓTBOLTI KR-ingar unnu Fylki 2-1 í
A-riðli deildabikarkeppni karla í gær-
kvöldi. Sölvi Davíðsson og Arnar Jón
Sigurgeirsson skoruðu mörk KR á
fyrsta korterinu en Ólafur Stígsson
skoraði glæsilegt mark fyrir Fylki
snemma í seinni hálfleik. KR-ingar
voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik
en Fylkismenn voru mun aðgangs-
harðari í þeim síðari og bjargaði
Kristján Finnbogason KR-ingum
nokkrum sinnum með góðri mark-
vörslu. KA er efst í A-riðlinum með
níu stig. KR-ingar eru í öðru sæti með
sjö stig en KA og KR leika á Akureyri
um næstu helgi. Fylkir hefur þrjú
stig eftir þrjá leiki. ■
■ ■ LEIKIR
14.00 Kvennalandslið Íslands og
Skotlands eigast við í vináttuleik í
fótbolta í Egilshöll.
15.00 Fram tekur á móti KA í
Remax-úrvalsdeild karla.
15.00 Stjarnan og Haukar eigast við í
Remax-deild kvenna í handbolta.
16.00 Hamarsmenn taka á móti
Snæfelli í Hveragerði í körfubolta.
16.00 Tindastóll og Keflavík mæt-
ast á Sauðárkróki í körfubolta.
16.00 ÍR taka á móti Gróttu KR í
Remax-úrvalsdeild karla.
16.30 Haukar og Valsmenn eigast
við á Ásvöllum í handbolta karla.
17.,00 HK sækir Stjörnuna heim í
Remax-úrvalsdeild karla.
■ ■ SJÓNVARP
12.15 Bolton og Chelsea í beinni á Sýn.
14.24 Þýski fótboltinn, beint frá leik
Bayern og Hansa Rostock
14.45 Enski boltinn á Stöð 2. Beint
frá leik Blackburn og Arsenal.
16.20 ÍBV og Brodosplit frá Króatíu í
8-liða úrslitum Evrópu í beinni.
20.20 Spænski boltinn í beinni á
Sýn. Real M. og Zaragosa
2.00 Hnefaleikar í beinni á Sýn.
ÍBV mætir Brodosplit Vranjic í áskorendakeppni Evrópu:
Erfitt verkefni
en skemmtilegt
HANDBOLTI Þetta er fyrri leikur
liðanna í 8-liða úrslitum áskor-
endakeppninnar en sá síðari er á
morgun. Báðir verða þeir leiknir
úti í Eyjum.
Að sögn Aðalsteins Eyjólfs-
sonar, þjálfara Eyjastúlkna, er
mikill hugur í mannskapnum og
stefnan er að sjálfsögðu sett á að
komast áfram. Hann játar að
verkefnið verði erfitt en engu að
síður skemmtilegt. „Þetta er lið
sem er í öðru sæti í króatísku
deildinni og er með gríðarlega
sterka leikmenn innanborðs, þar
á meðal þrjá til fjóra króatíska
landsliðsmenn sem spiluðu á síð-
ustu HM,“ sagði Aðalsteinn.
„Þetta lið spilar mjög agressíva
3-2-1 vörn. Það er mikið um brot
og liðið er að spila mjög hraðan
bolta.“
Aðalsteinn segist ekki breyta
leikskipulagi sínu sérstaklega
fyrir þennan leik. „Þú bjargar
engu núna á stuttum tíma. Vinnan
sem hefur verið unnin í vetur hef-
ur verið lögð fram til að geta átt í
höggi við svona lið. Það er bara
spurning hvort hún skili sér eða
ekki.“
Elísa Sigurðardóttir, fyrirliði
ÍBV, er meidd og verður ekki með
í dag og skyttan Alla Gorkorian er
tæp vegna meiðsla. Óvíst er hvort
hún geti spilað. ■
KR vann í Grindavík
KR og Njarðvík unnu sína leiki í átta liða úrslitum Intersport-deildarinnar.
KÖRFUBOLTI KR vann Grindavík
99-95 í átta liða úrslitum
Intersport-deildarinnar í
körfubolta í gær. Leikurinn
var jafn allan tímann ef frá er
talinn kafli um miðjan fyrsta
leikhluta þegar Grindvíkingar
skoruðu ellefu stig í röð og
komust í 24-11. KR-ingar náðu
að minnka muninn í 25-19 fyr-
ir lok leikhlutans og komust
yfir með átta fyrstu stigum
annars leikhluta. Grindvíking-
ar náðu aftur forystunni 34-33
og bættu við forystuna fram
að leikhléi. Páll Axel Vilbergs-
son skoraði tvær þriggja stiga
körfur með stuttu millibili en
Magnús Helgason náði að
svara fyrir KR með þriggja
stiga körfu og laga stöðuna í
49-46 fyrir leikhlé.
Grindvíkingar byrjuðu
seinni hálfleikinn betur og
náðu fljótlega átta stiga for-
ystu, 55-47. KR-ingar unnu
muninn upp hægt og bítandi og
náðu forystu, 65-63, með
þriggja stiga körfu Skarp-
héðins Ingasonar. KR-ingar
létu forystuna ekki af hendi.
Þeir leiddu 78-74 eftir þriðja
leikhluta og náðu mest tíu
stiga forskoti í þeim fjórða.
Grindvíkingar sóttu hart að
KR-ingum undir lokin og tókst
að minnka muninn í eitt stig,
96-95, en KR-ingar héldu út og
unnu frækilegan sigur.
Darrel Lewis skoraði 33 stig
fyrir Grindvíkinga, Páll Axel
Vilbergsson 22 og Anthony
Jones sautján en hann átti
einnig tíu stoðsendingar. Elvin
Mims skoraði 25 stig fyrir KR,
Joshua Murray átján og
Jesper Sörensen og Skarphéð-
inn Ingason þrettán hvor.
Njarðvíkingar gersigruðu
Hauka á heimavelli 100-61.
Þeir leiddu 20-10 eftir fyrsta
leikhluta og 40-32 í leikhléi.
Njarðvíkingar stungu Hauk-
ana af í þriðja leikhluta, sem
þeir unnu 33-14, og bættu tólf
stigum við forskotið í fjórða
leikhlutanum.
Brandon Woudstra skoraði
21 stig fyrir Njarðvíkinga, Páll
Kristinsson átján, William
Chavis sautján og Brenton
Birmingham sextán. Michael
Manciel skoraði tólf stig fyrir
Hauka og Þórður Gunnþórsson
tíu. ■
GORKORIAN
Óvíst er hvort Alla Gorkorian geti leikið með ÍBV í dag vegna meiðsla.
MAGNI HAFSTEINSSON
KR-ingurinn Magni Hafsteinsson
sækir að körfu Grindvíkinga.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M