Fréttablaðið - 10.12.2004, Blaðsíða 81
61FÖSTUDAGUR 10. desember 2004
■ FRIÐARMÁLTÍÐ
Idolpartý
föstudagskvöld
Boltinn í beinni
Pool og margt
fleira.
Útgáfutónleikar
E.c. popp
Föstudagskvöld
kl. 22:30
Föstudags- og
laugardagskvöld
Rúnar Þór
Classik Sportbar
Ármúla 5 s. 568 3590
Við hliðina á gamla Hollywood
KRINGLUKRÁIN UM HELGINA
• Fjölbreyttur sérréttamatseðill
öll kvöld vikunnar
• Tilboðsmatseðill
fyrir Leikhúsgesti
• Hópamatseðill
• Sérsalur fyrir hópa
Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is
Upplyfting
með dansleik
alla helgina
■ ■ LEIKLIST
20.00 Leikélag Hafnarfjarðar
frumsýnir í gamla Lækjarskóla í
Hafnarfirði leikritið Birdy eftir Na-
omi Wallace byggt á bók William
Wharton. Þýðing og leikstjórn er í
höndum Ingvars Bjarnasonar.
■ ■ LISTOPNANIR
20.00 Níu listamenn opna vinnu-
stofur sínar í Skipholti 33b gest-
um og gangandi. Sýningin verður
opin alla helgina 14-17.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Hljómsveitin Upplyfting
skemmtir á Kringlukránni.
Stórsveit Adda M. spilar á Catalinu.
Eyjólfur Kristjánsson og félagar
mæta órafmagnaðir á Dátann,
Akureyri.
Hljómsveitin Póstur & sími leikur í
kjallaranum á Celtic Cross, en á
efri hæðinni spilar hljómsveitin
Acoustics.
Dansleikur með hljómsveitini Tilþrif í
Klúbbnum við Gullinbrú.
Atli skemmtanalögga og Áki pain á
Pravda.
Krummi þeytir skífum á Dillon.
Liz Gammon leikur fyrir gesti á Café
Romance, Lækjargötu 10.
Strákarnir í Kung Fú gera allt brjálað
á Lundanum í Eyjum.
Hljómsveit Hilmars Sverrissonar
leikur fyrir dansi í Vélsmiðjunni,
Akureyri.
Dúettinn Halli og Kalli skemmta á
Ara í Ögri.
■ ■ FUNDIR
12.00 Mannréttindaskrifstofa Ís-
lands, í samvinnu við Rauða kross
Íslands, efnir til hádegisfundar í
Norræna húsinu um málefni
flóttamanna og hælisleitenda.
Frummælendur eru Katrín Theo-
dórsdóttir, Katla Þorsteinsdóttir,
Rósa Dögg Flosadóttir og
Jóhanna Eyjólfsdóttir en Guðrún
D. Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mannréttindaskrif-
stofu Íslands, stýrir fundi.
■ ■ SÝNINGAR
16.00 Sýning á verkum nema úr
hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskólans og viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík verður opin
í Hafnarhúsi, Listasafni Reykjavík-
ur, til sunnudagsins 12. desem-
ber.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Opið upp á gátt
HUGGULEG STEMNING Í SKIPHOLTI Níu ungir listamenn opna sýningu á vinnustof-
um sínum í Skipholti í kvöld. Sýningin verður opin yfir helgina.
Nú yfir helgina ætla níu lista-
menn í Skipholti að opna vinnu-
stofur sínar fyrir gestum og gang-
andi.
„Þetta er þriðja sýningin af
þessu tagi sem við höldum hérna,
yfirleitt í byrjun desember, og
erum þá að gera upp árið,“ segir
Margrét Norðdahl, ein listamann-
anna níu.
Hinir eru Hermann Karlsson,
Heiðar Þór Rúnarsson, Arndís
Gísladóttir, Karen Sigurðardóttir,
Þórunn Inga Gísladóttir, Ásta
Guðmundsdóttir og Sandra María
Sigurðardóttir.
Þrjú þeirra tóku þátt í Gras-
rótarsýningu Nýlistasafnsins
fyrir skemmstu. Ásta er fata-
hönnuður sem nú selur föt víða
um heim undir merkinu Ásta
Creative Clothing. Hermann er
ljósmyndari sem hefur innréttað
litla ljósmyndakompu í húsnæði
þeirra.
„Við útskrifuðumst flest úr
Listaháskólanum árið 2002 og
fórum strax að leita okkur að
vinnustofuplássi. Hérna erum við
öll með sérvinnustofur og svo er
sameiginlegt rými líka.“
Sýning verður í sameiginlega
rýminu og svo verður opið upp á
gátt í vinnustofunum.
Sýningin verður opnuð klukk-
an átta í kvöld í Skipholti 33b. Hún
verður síðan opin á laugardag og
sunnudag klukkan 14-17.
Húsnæðið er á fyrstu hæð fyr-
ir aftan Bingó Vinabæjar, þar sem
áður var Tónabíó.
Notaleg stemning verður í
vinnustofunum og hljómsveit á
staðnum eins og á fyrri sýningum,
skipuð trommuleikara, bassaleik-
ara og gítarleikara.
„Þetta er eiginlega band húss-
ins. Þeir hafa spilað hjá okkur í
hvert skipti, mæta bara og
djamma.“ ■
Friðarmáltíð ljósmyndarans og
listakokksins Spessa verður á Á
næstu grösum í kvöld, og er það í
áttunda skiptið sem Spessi sér
um matseldina fyrir jólin á vina-
legum stað í miðbæ Reykjavíkur.
„Þetta byrjaði þegar Gunn-
hildur rak staðinn. Hún spurði
mig hvort ég væri til í að elda
jólamat eins og ég eldaði heima
hjá mér,“ segir Spessi. „Mér leist
vel á þessa hugmynd og ákvað að
hafa svolitið gaman af þessu og
fékk ýmsa vini mína til að vera
með mér i þessu. Þessi uppskrift
sem ég nota er í matreiðslubók
sem staðurinn á og ætli hug-
myndin hafi ekki komið út af því
að um hver jól kom ég alltaf
hingað á Á næstu grös til þess að
fá uppskriftina í bókinni góðu
sem er í dag að detta í sundur. Ég
hef aldrei lagt uppskriftina á
minnið.“
Spessi fylgdi með í kaupunum
þegar nýir eigendur tóku við.
Tónlist hefur alltaf verið undir
borðhaldi. Í ár sjá þeir Helgi
Svavar Helgason trommari og
Davíð Þór Jónsson píanóleikari
um þá hlið máltíðarinnar og lík-
lega verða bræðurnir Ómar og
Óskar Guðjónssynir líka með.
„Það er alltaf svona fjöl-
skyldustemning yfir þessu öllu
saman. Allir á staðnum samein-
ast og verða fjölskylda.“ ■
VILTU AÐ FYRIRTÆKIÐ ÞITT FÁI MEIRI ATHYGLI?
Núna er tilboð á þjónustuauglýsingum
» Hafið samband í síma 515 7500
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
■ LISTASÝNING
■ TÓNLIST
Spessi eldar Á næstu grösum
SPESSI MEÐ DÓTTUR SINNI Friðarmáltíð Spessa verður á Næstu grösum í kvöld.
Platan Góðir hlustendur, með úr-
vali tónlistar hins góðkunna út-
varpsmanns Jónasar Jónassonar
úr skemmtiþáttum hans síðustu
45 árin, er komin út.
Á plötunni eru lög sem hafa að-
eins verið flutt einu sinni og
einnig landsþekkt lög eins og
Hagavagninn og Allt sem ég
elska. Platan er í senn heimild um
dýrmæta dagskrárgerð Jónasar
fyrir Ríkisútvarpið og spegill
mannlífs síðustu áratuga. ■
GÓÐIR HLUSTENDUR Platan Góðir
hlustendur með tónlist úr þáttum
Jónasar Jónassonar er komin út.
Heimild um
dýrmæta dagskrárgerð
80-81 (60-61) slanga 9.12.2004 19:09 Page 3